Morgunblaðið - 22.01.2009, Page 23

Morgunblaðið - 22.01.2009, Page 23
Daglegt líf 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 Valgeir Sigurðsson segir kveð-skap hafa verið sína „bölvun og einustu huggun“ síðan hann var krakki. Hann yrkir: Sagt er að hugsjónin sé fyrir bí í sífelldu hagsmunabrauki, en ég er þó ráðherra, jafnt fyrir því – og jafnaðarmaður að auki! Hann orti um sölu Símans: Sumir varla vatni héldu, vitlausir af hrósinu, þegar Bakkabræður seldu beztu kúna úr fjósinu. Þegar núverandi ríkisstjórn var nýmynduð, kom Siv Friðleifs- dóttir fram í Sjónvarpinu, sagði að þetta væri frjálshyggjustjórn, og flokkur hennar myndi berjast af alefli gegn ríkisstjórninni! Val- geiri varð að orði: „Heyr á en- demi! Flokkurinn, sem árum sam- an hefur tekið þátt í argvítugustu frjálshyggjustjórn á Íslandi og stutt öll hennar verstu verk, – þykist hann nú ætla að grafa upp sín gömlu og góðu stefnumál, fé- lagshyggju, samvinnuhugsjón o.s.frv? Jæja!“ Og til varð vísa um flokkinn: Ekki var hann illa skaptur, ýmsum jafnvel nokkuð kær. Reynir nú að æla aptur öllu sem hann kyngdi í gær. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Af hugsjón og Bakkabræðrum Fjarðarkaup Gildir 22. jan. – 24. jan. verð nú verð áður mælie. verð Hamborgarar 2 x 115 g m/ brauði....................................... 298 376 298 kr. pk. Nauta T-bone ............................ 2498 2998 2498 kr. kg Folaldagúllas ............................ 1098 1478 1098 kr. kg Móa ferskur kjúklingur................ 698 998 698 kr. kg Ísfugl kjúklingabringur ................ 1933 2975 1933 kr. kg Ali helgarsteik ........................... 1139 1898 1139 kr. kg Ali grísagúllas............................ 1315 1878 1315 kr. kg Ali grísasnitsel ........................... 1315 1878 1315 kr. kg Ali grísahnakki beinlaus ............. 1079 1798 1079 kr. kg Hagkaup Gildir 22. jan. – 25. jan. verð nú verð áður mælie. verð Óðals svínalundir....................... 1239 2478 1239 kr. kg Óðals svínakótilettur .................. 1127 1879 1127 kr. kg Óðals svínagúllas ...................... 1127 1879 1127 kr. kg Óðals svínahnakki ..................... 1079 1798 1079 kr. kg Óðals svínarifjasteik................... 599 998 599 kr. kg Holta læri m/legg, bbq............... 623 959 623 kr. kg Íslandsnaut T-beinasteik ............ 2379 3398 2379 kr. kg Jói Fel. pizzadeig ferskt............... 287 359 287 kr. stk. Víking pilsner 0,5 l dós............... 99 129 99 kr. stk. Heilsubrauð Hagkaups ............... 269 479 269 kr. stk. Krónan Gildir 22. jan. – 25. jan. verð nú verð áður mælie. verð Ungnauta piparsteik .................. 2167 3095 2167 kr. kg Ungnauta mínútusteik................ 2399 3198 2399 kr. kg KEA hangikjöt soðið ................... 2548 2998 2548 kr. kg Móa læri/leggir magnkaup ......... 569 949 569 kr. kg Graskersbrauð........................... 299 399 299 kr. stk. Goða súrsaðir hrútspungar ......... 2422 2849 2422 kr. kg Goða lundabaggar súrir.............. 1549 1822 1549 kr. kg Goða súr sviðasulta ................... 2123 2498 2123 kr. kg Goða dúett súrir pungar/ sviðasulta ................................. 2090 2459 2090 kr. kg Goða þorramatur í fötu 1,2 kg..... 1999 2363 1999 kr. stk. Nóatún Gildir 22. jan. – 25. jan. verð nú verð áður mælie. verð Goða þorrabakki........................ 1258 1398 1258 kr. kg Súr lifrarpylsa............................ 