Morgunblaðið - 21.01.2009, Síða 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
✝ Sverrir HeiðarJúlíusson fæddist
að Skógum í Hörg-
árdal 1. maí 1967.
Hann lést á krabba-
meinsdeild Landspít-
alans 12. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hans eru Anna Soffía
Sverrisdóttir, f. 21.9.
1943 og Hjalti Arn-
arsson, f. 13.8. 1946.
Anna Soffía giftist ár-
ið 1968 Júlíusi Kristni
Valdimarssyni, f. 22.6.
1943, sem ættleiddi
Sverri. Anna og Júlíus slitu sam-
vistum 1983. Systir Sverris er Ragn-
heiður, f. 30.7. 1965 sem einnig var
ættleidd af Júlíusi, maki hennar er
Pétur Ólafsson, f. 16.3. 1963, börn
þeirra eru Ólafur Aron, f. 17.7. 1995
grunnskóla bjó hann á Akureyri og
varð stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1987. Hann flutti til
Hvanneyrar 1987 og varð búfræð-
ingur frá Bændaskólanum á Hvann-
eyri ári síðar og BSc í búvísindum
árið 1991. Árið 1996 öðlaðist hann
náms- og kennsluréttindi frá Kenn-
araháskóla Íslands. Sverrir Heiðar
hefur starfað við stjórnun og
kennslu við Landbúnaðarháskóla
Íslands frá árinu 1991, síðast sem
brautarstjóri búfræðibrautar.
Sverrir Heiðar var mikill félags- og
íþróttamaður og lagði sig fram við
uppbyggjandi starf með börnum og
ungmennum. Hann hafði UEFA-B-
þjálfaragráðu frá KSÍ og hefur um
árabil þjálfað knattspyrnu á vegum
Skallagríms og Umf. Íslendings.
Hann var og áhugamaður um skoð-
un og nýtingu villtrar náttúru, svo
sem fuglaveiðar, lax- og silungs-
veiðar auk hollrar útiveru.
Útför Sverris Heiðars fer fram
frá Akraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Jarðsett verður í Hvanneyrar-
kirkjugarði.
og Anna Rakel, f. 24.8.
1998.
Sverrir kvæntist
24.5. 2004 Emmu
Heiðrúnu Birg-
isdóttur, f. 17.9. 1968.
Börn þeirra eru tvö,
Álfheiður, f. 25.12.
1989, sambýlismaður
Björgvin Grétarsson,
f. 19.4. 1989 og Birgir
Þór, f. 3.11. 1993. For-
eldrar Emmu Heið-
rúnar eru Birgir
Guðnason, f. 29.10.
1947 og Ólafína Ólafs-
dóttir, f. 10.7. 1946.
Sverrir bjó fyrstu ár ævi sinnar á
Skógum í Hörgárdal en fjölskyldan
fluttist til Reykjavíkur og síðan til
Hafnarfjarðar þar sem hann stund-
aði nám í Víðistaðaskóla. Að loknum
Elsku pabbi. Eins og þú veist og
flestir sem þekkja mig vita á ég yf-
irleitt ekki erfitt með að tala og tjá
mig. En í þetta skipti skortir mig
orð. Ég á engin orð til þess að lýsa
óréttlætinu sem við erum beitt í
þessu lífi. Að horfa upp á sterkasta,
vitrasta, hressasta, hjartahlýjasta
og besta mann sem ég hef kynnst og
mun kynnast heyja þessa baráttu og
tapa að lokum er óréttlátt og svo af-
skaplega sárt. En þó að sorgin sé
sár þá höldum við áfram að lifa og
eigum stórkostlegar minningar til
þess að ylja okkur við. Hvers konar
maður þú varst sést best á öllu
þessu góða fólki sem þú áttir í kring-
um þig og elskaði þig af öllu hjarta.
Þú varst kennari út í gegn og ég
lærði svo margt af þér. Þú studdir
mig í tónlistinni, þjálfuninni, námi
og öllu öðru og kenndir mér svo
margt. Ég fullyrði það t.d. að ég
hefði ekki getað haft betri læriföður
í knattspyrnuþjálfuninni en þig. Þú
kenndir mér að ég get allt sem ég
ætla mér og þú hafðir alltaf trú á
mér og þó svo að þú hafir verið
tveggja barna faðir á prenti varstu
örugglega þúsund barna faðir í
raunveruleikanum. Þú hafðir trú á
öllum, fullorðnum og börnum, hvort
sem það var þitt eigið fólk eða fólk
sem þú hafðir þekkt í stuttan tíma.
Öllum vildirðu hjálpa heils hugar og
þessa aðila hvattir þú áfram á já-
kvæðan hátt og veittir þeim allan
þann stuðning sem þeir þurftu.
