Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 40
40 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér
skilja, að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður. (Jóh. 14,20.)
Nú er farið að hitna í kolunum. Þáslær í brýnu milli mótmælenda
og lögreglu. Tvennt er vitað um svona
mótmæli. Lögreglan er að gera
skyldu sína og fólk á rétt á því að mót-
mæla. Tvennt til viðbótar er einnig
vitað. Í hópi mótmælenda er einstaka
óeirðaseggur og í hópi lögregluþjóna
er einstaka valdbeitingargikkur.
x x x
Víkverji veit að lögregla tekur hlut-verk sitt og ábyrgð sína alvar-
lega. En Víkverji veit samt ekki hvort
lögregla tekur hlutverk sitt og ábyrgð
nógu alvarlega. Af myndefni frá mót-
mælunum í fyrradag, sem aðgengi-
legt er á netinu, má glögglega sjá lög-
reglu beita piparúða af of mikilli
„vinnugleði“. Lögregla skilur nefni-
lega ekki hvers vegna fjölmiðlar
neita að kalla þetta vinnutæki
þeirra „varnarúða“. Það er vegna
þess að úðinn er ekki bara notaður í
vörn, heldur einnig í sókn. Jafnvel í
árás að nauðsynjalausu. Árásarúði er
jafngott heiti og varnarúði þegar lög-
regluþjónn teygir sig yfir járn-
grindverk til þess að úða í augu ljós-
myndara, sem hvorki stimpast við
laganna verði né veldur eignaspjöll-
um. Lögregluþjónar eiga að vera
skipulagðir, staðfastir og yfirvegaðir.
Ekki árásargjarnir.
x x x
Svo er það hitt. Á meðan lögreglanstendur í þessu stappi, þvert
gegn vilja sínum, er til einföld lausn á
málinu. Að boða til kosninga. Ráð-
herrar sem lenda í leiðinlegum og nið-
urlægjandi kringumstæðum þessa
dagana eiga greiða leið út úr þeim
með því að segja af sér. Krafan um
það kemur ekki bara úr röðum eggja-
kastara. Mótmælin eru líklega fá-
menn og öfgakennd birtingarmynd
þess vantrausts á valdhöfum, sem er
ríkjandi meðal almennings. Í stuttum
undirbúningi fyrir kosningar getur
hver stjórnmálaflokkur ákveðið á sín-
um vettvangi hvernig hann end-
urheimtir trúverðugleika sinn. Flokk-
ar eru ekkert annað en fólkið sem í
þeim er. Framsókn hefur þegar hafn-
að fortíðinni í merkilegu formanns-
kjöri. Víkverja þykir fleiri flokkar
þurfa að hafna fortíðinni.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Breyttar forsendur.
Norður
♠G873
♥K76
♦97632
♣K
Vestur Austur
♠96 ♠D1054
♥32 ♥10984
♦ÁG ♦KD8
♣DG109632 ♣74
Suður
♠ÁK2
♥ÁDG5
♦1054
♣Á85
Suður spilar 3G.
Vestur er gjafari og vekur á 3♣.
Pass til suðurs, sem doblar út á hjarta-
litinn. Norður segir 3♠ og suður 3G.
Ágæt afgreiðsla, en verkið er bara
hálfnað. Hvernig á að spila með ♣D út?
Átta slagir í toppspilum og sá níundi
þarf að koma á spaða. Án upplýsinga
frá sögnum væri rétt að taka ♠Á-K
fyrst og spila svo að gosanum. En
hindrun vesturs breytir forsendunum,
enda líklegt að austur sé með fjórlit í
spaða. Miðað við spaðalengd í austur
er best að fara af stað með ♠D í öðrum
slag! Hér leggur austur á, suður drep-
ur, fellir síðan ♠9 vesturs með hinum
spaðahámanninum og fríar slag á ♠8-7.
Þessi íferð heppnast þegar vestur á
níuna EÐA tíuna aðra. Sem er tvöfalt
líklegra en ♠Dx.
Eftir sem áður vinnst spilið alltaf ef
spaðinn brotnar 3-3.
Hafsteinn
Guðnason skip-
stjóri, til heimilis
að Víkurbraut
15, Keflavík, er
sjötugur í dag,
22. janúar.
Hann og eigin-
kona hans, Eydís
B. Eyjólfsdóttir,
taka á móti gestum á afmælisdag-
inn í sal Oddfellowa, Grófinni 6,
Keflavík, í dag milli kl. 18 og 20.
