Morgunblaðið - 22.01.2009, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 22.01.2009, Qupperneq 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 ✝ Helgi KristjánHalldórsson fæddist á Borðeyri við Hrútafjörð 17. apríl 1928. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 13. janúar síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Halldórs Kristjáns Júlíussonar sýslu- manns, f. 29.10. 1877, d. 4.5. 1976, og konu hans Láru Valgerðar Helgadóttur, f. 5.12. 1895, d. 4.2. 1971. Al- systkini hans eru: 1) Júlíus, f. 26.2. 1924, d. 14.10. 1998, 2) Ingibjörg, f. 18.12. 1926, 3) Þorgerður, f. 29.12. 1929, 4) Ásgerður, f. 31.1. 1935, 5)Steingerður, f. 14.5. 1940. Hálfbræður samfeðra: 1) Eiríkur, f. 21.8. 1903, d. 3.12. 1940, 2) Hjörtur, f. 18.6. 1908, d. 6.8. 1977, 3) Birgir, f. 15.2. 1920, d. 7.10. 1986. Helgi kvæntist 13.9. 1952 El- ísabetu Gunnlaugsdóttur, f. 25.5. 1933. Foreldrar hennar voru Gunnlaugur Kristinsson múrari, f. 18.7. 1910, d. 3.6. 1994, og konu hans Steinunnar Ólafsdóttur Thorlacius f. 26.7. 1911, d. 8.8. 1998. Börn Helga og Elísabetar eru: 1) Steinunn, f. 13.2. 1953, d. 4.4. 2004, maki Þórður Óskarsson, f. 31.8. 1953, dætur þeirra eru Eygló Ósk, f. 22.6. 1976, og Sara Elísa, f. 20.1. 1981. 2) Lára Valgerður, f. 9.6. 1956, maki Eric Jonsson, f. 19.1. 1953, dætur hennar eru: a) Harpa Magn- úsdóttir, f. 21.6. 1983, faðir Magnús Lárusson. b) Lilja María Jonsson, f. 24.12. 1993. 3) Mar- grét Hrönn, f. 4.7. 1959, maki Siegfried Hugemann, f. 27.1. 1965, börn þeirra eru Hákon, f. 29.1. 1993, Sunna, f. 13.9. 1995, og Magni, f. 15.6. 1998. 4) Gunnlaugur, f. 26.8. 1963, maki Ágústa Valsdóttir, f. 9.3. 1969, börn: Helgi Steinar, f. 7.6. 1989, móðir Íris Erlingsdóttir. Börn Ágústu og Gunnlaugs eru Sævar Þór, f. 29.3. 1996, Díana Sif, f. 9.4. 1999, og Alexander, f. 25.12. 2001. Helgi ólst upp á Borðeyri til 9 ára aldurs þar til fjölskyldan flutt- ist til Reykjavíkur. Hann lærði járnsmíðar í vélsmiðju Hamars og fór þaðan í Vélskóla Reykjavíkur og lauk þaðan prófi 1952. Vann hjá Rafveitunni í 1 ár og hjá Eim- skip til ársins 1959 er hann stofn- aði sitt eigið fyrirtæki Stáliðjuna sem hann starfrækti til ársins 2005. Útför Helga fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag kl. 15. Þegar ég lít til baka og minnist pabba þá eru margt skemmtilegt sem rifjast upp, húmorinn hans, fjölskyldufrasarnir, hvað hann hafði gaman af barnabörnunum, hann var mikill náttúruunnandi, listhneigður og svo var hann einn mesti mann- þekkjari sem ég hef á ævinni hitt. Hann sagði mér líka margar skemmtilegar sögur af því þegar hann var að byrja með Stáliðjuna og ævintýrum tengdum henni. Hann gafst aldrei upp. Þegar hann þurfti að koma krómtækjunum frá Akur- eyri til Reykjavíkur en bílstjórarnir fyrir norðan voru allir farnir í helg- arfrí, hætti hann ekki fyrr en hann fékk lánaða lyklana af stærsta vöru- bílnum á stöðinni og keyrði sjálfur öll tækin suður. Hann byrjaði með tvær hendur tómar og tókst með mikilli vinnu og útsjónarsemi að byggja upp fyrirtæki sem var hans líf og yndi. Hann og mamma ferð- uðust mikið, þegar fólk í kringum þau fór að kaupa sér sumarhús eða íbúðir á suðrænum slóðum, vildi hann ferðast um, vera alltaf á nýj- um stað, frekar en að vera bundinn við einn. Hann kom okkur oft á óvart. Árið