Morgunblaðið - 22.01.2009, Síða 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
✝ Jenný Haralds-dóttir fæddist á
Eskifirði í Suður-
Múlasýslu hinn 9.
október 1927. Hún
lést 13. janúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Har-
aldur Víglundsson
tollvörður og lög-
reglumaður á Seyð-
isfirði, f. í Mjóafirði 9.
júlí 1905, d. 21. októ-
ber 1974, og Arn-
björg Sverrisdóttir
húsfreyja, f. í Nes-
kaupstað 16. febrúar 1905, d. 4.
nóvember 1987. Systkini Jennýjar
eru 1) Svandís, f. 1. mars 1929; 2)
Sverrir, f. 8. júlí 1930, d. 8. sept-
ember 2008; 3) Sigrún, f. 5. ágúst
1933; og 4) Pálína, f. 2. mars 1942.
Hinn 15. mars 1958 giftist Jenný
Sigurgeiri Péturssyni skipstjóra
frá Ófeigsfirði á Ströndum, f. 25.
maí 1928, d. 23. júlí 2007. Foreldrar
hans voru Pétur Guðmundsson, f. í
Ófeigsfirði 4. mars 1890, d. 21. sept-
ember 1974, og Ingibjörg Ketils-
dóttir, f. á Ísafirði 24. september
1889, d. 3. desember 1976.
Sigurgeir og Jenný
kynntust á Seyðisfirði
en þaðan lá leiðin til
Reykjavíkur. Fyrstu
hjúskaparár sín
bjuggu þau í Laug-
arneshverfinu en árið
1968 fluttust þau í
Holtagerðið í Kópa-
vogi og bjuggu þar
alla tíð síðan. Dóttir
Jennýjar og Sig-
urgeirs er Arndís
Björg, f. 11. október
1960, maki Bára
Kristín Kristinsdóttir,
f. 21. janúar 1960.
Jenný ólst upp á Seyðisfirði. Að
loknum barna- og unglingaskóla
fór Jenný til náms í Húsmæðraskól-
ann að Laugalandi í Eyjafirði og út-
skrifaðist þaðan árið 1947. Um tíma
vann hún í apótekinu á Seyðisfirði.
Að skólagöngu lokinni vann hún á
símstöðinni á Seyðisfirði í 10 ár.
Eftir að Jenný og Sigurgeir fluttu
suður var hún að mestu heimavinn-
andi.
Útför Jennýjar verður gerð frá
Kópavogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Elsku hjartans mamma mín. Eftir
miklar þjáningar og kvalir hefur þú
fengið hvíldina.
„Ég er Seyðfirðingur,“ sagði
mamma ávallt með miklu stolti og í
hennar huga lék enginn vafi á að
Seyðisfjörður var fegurstur allra
staða á Íslandi. Þaðan átti hún góðar
og ljúfar minningar þar sem hún ólst
upp með systkinum sínum fjórum og
góðum vinahópi. Systur hennar þrjár
eru á lífi en Sverrir bróðir hennar kær
lést sl. haust.
Foreldrar mínir voru mjög dugleg-
ir að ferðast um landið og oft lá leiðin
heim til Seyðisfjarðar á sumrin. Á
ferðalögum var veiðistöng jafnan höfð
með í för. Fyrst um sinn beitti pabbi
henni en honum tókst svo rækilega að
smita mömmu af veiðidellunni, eins
og þau orðuðu það, að oftar en ekki
átti hún frumkvæði að veiðiferðum-
.Mamma mín fæddist tískudrottning
og er ég þess fullviss að efhefði hún
fæðst í dag hefði hún lært fatahönn-
un, þó að sjálf segði hún alltaf að engu
hefði hún viljað breyta í lífi sínu. Hún
hafði unun af því að kaupa fatnað, fyr-
ir sjálfa sig jafnt sem aðra, því gjaf-
mild var hún. Pabbi var togaraskip-
stjóri í mörg ár og sigldi stundum til
útlanda og þá fór mamma gjarnan
með. Þau nutu þessara ferða og
mamma notaði tækifærið til að kaupa
ýmislegt, sem þá fékkst ekki hér á
landi.
Á hverju ári fórum við fjögur,
pabbi, mamma, Bára og ég í utan-
landsferðir og þá var nú verslað. Allt-
af var hún búin að gera lista yfir það
sem hún vildi kaupa en auðvitað bætt-
ist annað eins við. Við fórum líka fjög-
ur saman í veiðiferð árlega og við eig-
um yndislegar minningar úr þessum
ferðum.
Mamma fór vel með alla hluti og
var mjög vandvirk og nákvæm í öllu.
