Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 VINSÆLDIR Páls Óskars Hjálm- týssonar virðast ekkert ætla að minnka á nýju ári því safnplata hans, Silfursafnið, er aftur komin í efsta sæti Tónlistans eftir nokkra dvöl í neðri sætum listans. Hvað veldur þessari endurkomu Palla á toppnum skal ósagt látið, en lítið hefur heyrst frá kappanum á allra síðustu vikum. Annars skipa hálfgerðir safn- pakkar efstu þrjú sætin þessa vik- una því í öðru sætinu situr plata með upptöku frá tónleikum sem haldnir voru til minningar um Vil- hjálm Vilhjálmsson, en þar fluttu margir af þekktustu söngvurum landsins öll hans bestu lög. Í þriðja sætinu er svo Sálin hans Jóns míns og stórglæsilegur safnpakki sveit- arinnar, Hér er draumurinn. Annars vekur athygli að Lay Low á tvær plötur á listanum, nýju plötuna Farewell good night’s sleep sem er í sjöunda sæti og fyrstu plöt- una, Please don’t hate me, sem hækkar um heil fjórtán sæti og er nú komin í tíunda sætið.                        !                  "  # $ $% %   &' %&() *+ , % &#  %&-./)%&() %            !" # $%  &#"!&'( )  )    * +*', -- "  * +*', .(/ ) 0 ('0'/'+ 0 )   / 1& &'( )  )  2  3'    4 " " (' 0  / #    #"! 5#" %00      ! "  ! " #$%&" '% &%( )*)+ %% , -$".""  / %*( . 0%1% ++&2 %%- 3+%"% %/%4"3- "%& 5 %%&+2%"% #+1+"*% %& #,  *  6  %&7" " & 8 %( */ 6+0+"9%5 5+:$  ;"3 % "       010      21, 40+  %   56+ 21, 7 28 %93    98/ 5-. )    21,              $%9.&(  &,:;<&=>    3 - -- 2  3'  - 6)* ' / "7 8  0  &2&(& 2  ))9': * +*', -- 2  3'    ;'<  8 ="$   ('  '>? +." 0 %'   !" # $%  6  1 # 0', #"! 5#" %00 8+ % .(/ ) 0 #" <= %*+/" > %?" ;% +"%(+&4 @+*,7?% ; %?4?+% <*3(4 3+ A+ + B %(4B % C= %4 '>"- + % C *D 3.+  '+*%  0 +1%%+ E2",9"% 9%A% ;"3 % " 6++1 573+         " 40+  98/ 5-. )   (,?  (,? 7   %   21, 40+  98/ 5-. )  9@9%  "   (,? ?   8A  % 9 2% 7 28 %93   Palli snýr aftur Morgunblaðið/Kristinn Bubbi Morthens Forsprakki Egós- ins getur vel við unað þessa viku. HLJÓMSVEITIN Jeff Who? sem komst loksins á topp Lagalistans í síðustu viku með lagið sitt „Congra- tulations“ staldraði ekki lengi við í efsta sætinu, því lagið hefur hrapað um heil sjö sæti milli vikna, og er nú komið í það áttunda. Því hefur nýtt topplag verið kynnt til leiks, en þar er á ferðinni lagið „Human“ með Las Vegas-sveitinni The Killers sem hefur fikrað sig smátt og smátt upp listann undanfarnar vikur. Sig- urvegari Lagalistans þessa vikuna er hins vegar klárlega Kristján Kristjánsson, KK, sem stekkur upp um tólf sæti og kemur sér vel fyrir í öðru sætinu með „Kærleikur og tími“. Þá vekur mikla athygli að Egóið stekkur beint inn í sjöunda sætið með „Kannski var bylting vorið 2009“ en lagið er það fyrsta sem sveitin tekur upp í hvorki meira né minna en 24 ár. „Þetta verður að fara í spilun eins fljótt og unnt er, á meðan ástandið er svona í þjóðfélaginu,“ sagði Bubbi meðal annars um lagið í viðtali við Morg- unblaðið fyrir stuttu. Endurkoma Egós LADY GaGa er listamannsnafn 22 ára gam- allar stúlku frá New York sem spáð hefur verið töluverðum