sem hann var fimmtugur vorum við stödd í Austurríki, öll á skíðum nema hann. Pabbi hafði einu sinni farið á skíði þegar hann var í barna- skóla, þá braut hann lánsskíði í fyrstu ferðinni og hét því þá að fara aldrei aftur á skíði. Á öðrum degi í fallegum fjallabæ í Ölpunum er mér litið í átt að skíðaskálanum þar sem kláfurinn kom upp, þar var einhver skíðamaður sem stoppaði alla um- ferð, ekki alveg með skíðakunnátt- una á hreinu, blessaður. „Magga, sjáðu þennan þarna í brekkunni, er þetta ekki pabbi?“ Þá hafði minn maður gefist upp á einverunni og skellt sér inn á næstu skíðaleigu og leigt sér stafi, skó og skíði og upp í fjall fór hann. Þá er það mannþekkjarinn hann pabbi. Það var nóg fyrir hann að spjalla við manneskju í nokkrar mínútur til að vita hvernig karakter var þar á ferð, sem atvinnurekandi átti hann því auðvelt með að raða í kring um sig duglegu fólki sem var að hans skapi. Eitt sinn þegar ég var 15 ára þá lánaði hann mér og hljómsveitinni minni húsnæði í Stál- iðjunni til æfinga. Þar æfðum við á kvöldin og um helgar þegar ekki var unnið í verksmiðjunni. Eina helgina voru nokkrir starfsmenn að vinna og fannst þeim hávaðinn í hljóm- sveitinni heldur pirrandi. Þá tók pabbi upp hanskann fyrir okkur og benti þeim á að söngkonan í þessari hljómsveit væri hreint frábær lista- maður og hún ætti eftir að verða heimsfræg, þeir brostu úti annað og trúðu honum tæplega. Þessi söng- kona heitir Björk Guðmundsdóttir. Mig langar til að þakka þér pabbi minn fyrir allar samverustundirnar. Guð blessi þig. Þinn sonur Gunnlaugur. Nú kveð ég í hinsta sinn Helga Kr. Halldórsson. Söknuður er mikill og ekki síst hjá börnunum okkar sem dáðu hann, og hann þau, en líka þakklæti fyrir að losna undan þessum erfiða sjúkdómi sem Alzheimer er. Mig langar í örfáum orðum að minnast hans Helga, sem var mannþekkjari mikill og húmoristi. Ég kynntist Helga árið 1995, þeg- ar ég og sonur hans fórum að rugla saman reytum. Hann var snöggur að spyrja mig hverra manna ég væri, svo að hann gæti nú kynnst mér betur. Á móti var ég fljót að komast inn í fjölskyldufrasana hjá honum og þótti mjög gaman að taka þátt í þeim. Hann var listrænn maður og þótti mjög gaman að mála myndir, ásamt því að stunda golf með Betu sinni sem gaf honum ekkert eftir í því sporti og vann ófáa bikarana, sem skreyttu bústað þeirra hjóna í Önd- verðarnesinu. Þangað fórum við hjónin mjög oft í heimsókn með börnin okkar þar sem þeim fannst óendanlega gaman að leika sér í skóginum sem afi þeirra og amma gróðursettu. Ég vil þakka þér fyrir skemmti- lega samveru í gegnum árin. Það er gott að vita að þér líður vel núna. Hvíl í friði Helgi minn. Þín tengdadóttir Ágústa Valsdóttir. Móðurafi minn, Helgi Kr. Hall- dórsson, er látinn eftir áratuga langa baráttu við Alzheimersjúk- dóminn. Hann er laus úr fjötrum þessa skelfilega sjúkdóms sem smátt og smátt rændi þennan kraft- mikla og glæsilega mann heilsunni. Afi minn var í marga staði óvenju- legur maður. Hann var skarp- greindur, með ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum sem hann hafði ánægju af að viðra. Hann hafði mikla kímnigáfu og ávallt var stutt í hláturinn þar sem augun pírðust saman, hann bar höndina fyrir munninn og hló sínum smitandi hlátri. Afi minn var einnig hógvær maður og á margan hátt