Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 1
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is TVEIR lögreglumenn eru alvarlega slasaðir eftir að hafa fengið í sig gangstéttarhellur í átökum við mótmælendur á Austurvelli í nótt. Þegar Morg- unblaðið fór í prentun hafði a.m.k. tíu táragas- sprengjum verið beitt til að dreifa mannfjöld- anum. Er þetta í fyrsta sinn sem lögreglan beitir táragasi síðan í mótmælunum á Austurvelli fyrir 60 árum. Einn mótmælandi var fluttur á slysa- deild vegna táragassins. Hvítur reykjarmökkurinn lagðist yfir Austur- völl og mótmælendur flýðu í skjól. Þegar dró úr reyknum sneru mótmælendur aftur og héldu áfram að kasta grjóti í lögregluna, sem þá aftur beitti táragasi. Á þriðja tímanum í nótt hafði mót- mælendahópurinn tvístrast. Hluti hans hafði farið að Stjórnarráðinu og þar var búið að úða rauðri málningu utan á húsið, meðan lítill hluti hópsins hélt sig í nágrenni við Alþingishúsið. Var lög- reglan með mikinn viðbúnað á svæðinu en kalla varð út varalið vegna aukinna mótmæla. Krafa um stjórnarslit Hávær mótmæli voru fyrir utan Þjóðleikhúsið á meðan fundur samfylkingarfólks í Reykjavík fór fram í gærkvöldi. Þar var samþykkt ályktun þess efnis að skora á þingflokkinn að beita sér fyrir því að ríkisstjórnarsamstarfinu yrði slitið og mynduð yrði ný ríkisstjórn fram að kosningum sem fram færu eigi síðar en í maí nk. Innan Sjálf- stæðisflokks er óánægja með framgöngu þing- manna Samfylkingar og „ístöðuleysi“ þeirra. Táragassprengjum beitt  Tveir lögreglumenn slasaðir eftir átök við mótmælendur á Austurvelli Morgunblaðið/Golli Á flótta Lögreglan varaði mannfjöldann við áður en táragasi var beitt og þá forðaði fólk sér. Morgunblaðið/Júlíus Sveið í augu Hvítur reykjarmökkur lagðist yfir Austurvöll og mótmælendur flýðu í skjól undir Landssímahúsið. Þegar dró úr reyknum sneru mótmælendur aftur og héldu áfram að kasta grjóti.  Mótmæli | 2, 4, 14 og 15 F I M M T U D A G U R 2 2. J A N Ú A R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 20. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is NÍU DAGA FERÐALAG Í MIKLU FROSTI UNDIRBÚA SIG FYRIR ÞREKRAUN GÓÐIR BYLTINGARSÖNGVAR Jagger ákafur boðberi byltingar H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 08 -0 08 0 NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is Leikhúsin í landinu >> 45 Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is FORYSTA Alþýðusambands Ís- lands vill fresta viðræðum um endur- skoðun kjarasamninga á vinnumark- aðinum fram í júní. Í millitíðinni verði boðað til þingkosninga og ný ríkisstjórn taki við, sem hafi nægi- legan styrk og óskorað umboð til að koma að þríhliða viðræðum með samtökum vinnumarkaðarins um uppbyggingu til framtíðar. Mið- stjórn ASÍ komst að þessari niður- stöð í gær og mun leggja hana fyrir formannafund allra aðildarfélaga ASÍ sem boðaður hefur verið á morgun. Fallist formennirnir á þetta verð- ur þess óskað við Samtök atvinnu- lífsins að frekari viðræðum um fram- lengingu kjarasamninga verði frestað fram í júní. Skv. heimildum er ástæðan ekki ágreiningur við at- vinnurekendur heldur er langlund- argeð ASÍ gagnvart stjórnvöldum brostið. Ekkert hafi gengið að fá þau að viðræðunum eins og nauðsynlegt sé til að koma á samstilltum aðgerð- um. ASÍ vill nýja ríkisstjórn ASÍ Miðstjórn ASÍ kom saman til fundar í gær þar sem samþykkt var harðorð ályktun um stöðu mála.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.