Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009 Þú varst alls staðar hrókur alls fagn- aðar, sama hvort það var í litlum fjölskylduboðum eða í stórum veislum. Þegar ég og Siggi giftum okkur árið 2005 varst þú veislustjóri og slóst auðvitað í gegn. Ég er svo þakklát fyrir að eiga veisluna á myndbandi og geta heyrt málróm- inn þinn og hláturinn þegar mig langar til. Vinkonum mínum þótti þú alltaf svo skemmtilegur, sérstaklega þegar þú varst að rúnta með okkur um helgar. Þá var ég orðin 16 ára og þú með mig í æfingaakstri á Jett- unni sem þið Emma gáfuð mér. Þær hlógu og hlógu að bröndurunum þín- um sem mér fannst vera frekar þreyttir því ég var búin að heyra þá svo oft. Árið 2003 fæddist hún Ína Mar- grét mín og óskaplega varðst þú glaður þegar hún brosti sína fyrsta brosi, til þín á afmælisdaginn þinn. Hún Ína missir mikið með þér, sinn besta frænda og vin. Í nóvember á síðasta ári fæddist svo Birgitta Lilja mín og ósköp finnst mér ósann- gjarnt að hún muni ekki kynnast þér nema í gegnum okkur. Elsku Sverrir, takk fyrir allt. Takk fyrir alla skemmtilegu veiði- túrana, sumarbústaðaferðirnar, ferðalögin og Portúgalsferðina. Ég passa gullin þín þau Emmu, Álfheiði og Birgi Þór og þú lítur eftir mínum (manstu, eins og við lofuð- um). Þín mása, Ólöf Inga. Elsku Sveppi minn (eins og þú lést mig kalla þig þegar ég gat ekki sagt Sverrir), takk fyrir allt. Þú varst alltaf svo skemmtilegur og góður. Þú varst alltaf tilbúinn að leika við mig þegar ég kom í sveitina til þín og Emmu. Núna verður Emma bara að taka við og fara með mig í fjósið og svona. Takk fyrir skemmtilegu stundirn- ar okkar í sumar þegar við, Álfheið- ur og Ásdís vorum að leika okkur saman úti í garði í sólinni. Álfheiður að sprauta á okkur úr vatnsbyssu og þú að taka af okkur myndir. Ég veit að þú varst orðinn mikið veikur og mamma og pabbi segja mér að núna sé þér batnað og þér líði vel. Ég veit að núna ertu búinn að hitta ömmu Stínu mína og saman sitjið þið á skýjunum og fylgist með mér og litlu systur minni, henni Birgittu Lilju. Ég sakna þín. Þín Ína Margrét. Nóttin er stjörnum prýdd, lognið algert og tunglið er fullt. Það er að- faranótt mánudagsins 12. janúar þegar Sverrir Heiðar, okkar kæri frændi og vinur, kveður þennan heim langt fyrir aldur fram. Maður spyr sig í sífellu hvort réttlætinu sé nú sinnt en svo er ekki í þessu tilfelli ef manngæði eru viðmiðið. En þau eru ekki viðmið, við erum öll jöfn gagnvart æðri máttarvöldum, það vitum við og þess vegna verður mað- ur að reyna að sætta sig við að vant- að hafi glæsilegt göfugmenni í hin- um hæðstu hæðum. Sverrir Heiðar var snillingur í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur, hvers manns hugljúfi og einstaklega gott að vera nálægt honum. Okkar fyrstu kynni voru þegar Emma frænka kom með kærastann í heim- sókn og enginn vafi var á því að hér var draumaprinsinn mættur. Hann var glæsilegur, talaði um allt milli himins og jarðar og átti maður fullt í fangi með að vera með á nótunum, svo vel var hann að sér í öllu því er bar á góma. Honum var boðið krem- kex frá Frón og hann kallaði það auðvitað eins og vel lesnum mönnum er lagið „Sæmundur í sparifötun- um“. Margar umræður heimfærði hann til sveitarinnar og samlíkingarnar komu þaðan. Allt var betra í sveit- inni og Sverri þótti vænt um æsku- slóðirnar fyrir norðan og síðar varð Borgarfjörðurinn, með Hvanneyri sem nafla alheimsins, það umhverfi sem hann unni mest. Hann var nátt- úruunnandi, fræðimaður um land- búnað, mikill