Margir af mínum vinum hafa ein-
mitt minnst á þetta við mig, hvað þú
gafst þeim mikið af þér. Þú hafðir
svo margt að gefa, þú varst þvílíkur
fróðleiksbrunnur. Það á eftir að vera
afar skrítið að geta ekki beðið pabba
um ráð, eða beðið pabba um að leysa
einhvern ágreining um hvað sé rétt
og rangt. Þó svo að ég geti ekki séð
þig og snert þig þá sé ég svo margt
af þér í mér. Ég er t.d. með nefið þitt
og kroppa alltaf skinnið í kringum
neglurnar þegar ég er að horfa á
sjónvarpið eins og þú gerðir. Því
ætla ég aldrei að hætta því það
minnir mig svo mikið á þig.
Eina vísu eftir Jóhannes í Kötlum
söngstu alltaf fyrir mig þegar ég var
lítil og henni mun ég aldrei gleyma:
Veistu að ég á lítinn dreng sem labbar
langt í burtu og rekur margar kýr.
:,:Hann er alveg eins og pabbi forðum,
elskar land og sjó og menn og dýr:,:
Ég man að ég hélt alltaf að vísan
endaði á: „Elskar land og að sjóða
menn og dýr“ en þú varst fljótur að
leiðrétta það með góðlátlegum
hlátri.
Elsku pabbi, það eru forréttindi
að hafa fengið að eyða þessum 19 ár-
um með þér, nú veit ég að þú ert ein-
hvers staðar að gera það sem þér
þykir skemmtilegast. Þú ert að leika
við börn, spila fótbolta, slá túnin, í
laxveiði eða að sýsla eitthvað þess
háttar. Þó ég viti ekki nákvæmlega
hvað þú ert að brasa þá veit ég fyrir
víst að þú ert að láta gott af þér leiða
og að hjálpa einhverjum sem þarf á
því að halda. Það huggar mig og ger-
ir mér kleift að kveðja þig. Þú kunn-
ir alltaf að láta mig brosa og þó þú
sért horfinn sjónum mínum þá
kanntu það enn.
Við sjáumst síðar, pabbi minn.
Þín dóttir
Álfheiður SHe.
Elsku nafni minn, mikið eru það
ömmu þinni þung og erfið spor að
kveðja þig í dag. Afi þinn og nafni
mun taka vel á móti þér og ég veit að
ykkur mun líða vel saman. Ég bið
guð að styðja og styrkja fjölskyldu
þína og vini í þessum mikla missi og
vona að minningin um góðan dreng
verði okkur leiðarljós inn í framtíð-
ina.
Elsku drengurinn minn, þakka
þér öll árin sem við áttum saman.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(HJH)
Álfheiður Ármannsdóttir.
Ekki hefði okkur grunað það að
þurfa að skrifa minningarorð um
okkar elskulega tengdason. Okkar
fyrstu kynni af honum voru í apríl
1988 er hann kom í fyrsta sinn inn á
heimili okkar í vinaboð hjá dóttur
okkar. Strax hrifumst við af þessum
unga manni, kurteis, hlýr, skemmti-
legur og svo vaskaði hann meira að
segja upp eftir sig. Síðan þá hefur
mikið vatn runnið til sjávar, hann
varð tengdasonur okkar rúmu einu
og hálfu ári seinna, gaf okkur 2
barnabörn og margt fleira.
Sverrir var einstakur maður, mik-
ið ljúfmenni og alltaf boðinn og bú-
inn til að rétta okkur hjálparhönd ef
á þurfti að halda. Þegar Olla hélt
upp á 60 ára afmælið sitt var hann
veislustjóri og fór alveg á kostum.
Var búinn að búa til mikla skemmti-
dagskrá með allskonar leikjum og
gríni.
Hann var góður félagi og mikill
veiðimaður. Margar veiðiferðir voru
farnar, aðallega í Grímsá og Anda-
kílsá, síðast í september 2008 en þar
veiddi Sverrir sinn síðasta lax.
Sverrir var einstakur veiðifélagi og
án efa einn af bestu fluguveiðimönn-
um landsins, ef það var fiskur í ánni
þá náði hann honum. Veiðiferðir
framtíðarinnar verða ekki eins án
hans og verður hans sárt saknað af
árbökkunum.
Við viljum þakka Sverri af öllu
hjarta þessi 21 ár sem við fengum að
hafa hann hjá okkur.
Hvíl í friði, elsku vinur.
Þínir tengdaforeldrar,
Ólafína og Birgir.
Hlýr, umhyggjusamur, snjall,
skemmtilegur, barngóður, bjart-
sýnn, leiðtogi, vinur, fyrirmynd, for-
dómalaus og algjört náttúrubarn.
Orð sem lýsa því hversu mikinn og
fallegan mann þú hafðir að geyma.
