Morgunblaðið - 22.01.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
ÞORSTEINN Steingrímsson, eig-
andi Barónsstígs 47, þar sem
Heilsuverndarstöðin var til húsa,
leitar að leigjendum í húsið. Rúmur
mánuður er síðan samningurinn við
Heilsuverndarstöðina rann út.
„Ég reikna með að fjölbreytt
starfsemi verði í húsinu, en vonast
helst til þess að húsið leigist undir
lækna- og heilbrigðisstarfsemi þar
sem allar endurbætur á húsinu hafa
miðast við að þar sé læknastarf-
semi.“ Hann segir þó ekki útilokað
að vera með skrifstofur í stórum og
góðum sjúkrastofum. „Á tímum
þrenginga verður að haga seglum
eftir vindi.“ Rólega gangi að semja
um endurleigu þessara 5.000 fer-
metra, en þó séu þreifingar í gangi.
„Allt þokast þetta í rétta átt.“
gag@mbl.is
Vill gjarnan
leigja læknum
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„VIÐ reynum alltaf að leysa málin
með samningum við viðskiptavinina
og teljum okkur sýna þeim sanngirni
enda er það okkur hagur að við-
skiptavinurinn
geti greitt af bíln-
um og staðið við
sínar skuldbind-
ingar. Þar fara
hagsmunir SP og
viðskiptavina
saman. Því miður
eru dæmi, örfá,
þar sem lítill eða
enginn vilji er á
hinum endanum
til að leysa vandamálin,“ segir Kjart-
an Georg Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri SP-Fjármögnunar.
Örfá hundruð bíla voru tekin til baka
á síðasta ári með vörslusviptingu, en
þrefalt fleiri en árið áður. „Ef fólk
borgar ekki af láni sínu þá missir það
bílinn fyrr eða síðar.“
Kjartan hefur unnið við fjár-
mögnun bílaviðskipta frá 1987 og
hefur rekið SP-Fjármögnun hf. í 14
ár. Hann þekkir bæði kreppu- og
velmegunartíma í þessum við-
skiptum en viðurkennir að erfiðleik-
arnir nú séu þeir mestu sem hann
hefur upplifað.
Lánið yfir verðmæti bílsins
Stór hluti bílaviðskipta hefur á
síðustu árum verið fjármagnaður
með kaupleigusamningum í erlend-
um gjaldmiðlum. Lækkun á gengi ís-
lensku krónunnar hefur skapað
mörgum lántakendum erfiðleika því
mánaðarlegar afborganir hafa tvö-
faldast á skömmum tíma. Á sama
tíma hefur markaðsverð bílanna
lækkað, auk þess sem erfitt er að
selja. Áhvílandi skuldir eru því í
mörgum tilvikum orðnar mun hærri
en markaðsverð bílanna, eins og sést
á dæmum í meðfylgjandi töflu.
Kjartan fullyrðir að fólk hafi ávallt
átt kost á verðtryggðum lánum til
jafns við myntkörfulán við bílakaup
hjá SP-Fjármögnun og kannast ekki
við að erlendu lánunum hafi verið ot-
að að fólki. Lánin eru veitt fyrir
milligöngu bílasala, bæði vegna not-
aðra bíla og nýrra, og segir Kjartan
eðlilegt, miðað við þankagang okkar
Íslendinga, að fólk hafi tekið þann
kostinn sem við útreikning á þeim
tíma sýndi að það gæti leyft sér að
kaupa heldur dýrari bíl. Því hafi er-
lendu lánin gjarnan orðið fyrir val-
inu. Fall krónunnar gerbreytti þess-
um forsendum.
Lengi var miðað við að veita ekki
lán yfir 70 til 75% af kaupverði bíls
en á síðustu árum hafa lánin farið
allt upp í 80 til 90%. Kjartan viður-
kennir að það hafi verið mistök að
hækka lánshlutfallið. Samkeppnin á
markaðnum hafi gert það ómögulegt
að standa í ístaðinu. Það hefði dæmt
fyrirtækið úr leik. Sama sé að segja
um erlendu lánin. Markaðurinn
hefði talið þau hagkvæmari og ekki
hægt að skorast undan. Hins vegar
hafi SP-Fjármögnun dregið mjög úr
þeim á fyrrihluta síðasta árs, vegna
aðstæðna við fjármögnun bílalána.