áhugamaður um íþróttir, fuglaskoðun, laxveiði o.fl. Allir höfðu dálæti á Sverri, ekki síst börnin sem hann kynntist í gegnum þjálfarastarf sitt sem og vinir Álfheiðar og Birgis Þórs. Börn- in okkar fóru ekki varhluta af gæsku hans og notalegu viðmóti og átti hann til að mynda alltaf sleikjó handa þeim og smá fuglatíst fylgdi iðulega í kjölfarið. Hann spurði allt- af um hagi þeirra og hann lét þau finna að þau skiptu máli. Börnunum fannst Sverrir manna bestur og þau skilja ekki það óréttlæti sem hann þurfti að þola en þetta hefur kennt þeim að dauðinn getur verið óum- flýjanlegur og einnig að stundum geti hann verið lausn undan miklum þjáningum. Sverrir var duglegur að senda SMS og tölvupóst og þar sparaði hann ekki hrósyrðin í okkar garð og það þykir okkur afar vænt um. Við vorum englar í þínum augum, en þú varst stærri, sá allra stærsti. Það fellur í okkar hlut að senda þér síð- ustu kveðjuna: Þú hvarfst með tign og ást í okkar hjarta, og minningu varir þú nú. Og frelsarinn bíður með vonina bjarta, að fá besta engilinn, sem ert þú. Sverris er saknað, ekki síst munu Emma, Álfheiður og Birgir Þór þurfa að mæta augnablikum sem reynst geta erfið, en tilhugsunin um veikindi hans og erfiðleikar tengdir þeim munu gera þeim kleift að líta upp og þakka fyrir að til séu staðir þar sem fólk er losað undan þján- ingum sínum. Söknuðurinn og sorg- in yfir að hafa misst elskulegan eig- inmann og föður mun þó fylgja þeim um ókomna tíð. Elsku Emma, Álfheiður, Birgir Þór, Anna Soffía og Ragna, missir ykkar er mikill. Hvíl í friði, elsku Sverrir Heiðar. Þú varst fyrirmynd. Laufey og fjölskylda. Elsku Sverrir minn. Ég sit hér með augun full af tár- um og skrifa þessar línur á blað. Ég var 12 ára þegar þú fæddist í norð- urherberginu heima í Skógum á verkalýðsdaginn hinn 1. maí 1967. Mamma þín sagði að þú hefðir kallað „búbót fyrir bændur“. Það má nú segja með sanni að þú hafir staðið fyrir þeim orðum með sóma allan þinn starfsaldur sem kennari í bændaskólanum á Hvanneyri og ráðunautur bænda. Ekki varð ég neitt vör við hvað var að gerast í næsta herbergi við mig og steinsvaf alla nóttina. En það var bæði skrítið og skemmtilegt að vakna við að það var kominn lítill og fallegur frændi í hópinn okkar. Þú áttir eftir að vera í Skógum meira og minna þangað til þú varst um tví- tugt. Fyrst með mömmu þinni og systur og svo seinna þið systkinin mörg sumur hjá ömmu og afa að hjálpa til við búskapinn. Það eru svo margar fallegar og góðar minningar sem koma upp í hugann á þessari stundu sem verður gott fyrir okkur fjölskylduna að rifja upp og ylja okkur við. Þetta hefur verið afskaplega erfiður tími. Sér- staklega þessar síðustu vikur sem vonin fór smádvínandi um að þú myndir sigra þennan illvíga sjúk- dóm þrátt fyrir allar bænirnar sem beðnar voru þér til handa. En þinn tími virtist vera kominn svo ósanngjarnt sem mér finnst það. Þegar ég hugsa um það finnst mér þetta vera svo öfug röð, þú hefðir átt að lifa okkur sem eldri erum og við að taka á móti þér, en ekki öfugt. Ég trúi að við eigum eftir að hittast aft- ur og ég er þess fullviss að afi þinn og nafni hefur tekið á móti þér opn- um örmum, því svo nálægur hefur hann verið okkur undanfarnar vikur sem aldrei fyrr. Genginn er góður og fallegur frændi minn í blóma lífsins sem skildi eftir sig birtu og gleði hvar sem hann kom. En þjáningunni er lokið og nýr áfangi tekur við. Megi ljós kærleika og friðar lýsa þér til nýrri heima, elsku frændi minn. Ég bið Guð að styrkja