Morgunblaðið - 22.01.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti húsgögn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
80%afslætti
valdar vörur með allt að
borð
FRÁ 1
6.780
leðu
r sóf
aset
t 3+1
+1
220.0
00
stóla
r FRÁ
6.359
ÞAÐ SEM af er janúarmánuði hafa
um 350 þúsund gestir komið í versl-
unarmiðstöðina Kringluna, rúm-
lega prósenti fleiri en á sama tíma í
fyrra. Svipaður fjöldi gesta sækir
einnig Smáralindina og á sama
tíma í fyrra.
Sigurjón Örn Þórsson, fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, segir
verslunarrekendur búa sig undir
samdrátt. Hagrætt hafi verið við
rekstur hússins og rekstrargjöld
lækkað um 13% að nafnvirði milli
ára. Húsið sé í fullri leigu en færri
sækist nú eftir því að reka verslun í
Kringlunni en síðustu ár.
„Sem betur fer erum við það vel
settir að ekkert rými er óútleigt,
þótt ekki sé hafinn rekstur í þeim
öllum.“
Sigurjón segir annan þunga í að-
sókn verslunarmanna í húsið en
hafi verið við eðlilegar aðstæður.
„Bankar og fjármálastofnanir eru
lokaðar fyrir fjármögnun í dag.“
Henning Freyr Henningsson,
framkvæmdastjóri Smáralindar,
segir svipaða sögu og Sigurjón.
Vegna ástandsins sé veittur 20% af-
sláttur á leigunni. Henning segir
töluverða ásókn í verslunarpláss.
„Það er eins og þessir stóru kjarnar
hafi meira aðdráttarafl þegar
kreppir að.“ gag@mbl.is
350 þúsund gestir
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SAUTJÁN til tuttugu tíma vaktir
undir grjót-, skyr- og eggjakasti, fúk-
yrðaflaumi og árásum. Þannig hljóm-
ar lýsingin á vakt þeirra lögreglu-
manna sem reynt hafa að halda aftur
af mótmælendum undanfarna tvo
daga. Í mörgum tilvikum er um fólk
að ræða sem glímir við sömu erfið-
leika og mótmælendur og einhverjir
gera líklega sömu kröfur. Það er ekki
auðvelt að vinna sem stuðpúði milli
stjórnvalda og almennings, en ein-
hver verður að sinna því starfi.
Lögreglan hefur legið undir ámæli
vegna of harðra viðbragða gegn mót-
mælendum. Allmargir kvarta yfir
piparúðanum sem lögreglumenn nota
mikið, og aðrir yfir beitingu kylfa.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höf-
uðborgarsvæðisins, tekur fram að
lögreglan sé ekki í stríði við mótmæl-
endur. „Við erum að sinna okkar
verkefnum og þau verkefni eru til
dæmis að grípa inn í ef menn beita of-
beldi eða skemmdarverkum til að
koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi.“
Farið yfir allar aðgerðir
Stefán tekur fram að farið sé yfir
allar aðgerðir og reynt að læra af því
sem betur megi fara. Ef upp komi að
lögreglumaður hafi farið á svig við lög
verði málið sent til ríkissaksóknara
umsvifalaust. Hann hvetur einnig þá
sem telja sig hafa verið beitta misrétti
til að leita til saksóknarans.
Stefán harmar það að mótmælandi
hafi handleggsbrotnað. „Einn hand-
leggsbrotinn er einum of mikið. En
það er því miður erfitt við það að eiga
þegar ástandið er orðið með þessum
harða hætti, að tryggja að allt fari vel
fram og enginn slasist.“
Lögregla höfuðborgarsvæðisins er
fáliðuð, og mikið álag er á starfs-
mönnum. Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra segir að flýta beri ráðn-
ingu lögreglumanna en auglýst var
eftir 22 slíkum fyrir áramót. Stefán
segist ekki geta sagt til um hvenær
ráðið verður í stöðurnar en verið sé að
fara yfir málin.
Spurður hvort hægt sé að fjölga í
lögregluliðinu tímabundið, s.s. með því
að kalla til björgunarsveitir, en heim-
ild er fyrir því í lögreglulögum, segir
Stefán ekkert útilokað en ástandið sé
ekki komið á það stig að á slíkri aðstoð
þurfi að halda. Hann segir hvern dag
verða tekinn fyrir sig og lögregla sé
tilbúin í öll þau verkefni sem komi upp.