Bíllinn er eign lánveitandans
Sú breyting sem varð á fjár-
mögnun bílalána þegar svokallaðir
bílasamningar tóku við af skulda-
bréfalánum, var að sögn Kjartans
forsendan fyrir því að talið var
óhætt að hækka lánshlutfallið. Inn-
heimtuferlið tekur skemmri tíma í
bílasamningi en þegar bíll er veð
fyrir skuldabréfaláni enda er bíla-
samningur í raun kaupleigusamn-
ingur. Lánveitandinn kaupir bílinn
en veitir viðskiptavininum ótak-
markaðan afnotarétt af honum með
ákveðnum skilyrðum.
Kjartan segir að ef viðskiptavin-
urinn standi ekki í skilum sé ítrekað
haft samband við hann og reynt að
fá hann til að standa í skilum, bæði
á vegum fyrirtækisins sjálfs og hjá
innheimtufyrirtæki. Viðskiptavin-
urinn hafi einnig möguleika á að
koma málum í lag þegar málið sé
komið í innheimtu hjá lögfræðingi
og farið er fram á vörslusviptingu.
Meira að segja þegar búið sé að
sækja bílinn eigi viðskiptavinurinn
kost á að koma láninu í skil og fá bíl-
inn til baka.
Flestir standa í skilum, þótt hart
sé í ári. Kjartan segir að þrefalt
fleiri bílar hafi verið teknir til baka
með vörsluskiptingu á nýliðnu ári
en á árinu á undan. Hann gefur ekki
upp nákvæmar tölur um fjöldann,
nefnir að örfá hundruð bíla sem SP
hefur fjármagnað fari þetta ferli til
enda. Þessa stundina er fyrirtækið
með 24 óselda bíla eftir vörslusvipt-
ingu. Kjartan vekur athygli á því að
þetta sé enn lítið brot af þeim mikla
fjölda bíla sem SP hafi fjármagnað.
Hugað að framhaldinu
SP-Fjármögnun reið á vaðið með
frystingu afborgana á bílasamn-
ingum. Það býður viðskiptavinum
sínum að greiða vexti af lánunum en
fresta afborgunum af höfuðstólnum
í fjóra mánuði. Þetta getur fólk gert
án mikillar fyrirhafnar og sér að
kostnaðarlausu. Um sjö þúsund bíl-
eigendur hafa nýtt þetta eða tæp-
lega helmingur þeirra fimmtán þús-
und sem gert hafa bílasamninga við
fyrirtækið. Þegar bætt hefur verið
við rekstrarleigubílum er SP-
Fjármögnun raunverulegur eigandi
um 25 þúsund bíla. Er það svipað og
tvö eða þrjú önnur fjármögn-
unarfyrirtæki.
Þessu aðlögunartímabili er að
ljúka hjá þeim sem fyrstir sömdu
og að óbreyttu hækkar afborgunin í
fyrra horf 1. mars. Kjartan segir að
þar sem ástandið sé óbreytt, krón-
an hafi ekki jafnað sig, sé verið að
huga að því hvernig hægt sé að
koma til móts við viðskiptavinina
áfram, til að fleyta þeim yfir erf-
iðleikana til lengri tíma. Þetta úr-
ræði verður kynnt á næstu dögum
eða vikum.
Beggja hagur að semja
SP-Fjármögnun tók til sín þrefalt fleiri bíla á síðasta ári en á árinu á undan
Framkvæmdastjórinn segir alltaf reynt að leysa málin með samningum
!
!"! # #$%&
"""
!"! #
'!%!
#
()%!
"
Kjartan Georg
Gunnarsson
Verðmat Bílgreinasambandsins, sem byggist á upplýsingum um raunverð
í bílaviðskiptum, er lagt til grundvallar við mat á bíl sem SP-Fjármögnun
tekur til sín frá kaupendum með vörslusviptingu. Kjartan Gunnarsson
vekur athygli á því að komið hafi í ljós að þetta mat sé frekar of hátt en of
lágt, eins og þeir sem selt hafa bíl þekki. Eins og staðan er núna geti
einnig tekið langan tíma að selja bílinn.
SP-Fjármögnun lætur Frumherja meta ástand bílsins og þar með
kostnað við að koma honum í lag. Áætlaður viðgerðarkostnaður er dreg-
inn frá matsverðinu, við uppgjör við viðskiptavininn. Einnig eru dregin frá
15% afföll sem eiga að standa undir fjármagnskostnaði, tryggingum,
geymslu bílsins og sölu.
Kjartan segir að bílarnir sem teknir eru til baka séu í misjöfnu ástandi
og margir séu illa umgengnir og illa farnir. „SP hagnast ekki á því að taka
þá til baka. Hagsmunir SP felast í því að leysa málin í góðri sátt við við-
skiptavini okkar, ef þeir lenda í vanda,“ segir Kjartan.
