Morgunblaðið - 21.01.2009, Síða 11
www.hlidarfjall.is Símsvari: 878 1515 Upplýsingasími: 462 2280 Skíða- og snjóbrettaleiga
Vinir Hlíðarfjalls eru:
Frítt á skíði um helgina
í boði Vina Hlíðarfjalls
Vinir Hlíðarfjalls eru leiðandi fyrirtæki í íslensku atvinnulífi
sem hafa stutt snjóframeiðslu í Hlíðarfjalli síðan 2006.
Í tilefni af frábærum árangri bjóða vinir Hlíðarfjalls öllu skíða
og snjóbrettafólki frítt í fjallið um helgina 24. og 25. janúar.
Renndu þér í Hlíðarfjall um helgina í boði Vina Hlíðarfjalls!
Fréttir 11ALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
HÁVAÐINN frá mótmælunum í
gær glumdi án afláts um allt Alþing-
ishúsið klukkustundum saman. And-
rúmsloftið var spennuþrungið á
göngum og lögreglumenn við alla
innganga. Ráðherrar og margir
þingmenn voru komnir til þings áður
en mótmælin hófust á Austurvelli kl.
13 og fyrsti þingfundur eftir jólaleyfi
hófst hálftíma síðar. Stjórnarand-
stæðingar gagnrýndu ríkisstjórnina
harðlega strax við upphaf þingfund-
ar, sem hófst á óundirbúnum fyr-
irspurnatíma og skoruðu á þingfor-
seta að fresta fundum þingsins.
„Þetta er umboðslaust fólk sem
hefur týnt sjálfu sér og er í forsvari
fyrir trausti rúna ríkisstjórn,“ sagði
Ögmundur Jónasson, Vinstri græn-
um, um formenn ríkisstjórnarflokk-
anna. Geir H. Haarde forsætisráð-
herra sagði mikilvægt að
ríkisstjórnin fengi vinnufrið, til þess
að koma í veg fyrir að nota þurfi öll
þau lán sem samið hafi verið um við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og einstak-
ar þjóðir. „Til þess að það sé hægt
þarf auðvitað að gera ýmsar ráðstaf-
anir hér innanlands, og þær geta
verið misjafnlega vinsælar,“ sagði
hann.
„Helvítis lyddugangur er þetta.
Hvað á fólk að standa lengi í mót-
mælastöðu á Austurvelli eða annars
staðar í borginni?“ sagði Helga Sig-
rún Harðardóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokksins. Hún var ósátt við
svör forsætisráðherra en hann var
m.a. spurður hvað ríkisstjórnin hefði
aðhafst frá því þingið fór í jólaleyfi.
Geir svaraði og sagði ríkisstjórnina
ekki hafa setið auðum höndum í jóla-
leyfinu og sagði aðgerðaráætlanir
smám saman að komast til fram-
kvæmda.
Sturla Böðvarsson, forseti þings-
ins, bað þingmenn um að gæta orða
sinna í þingsal.
Mótmælin fyrir utan höfðu nú náð
hámarki. „Vanhæf ríkisstjórn,“
hrópuðu mótmælendur og börðu á
glugga þinghússins.
Engum hleypt úr húsi
nema í lögreglufylgd
Viðskiptaráðherra hóf að mæla
fyrir frumvarpi um vátryggingar-
starfsemi en skömmu síðar var gert
hlé á meðan þingforseti fundaði með
formönnum þingflokka. Á fimmta
tímanum var þingfundi síðan frest-
að.
Um tíma var engu líkara en Al-
þingi væri í herkví. Ráðherrar og
þingmenn gátu ekki yfirgefið þing-
húsið og engum var hleypt út nema í
lögreglufylgd.
Þingið nötraði undir hávaða
og kröfum mótmælenda
Stjórnarandstæð-
ingar sóttu hart
að ríkisstjórninni
Morgunblaðið/Ómar
Heitt í kolunum Fjöldi fólks safnaðist að þinghúsinu meðan á þingfundi stóð, barði í glugga og hrópaði.
Í HNOTSKURN
»Þingfundurinn í gær stóðyfir í þrjár stundir og var
mun styttri en búist var við.
»Mælt var m.a. fyrir stjórn-arfrumvörpum um vá-
tryggingar og greiðslu til
líffæragjafa.
»Tíu þingmenn Samfylk-ingar eru með frumvarp
þess efnis að helmingur kjós-
enda getur krafist kosninga.
„EINS og ég hef undantekning-
arlaust gert, þegar athugasemdir
hafa borist frá Umboðsmanni Al-
þingis, þá mun ég leitast við það
í framtíðinni að fara eftir þeim
og haga embættisfærslunum í þá
veru, eins og hann túlkar stjórn-
sýslulögin,“ sagði Árni M. Mat-
hiesen fjármálaráðherra í svari
við fyrirspurn Árna Þórs Sig-
urðssonar, Vinstri grænum, í
gær.
Árni Þór gagnrýndi fjár-
málaráðherra harðlega fyrir
skipun dómara við Héraðsdóm
Norðurlands og vísaði til álits
Umboðsmanns Alþingis um mikla
annmarka á undirbúningi og
málsmeðferð ráðherrans. „Það er
bara engin þolinmæði í samfélag-
inu gagnvart svona stjórn-
sýslusubbuskap ráðamanna. Ekki
lengur,“ sagði Árni Þór.
Fer eftir
athugasemd
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-
maður vinstri grænna, gagnrýndi
harðlega við upphaf þingfundar að
á dagskrá fundarins væri frumvarp
Sigurðar Kára Kristjánssonar
Sjálfstæðisflokki og 14 annarra
þingmanna um sölu áfengis og tób-
aks. Sigurður Kári kom í ræðustól
og sagðist alveg geta fallist á að
þetta mál væri ekki brýnasta við-
fangsefni stjórnmálanna í dag.
Sjálfsagt væri að fresta umræðu
um það. Jón Magnússon, Frjáls-
lynda flokknum, kom einnig í ræðu-
stól og sagði sér að meinalausu þó
máli hans um tóbaksvarnir, sem
einnig var á dagskrá í gær, yrði
frestað.
Umræðu um
áfengi frestað