Morgunblaðið - 21.01.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
Stundum reyna menn að fegra sann-leikann aðeins án þess þó að fara
beinlínis með rangt mál.
Sigurður Einarsson, fyrrverandistjórnarformaður Kaupþings,
sagði í yfirlýsingu í fyrradag að engir
fjármunir hefðu farið úr bankanum
þegar sjeik Al-
Thani var lánað
fyrir 5% hlut í
bankanum.
Lánið var ekki íformi peninga
heldur bréfunum
sjálfum, sem sjeik-
inn greiddi ekki
fyrir. Gekk þetta
eftir með milli-
göngu félags Ólafs Ólafssonar, annars
stærsta hluthafa bankans.
Sigurður segir sjálfur að hlutirnirsem sjeikinn fékk hafi verið hlutir
sem hundruð ef ekki þúsundir ís-
lenskra fjárfesta höfðu selt bankanum
síðustu vikurnar fyrir kaupin.
Hvernig fóru þau viðskipti fram?Fóru heldur engir fjármunir út
úr bankanum vegna þeirra?
Viðleitni Kaupþings, eins og ann-arra banka fyrir hrun, til að halda
verði hlutabréfa uppi kostaði auðvitað
bankann skildinginn.
Peningarnir höfðu því streymt út úrbankanum „síðustu vikurnar fyr-
ir kaupin“.
Því til viðbótar voru sjeiknum af-hentar 50 milljónir dollara úr
sjóðum Kaupþings. Fékk Kaupþing
þá peninga til baka?
Nei, þeir voru notaðir í viðskiptumtil að losa sjeikinn undan per-
sónulegum ábyrgðum vegna kaup-
anna. Er þá rétt að segja að engir pen-
ingar hafi farið úr sjóðum Kaupþings?
Sigurður
Einarsson
Hálfkveðnar vísur
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!" #$%
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
% "$
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
*$BC
!
" #
!
*!
$$B *!
&
' ($ '$) % #$ *#
<2
<! <2
<! <2
& %$( + ,-."#/
C2
D
*
B
$ #
%
& !
<7
'
(
)%
!"* !
+
,*
%&
!-(
.!"* !
01
#22 #$
3)#"#+ ,
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
HÆSTIRÉTTUR hefur vísað frá dómi máli
ákæruvaldsins á hendur Jóni Ólafssyni, Ragnari
Birgissyni og Hreggviði Jónssyni. Þeir voru
ákærðir fyrir meiri háttar skattalagabrot og vís-
aði Héraðsdómur Reykjavíkur máli þeirra frá í
desember. Hæstiréttur tók raunar ekki afstöðu til
ákærunnar en vísaði málinu frá vegna formgalla.
„Fullt tilefni var því til að handhafi ákæruvalds
í þessu máli fylgdi einföldum en nauðsynlegum
formkröfum […] með því að taka fram í hvaða
skyni væri kært og hvaða kröfur gerðar,“ segir í
dómi Hæstaréttar. Saksóknari efnahagsbrota tók
aðeins fram í bréfi sínu til héraðsdóms 19. desem-
ber sl. að ríkislögreglustjóri hefði „tekið ákvörðun
um að kæra til Hæstaréttar úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur“. Honum bar hins vegar að taka
fram hvaða atriði yrðu kærð og hvaða kröfur
gerðar.
Sérstök ákvörðun Hæstaréttar
„Þetta er mjög sérstakt. Rétturinn hefur aldrei
vísað frá kæru vegna þessa og ég kom með ellefu
dæmi þar sem sama orðalag var notað, þ.e. sem
fellur ekki að kröfum lagaákvæðisins. Mér fannst
þetta alveg augljóst. Ég krafðist þess að úrskurð-
ur héraðsdóms yrði felldur úr gildi. Það er ekkert
öðruvísi,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota.
Ekki er víst að málinu sé þó lokið því Helgi
Magnús hefur óskað eftir heimild á grundvelli
sakamálalaga til að kæra úrskurð héraðsdóms
þrátt fyrir að frestur sé liðinn. Hann segist bjart-
sýnn á að ósk sín verði samþykkt.
Málið er talið fordæmisgefandi og mikilvægt að
fá sjónarmið Hæstaréttar fram, enda fjölmörg
önnur skattamál til rannsóknar. andri@mbl.is
Málinu vísað frá vegna formgalla
Hæstiréttur gerir kröfu til þess að saksóknari efnahagsbrota fylgi formkröfum
HREINDÝRAKVÓTINN á þessu
ári verður 1.333 dýr líkt og í fyrra,
samkvæmt auglýsingu Umhverfis-
stofnunar. Nú verða leyfðar veiðar á
925 kúm en í fyrra voru kýrnar 750
sem leyft var að veiða. Tarfakvótinn
dregst því saman og verða tarfaleyf-
in 408 í haust en voru 583 í fyrra.
Nokkrar breytingar verða einnig
á fjölda útgefinna veiðileyfa á hinum
ýmsu svæðum. Þannig fækkar t.d.
leyfum á svæðum 1 og 2, sem eru
stærstu svæðin, um 60 og á svæði 9
fækkar leyfum um 18. Hins vegar
fjölgar leyfum t.d. á svæði 3 um 15, á
svæði 7 um 30 og á svæði 8 um 35.
Umsóknarfrestur um hreindýra-
veiðileyfi er til 15. febrúar næstkom-
andi. Hægt er að skila inn rafrænum
umsóknum á skilavef veiðikorta.
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Hreindýr Hægt er að sækja um veiðileyfi á hreindýr til 15. febrúar 2009.
Hreindýraveiðileyfi
verða 1.333 talsins
Í HNOTSKURN
»Verð á veiðileyfum 2009 ásvæði 1 og 2 er 120.000 kr
á tarf en 65.000 kr. á kú.
»Tarfaleyfi á öðrum svæð-um kostar 80.000 kr. og
kýrleyfi 45.000 kr. Kálfar
felldra kúa kosta 20.000 kr.