Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 33
eldra í vöggugjöf sem umvöfðu okk-
ur ást og umhyggju frá fyrsta degi. Í
foreldrahúsum fengum við gott
veganesti sem við höfum búið að alla
ævi. Fyrir það er ég þakklát því slíkt
er ekki sjálfgefið.
Hjördís var sérlega jákvæð, glað-
lynd og lífsglöð manneskja. Hún var
vinsæl og vinmörg og sérlega fær
ljósmóðir. Hún naut þess ríkulega að
vera innan um annað fólk, ættingja
og ástvini. Þegar fjölskyldan kom
saman var hún drifkraftur gleði og
glaðværðar. Á ættarmótum gaf hún
sér alltaf tíma til að heilsa upp á öll
litlu og stóru börnin sem hún hafði
svo stolt tekið á móti sem ljósmóðir.
Það eru ótalmargir sem hafa notið
hlýju þinnar, fagmennsku og hjálp-
semi í gegnum árin. Ég kveð þig með
miklum söknuði og sorg í hjarta, en
minnist þín fyrst og fremst með
þakklæti í huga. Fyrir ómetanlega
nærveru á lífsleiðinni. Undanfarnar
vikur hafa verið sérlega erfiðar en
trúin og vonin um að þér myndi
batna var svo sterk. Ég er svo þakk-
lát fyrir að hafa haft tækifæri til að
koma til þín í heimsókn með Helgu,
dóttur minni. Sú stund sem við átt-
um saman er ómetanleg og dýrmæt
sem perla. Þú ljómaðir af fegurð og
augun glömpuðu af gleði og lífsvilja.
Á þessari stundu töldum við að þér
væri að bata og vorum við svo sælar
að sjá kraftinn í þér að við stöllur
ákváðum á þeirri stundu að stofna
saman gönguklúbb og var ákveðið að
hefja fyrstu gönguna strax á nýju
ári.
Elsku systir mín, það hvarflaði
ekki að mér að þessi stund okkar
væri með þeim síðustu. Ég reyndi að
halda í hönd þína og gefa þér styrk á
spítalanum og ég veit að þú fannst
fyrir nærveru minni, þó svo að þú
hefðir á þeirri stundu verið orðin
mikið veik. Á þessari erfiðu stundu,
þegar sorgin og söknuðurinn um-
lykja okkur sem eftir stöndum, vil ég
biðja Guð að blessa minningu þína,
elsku systir. Ég veit að Jóhann minn
hefur tekið vel á móti þér og veitt þér
hlýjar móttökur. Guð geymi þig og
blessi fallegu minninguna þína.
Ég vil senda systkinum mínum,
börnum Hjördísar, barnabörnum,
vinum og öllum ættingjum systur
minnar mínar dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Hafðu þökk. Guð blessi ykkur öll.
Þín systir
Þórhalla (Dadda).
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Þetta söng Villi Vill sem hún dýrk-
aði og dáði. Svona líður okkur systk-
inunum þegar við kveðjum ástkæra
systur. Það er svo sárt að geta ekki
hringt eða skroppið í heimsókn. Það
er svo ótrúlegt að horfa á þessa
sterku konu sem virkilega var fædd í
foringjahlutverk, þurfa að lúta í
lægra haldi fyrir þessum illvíga sjúk-
dómi á svo skömmum tíma. Hjördís
ólst upp í stórum systkinahópi, við
vorum sjö systur og tveir bræður,
það var oft mikið fjör og hamagang-
ur. Það er sérstaklega gaman að
minnast á þær veislur sem við vorum
saman allar þá var sungið og mikið
hlegið enda dróst fólk að okkur.
Ung lærði hún ljósmóðurstörf og
eins og allt sem hún tók sér fyrir
hendur var það gert af heilindum og
virðingu, hún gaf sig alla í starfið.
Hún var óskaplega heppin í starfi,
fór í gegnum allan sinn feril án mis-
taka, enda sagði hún, hann þarna
uppi er alltaf með mér. Hún var
heiðruð af Ljósmæðrafélaginu.