elsku Emmu, Álfheiði og Birgi Þór svo og elsku systur mína Önnu, Röggu mína og fjölskyldu, mömmu mína og okkur öll sem söknum þín svo sárt. Þessi heimur hefur misst mikið en hinn er þeim mun ríkari að vera bú- inn að fá þig í lið með sér. Þín frænka, Sólrún Sverrisdóttir (Sóla). Þeir deyja ungir sem guðirnir elska á svo sannarlega við um ást- kæran frænda minn, Sverri Heiðar, sem við kveðjum í dag. Hugurinn hvarlar til æskustöðvanna í Hörgár- dalnum og margs er að minnast. Sverrir Heiðar, sonur elstu systur minnar, fæddist á æskuheimili okkar Skógum í Hörgárdal þar sem hann átti á uppvaxtarárunum sitt annað heimili hjá afa sínum og ömmu. Hann var ekki hár í loftinu þegar hann fór að taka þátt í bústörfunum ásamt Röggu systur sinni og áform frænda míns voru lengi vel að verða bóndi í Skógum. Á unglingsárunum voru þeir frændur og nafnar Sverrir Heiðar og Sverrir Ágúst oft að bolla- leggja um hvort þeir myndu ekki í framtíðinni verða bændur og búa saman í Skógum. Ýmislegt varð til þess að ekkert varð af þessum áformum en strengurinn norður var alltaf sterkur. Sverrir Heiðar helg- aði engu að síður krafta sína land- búnaði og menntaði sig á því sviði í Bændaskólann á Hvanneyri. Að námi loknu bauðst honum staða við skólann sem hann gegndi til æviloka. Á Hvanneyri naut Sverrir Heiðar sín vel og tók virkan þátt í öllu mannlífi staðarins. Þrátt fyrir ungan aldur hafði hann skapað sér virðingu, traust og vináttu víða um land fyrir störf sín. Samfélagið á Hvanneyri er fátækara og syrgir nú góðan dreng. Sverrir Heiðar var mikið náttúru- barn sem lýsti sér bæði í atvinnu og frístundaiðju. Hann fór oft með vin- um sínum í veiðiferðir og segja þeir mér að Sverrir Heiðar hafi lesið náttúru landsins af einstakri næmi og ef einhver fiskur var í ánni var minn maður kominn þar. Aldrei hafi hann heldur gleymt að hugsa um fé- laga sína í þessum ferðum því alltaf var hægt að leita til Sverris Heiðars ef einhver þurfti á aðstoð að halda eða vanhagaði um eitthvað. Kæri frændi, þú sýndir mikinn dugnað í veikindum þínum, tókst á við hvern dag með bjartsýni og þín- um góða húmor sem þú hélst alveg fram í andlátið. Núna eru allar þrautir horfnar og þú kominn í öruggar hendur hjá afa þínum og nafna sem örugglega hefur tekið vel á móti þér. Þín verður sárt saknað af fjölskyldu þinni og vinum. Elsku Anna systir, Ragnheiður, Emma, Álfheiður og Birgir Þór, guð gefi ykkur styrk og huggun í þessari miklu sorg. Hvíl í friði, elsku Sverrir Heiðar minn. Heiðrún Sverrisdóttir. Mín fyrsta minning um Sverri er frá því þegar við vorum báðir ný- fluttir í Rauðu blokkina við Hjalla- brautina í Hafnarfirði, sem þá var nýbyggð. Höfum líklega verið 5-6 ára gamlir og ég man að það komu strákur og stelpa til okkar þar sem við vorum að leika okkur í vinnupöll- unum sem voru utan á blokkinni. Voru þar komin Sverrir og Ragga, systir hans. Man ekki mikið meira um þetta, en alla vega urðum við Sverrir miklir vinir upp úr því og lékum okkur saman öll okkar æsku- ár. Vorum yfirleitt í sama bekk, auk þess sem við æfðum báðir handbolta og fótbolta með Haukum. Í minningunni var þessi tími sam- felldur leikur og gleði. Fótbolti á planinu fyrir framan blokkina eða uppi í skóla, kofabyggingar í hraun- inu og það sem hraustum og heil- brigðum strákum dettur í hug að framkvæma. Sumrin voru stundum dálítið einmanaleg, því um leið og skólanum lauk var Sverrir farinn í sveitina og kom ekki aftur fyrr en skólinn byrjaði. Ólíkt öðrum krökk- um hlakkaði ég alltaf