vinsældum. Og skal engan undra því hér er á ferðinni tónlist sem hrein- lega er búin til með það eina markmið að verða vinsæl. Platan er „ofur-pródúseruð“ og hreinlega leiðinleg fyrir vikið. Þá bætir ekki úr skák að á köflum má heyra sterk áhrif frá söngkonum á borð við Britney Spears og Gwen Stefani, en slíka samlíkingu ættu sem flestar ungar söngkonur að reyna að forðast eins og heitan eldinn. Lady GaGa er þó skömminni skárri en þær stöll- ur og nýtur sín best í rokkuðustu lögunum. Annað er verra. Slæmar fyrirmyndir Lady GaGa – The Fame bbnnn Jóhann Bjarni Kolbeinsson BBC setti þessa sveit í annað sæti á lista yf- ir helstu vonarstjörnur þessa árs. Ég skil það engan veginn. Tónlistin er í þessum lúna síð-Joy Division stíl sem Interpol og Editors eru hvað þekktastar fyrir en útfærsla White Lies er hiklaust sú versta og hugmynda- snauðasta til þessa. Hin bagalega Editors hljómar eins og framsæknasta og frumlegasta hljómsveit heims í samanburðinum. Ég mæli með því að fólk tékki frekar á upp- runalegum kuldarokkssveitum eins og Chameleons eða The So- und þurfi fólk skuggarokksskammt. Forðist þessa ömurð hins vegar eins og heitan eldinn. Ógleðideildin The White Lies – To Lose My Life bnnnn Arnar Eggert Thoroddsen GÍTARLEIKARINN snjalli úr Red Hot Chili Peppers, John Frusciante, er hér á ferðinni með sína tíundu sólóplötu og líklega þá bestu á hans annars viðburðaríka ferli. Sér til halds og trausts á plötunni hefur hann m.a. félaga sinn og sveitunga úr Chili Pep- pers, Flea, fyrrverandi gítarleikara Smiths, Johnny Marr, og svo vin sinn og kollega á fyrri sólóplötum, Josh Klinghoffer. Afraksturinn er mjög sérstök rokkplata þar sem áhrifum sýkadelíkur og klassískrar tónlistar er blandað saman við nýstárlegan einkastíl Frusciante og yfir þetta syng- ur hann með sinni góðu röddu. Frábær plata þótt skrítin sé. Sú besta hingað til John Frusciante – The Empyrean bbbbn Höskuldur Ólafsson Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is ÞEGAR Leone Tinganelli ákvað að fagna 45 ára afmæli sínu með því að senda lag sitt „Hálfur Íslendingur“ til Rásar 2, átti hann eflaust ekki von á þeim viðbrögðum er lagið hefur fengið. Síðan hann frumflutti lagið í Popplandi síðasta fimmtudag hefur það verið spilað á hverjum degi og fólk hringir víst mikið inn til þess að spyrjast fyrir um hvar sé hægt að nálgast lagið en þar heyrist Leone syngja á íslensku, með sterkum ítölsk- um hreim, að hann sé hálfur Íslendingur er borði lýsi og hákarl og ætli sér að vinna eins og skepna til þess að komast undan skuldum kreppunnar. „Ég er að verða 45 ára núna í vikunni en er búinn að vera hér á Íslandi í 22 ár,“ svar- ar Leone aðspurður um hvernig hann reikni það út að vera hálfur Íslendingur. „En ég sagði við sjálfan mig að ég kynni ekki að syngja vel á íslensku enda bara hálfur Ís- lendingur sem talaði íslensku út úr kú. Mér fannst það fyndin hugsun og prufaði að nota það í texta.