Matið frekar of hátt en of lágt
MEIRIHLUTI kjósenda getur
krafist þess að efnt verði til kosn-
inga, samkvæmt frumvarpi sem tíu
þingmenn Samfylkingarinnar ætla
að leggja fram á Alþingi. Er í frum-
varpinu gert ráð fyrir að minnst
helmingur þess fjölda sem kaus í síð-
ustu almennu alþingiskosningum
geti farið fram á slíkt. Þá er lagt til
að hið sama gildi um almennar sveit-
arstjórnarkosningar.
Tilgangur frumvarpsins er, að því
að segir í greinargerð, að stuðla að
lýðræðislegri stjórnarháttum.
Stjórnvöldum verði þannig veitt að-
hald með því að vita af því að kjós-
endur geti, nái þeir samstöðu um
það, farið fram á kosningar.
Fyrsti flutningsmaður frumvarps-
ins er Helgi Hjörvar, þingmaður
Samfylkingarinnar.
Meirihluti
geti krafist
kosninga
STRAX í býtið í gærmorgun hófust hreinsunarstörf við alþingishúsið eftir
mótmælaöldu þriðjudagsins. Hreinsa þurfti veggi og glugga sem mótmæl-
endur höfðu látið dynja á matvæli og ýmislegt lauslegt. Nokkrar rúður
voru brotnar og skipt um þær.
Morgunblaðið/Ómar
Alþingishúsið þrifið
TÆPLEGA 70% Íslendinga telja að
efnahagsástandið muni versna hér á
landi á næstu mánuðum. Á heims-
vísu er hlutfallið tæp 50%. Þetta er
meðal niðurstaðna úr könnun um
áhrif fjármálakreppunnar á almenn-
ing sem framkvæmd var í sautján
löndum. Capacent Gallup sá um
könnunina á Íslandi.
Bretar eru einna svartsýnastir um
horfur í efnahagsmálum en 78%
þeirra telja að ástandið muni versna
næstu þrjá mánuði.
Helmingur Íslendinga taldi að
tekjur fjölskyldu þeirra myndu
lækka á næstu 12 mánuðum og voru
þeir, ásamt Kóreumönnum, svart-
sýnastir hvað þetta atriði varðaði.
Einnig var spurt hvort nú væri góð-
ur tími eða slæmur til að festa kaup á
húsnæði. 66% Íslendinga töldu að nú
væri slæmur tími til þess en hlut-
fallið á heimsvísu var 43%.
Þá voru Íslendingar einna svart-
sýnastir hvað varðaði traust á rík-
isstjórn til að ná stjórn á efnahags-
vandanum og traust til þess að
bankarnir nái stöðugleika.
Könnunin var framkvæmd með
netkönnun dagana 4.-9. desember sl.
Úrtakið var 1.129 manns og svar-
hlutfallið 55%.
Íslendingar með
þeim svartsýnustu
Viðhorf til fjármálakreppunnar kannað
ÖRYRKJABANDALAG Íslands
hyggst láta lögmenn sína kanna
lagalegan rétt félagsmanna sinna
gangi ríkis-
stjórnin gegn lög-
um um verðbæt-
ur á greiðslur
almannatrygg-
inga til yfirgnæf-
andi meirihluta
elli- og örorkulíf-
eyrisþega. „Það
er ekkert ósk-
astaða okkar að
vera með fullt af
málum fyrir dóm-
stólum en þetta mál verður alvarlega
skoðað,“ segir Halldór Sævar Guð-
bergsson, formaður Öryrkjabanda-
lagsins. Ákvæðið um að bætur al-
mannatrygginga ættu aldrei að
hækka minna en neysluvísitalan
hefði verið þeirra varnagli ef skapast
myndi ástand eins og það sem nú er í
þjóðfélaginu. „Þess vegna olli það
talsverðum vonbrigðum að það voru
bara um 4.000 öryrkjar sem fengu
fullar verðbætur upp á 19,6% á með-
an um 30.000 manns fengu ekki
nema 9,6% verðbætur. Við förum
fram á að menn endurskoði þetta.“
Í ályktun sem aðalstjórn Öryrkja-
bandalagsins sendir frá sér mótmæl-
ir hún „þessari aðför að lífeyris-
þegum og langveikum harðlega og
fer fram á að stjórnvöld grípi til ann-
arra og réttlátari aðgerða í þeim
efnahagsvanda sem við er að glíma“.
annaei@mbl.is
Kanna
lagalegan
rétt sinn
ÖBÍ telur stjórn-
völd brjóta lög
Halldór Sævar
Guðbergsson