Elsku systir, nú er stórt skarð
höggvið í hópinn, þrjú systkini farin
sex eftir. Það er huggun harmi gegn
að brátt hittumst við öll, foreldrar
okkar og þau börn sem farin eru. Þá
verður glatt á hjalla, þá verður mikið
sungið og hlegið. Elsku systir, þín er
sárt saknað.
Við vottum Sigurði eiginmanni
þínum, Guðrúnu, Steinunni, Sig-
rúnu, Steinari og Ragnhildi og mök-
um þeirra, barnabörnum, barna-
barnabörnum okkar dýpstu samúð.
Guðrún Helga, Þórhalla, Krist-
ín, Ásgeir, Fjóla og Þórdís.
Vegir vináttunnar liggja í báðar
áttir, þannig var vinátta okkar Hjör-
dísar, hún var meira en systir, hún
var líka traustur vinur. Hún var
kjarkmikil, skipulögð og heillandi
persónuleiki.
Hún var í forystusveit ljósmæðra
og var svo gæfusöm í starfi að hvergi
bar skugga á. Hún hélt fyrirlestra
um barnsfæðingar og var í Háskóla
Íslands og þá í framhaldsnámi, en
hún þurfti enga viðbót á sitt nám,
hún hafði dýrmæta reynslu, hún átti
mörg börn sjálf og hvað er betra en
eigin reynsla í þessu efni. Hún hafði
nefnilega meðfæddan hæfileika í
ljósmóðurstarfið.
Margar mæður innan fjölskyld-
unnar og utan þakka henni örugg-
lega fyrir stuðning, hjálpsemi og
hlýju þegar þær þurftu svo sannar-
lega á því að halda. Að koma heil-
brigðum einstaklingi í þennan heim
er meira en að segja það. Að fæða
barn er ekkert grín og því er það svo
mikils virði að hafa góða og traust-
vekjandi ljósu á staðnum.
Fyrir löngu greindist hún með ill-
vígan sjúkdóm og var fleygskorin og
maður hélt að þar með væri hún
sloppin. En, maðurinn með ljáinn er
fundvís á hetjurnar og löngu síðar
tók meinið sig upp aftur og varð
þessi hugumstóra hetja að játa sig
sigraða tíunda þessa mánaðar.
Nú ertu lögð upp í einhverja ferð
sem við vitum ekki hvert stefnir.
Fyrir ekki löngu síðan sagðir þú mér
að þig langaði til að eyða næstu jól-
um erlendis. Þú varst svo mikill
ferðalangur í þér og þú komst svo
víða við og þú vissir hvernig það var
að eyða jólunum erlendis. En
kannski eigum við eftir að ferðast
með góðum ferðafélögum um víðátt-
ur geimsins. Hver veit!
Það er svo margs að minnast og
það er það eina sem við eigum hérna
megin … minningarnar. Ljóðelsku
þinni var viðbrugðið, þú bæði þekkt-
ir og kunnir ótal … ótal ljóð og
þekktir sögu höfundanna.
En í dag kveðjum við þig í bili. En
við eigum þá von að við hittumst og
getum tekið þráðinn upp á ný.
Góða ferð og takk fyrir samfylgd-
ina.
Þín systir,
Fjóla.
Elsku Hjördís systir mín.
Að heilsast og kveðja, það er lífs-
ins saga. Það eru fáir viðbúnir því að
kveðja ástvin þegar sú stund rennur
upp sem við öll þurfum að ganga í
gegnum eftir lífsins göngu. Elsku
systir, þú mátt vera stolt og við öll af
þér fyrir ævistarfið sem þú valdir og
hve lánsöm þú varst í ljósmóður-
starfinu. Ljósmóðir er það fyrsta
sem barnið sér þegar það kemur í
heiminn. Hún opnar þeim nýfæddu
leiðina í lífið og lífsins ganga hefst.