til að skólinn byrjaði aftur því þá kæmi Sverrir í bæinn. Unglingsárin voru líka skemmti- leg í Hafnarfirði, þar vorum við hluti af nokkurra stráka vinahópi úr Víði- staðaskóla, sem gekk í gegnum ýms- ar dillur, eins og Grease-tímabil, pönktímabil og diskótímabil, sem Sverrir tók öll saman út með stæl. Þá eru minningar um fyrstu partíin, skólaböllin og ýmislegt fleira að ógleymdum öllum þeim rosalega mikilvægu íþróttaleikjum sem við vorum ýmist að taka þátt í, eða fylgj- ast með. Þegar Sverrir fór til Akureyrar til náms fækkaði samverustundunum eðlilega, hann náði þó að verða ör- lagavaldur í lífi mínu, því í tvítugs- afmælinu hans kynntist ég konunni minni. Við stofnuðum báðir fjöl- skyldur ungir og höfum síðan ann- aðhvort búið í sitt hvorum landshlut- anum eða þá í sitt hvoru landinu, svo sambandið hefur verið stopult. Í fyrra tókum við félagarnir svo loks á okkur rögg og drifum okkur til að heimsækja Sverri á Hvanneyri. Það var ákaflega skemmtileg kvöldstund og ýmsar góðar minningar rifjaðar upp. Það besta var nú samt að finna að Sverrir hafði ekkert breyst, hann var jafn opinn og skemmtilegur og það var nánast eins og við hefðum talað saman í gær, en ekki fyrir mörgum árum. Sverrir var mikill íþróttamaður og var góður í nánast sama hverju hann tók sér fyrir hendur. Var liðtækur í fótbolta og efnilegur handboltamað- ur. Hann spilaði yfirleitt í vinstra horni í sókn og var harðsnúinn varn- armaður. Það sem einkenndi hann öðru fremur var sigurvilji og ódrep- andi keppnisskap, hann gafst aldrei upp. Af því að dæma hvernig hann tókst á við sín erfiðu veikindi hafði það heldur ekkert breyst. Ég tel mig ákaflega lánsaman að hafa kynnst Sverri. Hann var glað- lyndur, oftast syngjandi, opinn og naut mikilla vinsælda. Umfram allt var hann góður vinur og drengur góður. Mér finnst það hræðilega ósanngjarnt að hann skuli hafa verið kallaður burt svona ungur og vil gjarnan senda eiginkonu hans, börn- um og öðrum fjölskyldumeðlimum innilegar samúðarkveðjur. Reynir Jóhannsson. Kveðja frá Landbúnaðar- háskóla Íslands Kær samstarfsmaður er fallinn frá langt um aldur fram eftir erfiða en hetjulega baráttu við ströng veik- indi. Minningarnar streyma fram, minningar um kraftmikinn og glað- væran dreng sem ávallt var tilbúinn að leggja sig allan fram til að vinna gagn í hverju máli. Ég kynntist Sverri fyrst sem námsmanni á Hvanneyri fyrir allnokkrum árum og er minnisstætt hversu góða nær- veru hann hafði, ávallt hress og kát- ur og drífandi hvort sem var í námi eða félagsstörfum. Bjartsýni var honum í blóð borin, það vitum við sem fylgdumst með átökum hans síðustu misserin, aldrei kom neitt annað til greina en að sigrast á veik- indunum og þetta hugarfar smitaði út frá sér. Hann hélt okkur félögum sínum vel upplýstum um stöðu mála hvað veikindin varðaði, það hjálpaði í vanmætti okkar hinna og lýsir styrk og æðruleysi Sverris. Að afloknu kandídatsprófi frá Hvanneyri réði Sverrir sig til skól- ans og starfaði þar allt til dánardags, lengst af við kennslu og stjórnunar- störf við búfræðibraut skólans. Hann var vinsæll kennari og sam- starfsmaður, dugmikill og skipu- lagður – hreinn og beinn. Hann bjó ásamt fjölskyldu sinni í þorpinu okk- ar á Hvanneyri og var samfélaginu þar afar mikilvægur. Hann lét sig öll framfaramál á staðnum varða og beitti sér óspart í þágu samfélagsins en sérstaklega var það íþróttastarfið og unga fólkið sem naut góðs af elju og krafti Sverris Heiðars. Hvanneyringar hafa misst öflugan