Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 28
28 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 Morgunblaðinu hefur borist mikill fjöldi greina og pistla frá lesendum um ástandið í efnahagsmálum landsins. Margir höfundar lýsa áhyggjum sínum af þróun mála og margir gera tillögur um leiðir út úr efnahagsvanda þjóð- arinnar. Morgunblaðið leggur áherslu á að gera þessum umræðum góð skil í blaðinu á næstunni. Skoðanir fólksins Mikilvægt er að leggja kapp á verðmætasköpun með þekkingu að leið- arljósi eins og felst í há- tækniiðnaði, menntun og rann- sóknum. Þetta þýðir ekki að við stöðvum vöxt í stóriðju og fisk- vinnslu, aðeins að við höfum ekki öll eggin í sömu körfunni. ’ SJALDAN hefur verið jafnmikilvægt að standa sterk saman og gefast ekki upp þótt á móti blási. Við höfum löngum verið ein hamingjusamasta þjóð heims, landið okkar býr yfir ótrúlegri náttúrufegurð sem heillar fólk hvaðanæva og við eigum enn eftirsókn- arverðar auðlindir af vistvænni orku. Meg- inmarkmið okkar hlýtur því að vera að viðhalda lífskjörum okkar, og standast samkeppni við þjóðir heimsins. Höfum opinn huga Kostir okkar í stöðunni eru í megindráttum tveir. Sá fyrri felur í sér áherslu á áframhald- andi vöxt í frumframleiðslu og hefðbundnum lágtækniiðnaði, svo sem með enn frekari ál- framleiðslu og fiskvinnslu. Í samanburði við há- tækniiðnað skilar slíkur iðnaður þó tiltölulega lítilli arðsemi. Hann skapar fyrst og fremst lág- launastörf og vaxtarskilyrðin eru takmörkuð því náttúruauðlindir á borð við sjávarfang eru takmarkaðar og fara þverrandi. Þrátt fyrir að fiskvinnsla og stóriðja hafi stuðlað að örum vexti í íslensku efnahagslífi á 20. öld hafa tím- arnir breyst og brýnt að huga að arðsemi í fleiri atvinnugreinum. Mikilvægt er að leggja kapp á verðmæta- sköpun með þekkingu að leiðarljósi eins og felst í hátækniiðnaði, menntun og rannsóknum. Þetta þýðir ekki að við stöðvum vöxt í stóriðju og fiskvinnslu, aðeins að við höfum ekki öll egg- in í sömu körfunni. Hátæknifyrirtæki má skil- greina sem fyrirtæki sem nota a.m.k. 4% af eig- in veltu í rannsóknir og þróun (r&þ). Þannig flokkast mörg upplýsingatækni- og lyfjafyr- irtæki sem hátæknifyrirtæki en almennt eru fyrirtæki í stóriðju og fiskiðnaði það ekki. Ein framtíðarsýn íslensku ríkisstjórnarinnar þegar árið 1996 var að upplýsingatæknin ætti að vera í lykilhlutverki við að breyta íslensku samfélagi í þekkingarþjóðfélag. Þar yrði þekking ein mik- ilvægasta auðlindin og miðlun hennar og vinnsla ein veigamesta starfsgreinin. Einn mætur maður komst svo vel að orði að segja að þekking væri auðlind sem yxi þeim mun meira sem af henni væri ausið. Finnum ekki upp hjólið Vert að benda sérstaklega á tvö ríki sem hafa náð gríðarlegum árangri við að auka hlutdeild hátæknifyrirtækja í þjóðarframleiðslu, nefni- lega Írland og Finnland. Í byrjun 8. áratugar síðustu aldar var alvarleg efnahagskreppa á Ír- landi sem olli miklu atvinnuleysi og brottflutn- ingi fólks. Miklar breytingar áttu sér stað í landinu næsta áratuginn, til að mynda var menntakerfið stóreflt með hjálp styrkja frá Evrópusambandinu. Sú stefna var tekin að laða erlend hátæknifyrirtæki til landsins, með því að bjóða fyrirtækjum t.d. ofurlága skatta (í kring- um 10-13%). Á þeim tíma var gott úrval af menntafólki, og fyrirtæki á borð við Dell, IBM, Microsoft og Intel þustu til Írlands. Framan af fylgdi helstu verksviðunum tiltölulegan lágur virðisauki, svo sem störf í stórum símaverum og samsetningarverksmiðjum fyrir tölvur á Evr- ópumarkað. Seinna var gerð krafa um að þessi fyrirtæki fjárfestu í r&þ í Írlandi, og þá tók írski efnahagurinn virkilega að blómstra. Írar státa nú af því að vera meðal þjóða með hæstu vísitölu um þróun lífsgæða og þjóðarframleiðslu á hvern einstakling. Finnar áttu einnig í mikilli kreppu í byrjun 9. áratugarins og voru þá eitt fátækasta land Evr- ópu. Með dyggu átaki tókst þeim að auka hlut- deild hátæknifyrirtækja svo um munaði. Nægir að nefna fjarskiptafyrirtækið Nokia til að sjá uppskeruna. Tarja Halonen, forseti Finnlands, segir að finnska leyndarmálið skiptist í þrjá þætti: „Menntun, menntun og menntun“. Hún segir að margir eigi erfitt með að trúa því að galdurinn felist einfaldlega í því að hafa góða kennara. Hluti af aðgerðunum var að finnskir kennarar þurfa að hafa meistaragráðu til að mega kenna í grunn- og framhaldsskólum. Virð- ing kennarastöðunnar hefur vaxið svo um mun- ar, og nú komast aðeins 10-15% umsækjenda að í kennaraháskólum Finnlands. Fjárfesting í aukinni menntun skilar sér meðal annars í sér- hæfðara starfsfólki með hærri laun og því hærri skattatekjum, og með réttu viðskiptaumhverfi að verðmætasköpun í nýsköpun. Mennt er máttur Nú í aðkrepptu og frekar óstöðugu fjár- málaumhverfi er niðurskurðarhnífurinn óum- flýjanlega á lofti. Við Íslendingar notuðum um 8,2% af þjóðarframleiðslu okkar til menntamála árið 2007. Þetta er með því hæsta sem gerist í heiminum og hærra en á hinum Norðurlönd- unum að Danmörku undanskilinni. Um 55% ungmenna klára háskólapróf sem er næsthæst meðal OECD. Samt sem áður er hlutfall fólks sem útskrifast með stúdentspróf undir með- altali OECD-ríkjanna eða í kringum 80% (tölur frá 2005), þar af eru 68% drengir og 92% stúlk- ur. Aðeins 40% iðnaðarfólks er með stúdents- próf. Vel menntað fólk flytur oft úr landi enda laun erlendis gjarnan hærri. Þessa þætti þarf að bæta um betur og standa vörð um í þekking- arþjóðfélagi. Mikilvægt er að við drögum lær- dóm af reynslu annarra þjóða sem hafa staðið sig vel við erfiðar aðstæður. Bæði Írland og Finnland uppskáru vel með ríkri áherslu á menntun og hátækni. Með réttu átaki getum við Íslendingar jafnframt byggt upp þekkingarþjóðfélag með öflugum hátækni- iðnaði, og náð að yfirvinna þessa lægð sem nú liggur yfir landinu. Framtíðin er okkar áskorun Ýmir Vigfússon, doktorsnemi við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum. AÐ STANDA saman finnst okkur flestum hið besta mál. Sjálfsagð- ur hlutur. Ég tel mig líka almennt bæði jákvæða og bjartsýna. Hafi hamfarir geisað, hvort heldur innanlands eða utan, þá stöndum við Ís- lendingar saman, það er aldrei spurning um annað. Nýlegir Suður- landsskjálftar bera glöggt vitni um það, flóðin í Asíu fyrir nokkrum árum líka. Veikindi eru önnur viðurkennd ástæða til að standa saman. Þegar staðið hefur verið fyrir söfnunum í sjónvarpssal og fólk hvatt til áheita hefur ekki staðið á Íslendingum að vera með af fúsum og frjálsum vilja. Það sem gerðist í efnahagsmálum Íslendinga á árinu 2008, þegar bankakerfið hrundi, er ekki af þessum toga. Ástæðan var hvorki nátt- úruhamfarir né farsótt! Því finnst mér stjórnmálamenn vera að mis- nota mig (og alla Íslendinga) núna, mína samvisku, jákvæðni, bjart- sýni og þá eiginleika mína að geta fyrirgefið, með því að biðja okkur um að standa saman. Það er ekki tímabært ennþá. En ég hef hálfgert samviskubit, því ég upplifi mig neikvæða og svartsýna vegna þess að mig langar ekkert til að standa saman. Þetta reynir mikið á mig. Þeir sem ég hef treyst, þeir sem stjórna landinu mínu, eru að biðja mig um eitthvað sem er algjörlega andstætt mínum hugsunum.Að sjálfsögðu vil ég leggja mitt af mörkum til að þjóð mín megi rísa upp úr rústum. En þessar rústir eru búnar til af fólki. Þær eru ekki náttúruhamfarir. Því tek ég undir með mörgum öðrum og lýsi eftir ábyrgðarmönnum og -konum, áður en ég get tekið það til mín „að standa saman“. Áður en nokkur maður hefur lýst yfir ábyrgð sinni á því sem gerst hefur, með því að biðja mig afsökunar, þá er ég ekki tilbúin „að standa saman“. Það sem meira er: mér finnst vont að stjórnmálamenn séu að höfða til samvisku minnar þegar þeir segja að það þýði ekkert að vera að líta til baka og leita sökudólga. Nú eigi bara að horfa fram á veginn og rísa upp úr öskustónni. Þannig ganga hlutirnir bara ekki fyrir sig. Það þarf nefnilega að byrja á grunninum og byrgja brunn- inn, áður en við getum farið að standa saman og byggja nýtt samfélag á rústunum. EN – með sama fólkinu á öllum stöðum, stjórnmálamenn og bankastjórnendur, hvað er nýtt? Um hvað eigum við að standa saman? Ég er alltaf tilbúin að fyrigefa, en ekki að láta neyða mig til að fyrirgefa bara „eitthvað“ sem enginn iðrast. Það er nefnilega ekki bara ég heldur þekkt fyrirbæri að til að geta fyrirgefið þarf einhver að sýna iðrun. Annars er ekkert „áþreifanlegt“ til þess að fyrirgefa. Þannig vil ég meina að þeir sem bera ábyrgð á hruninu axli líka sína ábyrgð á rústunum, þeir þurfa sjálfir að byrja á hreinsunni. Þeg- ar það hefur verið gert skal ég vera fyrst til að fyrirgefa og „standa saman“ að uppbyggingu hins nýja Íslands. Ég vona bara að þangað til hreinsun hefst – einhver sýnir iðrun, biður mig afsökunar og axlar ábyrgð – þá verði hætt að höfða til samvisku minnar, jákvæðni, bjart- sýni og hæfileikans til að fyrirgefa, með því að biðja mig „að standa saman“. „Að standa saman“ María Kristjánsdóttir, Leikskólakennari. MENN eru hópdýr eins og aðrir apar og eðlishvöt þeirra er að lifa í hópum og lúta þar foringja. Þegar hætta steðjar að hópi, sem hefur misst foringja sinn, verða einstaklingarnir ráðvilltir og hræddir. Þeir tapa sér sem einstaklingar og sefjast af hjarðhvötinni og elta í skelfingu þá, sem og hæst æpa og hraðast hlaupa, jafnt fyrir björg sem í gin ljónsins. Efnahags- hrunið olli því að stórir hópar Íslendinga finna sér enga foringja. Þeir eru ráðvilltir og hræddir og lík- legir til að sefjast af hegðun hjarðarinnar og elta þá sem hæst æpa. Einn slíkur hæst-æpandi boðaði skyndilausn í sjónvarpi fyrir jól. Hann krafðist í umboði allrar þjóðarinnar að embættismenn yrðu reknir, að ríkisstjórnin færi frá, að hagfræðingum yrði falið að mynda þjóðstjórn og taka við embættum, að yfir Seðlabankann yrði settur einn hagfræðingur. Margir elta þessa „instant-lausn“ Hagfræði upp úr hatti Hæst-æpandanum láðist þó að geta hvaða hagfræðinga ætti skipa og hverjir ættu að velja þá. En margt og misjafnt er í boði. Til dæmis segir einn hagfræðingur að alls ekki eigi að taka lán frá Alþjóða galdeyr- issjóðnum. Á að láta hann ráða? Annar hagfræðingur (prófessor) segir að eina von okkar sé að taka lán hjá AGS. Á hann kannske að ráða? Einn hagfræðingur segir nauðsyn að afgreiða fjárlög með halla til að verja velferðarkerfið og styrkja atvinnustigið. Annar hagfræðingur segir nauðsyn að byrja strax að taka á vandanum og því verði að samþykkja hallalaus fjárlög. Hvor þeirra á að ráða? Einn hagfræðingur (prófessor) segir að stefna beri á evru sem mynt fyrir Íslendinga. Annar hagfræð- ingur (prófessor) segir að stefna beri á að taka norska krónu sem gjald- miðil. Þriðji hagfræðingurinn (lektor) segir að taka eigi upp dollar sem gjaldmiðil því Evrópusambandið sé að fara á hausinn. Þó ráð hagfræðinganna séu gjörólík þá eru þeir allir upplýst og skól- að fólk með stærðfræðinám langt yfir meðallagi. Það sem veldur því að tillögur þeirra vísa út og suður er að þeir, eins og aðrir spámenn, hafa sjálfdæmi um að velja sér forsendur fyrir fullyrðingum sínum. Hvernig á svo að skipa þessu fólki til verka? Kannski bara draga það upp úr hatti og biðja Guð að hjálpa þjóðinni. Ég vona bara að þessi með norsku krón- urnar dragist ekki í Seðlabankann. Dollaragæinn er þó ljóðrænn og fyndinn. Höldum sönsum Nú skiptir mestu að venjulegt fólk haldi sönsum og veiti öflugt virðu- legt aðhald eins og flestir mómælafundir hafa verið, en gefi stjórnvöld- um jafnframt svigrúm til að ná slagsíðunni af þjóðarskútunni og samn- ingum við aðrar þjóðir, svo ákveða megi hvernig og hvaða leið eigi að sigla til hafnar. Síðan þarf þjóðin að leggja nýjar leiðir til að velja sér þing og stjórn og nýjar verklagsreglur. Hagfræði, hvað? Birgir Dýrfjörð situr í flokksstjórn Samfylkingarinnar. Í ÞVÍ þjóðfélagsumróti sem nú gengur yfir eftir fall bankanna er í sífellu rætt um framtíðina og þá óviss- una sem í henni býr. Hæst ber umræðuna um atvinnu og efnahagslegt öryggi ásamt tryggri afkomu heim- ilanna. Í umræðunni hefur verið sett fram skýr krafa af hálfu ungliðahreyfinga landsins að tryggja þurfi við endurreisnina að æska landsins erfi ekki brunarústirnar og skuldir glæfralegrar efnis- Hhyggju; að tryggt verði sanngjarnt þjóðfélag með gegnsæu eftirlitskerfi. Þessar kröfur eru settar fram af ungu fólki sem nú vill starfa að uppbyggingu landsins og finnst mikilvægt að tryggja komandi kynslóðum farsæla framtíð. Undirritaður sótti áhugavert málþing sem haldið var á vegum Æskulýðsvettvangsins (sam- tök BÍS, UMFÍ og KFUM/K) í samstarfi við æskulýðsráð og menntamálaráðuneytið, þar sem málefni æskunnar voru til umræðu. Þar voru mörg áhugaverð mál rædd er