Morgunblaðið - 22.01.2009, Qupperneq 10
10 FréttirHALLDÓR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
Rétt eins og rónarnir koma óorði ábrennivínið hefur lítill hópur
ólátabelgja spillt fyrir málstað þeirra
fjöldamörgu, sem að undanförnu hafa
tekið þátt í mótmælafundum.
Litli hópurinnhefur hvað
eftir annað farið
yfir mörk frið-
samlegra, lýðræð-
islegra mótmæla.
Aðallega virðist
þetta vera korn-
ungt fólk, sem
finnst meira spennandi að snapa slag
við lögregluna en að koma málstað
sínum á framfæri með rökum.
Lögreglan hefur tekið á þessumhópi af festu og fagmennsku og
ekki beitt meira valdi en ástæða var
til í því skyni að halda ólátum í skefj-
um. Lögreglumenn starfa við mjög
erfiðar aðstæður og hafa staðið sig
vel.
Það er hins vegar aðeins tímaspurs-mál hvenær illa fer í þessum
ryskingum og mótmælandi eða lög-
reglumaður slasast illa.
Undanfarið hafa orðið nokkrarfurðulegar uppákomur, þar sem
foreldrar ungmenna í litla, háværa
hópnum hafa kvartað sáran undan
framgöngu lögreglunnar.
Flestir foreldrar ráðleggja börn-unum sínum að reyna að lenda
ekki í löggunni. Og ef það gerist, eru
það yfirleitt börnin sem eru skömmuð
– ekki lögreglan.
Það er áhyggjuefni, ef ungt fólk færá tilfinninguna að skemmdar-
verk, ofbeldi, óvirðing og óhlýðni við
lögregluna sé viðtekin leið til að
koma skoðunum á framfæri.
Ef litli, háværi hópurinn þagnar dá-litla stund heyrum við vonandi
betur í hinum friðsama fjölda.
Lýðræðisrónarnir
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!!"#"
$"
$
#%
&'
!!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!!"#"
$"
$
""!
&""!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
$ $
$
$
$
$
$
$ $
$
$ $ $
$
$
$
*$BC
!
"
#$% #
&' #%
#!
( ) #
##
!
*!
$$B *!
(
#) *"
")"
'
%
+'
<2
<! <2
<! <2
(
*!",
-".!'/
CC2
D
*
(*#*+$ # % #% #,#!- #
* /
* #* -#$
&' #%
#
!( ) #
!
<7
#$
&' #%
#
( ) #
!
01!! "#"'22
!'"%#"3 '
%'",
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
STAKSTEINAR
VEÐUR
SKIPULAGSSTOFNUN telur að breyting á
verksmiðju Elkem Ísland ehf. á Grundartanga sé
ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð um-
hverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverf-
isáhrifum.
Um er að ræða framleiðslu á allt að 10.000 tonn-
um á ári af sólarkísli í nýrri framleiðslulínu í verk-
smiðjunni.
Meiri kröfur til hreinleika hráefna
Stofnunin telur að ný framleiðslulína fyrir sól-
arkísil komi ekki til að rýra loftgæði í hlutfalli við
aukna heildarframleiðslu hjá Elkem. Munar þar
mestu um að kröfur til hreinleika hráefna eru mun
meiri heldur en gerðar eru til hráefna fyrir núver-
andi framleiðslu, segir í niðurstöðum.
„Skipulagsstofnun telur neikvæðustu áhrif af
útblæstri fyrirtækisins vera losun á um 70.000
tonnum af koldíoxíði á ári. Augljóst er að vegna
mikilla birgða og notkunar á hættulegum efnum,
einkum flúrsýru og vítissóta þá geti skapast hætta
ef óhapp eða slys á sér stað.“
Skipulagsstofnun telur brýnt að vandað verði til
brunahönnunar og viðbragðsáætlunar svo allra
leiða verði leitað til að fyrirbyggja og bregðast við
slysum með hættuleg efni og lágmarka þannig lík-
indi á neikvæðum áhrifum efnanna á umhverfið.
aij@mbl.is
Sólarkísill þarf ekki að fara í mat
Í HNOTSKURN
»Áætluð hámarksaflþörf verksmiðj-unnar eykst um tæp eitt hundrað
MW.
»Áætlað er að starfsmenn viðframleiðslulínuna verði um 350.
»Framkvæmdir við jarðvinnu gætuhafist þegar leyfi liggja fyrir og ef
Elkem tekur ákvörðun um að reisa fram-
leiðslulínuna hérlendis.
N1.ISN1 440 1000
Nýttu þér framúrskarandi þekkingu
og þjónustu ásamt úrvalinu á stærsta
varahlutalager landsins fyrir allar
tegundir bíla.
Gerðu vel við bílinn þinn!
Ef varahluturinn
er til – þá er hann
til hjá okkur.