liðsmann. Drífandi kennara við Landbúnaðarháskólann, hjálpsaman og góðan nágranna og driffjöður íþróttastarfs á staðnum. Fyrir hönd Landbúnaðarháskóla Íslands þakka ég Sverri Heiðari mikla tryggð og frábær störf í þágu skólans. Ég votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Minning um góðan dreng mun lifa. Ágúst Sigurðsson rektor. Margslungið er það lífið okkar mannanna og vægðarlaust erum við oft minnt á hverfulleika lífsins. Sól- skinsstundirnar eru þó sem betur fer oftast fleiri en hinar og lífið þá baðað í björtu ljósi. Ef lífið og ljósið, þetta tvennt, haldast í hendur þá líð- ur öllum vel. Þannig var líf vinar okkar, Sverris. Hann gekk svo sann- arlega sólarmegin í lífinu á sinni allt of stuttu ævi og flutti með sér birtu og yl hvar sem hann fór. Tengdur órofa böndum við náttúru landsins frá morgni lífsins. Sveitin fyrir norð- an þar sem æskuáranna var notið við fótskör stórfjölskyldunnar hvarf aldrei úr huga hans, svo kær var hún honum. Síðan starfið við uppfræðslu þeirra sem annast skyldu búin í sveitum landsins. Áhugamálið, lax- veiðin, sem hann naut svo mjög í hópi tengdafólks og vina. Þátttakan í lífi fólksins í héraðinu hans í leik og starfi. Skemmtilegur félagi á manna- mótum og gjarnan í forystu þar. Uppbyggingarstarfið sem hinir ungu vinir hans nutu á íþróttasvið- inu. Alls staðar, hvar sem komið var, hinn heilsteypti, heiðarlegi, skemmtilegi og trausti félagi og vin- ur. Frá okkar fyrstu kynnum höfum við fundið ómælda hlýju og vinsemd frá hans hendi við allt og alla í fjöl- skyldu eiginkonu hans og hann verið okkur öllum sannur vinur. Hann bjó yfir þvílíkum fjölbreyttum hæfileik- um að fágætt er um unga menn. Hann var óvenju mikill fjölskyldu- maður og treysti jafnan böndin við ættingja og vini með heimboðum og veislum í tilefni af afmælum og öðr- um viðburðum innan fjölskyldunnar. Ávallt hinn yndislegi maður sem öll- um fagnaði af stakri alúð. Eiginkon- an og börnin tvö voru eðlilega hon- um kærust og hann var stoltur faðir barnanna sinna og gladdist yfir ár- angri þeirra og þroska. Nú síðast þegar hann, farinn að kröftum, var viðstaddur stúdentsútskrift dóttur- innar þar sem fjöldi ættingja og vina kom saman til að gleðjast. Hverfulleiki lífsins hefur nú sýnt sig. Ungur maður er horfinn á braut og eftir stöndum við hnípin. Með þessu ljóði Friðriks Guðna Þórleifs- sonar kveðjum við okkar elskulega vin. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. Blessuð sé minning hins góða drengs. Einar og Erna, Guðni Krist- inn, Einar Gunnar og Þórey. Það lifir mjög sterkt í minning- unni þegar ég kom til Sverris og Emmu í „sveitina“ á Hvanneyri. Ég hef verið um það bil 11 ára gutti, blautur á bak við eyrun hvað varðar húsdýr og að óhreinka sig við „verk- in“. Í þessari heimsókn varð ég vitni að sauðburði í fyrsta og eina skiptið hingað til. Ég man hvað mér var tekið opnum örmum og af miklum hlýhug allra fjölskyldumeðlima og var strax tek- inn inn í hópinn án þess að við þekkt- umst vel, þó svo að ég og Sverrir séum bræðrasynir. Allar götur síðan kallaði Sverrir mig litla vinnumanninn sinn sem hann sagði með bros á vör og fyllir það mig stolti og ánægju þegar ég hugsa um það. Mér er það sannur heiður að hafa kynnst Sverri Heiðari, þó svo að vinátta okkar sé á enda komin í þessu lífi. Emma, Álfheiður og Birgir Þór, ég bið fyrir ykkur á þessu erfiðu tím- um. Valdimar Garðarsson.  Fleiri minningargreinar um Sverri Heiðar Júlíusson bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.