feiminn og vildi síst af öllu að athyglin beindist að sér. Barngóður var hann með eindæmum. Afi ólst upp fyrstu æviárin á Borðeyri við Hrútafjörð en fluttist 9 ára gamall til Reykjavíkur. Það er sagt að römm sé sú taug er rekka dregur föðurtúna til og síðustu ævi- árin leitaði hugurinn æ oftar til Borðeyrar. Afi tók á sínum yngri árum þá ákvörðun að hann skyldi vera sjálfs síns herra og ekki öðrum háður er kæmi að vinnu. Eftir að hafa unnið sem vélstjóri á sjó og landi til nokk- urra ára stofnaði hann járnsmíða- verkstæði í Melbæ við Sogaveg árið 1959. Fyrirtækið óx undir stjórn hans og varð síðar að Stáliðjunni hf. Afi var áhugamaður um myndlist auk þess að vera náttúruunnandi. Mér eru minnisstæðar ferðir með afa á Kjarvalsstaði þar sem hann fræddi okkur systurnar um meist- ara höggmynda- og málaralistarinn- ar. Afi var einstaklega heilsuhraustur og það var mikið áfall þegar hann greindist með Alzheimersjúkdóm- inn, þann sama sjúkdóm sem hafði dregið móður hans til dauða. Afi var lánsamur að hann naut umönnunar ömmu minnar, Elísabetar, í veikind- um sínum. Hún annaðist hann af einstakri natni og væntumþykju síð- ustu æviár hans. Afi varð fyrir því áfalli árið 2004 að missa elstu dóttur sína, Stein- unni. Þrátt fyrir það að veikindin væru farin að segja til sín á þeim tíma veit ég og fann að missir hans var mikill og sorgin djúp. Þau feðg- inin voru um margt lík bæði að ytra útliti og persónuleika og böndin sem tengdu þau sterk. Vonandi eru þau nú saman á ný. Margar dýrmætustu æskuminn- ingar mínar tengjast ömmu og afa í Sævarlandi. Sérstaklega kærar eru minningar úr sumarbústaðnum í Grímsnesi. Þá var farið í golf, minnst níu holur, á meðan við krakkarnir fórum í sundlaugina. Amma bakaði vöfflur þegar heim var komið og afi þeytti rjómann á gamla mátann, enda ekkert raf- magn í bústaðnum. Ég var tíður gestur á heimili ömmu og afa á mínum yngri árum. Kvöldmatur hófst iðulega með því að undirrituð var send að vekja afa úr eftirmiðdagslúrnum. Að kvöld- mat loknum var ísinn sóttur og afi látinn hræra. Síðan var horft á Dall- as eða Derrick. Afi kippti sér svo ekkert upp við það þótt hann væri sendur að sofa í saumaherberginu svo undirrituð gæti sofið í afabóli við hliðina á ömmu. Það er með trega og söknuði sem ég kveð elskulegan afa minn í hinsta sinn. Ég þakka fyrir hversu lánsöm ég hef verið að eiga hann að þessi ár og fyrir allar þær góðu minningar sem ég á um hann. Eygló Ósk Þórðardóttir. Elsku besti afi, nú ertu farinn til himna. Það hafa örugglega margir komið og tekið á móti þér, eins og til dæm- is Steina frænka okkar, mamma þín og pabbi og margir fleiri. Og nú vit- um við að þér líður miklu betur hjá öllum englunum þarna uppi. Það var alltaf gaman að heim- sækja þig í sumarbústaðinn, og koma í Sævarlandið og svo núna síð- ast í Skógarbæ. Þá löbbuðum við oft með pabba, því það var svo stutt frá okkur til þín í Skógarbæ. Við eigum eftir að sakna þín mikið elsku besti afi, við systkinin erum öll með fallega mynd af þér í herbergj- unum okkar, og hugsum til þín á hverjum degi. Við vonum að þú skemmtir þér vel á himnum með öllum sem þú þekkir þar, þú ert örugglega að spila golf núna ef við þekkjum þig rétt. Við þökkum þér fyrir allar skemmtilegu stundirnar. Hvíldu í friði elsku afi. Þín barnabörn, Sævar