Stórkostlegt. Í vöggugjöf hlotnaðist
þér glaðværð sem entist lífið í gegn.
Þegar ég lít til baka er mér minn-
isstætt þegar við vorum litlar stelpur
hve mikið ég dáðist að fallega hárinu
þínu, þú varst svo lík Shirley
Temple. Þú varst með samskonar
krullur um allt höfuðið, ótrúlega fal-
leg. Ógleymanlegar eru þær
ánægjulegu stundir sem við systurn-
ar sjö áttum þegar við hittumst og
sungum saman á ákveðnu tíma-
skeiði. Við vorum svo samstilltar í
söngnum að halda mátti að þjálfaður
stjórnandi hefði æft okkur en þess
þurfti ekki því söngurinn var inn-
byggður í okkur.
Við komum til jarðarinnar til að
læra og þroskast. Þinn lífsins skóli
hefur ekki verið þrautalaus en þér
tókst að leysa vel úr þeim verkefnum
sem lögð voru fyrir þig. Barnalán
þitt var mikið, það sýndi hve vel börn
þín hafa stutt þig í veikindum þínum.
Elsku systir, nú tekur nýtt svið við
og ný verkefni bíða þín. Far þú í
friði, friður Guðs þig blessi.
Ég votta Sigurði blessuðum, börn-
um og barnabörnum samúð mína og
bið Guð að blessa þá látnu og hina
sem eftir lifa.
Þín systir,
Kristín Karlsdóttir.
Hún Hjördís er látin eftir harða
baráttu við þann skæða sjúkdóm
krabbamein. Það er erfitt að trúa því
að svo lífsglöð og félagslynd kona sé
farin frá okkur. Ég kynntist Hjör-
dísi þegar hún hóf nám í Ljós-
mæðraskóla Íslands 1. október
1957.
Það voru voru nokkrar úr þessum
hópi sem ég kynntist meir en öðr-
um, ég var þá orðin ljósmóðir og átti
að taka þátt í að leiðbeina nemun-
um. Ég gerði það á ýmsan hátt á
þessum árum, má segja bæði í leik
og starfi. Því það var líka gott fyrir
nemana að vita hvert væri best að
fara til að skemmta sér. Hjördís
mundi hlæja ef hún sæi þessi skrif
mín. Við umgengumst allmikið á
þessum árum, unnum báðar á Fæð-
ingardeildinni. Hjördís stofnaði svo
heimili með Sigga sínum og helgaði
sig því í nokkur ár en vann samfellt
á deildinni frá 1976 til 2003. Hún
starfaði talsvert að félagsmálum
fyrir Ljósmæðrafélag Íslands og
síðustu árin í stjórn Ljósanna, fé-
lags eldri ljósmæðra.
Hjördís var góð ljósmóðir, sinnti
vel sínum störfum og var vinsæl
meðal samstarfsfólks og skjólstæð-
inga sinna. Ég gleymi aldrei setn-
ingu sem ein sængurkona sagði um
Hjördísi: „Hún er svo mikil kona og
því er svo gott að hafa hana hjá sér.“
Hjördís mín, ég tek undir þessi orð.
Ég votta eiginmanni hennar, börn-
um og fjölskyldum þeirra mína inni-
legustu samúð um leið og ég kveð
góða vinkonu.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðmundsson)
Í Guðs friði.
Kristín I. Tómasdóttir.
