Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 2
HELGI Hálfdanarson, bókmennta-
þýðandi, kennari og lyfjafræð-
ingur, andaðist á heimili sínu að
kvöldi 20. janúar, 97 ára að aldri.
Helgi var fæddur 14. ágúst 1911
í Reykjavík, sonur hjónanna séra
Hálfdanar Guðjónssonar og Her-
dísar Pétursdóttur. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Akureyri 1930. Helgi nam lyfja-
fræði í Reykjavík og Kaupmanna-
höfn og lauk cand. pharm.-prófi
1939. Hann stofnaði Húsavíkur
Apótek sem hann rak í tvo ára-
tugi, starfaði eftir það sem lyfja-
fræðingur og við kennslu í
Reykjavík.
Meðfram daglegum störfum
vann Helgi að þýðingum og var
einn helsti bókmenntaþýðandi Ís-
lendinga á 20. öld. Hann þýddi öll
leikrit Williams Shakespeares,
gríska harmleiki eftir Æskýlos,
Sófókles og Evripídes. Einnig sí-
gilda ljóðleiki eftir aðra höfunda,
þar á meðal Pétur Gaut eftir Hen-
rik Ibsen. Þá endursagði Helgi
efni nokkurra þekktra leikrita
Shakespeares og gaf út á bók.
Auk þess þýddi Helgi Kóraninn,
sagnasöfn og fjölda ljóða frá flest-
um heimsálfum.
Helgi tók þátt í þjóðfélags-
umræðunni og liggur eftir hann
fjöldi greina og pistla, m.a. í
Morgunblaðinu. Þar fjallaði hann
um hugðarefni sín, málrækt,
skáldskap og leikritun. Helgi setti
einnig fram nýstárlegar kenningar
til skilnings á Völuspá og öðrum
fornkvæðum og smíðaði fjölda ný-
yrða.
Helgi var kvæntur Láru Sigríði
Sigurðardóttur, fædd 16. janúar
1914 á Sauðárkróki, dáin 21. júlí
1970 í Reykjavík. Þau eignuðust
þrjú börn. Morgunblaðið þakkar
að leiðarlokum farsælt samstarf
og vináttu í áratugi sem aldrei bar
skugga á.
Einn helsti bókmenntaþýð-
andi Íslendinga á 20. öld
Helgi Hálfdanarson látinn
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
FJÖLMENNUR félagsfundur Sam-
fylkingarfélagsins í Reykjavík
(SffR) samþykkti samhljóða ályktun
þess efnis að skora á þingflokk Sam-
fylkingarinnar að beita sér fyrir því
að ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks verði slitið strax og
mynduð verði ný stjórn fram að
kosningum sem fram fari eigi síðar
en í maí 2009.
Heitar umræður fóru fram á fund-
inum á sama tíma og á annað þúsund
mótmælenda börðu trumbur sínar
fyrir framan Þjóðleikhúsið. Allir
voru þeir sem til máls tóku á fund-
inum á því að slíta ætti stjórnarsam-
starfinu umsvifalaust í stað þess að
bíða eftir landsfundi sjálfstæðis-
manna. Heyrðust fundargestir
hrópa: „Stjórnarslit fyrir helgi.“
Einn fundargesta sem tók til máls
ítrekaði að það væri hins vegar ekki
nóg að boða til kosninga í vor ef nú-
verandi seðlabankastjóri sæti áfram
í skjóli Samfylkingarinnar, sem og
ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis-
ins og stjórnendur Fjármálaeftirlits-
ins. Trú fólks á Samfylkingunni yrði
ekki endurheimt með því að viðhalda
valdakerfi Sjálfstæðisflokksins.
Vilja endurnýjun í flokknum
Mörður Árnason varaþingmaður
sagði í framsögu sinni á fundinum að
núverandi ríkisstjórn hefði raun-
verulega misst pólitískt umboð sitt
fyrir nærri þremur mánuðum. Hún
hefði hins vegar ekki tekið mark á
óánægju almennings og mistekist að
brúa þá gjá sem myndast hefði milli
ríkisstjórnar og almennings. Endur-
heimta þyrfti traust almennings.
Sökum þessa væru kosningar óum-
flýjanlegar.
Helgi Hjörvar alþingismaður
sagði allar forsendur hafa breyst við
bankahrunið og að svo sársaukafull-
ar og erfiðar aðgerðir væru fram-
undan á næsta ári að ekki væri hægt
að fara í þær nema með ferskt um-
boð kjósenda. Upplýsti hann að hann
hefði verið á móti ráðherrahróker-
ingum þar sem hann teldi alla þing-
menn Samfylkingarinnar, ekki bara
ráðherra, bera ábyrgð á stöðunni.
„Við þurfum að biðja þjóðina afsök-
unar á því sem gerðist á okkar vakt.“
Einn fundargesta tók hanskann
upp fyrir það unga fólk sem léti
kröftuglega í sér heyra í mótmælum
á götum úti nú um stundir. Sagði
hann unga fólkið vera skattgreiðend-
ur framtíðarinnar og því ekkert
óeðlilegt við það að það hefði mikla
skoðun á því hvers konar samfélag
því væri boðið upp á, kysi það á ann-
að borð að yfirgefa ekki landið.
Annar sem tók til máls sagði að
flokkurinn þyrfti að fara í tiltekt áð-
ur en til kosninga kæmi og lagði til
að þegar kosið yrði myndu núver-
andi þingmenn Samfylkingarinnar
ekki gefa kost á sér til þingsetu aft-
ur. Hlaut sú tillaga mikið lófaklapp
fundargesta.