1168 1298 1168 kr. kg Súr blóðmör .............................. 1168 1298 1168 kr. kg Súr lundabaggi.......................... 1118 1398 1118 kr. kg Súrir bringukollar ....................... 839 1198 839 kr. kg KEA hangikjöt soðið ................... 2398 2998 2398 kr. kg Soðin svið ................................. 798 879 798 kr. kg Lambafile með fiturönd .............. 2998 3998 2998 kr. kg Grísakótilettur............................ 998 1498 998 kr. kg Myllu jöklabrauð........................ 199 246 199 kr. stk. Þín verslun Gildir 22. jan. – 28. jan. verð nú verð áður mælie. verð Kristall Plús 6 pk ávaxtabragð ..... 698 839 117 kr. stk. Homeblest 300 g ...................... 165 195 550 kr. kg Nesquik áfylling 500 g ............... 329 439 658 kr. kg Hatting Filone Bianco 250 g ....... 335 419 1340 kr. kg Ota Solgryn haframjöl 500 g....... 219 269 438 kr. kg Build Up Vanilla 152 g ............... 498 665 3277 kr. kg Nóa karamellusprengjur 150 g ... 149 198 994 kr. kg Hunts tómatsósa 680 g ............. 245 298 361 kr. kg La Choy Soy Sauce 148 ml......... 249 298 1683 kr. kg Helgartilboðin Þorramaturinn á tilboði Morgunblaðið/Árni Sæberg SÉRFRÆÐINGAR hafa lengi hald- ið því fram að foreldrar, aðallega mæður, upplifi margir hverjir þung- lyndi og tilgangsleysi eftir að börnin eru flogin úr hreiðrinu. En nú er talið að þetta sé á mis- skilningi byggt. Þótt margir sakni barna sinna eru aðrir sem njóta auk- ins frelsis. Þá segir ný rannsókn sér- fræðinga við Berkeley-háskóla að hjónabönd batni eftir að börnin fari að heiman þvert á viðteknar hug- myndir um að hjón uppgötvi mörg hver á þessum tímapunkti að þau eigi fátt sameiginlegt „Það er ekki þannig að foreldrarn- ir séu óhamingjusamir með börnin heima heldur að þeir verði enn ánægðari þegar afkvæmin fara,“ segir Sara Melissa Gorchoff, einn rannsakenda. Ánægðari án barnanna Morgunblaðið/Þorkell Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Undirbúningur hjónannaSigurjóns Péturssonarog Þóru HrannarNjálsdóttur fyrir lengstu og erfiðustu vélsleða- keppni í heimi er nú á lokastigi. Keppendur verða að koma til Alaska um viku fyrir keppnina, m.a. svo hægt verði að athuga hvort búnaður þeirra uppfylli ör- yggiskröfur. Sigurjón og Þóra Hrönn fljúga á mánudag með Icelandair til New York og áfram sama dag til Seattle á vesturströnd Bandaríkj- anna. Morguninn eftir fljúga þau til Anchorage, en flugið þangað tekur þrjár klukkustundir og fjörutíu mínútur. Þau eiga að baki nokkrar ferðir til Alaska og segir Sigurjón að Alaska sé ekki aðeins landfræðilega fjarlægt öðrum ríkj- um Bandaríkjanna heldur sé þankagangur heimamanna einnig ólíkur því sem sunnar gerist í ríkjasambandinu. „Það er mjög langt frá Alaska til höfuðborgarinnar Washington í öllu tilliti,“ sagði Sigurjón. „Þarna býr þjóð sem þarf að reiða sig á mátt sinn og megin. Margir búa í dreifbýli við einangrun og í nánum tengslum við náttúruna. Alaska- menn tala gjarnan um sig og svo „hina“ – þá sem búa í hinum 48 ríkjum Bandaríkjanna á megin- landi N-Ameríku.“ Sigurjón segir Alaskabúa, eink- um í dreifbýli, mjög gestrisna og góða heim að sækja. „Gestrisni þeirra er lík gömlu íslensku gest- risninni. Það þykir sjálfsagt að veita gestum húsaskjól og góðan beina, því þú veist aldrei hvenær þú þarft sjálfur á gestrisni ann- arra að halda.