Snorri Magnússon, formaður
Landssmataka lögreglumanna, segir
menn standa vaktir á hálftómum
batteríum á meðan svo fáliðað er.
Hann tekur þó fram að hljóðið í
mannskapnum sé gott og samheldni
mikil. „En það má ekki gleyma því að
ástand okkar lögreglumanna, bæði
fjárhagslega og á annan hátt, er ekki
öðruvísi en hins almenna borgara. Í
lögreglunni er margt ungt fólk sem
er að koma sér upp fjölskyldu og hús-
næði. Lánafyrirkomulag hjá þeim er
ekkert frábrugðið því sem gerist hjá
öðrum.“
Réttmæt reiði almennings
Lögreglumenn eru félagsmenn í
BSRB. Formaður þess, Ögmundur
Jónasson, segir að í heildina hafi lög-
reglumenn sýnt yfirvegun og sinnt
starfi sínu af stillingu. Hann hefur þó
áhyggjur af fámenni þeirra, enda hef-
ur hann oft varað við niðurskurði í lög-
gæslu.
Ögmundur segir að forðast eigi að
alhæfa um lögregluna, þar séu menn
jafn misjafnir og þeir séu margir. En
þegar á reyni geti mönnum orðið á, og
það sé ekki afsakanlegt. Enda séu
miklar kröfur gerðar til lögreglunnar.
Hann segir eðlilegt að fólk mótmæli
enda brenni í fólki réttmæt reiði. En
reiði þess eigi að beinast að réttum að-
ilum, stjórnvöldum, ekki lögreglu.
Í heildina má segja að lög-
reglumenn hafi staðið sig vel gegn
óstýrilátum mótmælendum. Þeir hafa
verið yfirvegaðir og leyft ýmislegu yf-
ir sig að ganga áður en gripið var til
aðgerða. Eflaust eru þeir þó ósam-
mála sem urðu fyrir piparúða eða
höggi.
Morgunblaðið/Golli
Slettur Mótmælendur létu lögreglumenn óspart finna fyrir því og slettu á þá skyri og köstuðu í þá eggjum.
Ekki öfundsverðir
Reiði almennings á ekki að beinast að lögreglumönnum
Álag mikið á lögreglunni og dæmi um 20 tíma vaktir
MARGIR mótmælenda voru ósáttir við aðgerðir lögreglunnar í Alþingis-
garðinum á þriðjudag. Þá var garðurinn ruddur með tilheyrandi gusum af
piparúða. Einnig hefur meðferð á handteknum einstaklingum verið gagn-
rýnd.
Stefán Eiríksson segir að fyrst hafi fólki verið ýtt frá Alþingishúsinu, en
þar sem rúður hafi verið brotnar var ákveðið að rýma. „Talin var stór-
hætta á því að fólk færi í gegnum glerveggina á skálanum. Hægt og bítandi
reyndum við því að ýta fólkinu lengra frá því að grjótkastinu linnti ekki.“
Varðandi hina handteknu segir Stefán að lögregla hafi þurft að verja þá
fyrir grjótkasti. „Við neyddumst því til að fara með það inn í þinghúsið til
að tryggja öryggi þeirra.“
Brugðust við grjótkasti
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
ÞRÁTT fyrir að slagorð mótmæl-
enda, „vanhæf ríkisstjórn“, hafi
hljómað ótt og títt í eyrum stjórn-
arþingmanna hafa sjálfstæðismenn
ekki hug á því að slíta stjórnarsam-
starfinu. Vilji til þess er hins vegar
mikill innan raða Samfylkingarinnar
og hefur farið vaxandi síðustu tvo
daga, eftir að mótmæli við Austurvöll
og fyrir framan stjórnarráðið tóku að
harðna. Það mátti heyra það á þing-
mönnum sem Morgunblaðið ræddi
við í gærkvöldi að þau miklu mótmæli
sem staðið hafa undanfarna tvo daga,
hafa virkilega hreyft við þingmönn-
um. Þeir „skynja betur reiði fólks“,
sagði einn stjórnarþingmanna.
Mikil mótmæli
Þunginn í mótmælunum náði há-
marki um miðjan dag í gær þegar
stór hópur fólks, um þúsund manns,
safnaðist saman fyrir framan stjórn-
arráðið og mótmælti kröftuglega.
Eftir að Geir H. Haarde forsætisráð-
herra settist upp í bíl sinn gerðu mót-
mælendur harða hríð að ráðherra,
grýttu bíl hans og hrópuðu að honum.