Þór, Díana Sif og Alexander. Hann afi minn var fallegur og tignarlegur maður. Hann var kraft- mikill og sterkur persónuleiki sem óhætt er að segja að hafi verið mörgum ógleymanlegur. Dugur og athafnasemi einkenndu hann bæði í leik og starfi. Afi var hlýr og gaf mikið af sér en var jafnframt gagn- rýninn á menn og málefni. Minningar mínar um afa þar sem hann stendur með krosslagðar hendur, og virðir fyrir sér málverk, eru margar. Hann var mikill list- unnandi og kynnti mig fyrir mynd- listinni af kappi á barnsárum mín- um. Þetta átti stóra hlutdeild í því að ég skyldi á fullorðinsárum taka myndlistina mér fyrir hendur. Hann hafði sterkar skoðanir á hverju listaverki fyrir sig og var alltaf fylginn sér í þeim skoðunum. Auga hans fyrir fegurð var ótví- rætt og það var sama hvað átti hlut að máli; listaverk, byggingar, nátt- úran eða jafnvel dýr. Þessi hæfileiki hans til að greina fegurð og næmi hans fyrir hönnun nýttist honum vel í starfi og var hann frumkvöðull á sínu sviði. Ekki má gleyma að minnast þeirrar einstöku kímnigáfu sem afi hafði. Í huga mínum munu lifa hans sígildu orðatiltæki svo sem: „er búið að þeyta rjómann?“ sem hann spurði í gamni þegar kallað var í kaffi og „heldurðu að ég hafi sofn- að?“ eftir að augljóst var að hann hafði steinsofnað um eftirmiðdag- inn. Það eru óteljandi slík orðatil- tæki sem afi átti og notaði óspart í gríni. Afi sinnti barnabörnum sínum af miklum áhuga og er ég svo lánsöm að vera eitt þeirra. Listaverkið sem við afi unnum saman einn daginn í Stáliðjunni, þegar ég var barn, situr nú á besta stað í stofunni minni og yljar mér um hjartarætur. Nú, þegar sól afa míns hefur gengið til viðar og hann farinn til endurfunda við dóttur sína Stein- unni, móður mína, þakka ég honum samfylgdina í gegnum árin. Sara Elísa Þórðardóttir. Við Helgi urðum nágrannar þegar við fluttum í Fossvoginn við Rétt- arholt árið 1940. Hann bjó í Melbæ í Sogamýri. Við kynntumst þegar ég fór í Laugar- nesskólann um haustið. Ég man það enn þegar ég tók eftir honum fyrst. Það var snjóboltaslagur í frímínút- unum. Hann stóð fremstur í flokki andstæðingana, sem báru sigurorð í slagnum, en mér fannst eftirtekt- arvert hvað honum virtist umhugað um að meiða engan. Helgi hafði búið sem barn á Borð- eyri við Hrútafjörð þar sem faðir hans, Halldór Júlíusson, var sýslu- maður í Strandasýslu, þar til hann hóf búskap í Melbæ. Við urðum síðan samferða gegn- um Ingimarsskólann, en hann lagði síðan leið sína í járnsmíðar hjá vél- smiðjunni Hamri, og vélstjóranám í Vélstjóraskóla Íslands, þaðan sem hann útskrifaðist 1952. Hann var vélstjóri á skipum Eimskips í nokk- ur ár. Þegar faðir hans brá búskap 1958 hóf Helgi járnsmíði í Melbæ í húsnæði því sem áður hafði hýst kýrnar. Hann rak síðan fyrirtækið Stáliðjuna hf. í Kópavogi þar til hann lét af störfum fyrir nokkrum árum. Það þurfti þrautseigju til þess að halda fyrirtækinu gangandi öll þessi ár. Eftir að Ísland gekk í ESS varð mikil breyting hjá mörgum iðnfyr- irtækjum hér vegna vaxandi sam- keppni. Lögðu þá mörg þeirra upp laupana. Áratugum saman fór Helgi á sunnudagskvöldum á vinnustað til þess að undirbúa framleiðsluna fyr- ir vikuna framundan. Hann hafði mikinn stuðning af eiginkonu sinni, Elísabetu Gunnlaugsdóttur, sem hann kvæntist ungur að árum og stóð við hlið hans