70 ára
Magnús Einars-
son, Kjarnholtum
I, Biskupstungum,
verður sextugur
laugardaginn 24.
janúar næstkom-
andi. Í tilefni þess
býður hann
frændfólki, vin-
um, kunningjum og sveitungum til
afmælisfagnaðar, í félagsheimilinu
Aratungu, kl. 20 á afmælisdaginn.
60 ára
SIGURÐUR Flosason saxófónleikari gerir ráð fyr-
ir því að fá betri morgunverð í dag en aðra daga í
tilefni afmælisins. „Við höfum reynt að hafa eitt-
hvað skárra á morgnana fyrir þá sem eiga afmæli
í fjölskyldunni. Gjafirnar eru einnig oftast afhent-
ar á morgnana,“ segir Sigurður sem tekur það
fram að hann viti svo sem ekki hvort einhvers sé
að vænta.
Spurður að því hvort hann óski sér einhvers sér-
staks í afmælisgjöf segir hann mikið kvartað und-
an því að enginn óskalisti hafi borist frá honum.
„Maður er orðinn svo gamall. Það er fátt sem
mann langar í annað en að vera innan um fólkið sem maður er með og
halda áfram með það maður er að gera.“
Auk spilamennskunnar er mikið að gera á ýmsum vígstöðvum
tengdum tónlistarstarfinu, að sögn Sigurðar. „Það hefur verið gíf-
urleg törn við námskrárgerð fyrir íslenska tónlistarskóla á vegum
menntamálaráðuneytisins. Ég er einnig í stjórn tónskálda og texta-
höfunda sem er félag popp- og djasstónskálda á Íslandi innan STEF.
Þar er margt í gangi þessa dagana og svo kenni ég við tónlistarskóla
FÍH.“ ingibjorg@mbl.is
Sigurður Flosason saxófónleikari 45 ára
Gjafir afhentar að morgni
Sudoku
Frumstig
8 7 6 3
3 5 9 1
9 7 4 3 8
9 8 3 1
8 2 1 7
1 6 7 5
6 4 8 9 2
1 5 2 6
4 2 1 7
9 5 7
9 4 3 1
3 5 8
9 3
8 9 6 3 2 1 7
4 1
8 1 6
6 3 5 1
4 1 7
5 8 4 6
3 7
6 3 9 4
8 7 1 5 4
2 4 1 7
4 1 7 5 6
4 9 8 7
1 2
8 3 6 1
5 8 4 7 2 9 6 1 3
1 9 7 6 3 8 2 5 4
2 3 6 4 5 1 7 9 8
7 1 8 5 4 6 3 2 9
4 2 9 1 7 3 8 6 5
6 5 3 9 8 2 4 7 1
9 7 2 8 1 4 5 3 6
8 6 5 3 9 7 1 4 2
3 4 1 2 6 5 9 8 7
7 4 2 1 9 5 8 3 6
3 6 8 7 2 4 1 5 9
5 1 9 3 6 8 7 2 4
4 3 6 2 1 9 5 8 7
9 8 7 4 5 3 2 6 1
1 2 5 6 8 7 9 4 3
2 7 4 8 3 1 6 9 5
8 5 1 9 4 6 3 7 2
6 9 3 5 7 2 4 1 8
2 9 4 7 5 6 1 8 3
7 3 5 8 2 1 6 4 9
8 1 6 3 4 9 5 7 2
3 8 2 4 7 5 9 1 6
6 5 7 1 9 2 4 3 8
1 4 9 6 8 3 2 5 7
4 6 8 2 1 7 3 9 5
5 2 1 9 3 8 7 6 4
9 7 3 5 6 4 8 2 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 22. janúar,
22. dagur ársins 2009
Krossgáta
Lárétt | 1 flá, 8 tuskan, 9
lærir, 10 greinir, 11 lof-
ar, 13 ójafnan, 15 bisk-
upsstaf, 18 mjólkurvara,
21 bál, 22 eyja, 23
blunda, 24 eðli.
Lóðrétt | 2 ofsögur, 3
korn, 4 deila, 5 lærdóm-
urinn, 6 beltum, 7 hug-
boð, 12 svelgur, 14 á
húsi, 15 smábrellur, 16
fisks, 17 launung, 18
broddur, 19 skjálfa, 20
kyrrir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 troða, 4 refur, 7 bólið, 8 gæfum, 9 sæg, 11 álfa,
13 unna, 14 látin, 15 gull, 17 græt, 20 örg, 22 göfug, 23
lofar, 24 tíðni, 25 parta.