„Mér brá við þetta, og þetta var ekki
skemmtileg reynsla,“ sagði Geir í
samtali við blaðamenn í Valhöll um
atvikið þegar fundur þingflokksins
stóð yfir seinni partinn í gær.
Á þeim fundi ræddu þingmenn
flokksins um stöðu landsmála, vax-
andi ólgu meðal almennings og mál
sem unnið er að á vegum ríkisstjórn-
arinnar vegna efnahagshrunsins.
Geir hafði þá þegar rætt við Ingi-
björgu Sólrúnu, formann Samfylk-
ingarinnar, sem fullvissaði hann um
að samstarfið væri ekki í hættu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins lýstu þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins óánægju sinni með
„ístöðuleysi“ þingmanna Samfylking-
arinnar. Voru margir óánægðir með
að ríkisstjórnarsamstarfinu væri
ógnað á viðkvæmasta tíma fyrir
stjórnvöld, þegar verið væri að reyna
að bjarga fyrirtækjum frá gjaldþroti.
Samstaða aðalatriðið
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins voru margir þingmanna
Sjálfstæðisflokksins á því að krafan
um að kosningar færu fram síðar á
þessu ári væri ekki endilega ósann-
gjörn. Hins vegar skipti miklu máli að
stjórnarflokkarnir sýndu samstöðu.
Á þingflokksfundi Samfylking-
arinnar, sem fór fram á sama tíma,
var annað uppi á teningnum. Þar
voru þingmenn sammála um að staða
í landsmálum, og einkum sá mikli órói
sem mótmælin endurspegla, væri
„mikið áhyggjuefni“. Margir þing-
menn, ekki færri en tíu að því er einn
þingmanna greindi frá, voru á því að
kosningar á fyrri hluta þessa árs
væru óhjákvæmilegar. Ekki væri
hægt að horfa framhjá því að óánægj-
an meðal almennings væri víðtæk og
ekki einskorðuð við eina stjórn-
málastefnu frekar en aðra. Almenn-
ingur væri einfaldlega búinn að fá
nóg af „ástandinu“ sem hrun bank-
anna hefði framkallað. Þá höfðu
margir einnig áhyggjur af því að stað-
an ætti eftir að versna enn eftir því
sem atvinnuleysi myndi aukast, en
því er spáð að það muni ná hámarki á
vormánuðum og verða þá um tíu pró-
sent.
Eftir því sem leið á daginn í gær
varð þingmönnum Samfylking-
arinnar betur og betur ljóst að marg-
ir fylgismanna flokksins vildu kosn-
ingar sem allra fyrst.
Spennan fyrir landsfund Sjálfstæð-
isflokksins, sem fram fer í lok mán-
aðarins, er nú ekki aðeins bundin við
niðurstöður fundarins heldu ekki síð-
ur hvort ríkisstjórnin „lifir fram að
fundinum“ eins og einn viðmælenda
komst að orði. Miðað við þá spennu
sem magnast hefur upp undanfarna
daga er ljóst að stjórnarsamstarfið
hangir á bláþræði.
Stjórnarsam-
starfið hangir
á bláþræði
Sjálfstæðismenn óánægðir með „ístöðu-
leysi“ þingmanna Samfylkingarinnar
Morgunblaðið/Ómar
Orrahríð Geir H. Haarde ræðir við
fréttamenn í Valhöll í gær.
Í HNOTSKURN
»Þingflokkur Framsóknar-flokksins ályktaði um það í
gær að flokkurinn væri tilbú-
inn að verja ríkisstjórn Vinstri
grænna og Samfylkingarinnar
falli.
»Sjálfstæðisflokkurinn ogSamfylkingin hafa ríkan
meirihluta á þingi, 43 þing-
menn af 63. Þrátt fyrir það
hefur þrýstingur á stjórnarslit
aukist mikið undanfarið, ekki
síst innan frá.
LÖGREGLAN á höfuðborgar-
svæðinu leitaði í gærkvöldi að
manni sem rændi verslun
Lyfju við Lágmúla um áttaleyt-
ið. Ræninginn, sem huldi andlit
sitt, hótaði starfsfólki með egg-
vopni. Að sögn lögreglu komst
ræninginn undan, en hann tók
eitthvað af lyfjum með sér.
Engan sakaði í ráninu að
sögn lögreglu, en maðurinn var
ekki enn fundinn þegar blaðið
fór í prentun.
Vopnað
rán í Lyfju