„Stjórnarslit
fyrir helgi“
Krafa um kosningar nú á vormánuðum
Morgunblaðið/Kristinn
Húsfyllir Samfylkingarfólk troð-
fyllti Þjóðleikhúskjallarann í gær.
Í HNOTSKURN
»Eftir að fundi SffR lauksendi stjórn Samfylkingar-
félagsins í Kópavogi frá sér
fréttatilkynningu þess efnis að
hún styddi ályktun félags-
fundar SffR.
»Stjórn Ungra jafnaðar-manna ályktaði einnig á
sömu nótum.
»Samkvæmt heimildumblaðamanns er von á
stuðningsyfirlýsingum frá
fleiri Samfylkingarfélögum.
INGIBJÖRG
Sólrún Gísladótt-
ir utanríkis-
ráðherra er
væntanleg heim í
vikulokin, en hún
hefur dvalist á
Karolínska
sjúkrahúsinu í
Stokkhólmi sl.
viku. Þar gekkst
hún undir aðgerð
þar sem sýni voru tekin vegna heila-
æxlis og hluti þess jafnframt fjar-
lægður. Aðgerðin heppnaðist vel en
ákvörðun um frekari meðferð liggur
ekki fyrir.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu sem send
var fjölmiðlum í gær. Þar segir jafn-
framt að Ingibjörg Sólrún verði lögð
inn á Landspítalann þegar hún kem-
ur heim þar sem læknar muni taka
ákvörðun um framhaldið.
silja@mbl.is
Væntan-
leg heim
Lögð inn á Landspít-
alann við heimkomu
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
FRAMSÓKNAR-
FLOKKURINN
er reiðubúinn að
verja minni-
hlutastjórn Sam-
fylkingar og VG
falli komi til þess
að Samfylkingin
slíti stjórnarsam-
starfi við Sjálf-
stæðisflokkinn.
Þetta kom fram í
yfirlýsingu, sem samþykkt var á
þingflokksfundi og kynnt var af Sig-
mundi Davíð Gunnlaugssyni, for-
manni flokksins.
„Ég hef ekki rætt neitt við Sam-
fylkinguna, en það er þó ljóst að stór
hluti Samfylkingarinnar er mjög
ósáttur við stjórnarsamstarfið. Það
hefur komið fram í óformlegum sam-
ræðum,“ sagði Sigmundur Davíð.
Hins vegar hefði hann rætt málin við
formann VG, en þær viðræður hefðu
verið í trúnaði. „Ég á von á við-
brögðum frá VG, en það er óljóst með
Samfylkinguna,“ sagði Sigmundur
Davíð og taldi tilboðið eiga eftir að
freista margra.
Tilboð Framsóknarflokksins er
háð því að kosningar fari fram ekki
seinna en 25. apríl. annaei@mbl.is
Verja minni-
hlutastjórn
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
TVEIR erlendir fjárfestar, Steve
Cosser og Everhard Vissers, hafa
gert formlegt tilboð í Árvakur hf., út-
gáfufélag Morgunblaðsins.
„Árvakur er ein margra fjárfest-
inga sem við höfum áhuga á að leggja
í á Íslandi,“ segir Cosser, sem er ástr-
alskur að uppruna og býr yfir mikilli
fjölmiðlareynslu, bæði sem frétta-
maður og umsvifamikill fjárfestir í
fjölmiðlafyrirtækjum í Ástralíu. „Ég
hef haft áhuga á fjölmiðlum frá því ég
var strákur og við teljum að Morg-
unblaðið sé vel rekinn miðill. Við er-
um þó líklega einu tveir bjánarnir í
heiminum sem myndu hugleiða að
kaupa dagblað sem þeir geta ekki les-
ið,“ segir hann og hlær.
Leiðir Cossers og hollenska fjár-
festisins Vissers lágu saman í fjárfest-
ingum í námavinnslu í Suður-Afríku
og Mósambík. Saman stofnuðu þeir
Southern Mining Corporation, sem
var selt ástralska námafyrirtækinu
Western Mining Corp. fyrir 200 millj-
ónir Ástralíudollara.
Að sögn Cossers eru þeir reiðubún-
ir að breikka eignarhald félagsins
þegar fram líða stundir, en telja nú
mikilvægast að tryggja áframhald-
andi rekstur Árvakurs. Þeir hyggjast
ekki gera breytingar á stjórn eða
stefnu Morgunblaðsins. „Við skiljum
ekki einu sinni það sem stendur í
blaðinu og ætlum ekki að skipta okk-
ur af því. Okkur finnst ritstjórnarlegt
sjálfstæði mikilvægast og á því þarf
Ísland nú að halda.“
Samninginn sem þeir buðu Glitni
banka segir hann góðan. „Við buðum
bankanum að hann fengi allar sínar
veðskuldir greiddar.“
Cosser og Visser hafa áhuga á fleiri
fjárfestingum á Íslandi þessa dagana
og er uppbygging Tónlistarhússins
ein þeirra. „Við áttum 38 fundi á fjór-
um og hálfum degi sem við vorum á
Íslandi og okkur var alls staðar vel
tekið. Nú hefur heimsókn okkar
spurst út og í kjölfarið hafa margir
sett sig í samband.“
annaei@mbl.is
Erlendir fjárfestar sýna
rekstri Árvakurs áhuga
Í HNOTSKURN
»Cosser varð milljónamær-ingur 27 ára gamall árið
1982 er hann seldi tónlistar-
fyrirtæki, sem hann hafði
stofnað nokkrum árum áður.
Hann býr nú í London, þar
sem hann stundar m.a. fast-
eignaviðskipti.
»Vissers, sem býr í Sviss, áog rekur Magellan Watch
S.A., svissneskan úraframleið-
anda.