Lóðrétt: 1 tíbrá, 2 oflof, 3 arðs, 4 rögg, 5 fífan, 6 rimma,
10 æmtir, 12 all, 13 ung, 15 gegnt, 16 lífið, 18 rífur, 19
terta, 20 ögri, 21 glep.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp í heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir nokkru í Elista í
Rússlandi. Fyrrverandi heimsmeistari
FIDE, Rustam Kasimdzhanov (2.672)
frá Úsbekistan, hafði svart gegn
Rússanum Ernesto Inarkiev (2.669).
63. … Rxg3! 64. f4 svartur hefði unn-
ið drottningu hvíts eftir 64. Bxg3 Bb6.
Með peði meira náði svartur í fram-
haldinu að knýja fram vinning 22
leikjum síðar: 64. …exf4 65. Dxf4
Rh5 66. De3 Kg8 67. Kg2 Db2 68.
Be2 Dxe2 69. Dxe2 Rf4+ 70. Kf3
Rxe2 71. Kxe2 Bf6 72. Kf3 Be5 73.
Kg4 f6 74. Be3 Kf7 75. Kf3 Ke7 76.
Ke2 Kd7 77. Kd3 Kc7 78. Kc4 Kb7
79. Kb5 g5 80. Bg1 g4 81. Bf2 g3 82.
Be3 g2 83. Bg1 Bb2 84. Ka4 Ka6 85.
Kb4 Be5 86. Kc4 Ka5 og hvítur gafst
upp.
Svartur á leik.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Margir munu komast yfir ákveð-
inn hjalla í starfsframa sínum á næst-
unni. Gerðu hreint fyrir þínum dyrum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þið verðið að gera ykkur grein
fyrir því að ekki eru allir viðhlæjendur
vinir og að ekki eru allir vinir með sama
hætti. Skapandi lausnir eru það sem
þarf í vinnunni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Stundum eru það aðeins smá-
atriði sem standa í veginum fyrir því að
árangur náist. Nú getur þú litið bjart-
sýnn fram á veginn.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ekki vera of gagnrýnin/n á börn
í dag. Ljósmyndun og myndbandstækni
eru nauðsynleg tæki. Tíminn hefur unn-
ið með þér svo allt reynist auðveldara
en þú bjóst við.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er mikill áhugi í kring um þig
á starfi þínu og menn bíða spenntir eftir
útkomunni. Gakktu fram með góðu for-
dæmi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú stenst alveg áskoranir. Vertu
á varðbergi, það er munur á því að gefa
reglum engan gaum, eða lítilsvirða þær.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er hreint ekki nóg að hafa svör
við öllu á reiðum höndum. Mundu að
engin manneskja er annars eign. Biddu
um það sem þú átt skilið.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert að endurskipuleggja
heiminn þinn, og ástvinur virðist standa
í veginum. Finndu aðra heppilegri fram-
setningu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Rifrildi við maka og fjöl-
skyldumeðlimi eru líkleg í dag. Gefðu
þér líka tíma til að eiga samverustundir
með fjölskyldunni.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú mátt eiga von á óvæntum
uppákomum allt í kring um þig og því er
gott að búa yfir eðlislægum sveigj-
anleika. Reyndu að halda ró þinni.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Reyndu að bregða út af van-
anum í dag ef þú getur. Furðulegt hvað
þú ert alltaf að reyna að sanna fyrir
fjölskyldunni að þú sért ekki barn leng-
ur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur auga fyrir verðmæti og
safnið þitt er meira virði en þig grunar.
Einbeittu þér að þeim verkefnum sem
fyrir liggja og þá sjá aðrir þínar bestu
hliðar.
Stjörnuspá
22. janúar 1988
Paul Wat-
son, leið-
toga Sea
Shephard,
var vísað úr
landi en
hann hafði
komið dag-
inn áður.
Samtökin
sögðust hafa sökkt hvalbát-
unum í Reykjavíkurhöfn rúmu
ári áður.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Heiðurshjónin Jónsteinn Haralds-
son kaupmaður og Halldóra Helga
Kristjánsdóttir sjúkraliði eiga sex-
tíu ára brúðkaupsafmæli í dag, 22.
janúar. Þau halda upp á daginn í
faðmi fjölskyldu sinnar.
Demantsbrúðkaup
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is