“ Leone gerir ekki bara grín að sjálfum sér í textanum, heldur einnig staðalímynd hins ramm-íslenska karlmanns er borðar þorra- mat og drekkur lýsi. „Ég tek reyndar ekki lýsi en ég borða þó hákarl. Mér finnst marg- ur þorramatur skemmtilegur en ekki allur. Stundum spyrja Íslendingar mig hvort ég taki lýsi og ég segi þeim að bragðið sé nú ekki svo gott. Það getur verið erfitt fyrir þann sem er ekki vanur bragðinu að taka lýsi.“ En Leone telur það einnig hjálpa gengi lagsins að hann skuli snerta örlítið á þjóð- félagsástandinu í textanum. „Þeir höfðu gam- an af þessu á Rás 2, kannski sérstaklega af því að ég syng um kreppuna sem snertir alla. Líka okkar, sem erum ekki alveg Íslend- ingar.“ Ílendist á Íslandi Leone er fæddur og uppalinn í Napólí en kom hingað fyrst til lands sem ferðamaður sumarið 1986, þá 22 ára. Þá voru Reykvík- ingar að fagna 200 ára afmæli sínu og lenti Leone í miðjum fagnaðarlátum og skemmti sér konunglega næstu daga. Svo vel reyndar að þegar hann kom aftur til Napólí, hætti hann í skóla og í vinnunni og ákvað að flytj- ast til Íslands yfir veturinn. Til þess að gera langa sögu stutta, býr hann hér enn og á nú fimm dætur. Nú vill hann hvergi annars staðar vera enda hækkar hlutfall Íslendings- ins í honum með hverjum deginum sem líður. „Þegar ég skoðaði landið fyrst fannst mér það mikið ævintýri, sem mér finnst reyndar enn. Ég er stundum leiðsögumaður fyrir túr- ista um Ísland og finnst það enn stór- fenglegt.“ Leone hefur sungið með ýmsum íslenskum stórstjörnum, þar á meðal Björgvini Hall- dórssyni og Stefáni Hilmarssyni. Hann hefur gefið út sínar eigin sólóplötur og leikur á árshátíðum og skemmtunum með hljómsveit sinni Delizie Italiane. „Fólk hefur hringt í mig til þess að spyrja mig hvar það geti fengið þetta lag. Ég er að hugsa um að tala við tónlist.is við fyrsta tækifæri. Ég hugsa aldrei svona langt. Ég hélt að þetta væri bara djók og vildi sjá hvort útvarpsstöð hefði jafn gaman af þessu og mér.“ „Hélt að þetta væri djók“ Lag Leones Tinganelli, „Hálfur Íslendingur“, hefur slegið óvænt í gegn á Rás 2 Morgunblaðið/Ómar Íslenskur karlmaður Leone Tinganelli með þrjár af fimm dætrum sínum og lýsisflöskuna góðu. Ég er hálfur Íslendingur, fæddur í Napólí. Ég var ungur útlendingur, þegar ég sá þig fyrst. Og ég tek alltaf lýsi til að sanna fyrir þér, að ég er alvöru Íslendingur. Þó að ég tali íslensku dálítið út úr kú er ég samt hamingjusamur. ---- Því að Ísland er landið, er borðar hákarl og slátur, ég geri hvað sem er til þess að vera hjá þér. Ég er kaldur og blautur bæði sumar og vetur, en mér hlýnar á ný þegar þú ert hér hjá mér. ---- Ég er hálfur Íslendingur, skuldugur í kreppunni. Eiginlega alltaf blankur, en vertu róleg ástin mín. Ég ætla að vinna eins og skepna, til að sanna fyrir þér, að ég er alvöru Íslendingur, þó að ég tali íslensku svolítið út úr kú er ég samt hamingjusamur. ---- Ég tek alltaf lýsi, you know its not that easy. en ég veit að þú elskar mig, þó að ég tali íslensku svolítið út úr kú, vil ég vera hjá þér, mér er kalt ef þú ert ekki hér. Hálfur Íslendingur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.