alla tíð. Hann lést á vistheimilinu Skóg- arbæ eftir erfið veikindi. Það er með söknuði sem ég kveð gamlan félaga, sem oft reyndist mér vel. Einar Magnússon. Gæfa mín er að kynnast ýmsum frumkvöðlum í iðnaði Reykjavík á síðari hluta nýliðinnar aldar. Einn þeirra var Helgi Halldórsson eig- andi Stáliðjunnar hf. sem kvaddur er í dag. Helgi var á margan hátt minnisstæður maður og hafði dirfsku til þess að reyna að láta drauma sína rætast. Vegna þess hve mannanna verk gleymast fljótt, langar mig að minnast í fáeinum orðum frumkvæðis Helga á áttunda áratug aldarinnar. Helgi var vélstjóri að mennt og stundaði sjóinn, aðallega á farskip- um. Hann notaði að eigin sögn frí- vaktir til þess að dunda sér smáveg- is við smíðar. Þetta leiddi til þess að hann langaði til að gera eitthvað nýtilegt og fór að smíða blóma- og blaðagrindur sem hann gaf kunn- ingjunum og af rælni bauð hann einhverri verslun þessa smíði. Var- an líkaði vel og hann stofnaði eigið fyrirtæki; Stáliðjuna. Hann sagði mér að kunningi hans, sem átti heima í New York, hafi séð skrif- stofustóla hjá honum og hvatt hann til þess að leyfa sér að kanna sölu á stólunum þar í borg. Helgi sló til. Flutningskostnaður reyndist vera mjög hár innanlands í Bandaríkj- unum, en Helgi dó þó ekki ráðalaus, hann flaug vestur og leigði sér sendibíl og skilaði vörunni frá borði til kaupanda og sparaði samt. Þetta varð honum hvatning. Hann bar næst niður í Skotlandi og varð Glas- gow fyrir valinu. Helgi fékk hús- næði í nýju hverfi og stofnaði fyr- irtækið Norsteel Ltd. og hugðist þannig auðvelda sér að komast á markað á Bretlandseyjum. Hann framleiddi stólahluta í Kópavogi og setti þá saman í verksmiðjunni í Cumbernault. Árið 1973 var Ísland á margan hátt miklu einangraðra heldur en í dag og aðföng oft erfið. Verðbólga og gjaldeyrishöft settu þröngar skorður. Helgi smíðaði nánast allt sjálfur sem nota þurfti til fram- leiðslunnar. Róðurinn var þungur og hann reyndi að fá aðra hér heima til samstarfs. Menn voru tregir til, kannski ekki að ástæðulausu, fram- andi aðstæður og tungumálavand- ræði. Einn var þó sem fannst þetta spennandi og dáðist að kjarki Helga. Það var Jón P. Jónsson eig- andi Gamla Kompanísins, sem nú er látinn. Þeir Helgi ráku saman þetta fyrirtæki í fáein ár. Loks var rekstri þess hætt aðallega vegna ytri skil- yrða. Helgi nýtti krafta sína til upp- byggingar heima. Skrifstofuhús- gögn sem ég hannaði fyrir Gamla Kompaníið var reynt að selja í Skot- landi. Það sem ekki vannst á þeim markaði, gekk því betur á Íslandi. Stáliðjan framleiddi allan stálbúnað til þeirra húsgagna um aldarfjórð- ungs skeið. Helgi hafði satt að segja ekki mikla trú á hönnuðum. Það kom þó ekki í veg fyrir að við ættum prýðilegt samstarf vegna vöruþró- unar og er ljúft að minnast fjöl- margra vinnufunda þar sem best kom í ljós hve snjall og úrræðagóð- ur Helgi var. Hann rak Stáliðjuna síðustu árin í félagi við Einar Ein- arsson, sem hóf störf mjög ungur í Stáliðjunni. Hann rekur nú fyrir- tækið. Helgi gerðist útrásarmaður fyrir tæpum 40 árum, einn af fáum sem sýndi bæði áræði og kraft. Þetta hefur alltaf vakið aðdáun mína. Ég sendi fjölskyldu Helga inni- legar samúðarkveðjur við fráfall hans. Pétur B. Lúthersson. Helgi Kristján Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.