Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
HEIMILI og skóli – landssamtök
foreldra og SAFT, í samstarfi við
Símann, fóru nýverið af stað með
fræðsluherferð um örugga netnotk-
un barna. Kannanir SAFT gefa til
kynna að 99% grunnskólabarna
hafi netaðgang.
Markmiðið með herferðinni er að
vekja athygli foreldra og forráða-
manna á þeim hættum sem leynast
á netinu, og hvernig þær ber að
varast. Jafnhliða hefur Síminn sett
á markað Netvarann, sem er gott
og öruggt hjálpartæki.
Netvarinn er beintengdur við
Websence sem er leiðandi í heim-
inum í öryggi á netinu. Síminn býð-
ur Netvarann endurgjaldslaust til
viðskiptavina og er það fyrsta fjar-
skiptafyrirtækið í heiminum sem
kaupir leyfi handa öllum sínum við-
skiptavinum.
Einnig hafa Heimili og skóli boð-
ist til að halda erindi um örugga
netnotkun fyrir skólaráð og for-
eldrafélög, þeim að kostn-
aðarlausu, næstu vikurnar.
andri@mbl.is
Fræðsluherferð um örugga netnotkun
grunnskólabarna hrundið af stað
HVERFISRÁÐ Vesturbæjar veitti
Melaskóla styrk til kaupa á eftirlits-
myndavélum við skólann. Markmiðið
með að setja upp eftirlitsmyndavél-
arnar er að efla forvarnir gagnvart
einelti, eignarspjöllum og óæskilegri
umferð á skólalóðinni, segir í tilkynn-
ingu. „Þessar vélar eru góð viðbót við
það eftirlit sem starfsmenn skólans
veita á skólalóðinni og er ætlað að
bæta öryggi, vellíðan og samskipti
barna á skólalóðinni,“ segir enn-
fremur í tilkynningunni. Eftirlits-
myndavélarnar eru í gangi allan sólarhringinn til að koma í veg fyrir eign-
arspjöll eins og veggjakrot og rúðubrot.
Eftirlitsmyndavélar við Melaskóla til að efla
forvarnir gegn einelti og eignaspjöllum
Við skólann Skólastjórinn og
fulltrúar hverfaráðs Vesturbæjar.
SENDIRÁÐ Japans og japönsk
fræði við Háskóla Íslands standa
að Japans-hátíð í hátíðarsal Há-
skóla Íslands nk. laugardag kl. 13-
17.
Gestum er boðið að upplifa jap-
anska menningu af ýmsum toga.
Sýningar verða á hefðbundnum
japönskum teathöfnum, bragðað á
japanskri matseld, lært að búa til
origami og kennt að skrifa nafnið
sitt á japönsku. Japanskar bar-
dagaíþróttir verða sýndar á sviði,
kynnt verður japönsk popptónlist,
boðið verður upp á kennslu í jap-
anska borðspilinu go, og áhuga-
sömum leyft að prófa japanska
tölvuleiki og spreyta sig í karókí.
Japanshátíð í
Háskóla Íslands
Morgunblaðið/Kristinn
VERSLUNIN Heilsuhúsið fagnar í
ár 30 ára afmæli sínu. Staðið verð-
ur fyrir fjölmörgum viðburðum á
árinu í tilefni tímamótanna.
Margt verður í boði á afmæl-
isárinu. Hefst það nú í janúar með
vörutilboðum og margvíslegri út-
gáfustarfsemi. Sem dæmi má nefna
að afmælisútgáfa Heilsufrétta verð-
ur sérstaklega vegleg og verður
blaðinu nú sem áður dreift inn á
flest heimili landsins.
Heilsuhúsið 30 ára
BANDALAG háskólamanna lýsir
andstöðu við þær fyrirætlanir
stjórnvalda að skera niður í rík-
isfjármálum sem bitna á börnum,
ungmennum, fötluðu fólki, sjúk-
lingum og öldruðum. Niðurskurður
í ríkisþjónustu á að mati BHM allra
síst að bitna á þeim sem minnst
mega sín. Á tímum sem þessum ætti
að vera forgangsmál að styrkja
þjónustu við þá sem höllustum fæti
standa.
Mótmæla rangri
forgangsröðun
STARFSMANNAFÉLAG Heil-
brigðisstofnunar Vestmannaeyja
telur fyrirhugaða sameiningu við
Heilbrigðisstofnun Suðurlands á
Selfossi hafa verið vanhugsaða
ákvörðun.
Sérstaða Eyjamanna sé sú að þeir
búi á eyju og er samgöngum þannig
háttað að það tekur langan tíma að
komast á Selfoss og ákvörðunin
gæti því stefnt mannslífum í hættu.
Vanhugsuð ákvörðun
STUTT
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
TIL endurskoðunar er hjá fram-
kvæmdastjórn Sjúkrahússins á Ak-
ureyri (FSA) hvort mögulegt er að
breyta framkvæmd sparnaðar frá
því sem fyrirhugað var.
Skv. nýlega samþykktum fjár-
lögum þarf FSA að lækka útgjöld
um 250-300 milljónir króna á árinu
og þar af átti að spara 17,5 milljónir
með því að leggja niður dagdeild
geðdeildar í núverandi mynd og
sameina hana göngudeild í haust.
Forráðamenn Geðhjálpar fund-
uðu í gær með framkvæmdastjórn
FSA, einnig með starfsfólki og gest-
um á dagdeildinni og loks með Sig-
rúnu Björk Jakobsdóttur bæjar-
stjóra. „Þeir sögðu okkur að það
væri verið að fara yfir málið aftur og
frétta væri að vænta fljótlega – jafn-
vel í þessari viku. En því var ekki
lofað að hætt yrði við að leggja niður
dagdeildina og síðan sameininguna,“
sagði Sigursteinn Másson, varafor-
maður Geðhjálpar, þegar hann
ræddi við blaðamenn um fundinn
með framkvæmdastjórn FSA.
Sigursteinn sagði að hann og
Svanur Kristjánsson, formaður Geð-
hjálpar, hefðu lagt mikla áherslu á
það, á fundinum með stjórnendum
FSA, að ekki yrði rof á þjónustunni
við þá sem áttu að fá pláss á dag-
deildinni í febrúar. „Við trúum því
ekki að þetta verði niðurstaðan fyrr
en við tökum á því,“ sagði Svanur.
Þeir Sigursteinn sögðu ríkan vilja
hjá bæjaryfirvöldum að vinna að
lausn málsins og Svanur sagði að-
komu bæjarins mikilvæga í því skyni
að reynt yrði að koma í veg fyrir það
slys sem yrði ef þessi hluti þjónust-
unnar félli niður.
Spara átti 17,5 milljónir kr. með
því að leggja niður dagdeildina í nú-
verandi mynd en Sigursteinn fullyrti
að sá sparnaður næðist ekki á þessu
ári, m.a. vegna kjarasamninga.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ákveðnir Svanur Kristjánsson formaður og Sigursteinn Másson varaformaður Geðhjálpar á Akureyri í gærdag.
Ekki rjúfa þjónustuna
„Trúum þessu ekki fyrr en við tökum á því“ Stjórn FSA
kannar hvort hægt verður að breyta framkvæmd sparnaðar
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
SKULDARAR eiga að fá innheimtu-
viðvörun sem ekki má kosta meira en
900 krónur áður en innheimta á gjald-
föllnum reikningum hefst. Þetta er
samkvæmt nýrri reglugerð sem
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráð-
herra undirritaði í gær og tekur gildi 1.
febrúar. Ekkert hámark hefur verið á
upphæðinni sem rukka má við inn-
heimtuaðgerðir fram að þessu, en
reglugerðin er sett í samræmi við ný
innheimtulög sem tóku gildi um ára-
mótin.
Reglugerðin á við innheimtuað-
gerðir áður en krafa fer í lögfræðiinn-
heimtu. Samkvæmt henni má rukka
mismunandi gjöld eftir höfuðstól
kröfunnar, en þó ekki meira en 1.230
kr. fyrir lágar kröfur, en allt að 5.500
kr. fyrir hærri kröfur.
Fullháar fjárhæðir
Gísli Tryggvason, talsmaður neyt-
enda, fagnar því að reglugerðin taki
svo fljótt gildi og að hún nái einnig til
lögmanna sem stunda milliinnheimtu.
Hann fagnar því einnig að skýrt sé
kveðið á um að óheimilt sé að rukka
vanskilagjöld og að hlutfallskostnað-
ur sé óheimill. „Mér finnst hins vegar
fjárhæðirnar sem nefndar eru fullhá-
ar miðað við þær sem voru í drögum.
Krafa upp á 6.500 krónur getur leitt
af sér hátt í 13 þúsund króna kostnað.
En sé dæmi tekið um 45 þúsund
króna kröfu getur kostnaður við inn-
heimtu numið 18 þúsund krónum.
Þetta eru fullháar fjárhæðir.“
Sigurður Arnar Jónsson, forstjóri
Intrum, segir starfsmenn hræðast að
missa vinnuna vegna fimmtungs
tekjuskerðingar sem fyrirtækið verði
nú fyrir. „Hér verða hins vegar ekki
hópuppsagnir.“ Fyrirtækið vilji halda
uppi þjónustustigi sínu. Hann er
þokkalega sáttur. „Upphæðirnar eru
tiltölulega raunsæjar og ljóst að neyt-
endur fá ákveðna vernd. Ég vil þó
meina að verndin sé heldur öryggis-
ventill en að verið sé að koma böndum
á eitthvert okur innheimtufyrirtækja.
Breytingin er ekki það veruleg.“
Borga minna fyrir
innheimtu skulda
Skuldarar fá nú viðvörun áður en gjaldfallnir reikningar
eru innheimtir Tekjur Intrum skerðast um fimmtung
Morgunblaðið/Golli
Fjárskortur? Ekki er ódýrt að skulda þótt hámark hafi verið sett á inn-
heimtugjöld vegna vanskilakrafna einstaklinga.
Í HNOTSKURN
»Neytendasamtökin fagnareglugerðinni á heimasíðu
sinni en finnst að með því að
leyfa innheimtu á ítrekunum í
milliinnheimtubréfi verði
kostnaður fljótur að hlaðast
upp.
»Samtökin segja að í fyrridrögum að reglugerðinni
hafi upphæð ítrekananna ver-
ið lægri og því hafi reglugerð-
in að þessu leyti komið á
óvart.
Heimasíðan: www.ns.is.