Þér tókst alltaf að láta öllum líða vel
í kringum þig, hafðir svo óbilandi trú
á öllum og náðir alltaf því besta fram
í fólki. Heiðarlegur og hreinskipt-
inn. Óteljandi minningar fara í
gegnum hugann þegar ég hugsa um
þig – sveitin hjá afa og ömmu – úti-
legur með mömmu og pabba – skíða-
ferðir – þú að slá í Skógum – fótbolti
– nýfædd lömb – reiðtúrar – söngur í
fjósinu – allar minningar svo ljúfar
og góðar. Við áttum samt eftir að
gera svo margt – en lífið hefur nú
tekið einhvern sveig sem við sem
söknum þín eigum eftir að læra að
feta. Líf þitt einkenndist af því að
vera góður við menn og dýr og bera
virðingu fyrir náttúrunni. Ég kveð
þig með miklum söknuði elsku
Sverrir – ævin þín var alltof stutt, en
umfram allt kveð ég þig með þakk-
læti og stolti. Þakklæti fyrir allar
fallegu, góðu og skemmtilegu minn-
ingarnar sem ég á og ég er stolt af
því að þú varst bróðir minn. Elsku
Emma, Álfheiður, Birgir Þór,
mamma mín, amma, Olla og Biggi,
Ólöf og Siggi og allir vinirnir, ég veit
að góður Guð styrkir ykkur og leiðir
ykkur áfram.
Þín systir,
Ragnheiður.
Jæja, elsku mási minn, þá er það
búið.
Mikið getur þetta líf verið öf-
ugsnúið. Í júní 2007, þegar þú
greindist, var það svo fjarri mér að
þú, þessi sterki og hrausti maður,
ættir einhvern tímann eftir að heyja
stríð við krabbamein og hvað þá að
tapa. Síðan þá er þetta búið að vera
erfitt en þú barðist eins og hetja allt
fram á síðasta dag.
Þegar við hittumst fyrst heima á
Esjuvöllum var ég ekki nema 7 ára
kryppildi, eins og þú kallaðir mig.
Þegar ég sá þig þá, hrökk ég eig-
inlega við því ég hafði aldrei séð
svona loðinn mann, mér fannst þú
eiginlega vera eins og api. Í barna-
legri einlægni minni bað ég um að fá
að klappa þér og sat ég í fanginu á
þér í góða stund og strauk á þér
handlegginn. Samband okkar var
gott, meira eins og við værum syst-
kini en mágur og mágkona og heyrð-
umst við oft í síma. Síðasta samtalið
okkar í síma var 2. janúar og rædd-
um við þá ýmislegt og grínuðumst
með hitt og þetta. Eftir þetta samtal
sendir þú mér SMS sem í stóð ½viti,
love you. Þetta SMS mun ég alltaf
geyma. Þegar ég sit hér og skrifa
þessi orð er margt sem flögrar í
gegnum hugann og margt sem kall-
ar fram bros.
Þegar hún Álfheiður ykkar fædd-
ist var ég ekki nema 9 ára og var ég
öskufúl yfir því að þið þyrftuð að
koma með þetta ljóta og leiðinlega
barn heim til mín og eyðileggja allt,
að mér fannst. Þá gerðir þú allt sem
þú gast til að láta mér líða betur,
fórst í bókabúðina og keyptir bók,
teikniblokk, tússliti og reglustiku og
kenndir mér svo um kvöldið að búa
til krossgátur. Þú varst einstakur í
að útskýra hluti fyrir mér og náðir
vel til mín. Þú sýndir mér fram á það
þegar Álfheiður fæddist hversu mik-
ilvæg ég var orðin, móðursystir og
mágkona aðeins 9 ára gömul. Mér
líkaði ekki orðið mágkona og þá
bjuggum við til orðin mási og mása,
og höfum við upp frá því notað þau.
Sverrir Heiðar
Júlíusson
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og
samúð við andlát og útför okkar ástkæra eigin-
manns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
GYLFA MAGNÚSSONAR,
Naustabryggju 23,
Reykjavík.
Hulda Dagmar Magnúsdóttir,
Magnús Gylfason, Dagrún Gröndal,
Gylfi Gylfason, Sigrún Ásmundsdóttir,
Örn Gylfason, Sveinbjörg Brynjólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra
JENNÝ HARALDSDÓTTIR
frá Seyðisfirði,
Holtagerði 30,
Kópavogi,
lést aðfaranótt þriðjudagsins 13. janúar á líknar-
deild Landspítalans, Landakoti.
Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn
22. janúar kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arndís B. Sigurgeirsdóttir, Bára K. Kristinsdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
JASON JÓHANN VILHJÁLMSSON,
Frostafold 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtu-
daginn 22. janúar kl. 15.00.
Anna María Lárusdóttir,
Sigríður Jóhannsdóttir,
Ómar Jóhannsson, Rósa Valdimarsdóttir,
Anna Rósa Jóhannsdóttir, Páll Sturluson
og afabörnin.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför okkar
ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
KRISTBJARGAR JAKOBSDÓTTUR,
Sunnuvegi 9,
Hafnarfirði.
Jón Finnsson,
Kristín Jónsdóttir, Ásbjörn Snorrason,
Kristbjörg Tinna, Jón,
Tindur Orri, Ylfa Hrönn,
Styrmir Ási Kaiser.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN SUMARLIÐADÓTTIR,
Heiðarhorni 6,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn
24. janúar kl. 14.00.
Leifur S. Einarsson,
Oddný Guðbjörg Leifsdóttir, Björn Ólafsson,
Leifur Gunnar Leifsson, Brynja Hjaltadóttir,
Bryndís María Leifsdóttir, Friðrik Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.