“ Strangar öryggiskröfur Keppnin snýst fyrst og fremst um að komast á leiðarenda. Þátt- takendur í atvinnumannaflokki keppast um að koma fyrstir í mark. Engu að síður ríkir gagn- kvæm hjálpsemi milli keppnisliða. Ef einhver lendir í ógöngum reyna hinir að hjálpa. Miklar kröfur eru gerðar til búnaðar keppenda. Þóra Hrönn og Sigurjón munu nota talsvert af búnaði sem þau hafa fengið hjá styrktaraðilum hér á landi. Þau verða í úlpum og jökkum frá 66°N, stoðtækjafyrirtækið Össur hefur útbúið varnarspelkur og brynjur úr koltrefjaefnum og títani sem verja m.a. ganglimi fyrir höggum. Stormur hefur útvegað þeim skjól- fatnað og þau munu nota leið- sögutæki frá Garmin-umboðinu. Vestur í Alaska bíða m.a. heim- skautasvefnpokar, hlý nærföt, sokkar og hlífðarföt. Þessu verður öllu vakúmpakkað til að minnka fyrirferðina. Þetta er neyðarbún- aður til að hafa á sleðunum ef ske kynni að þau blotnuðu eða þyrftu að búa um sig í óbyggðum. Þá verða þau með tjöld á sleðunum og mat til tveggja daga. Einnig neyð- arblys, áttavita, landakort, sjúkra- kassa o.fl. Vélsleðarnir eru sér- búnir bandarískir keppnissleðar af gerðinni Arctic Cat F6 Sno Pro. Fjaðrabúnaður sleðanna er sér- staklega styrktur fyrir keppnina. „Allir keppendur þurfa að mæta með sleðana sína og allan búnað í bænum Wasilla hinn 31. janúar. Keppnin hefst þarna í heimabæ Söruh Palin, sem var varafor- setaefni repúblikana, en Todd maður hennar hefur oft tekið þátt í keppninni og sigrað fjórum sinn- um,“ sagði Sigurjón. Eftirlitsmenn fara gaumgæfilega yfir allan bún- að, sérstaklega öryggisbúnað. Um kvöldið er svo dregið um rásröð. Í liði með Sigurjóni og Þóru Hrönn eru tveir Alaskamenn, bræðurnir Will og Wally Smith. Lið þeirra er kallað Iceland-Alaska Snowmach- ine Team og hefur fengið liðsnúm- erið 40. Næstu dagar fara í æf- ingakeyrslur og sagði Sigurjón að þau ætluðu að aka fyrstu dagleið- ina frá Wasilla að minnsta kosti tvisvar sinnum fram og aftur. Þá er ekið eftir ánum Yentna og Skwentna sem báðar eru á ís. Síð- an liggur leiðin um opnar sífrera- sléttur og þéttvaxna skóga Alaska til bæjanna Nome við Barentshaf og Fairbanks inni í landi þar sem keppninni lýkur. Keppendur eru skráðir fjórum sinnum á dag. Fyrst við rásmark dagsins, síðan á tveimur við- komustöðum þar sem geymdar eru bensínbirgðir og svo á áfangastað. Á sleðunum er sjálfvirkur stað- setningarbúnaður og verður hægt að fylgjast með framvindu ís- lensku keppendanna á heimasíðu þeirra: www.icelandalaska.com. Undirbúningur á lokastigi Ljósmynd/Sigurjón Pétursson Vélsleðakappar Sigurjón Pétursson og Þóra Hrönn Njálsdóttir eru að leggja lokahönd á undirbúning þátttöku í lengstu og erfiðustu vélsleðakeppni í heimi. Myndin var tekin í undirbúningsferð í Dawson City í 32°C frosti.  Strangar kröfur eru gerðar til útbúnaðar keppenda í Iron Dog-vélsleðakeppninni í Alaska  Kepp- endur verða að vera viðbúnir því að þurfa að slá upp tjöldum og gista í fimbulkulda óbyggða Alaska Í HNOTSKURN »The Tesoro Iron Dog Racehefst í Alaska 8. febrúar næstkomandi. Eknir eru 3.172 km um óbyggðir Alaska á níu dögum. Oft er -30° til -45°C frost á þessum slóðum. »Þrjár konur taka þátt íkeppninni, ein þeirra er Þóra Hrönn Njálsdóttir. Hinar eru Alaskabúar. Lengsta og erfiðasta vél- sleðakeppni í heimi hefst 6. febrúar. Meðal kepp- enda eru íslensku hjónin Sigurjón Pétursson og Þóra Hrönn Njálsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.