Morgunblaðið - 09.01.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009
Kostnaður almennings af banka-hruninu hrannast upp. Nú hefur
verið ákveðið að ríkissjóður taki yfir
lán, sem Seðlabanki Íslands veitti
smærri fjármálafyrirtækjum. Upp-
hæðin er allt að 300 milljarðar
króna, sem meðal annars voru lán-
aðar gegn veði í bréfum, sem Kaup-
þing, Glitnir og Landsbankinn gáfu
út.
Um hvað sner-ust þessi við-
skipti? Stóru
bankana þrjá
vantaði peninga,
en Seðlabankinn
vildi ekki lána
þeim beint. Var
þá gripið til þess
ráðs að gera
smærri fjármála-
fyrirtækin að
millilið. Þetta hljómar ekki gæfu-
lega og hafa þessi lán gengið undir
nafninu „eiturpillur“ í fjár-
málakreðsum.
Sú spurning hlýtur að vakna hversvegna í ósköpunum Seðlabank-
inn var tilbúinn að taka þátt í þess-
um leik á sínum tíma. Eða lét hann
plata sig?
Sparisjóðabanki Íslands (Icebank)skuldar langmest. Þar var Finn-
ur Sveinbjörnsson bankastjóri. Hann
hefur einnig starfað í fjármálaráðu-
neytinu og Seðlabankanum, verið
framkvæmdastjóri samtaka fjár-
málafyrirtækja og framkvæmda-
stjóri Kauphallar Íslands auk þess
sem hann var ráðgjafi Geirs Haarde
forsætisráðherra. Svo sat hann í
skilanefnd Kaupþings. Nú er hann
bankastjóri Nýja Kaupþings.
Litlu fjármálastofnanirnar hafakveinkað sér í þessu máli. Stóru
bankarnir hafi stillt þeim upp við
vegg og þær hafi nauðbeygðar tekið
þátt í leiknum.
Þátttaka þeirra var þó ekki ánumbunar. Síður en svo.
Finnur
Sveinbjörnsson
Áhrif af „eiturpillum“
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!"
"
#
$!#"
$!#"
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
%
&& '&
'
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
'
'
'
' '
%' '
'
'
'
'
*$BC
!"
#
$ % &
#
*!
$$B *!
( ) * &"
&) &"
#" +#
<2
<! <2
<! <2
( "* &, -&.!#/
D2
E
62
"
'((' #
*
B
)*
(
'
#
+
% %
#
/
,
( %
)* '
!
- - #.* '
-
#
01
&#"&&3 #
!#&,
GERA má ráð fyrir að tekjumissir bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar verði um einn milljarður á þessu ári
vegna minni atvinnuþátttöku og atvinnutekna
bæjarbúa og tekið er mið af þessu í fjárhagsáætl-
un bæjarins. Áætlunin var samþykkt á miðviku-
dag með átta atkvæðum en þrír sátu hjá. Sam-
kvæmt áætluninni verður rekstrarniðurstaða
A-hluta jákvæð um nær 87 m.kr. á árinu en hún
verður jákvæð um rúma 2.341 m.kr. samkvæmt
útkomuspá fyrir árið 2008, m.a. vegna 6.030 m.kr.
söluhagnaðar af hlutabréfum í Hitaveitu Suður-
nesja hf. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta verður
jákvæð um 236 m.kr. á árinu 2009 en verður já-
kvæð samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2008 um
liðlega 553 m.kr. Veltufé frá rekstri í A-hluta á
árinu 2009 er áætlað 860 m.kr. og samantekið fyrir
A- og B-hluta nær 1.617 m.kr. Öll almenn þjón-
ustugjöld í skólum og grunnþjónustu verði óbreytt
í krónutölu. Gjald fyrir kalt vatn lækkað um 15%
en heimild til hækkunar útsvars nýtt til að mæta
lækkun tekna af fasteignagjöldum.
Fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks í bæjar-
stjórn segja skuldir bæjarins hafa aukist um 13
milljarða frá í fyrra og að hver bæjarbúi skuldi nú
um 1,3 milljónir króna. Þá segir minnihlutinn fjár-
hagsáætlun meirihlutans ófullkomna og fulla af
óvissuþáttum. „Í útkomuspá fyrir árið 2008 er
gert ráð fyrir sex milljarða króna söluhagnaði fyr-
ir hlut bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja en sú upp-
hæð hefur ekki enn fengist greidd og mikil óvissa
ríkir um lyktir málsins sem komið er fyrir dóm-
stóla. Í fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2009 er
gert ráð fyrir einum milljarði króna í vaxtatekjur
af söluhagnaðinum. Hér er vísvitandi villandi
framsetning til að fegra reikninga bæjarins um sjö
milljarða króna,“ segir m.a. í bókun minnihlutans.
Tekjumissir bæjarins einn milljarður
Minnihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar segir skuldasöfnun bæjarins mikla
Eftir Gunnlaug Árnason
Stykkishólmur | Leikfélagið Grímnir í
Stykkishólmi sýnir um þessar
mundir söngleikinn „Jesús Guð dýr-
lingur“ og hefur fengið góða aðsókn.
Nú um helgina verður haldið í leik-
ferð til höfuðborgarsvæðisins.
Grímnir hefur sett upp leikrit á
hverju ári á fjörutíu ára starfsferli
sínum og verið mikilvægur liður í
menningarlífinu á staðnum. Í ár
varð fyrir valinu hin þekkti rokk-
söngleikur „Jesus Christ Superst-
ar“. Leikstjóri er Guðjón Sigvalda-
son, sem einnig stjórnaði
söngleiknum Óliver á síðasta ári.
„Jesús Guð dýrlingur“ er viðamik-
ið verk, það mesta sem Grímnir hef-
ur tekist á við. Fram koma 37 leik-
endur og hljómsveit skipuð ellefu
ungum hljóðfæraleikurum. Að auki
er fjöldi fólks að tjaldabaki.
Leiklistarval Grunnskóla Stykk-
ishólms stendur að sýningunni með
Grímni. Tekist hefur að vekja áhuga
á leiklist í skólanum og velja margir
nemendur í tveimur efstu bekkj-
unum hana sem valfag.
Söngleikurinn verður sýndur
þrisvar sinnum í Félagsheimili Sel-
tjarnarness um helgina; á laugardag
klukkan 19 og 22 og á sunnudag
klukkan 14.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Söngleikur Tónlistin er í aðalhlutverki í „Jesús Guð dýrlingur“.
Hólmarar leika dýr-
ling í höfuðborginni
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR