Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ríkisstjórninkemstekki hjá því að horfast í augu við gífurlega óánægju almenn- ings í landinu. Mótmælin við Alþingi und- anfarna tvo daga eru aðeins ein birtingarmynd þeirrar óánægju, sem er í raun bæði víðtækari og djúpstæðari en hamagangurinn við þinghúsið nær að endurspegla. Það er ekki sízt þrennt, sem almenningi finnst upp á vanta í viðleitni ríkisstjórn- arinnar til að takast á við af- leiðingar efnahagshrunsins. Í fyrsta lagi að þeir, sem báru ábyrgð á hruninu, taki afleið- ingunum. Í öðru lagi að skýr- ar komi fram til hvaða að- gerða verði gripið til að leysa alvarlegan vanda bæði fjöl- skyldna og fyrirtækja. Og í þriðja lagi að stjórnvöld séu bæði duglegri að hlusta á al- menning og að koma á fram- færi við hann upplýsingum. Það er þetta þrennt, sem ligg- ur að baki þeirri skoðun margra að ríkisstjórninni hafi mistekizt og hún eigi að fara frá. Það eru augljóslega komnir brestir í stjórnarsamstarfið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur ekki getað veitt flokki sínum nauðsynlega forystu vegna alvarlegra veikinda. Á meðan keppast minni spá- menn í flokknum við yfirlýs- ingar um að slíta beri stjórn- inni og efna til kosninga. Innan Sjálfstæðisflokksins eru líka vaxandi efasemdir um stjórnarsamstarfið, ekki sízt vegna ístöðuleysis sam- fylkingarmanna. Ríkisstjórnin á að gera úr- slitatilraun til að ná tökum á verkefninu og endurvinna traust almennings. Til þess þarf hún að gera eftirfarandi: Í fyrsta lagi að draga það ekki lengur að gera manna- breytingar, bæði í röðum ríkisstjórnarinnar sjálfrar og í eftirlitsstofnunum fjármála- kerfisins. Það þarf nýtt fólk í yfirstjórn Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og í við- skipta- og fjármálaráðuneyti. Þessi uppstokkun hefur dreg- izt of lengi og verður ekki umflúin. Í öðru lagi þarf að birta miklu skýrari aðgerðaáætlun um það hvernig ríkisstjórnin hyggst leiða þjóðina út úr vandanum. Hvernig á t.d. að greiða niður erlendu skuld- irnar, halda hjólum atvinnu- lífsins gangandi og tryggja að fólk haldi húsnæðinu sínu. Það á ekki að tala neina tæpi- tungu við fólk. Þetta verður erfitt verkefni. Allir munu þurfa að færa fórnir. Útgjöld hins opinbera þarf að skera niður svo um munar. En fólk verður að hafa trú á því að fórnirnar beri árangur að lok- um. Í þriðja lagi þarf almenn- ingur nefnilega að öðlast vissu fyrir því að niðurstaðan af þessari erfiðu vinnu fram- undan; af þessum óumflýj- anlegu fórnum; verði ekki sú að þeir, sem steyptu efna- hagslífi þjóðarinnar í glötun hreiðri áfram um sig í stór- fyrirtækjunum og í valdastöð- um í atvinnulífinu. Þegar fréttir berast til dæmis af grunsemdum um ólöglegt eða óeðlilegt athæfi í bönkunum á síðustu dögunum og vikunum fyrir hrunið, er nauðsynlegt að stjórnvöld segi fólki hvað er verið að gera til að rannsaka þær grunsemdir og hvernig taka eigi á málum, reynist þær á rökum reistar. Almenningur þarf sömu- leiðis að fá vissu fyrir því að regluverk viðskiptalífsins verði endurskoðað með þeim hætti, að þar verði tekið fyrir krosseignatengslin, sem áttu stóran þátt í efnahags- hruninu, og að sömu menn sitji beggja vegna borðs og semji við sjálfa sig á kostnað almennings og lítilla hluthafa. Ríkisstjórnin hefur ekki mikinn tíma til að sýna á spil- in sín í þessum efnum. Ein- hverjar aðgerðir þurfa að líta dagsins ljós fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins í lok mánaðarins. Það er eðlilegt að þar verði fjallað um áætlun um endurreisn íslenzks efna- hagslífs og samfélags – og þar er afstaðan til Evrópusam- bandsins aðeins einn þáttur af mörgum – en ástandið er orðið þannig að það þolir ekki bið. Almenningur á að sjálf- sögðu að láta í sér heyra og veita ríkisstjórninni aðhald. Það er þó ekki sama hvernig það er gert. Aðförin að Geir H. Haarde við Stjórnarráðið í gær gekk þvert á allar hefðir í íslenzkri stjórnmálabaráttu. Fólkið, sem segist vilja betra Ísland, getur ekki viljað gera það verra með því að stuðla að því að stjórnmálamenn geti ekki verið vissir um öryggi sitt og persónulega friðhelgi. Ríkisstjórnin og Alþingi þurfa eðlilegan vinnufrið – en þau þurfa að vinna hratt. Raunar er það svo að hvort sem ríkisstjórnin hyggst sitja áfram eða boða til kosninga á árinu og leggja verk sín í dóm kjósenda, þarf hún að grípa til frekari aðgerða – fljótt. Ríkisstjórnin á að gera úrslitatilraun til að endurvinna traustið} Aðgerðir – fljótt Í fyrrakvöld sá ég mann skunda yfir Austurvöll með marga kaffibolla á bakka. Hann gekk að lögreglumönn- um sem staðið höfðu sína vakt um langa hríð og bauð þeim að hressa sig á heitum drykk. Að þeir skyldu ekki sjá sér fært að þiggja kaffið spillti ekkert fegurð augnabliksins – þeir voru jú að sinna skyld- störfum, öfugt við þá sem voru að svara kalli tímans vegna sannfæringar sinnar. Ég heyrði líka fullorðna konu tjá sig um unga fólkið sem staðið hafði við trumbuslátt svo klukkustundum skipti. „Ekki hef ég áhyggur af framtíðinni ef þetta kraftmikla fólk á eftir að erfa landið!“ sagði hún. Fjög- urra barna faðir úr Hafnarfirði vék sér að mér og sagðist vera að mótmæla í fyrsta sinn af því hann þyldi ekki lengur að sitja heima hjá sér yfir fréttum, mótmæla í anda og segjast eiga sína „fulltrúa“. Það væri kominn tími til að mæta sjálfur. Barnshafandi kona var óhrædd við að standa í hringnum við bálið og stóð augljóslega ekki ógn af fólkinu. Enda vék mann- fjöldinn fyrir þeim sem færðu sig úr stað, sýndi tillits- semi sem við hversdagslegri kringumstæður, til að mynda um helgar, er ekki sjálfgefin í miðborginni. Margir hinna eldri lýstu feginleika sínum yfir því að ekki höfðu brotnað fleiri rúður eða orðið meiri spjöll. Vísuðu til þeirrar „púðurtunnu“ sem hefði getað sprungið með alvarlegum afleiðingum hvenær sem var á vellinum allar þær klukkustundir sem liðnar voru frá því að mótmælastaðan hófst. Um miðjan dag í gær sást enda hversu kveikurinn í þá tunnu er stuttur, er Geir H. Haarde þurfti að komast að bíl sínum við stjórn- arráðið. En heiðríkjan náði aftur ríkjum stuttu seinna er mótmælendur hættu að tromma og flauta af tillitssemi við samborg- ara sem voru við jarðarför í Dómkirkjunni. Mótmælastaðan við Þjóðleikhúsið í gær- kveldi var af áþekkum toga; friðsamari ef eitthvað var. Þeir sem stóðu á Austurvelli í fyrradag og við Þjóðleikhúsið í gærkveldi voru þver- skurður af íslensku samfélagi. Ég hitti gamla og gróna íhaldsmenn, krata og rót- tæklinga. Sá ungan Heimdelling í innsta hring með róttækstu mótmælendunum. Allir lögðu sama verkefninu lið: töluðu til þeirra sem fengu umboð þeirra til framkvæmda, en hafa undanfarið látið raddir þeirra sem vind um eyru þjóta. Það að þessu fólki tókst í gærkvöld að knýja fram ályktun um stjórnarslit hjá flokki í ríkisstjórn þýðir að íslenskum almenningi hefur tekist það sem heimssagan sýnir að er nærri ómögulegt. Að knýja fram breytingar með friðsamlegum mótmælum. Miðað við það hvernig mótmæli ganga fyrir sig víða um heim er þetta söguleg stund. Enginn meiddist alvarlega. Fórnarkostnaðurinn er nokkrar rúður, einhverjir bekkir og hreinsunarvinna. Ef til vill ekki meira en eytt hefur verið í ný föt eða aug- lýsingar kostningabaráttu góðærisins. Það var merkileg stund fyrir utan Þjóðleikhúsið þegar ákall mannfjöldans Vanhæf ríkisstjórn! breyttist á einu augnabliki í bjart- sýniskallið Áfram Ísland! fbi@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir Pistill Fegurð augnabliksins Lánanefndir fjalla um stóra skuldara FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is S kilanefndir bankanna gömlu, Glitnis, Kaupþings og Landsbankans, leita nú leiða til þess að koma útlánasöfnum í verð. Verðmætustu eignir gömlu bankanna voru útlánasöfnin þeirra, þó vitanlega hafi þau laskast mikið við hrun bank- anna. Innan þessara safna eru sum útlán verðmætari en önnur, og skipt- ir þar sköpum hvernig lánasamn- ingar eru fyrir hendi og þá við hvaða viðskiptavin. Samningsatriðin ráða miklu um hversu auðvelt er að selja útlánin annað. Útlán til stærstu viðskiptavina bankanna komu inn á borð sér- stakrar lánanefndar innan þeirra, samkvæmt innri reglum, sem tóku afstöðu til þess hvort réttlætanlegt væri að lána í hverju tilfelli fyrir sig. Umdeild lán Í fréttaskýringum í Morgun- blaðinu undanfarna tvo daga hefur verið fjallað um lán Kaupþings til út- valinna viðskiptavina bankans upp á 500 milljónir evra, um 84 milljarða króna. Lánin voru veitt skömmu áður en bankinn fór í þrot. Sigurður Ein- arsson, fyrrverandi stjórnarmaður Kaupþings, hefur sagt að lánin hafi verið gerð að beiðni Deutsche Bank og öðru fremur ætlað að lækka tryggingarálag á skuldabréf bank- ans. Það var mjög hátt á alla íslensku bankanna og ógnaði starfsemi þeirra. Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu á þriðjudag kom fram að lánin hafi öll verið greidd út, og þar með frágeng- in, áður en þau komu til kasta lána- nefndar. Utan útlánaheimilda Þessi meðferð hefur vakið spurn- ingar um hvort lánanefndir, sem oft- ast nær eru skipaðar stjórnendum og stjórnarmönnum, hafi hugsanlega brotið gegn innri reglum bankanna í einhverjum tilfellum. Sérstök lög um lánanefndir eru ekki til, en sam- kvæmt lögum um fjármálafyrirtæki ber fjármálastofnunum að fara eftir innri reglum. Vafaatriði sem koma upp um þessi mál eru metin í hvert skipti fyrir sig. Nýju bankarnir þrír, sem urðu til þegar ríkið tók yfir innlenda banka- starfsemi í landinu, hafa allir samið almennar reglur um lánamál. Í öllum tilfellum er markmiðið að stýra útlán- um með ábyrgum hætti og vega og meta áhættu vandlega í hvert skipti sem lánað er. Lánanefndir eru undir- nefndir stjórnar banka og fjalla ein- ungis um skuldbindingar sem falla utan útlánaheimilda starfsmanna ásamt tillögum um afgreiðslu þeirra. Bankaráð og -stjórnir hafa eftirlit með lánamálum og bera ábyrgð á þeim gagnvart hluthöfunum. Í til- fellum nýju bankanna eru það skatt- greiðendur og því hvílir mikil ábyrgð á þeim sem sitja í lánanefndunum. Lánanefndirnar hafa umboð til þess að samþykkja eða synja til- lögum um útlán, aðrar skuldbind- ingar, niðurfellingar og viðskipta- mörk í hverju tilfelli. Önnur lánanefnd, einhvers konar sérlánanefnd, er oft starfrækt innan banka en hún fjallar um útlán til við- skiptavina þar sem eru í töluverðri taphættu. Erindin sem berast sérlánanefnd eru því fyrst og fremst þess eðlis að viðskiptavinir eiga í vandræðum með að greiða af lánum, og því þarf að grípa til aðgerða til þess að vernda hagsmuni bankans. Morgunblaðið/Golli Kaupþing Umræða hefur farið fram um starf lánanefnda í bönkunum að undanförnu. Vanalegt að lán séu afgreidd milli funda, segir SFF. SAMKVÆMT upplýsingum frá Jónu Björk Guðnadóttur, lögfræð- ingi hjá Samtökum fjármálafyr- irtækja, eru mörg dæmi þess að lán sem lánanefndir fá til umfjöll- unar og afgreiðslu séu greidd út á milli funda. Þannig getur lán verið greitt út en síðan formlega afgreitt á fundi lánanefndar á formlegum fundar- tímum nefndarinnar. Meðal þess sem fram hefur komið í frétta- skýringum í Morgunblaðinu er að 500 milljóna evra lán til við- skiptavina Kaupþings voru greidd út áður en erindi vegna lánanna voru formlega afgreidd úr lána- nefndum. Jóna segir dæmi um svipaða afgreiðslu og þessa vera mörg, þótt hún geti ekki sagt ná- kvæmlega til um þetta tiltekna mál þar sem málsatvik eru ekki að öllu leyti ljós og hafa ekki ver- ið opinberuð. AFGREIÐA LÁNIN ››

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.