snúa að æsku landsins og lýsingar á því með hvaða hætti efna- hagsþrengingarnar myndu leggjast á yngri þjóðfélagshópana. Lítið hefur hins vegar heyrst frá unga fólkinu og því ekki vitað hvaða lausnir það vill sjá á þeim málum sem voru til umræðu á málþinginu. Úr þessu þarf að bæta því krafan er að ekki skuli fjallað um byrðar unga fólksins án þátttöku þess. Árið 2003 lýsti barnaréttarnefndin, sem vann skýrslu um framkvæmd Barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna á Íslandi, áhyggjum sínum af því að æsku landsins kynni að skorta næg tækifæri til að móta þau stefnumál sem varða ungt fólk beint og að sá hópur væri ekki nægjanlega vel upplýstur um hvernig láta mætti skoðanir sínar í ljós með árangursríkum hætti sem og að upplýsa um hvernig framlag þeirra kynni að verða tekið til greina. Í sama plaggi hvetur nefndin stjórn- völd til að auka stuðning sinn við æskuna þannig hún geti tekið þátt í að móta ákvarðanir þeirra. Árið 1985 stofnaði Rauði krossinn Ungmenna- hreyfingu Rauða kross Íslands þar sem ungt fólk 30 ára og yngra eignaðist vettvang til að hafa áhrif á og vinna að verkefnum félagsins. Verkefni innan Ungmennahreyfingar Rauða krossins hafa síðan þá vaxið og dafnað og nær- tækt dæmi um hugmyndir unga fólksins er Hjálparsíminn 1717. Fyrir tilstuðlan ungs fólks var árið 1992 sett á laggirnar Vinalínan sem ann- aði brýnni þörf um stuðning til ungmenna undir nafnleynd. Vinalínan var svo sameinuð trúnað- arsímanum undir merkjum Hjálparsímans 1717 sem í dag er ávallt opin þeim sem leita aðstoðar. Símtöl í hann voru rúmlega 21 þúsund á síðast- liðnu ári. Í dag er Ungmennahreyfing Rauða krossins opinn vettvangur fyrir ungt fólk til að hafa áhrif á gang þeirra verkefna sem Rauði krossinn vinn- ur að. Umfram allt er Ungmennahreyfing Rauða krossins vettvangur ungs fólks til að hafa áhrif. Það að hafa unga fólkið innanborðs er mikill styrkur þeim skoðunum og hugmyndum sem þurfa að koma fram hverju sinni. Því er mikilvægt fyrir ráðamenn og aðra að horfa til þess að hafa æsku landsins með í ráðum þegar uppbygging eftir umrótið fer fram. Nýjar hugmyndir og sterkar skoðanir á málefnum eru partur af því byggingarefni sem þarf að viða að sér þegar byggja á upp. Þegar allar raddir sam- félagsins fá að heyrast, bæði þeirra sem reynsl- una hafa, sem og þeirra sem vilja koma að upp- byggingunni með nýjar áherslur, er hægt að fara að leggja grunninn sem húsið á að standa á. Ef hins vegar vantar stoðir í grunninn mun myndin alltaf hanga skökk á veggnum og húsið standa veikt um ókomna tíð. Nýtum því tækifærið eftir umrótið og byrjum að leita fanga eftir nýju byggingarefni, hvort svo sem er innan deilda Rauða krossins og félaga- samtaka eða hjá ríkisvaldinu. Fáum þeim verk- færin í hönd til að byrja mótunarstarfið og hætt- um að taka ákvarðanir fyrir æsku landsins en byrjum þess í stað að taka ákvarðanir með henni. Opnum fyrir nýjar hugmyndir og nýjar áherslur þannig að allir geti komið að því að tryggja hag okkar um ókomna framtíð. Ungt fólk með í ráðum Jón Þorsteinn Sigurðsson, Formaður Ungmennahreyfingar Rauða kross Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.