Í nær aldarfjórðungs starfi á
þeim stað þar sem stór hluti þjóð-
arinnar fæðist var Hjördís Karls-
dóttir ljósmóðir í orðsins bestu
merkingu. Örugg, úrræðagóð, föst
fyrir eða mild, myndugleg, en samt
hlaðin góðvild til allra. Með góða
faglega þekkingu, örugg handtök,
ekkert hik þegar hætta steðjaði að
móður og barni, vakandi og opin fyr-
ir nýjum straumum og hugmyndum
í starfi, hvetjandi og góð fyrirmynd
þeim sem komu til að læra, vinur
samstarfsmannanna. Skemmtileg,
glaðleg og glæsileg á velli. Þetta
kemur í hugann þegar hennar er
minnst nú við dagslok sem komu of
fljótt, enda þótt formlegum starfs-
ferli væri lokið. Svo minnisstæð og
rík er hugsunin um þessa góðu sam-
starfskonu okkur öllum sem kynnt-
umst henni. Hjördís varð ljósmóðir
fyrir vel hálfri öld, vann síðan á
Landspítalanum með hléum þar til
hún kom á besta aldri í fasta vinnu á
nýjum fæðingagangi Kvennadeildar
árið 1976, og var að lokum kennari
og vaktstjóri þar, ein allrareyndasta
og besta ljósmóðirin. Frá upphafi
var á flestum stundum mikið að
gera á fæðingagangi. Hún var þar í
eldlínunni við að hlúa að konum þar
sem allt lék í lyndi og lífið tók gleði-
stefnu á einu augabragði, en líka við
að hjálpa þeim sem áttu í erfiðleik-
um vegna veikinda, ótímabærra
fæðinga eða þegar sorg bar að hönd-
um. Allir treystu Hjördísi. Sem ung-
um námslækni, seinna sérfræði-
lækni og loks yfirmanni fannst mér
alltaf jafn gott að leita liðsinnis
hennar og vita af henni á vakt. Við
ræddum vandamálin sem upp komu
og hvað gera skyldi og því var hægt
að treysta að allt yrði gert sem um
var rætt af fullri og sjálfstæðri fag-
mennsku. Ég fékk líka að vita af því
ef hún var á öðru máli og þá var rætt
saman og besta lausnin fundin.
Þannig á að vinna og í samræmi við
það skilaði Hjördís miklu og farsælu
ævistarfi. Án efa minnast margar
konur og margir feður hennar með
hlýju og þökk.
Á Kvennasviði Landspítalans
kveðjum við Hjördísi Karlsdóttur
og vottum eiginmanni hennar, börn-
um og öðrum aðstandendum inni-
lega samúð okkar, en góðar minn-
ingar standa eftir og munu gera um
mörg ár og alla tíð hjá þeim sem
voru henni samferða.
Reynir Tómas Geirsson.
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HALLDÓR PÉTURSSON,
Tjarnarbakka 8,
Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn
15. janúar.
Jarðarför fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
23. janúar kl. 15.00.
Freydís Jónsdóttir,
Selma B. Vignisson, Arnar B. Vignisson,
Kristín Halldórsdóttir, Frans Ferdinand Schmitt,
Stefán Halldórsson, Kolbrún Sveinbjörnsdóttir
og barnabörn.
✝
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem
heiðrað hafa minningu ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HALLDÓRU ELDJÁRN,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudaginn
21. desember.
Þökkum innilega hlýhug og samúðarkveðjur við
andlát hennar og útför.
Ólöf Eldjárn, Stefán Örn Stefánsson,
Þórarinn Eldjárn, Unnur Ólafsdóttir,
Sigrún Eldjárn, Hjörleifur Stefánsson,
Ingólfur Eldjárn, Guðrún Björg Erlingsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hugheilar þakkir öllum þeim sem sýndu okkur
hlýhug og virðingu við andlát og útför eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu okkar,
NONNÝJAR UNNAR BJÖRNSDÓTTUR.
Þorvaldur Hafberg,
Linda Vilhjálmsdóttir, Mörður Árnason,
Hafdís Vilhjálmsdóttir,
Ásta Vilhjálmsdóttir, Steinþór Birgisson,
Vera, Sara Björk, Þórhildur og Katla.
✝
Ástkær eiginmaður minn,
MARKÚS GUÐMUNDSSON
skipstjóri,
Kristnibraut 63,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnudaginn
18. janúar.
Hallfríður Brynjólfsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar elskulegs bróður okkar og
frænda,
ARA ARASONAR
frá Skuld.
Systkini hins látna og aðrir aðstandendur.