Hún sagði alltaf að það væri betra að
sleppa verki en að gera það illa eða
með hangandi hendi. Hún var einlæg
og vildi öllum vel og svo ákveðin að
ekki var hægt að tala hana ofan af því
sem hún hafði ákveðið. Í veikindunum
neitaði hún oft verkjalyfjum af því
hún var á móti notkun þeirra. Það
skyldi enginn ráðskast með hana, eins
og hún sagði sjálf.
Frá því að ég man eftir mér sagði
hún við mig, „Þú getur allt, það er
sama hvað þú tekur þér fyrir hendur
– þú getur allt.“ Betra veganesti er
ekki hægt að fá. Hún hafði enga trú á
að stýra með skipunum, en í staðinn
leiðbeindi hún mér mildilega. Mamma
lærði sem barn á píanó og hélt þeirri
kunnáttu alla tíð við. Hún var mjög
lagvís og með fallega söngrödd og
þótti því mest til um samkomur þar
sem mikið var sungið, en henni var
illa við ef áfengi var haft um hönd
enda bragðaði hún það aldrei sjálf.
Fyrir nokkrum árum greindust
mamma og pabbi með krabbamein
með mánaðar millibili. Í mömmu til-
felli var engin meðferð fyrir hendi og
því ákvað hún að láta sem ekkert væri
og talaði aldrei um meinið. Hún stóð
sterk við hlið pabba í veikindum hans.
Þegar hann loks laut í lægra haldi, í
júlí 2007, missti hún ástina í lífi sínu.
Þá dró strax mjög af henni og lífsvilj-
inn dvínaði hratt.
Minningin um yndislega móður er
öllu sterkari og ég á eftir að sakna þín
mikið.
Guð blessi þig og varðveiti.
Þín dóttir,
Addý (Arndís Björg).
Jennýju Haraldsdóttur sá ég fyrst
þegar ég kom á heimili hennar og Sig-
urgeirs með einkadóttur þeirra,
Addý. Jenný tók 17 ára vinkonu dótt-
urinnar með kostum og kynjum.
Jenný var heimavinnandi og sinnti
þar hverju smáatriði af mikilli alúð.
Einkadóttirin Addý var henni alltaf
ofarlega í huga. Ég minnist þess að
mér fannst dálítið skondið hvað hún
gætti þess vel að Addý hefði með sér
nestispeninga og skipti þá engu þótt
dóttirin væri langt komin í mennta-
skóla. Hún átti ekki að verða svöng í
þeirri för sinni að heiman, ef Jenný
fengi einhverju ráðið.
Það er áreiðanlega leitun að ólíkari
mæðgum en þeim Addý og Jennýju,
hvort heldur er í útliti eða skapferli.
Addý sækir þar í föðurfólkið sitt af
Ströndum, en hún erfði frá móður
sinni ást á Seyðisfirði og órofa tryggð
við fjölskyldu og vini. Ólæknandi
veiðidellan, sem leggst af miklum
þunga á dótturina, reyndist líka ekki
eingöngu komin af Ströndum, því
Jenný var jafnfriðlaus og Sigurgeir
að komast í veiðistöngina sína á vorin.
Í veikindum Jennýjar launaði Addý
móður sinni gott atlætið í bernsku.
Hún var vakin og sofin yfir velferð
móður sinnar, óþreytandi að leita álits
lækna og hjúkrunarfólks og gerði allt
sem í hennar valdi stóð til að létta
móður sinni illvíg veikindin. Þar kom í
ljós, að Jenný hafði alið góða dóttur,
sem endurgalt henni alla ástina þegar
á reyndi. Varla hefði Jenný Haralds-
dóttir getað óskað sér betri eftir-
mæla. Bára gekk þétt við hlið Addýj-
ar í hverju skrefi og reyndist Jennýju
sú tengdadóttir sem hún átti skilið.
Við Hanna Katrín og dæturnar
vottum vinkonum okkar og guðmæðr-
um þeirra, Addý og Báru, innilegustu
samúð okkar.
Ragnhildur.
Jenný Haraldsdóttir
an svo og góðar stundi á liðnum ár-
um. Hugur hennar eins og flestra
dvaldi oft við æskustöðvarnar. Á
kveðjustundu sendi ég og fjölskylda
mín Hallarfólkinu, sem ég kalla, svo
og öðrum ástvinum hinnar látnu,
innilegar samúðarkveðjur.
Jón Þ. Eggertsson.
Þær eru svo margar minningarn-
ar sem ég á, minningarnar úr Boga-
hlíðinni þegar ég kom í heimsókn til
ykkar systkinanna. Sat ég þá
löngum stundum inni í stofu og lék
mér með dúkkurnar sem geymdar
voru í glerskápnum í herberginu
þínu. Stundum fór ég í gegnum fata-
skápinn þinn og mátaði öll gömlu
fötin frá þínum yngri árum og setti
þá á mig hárkollu og hélt tískusýn-
ingu. Þær voru ófáar stundirnar
sem við áttum saman og aldrei
fannst mér leiðinlegt að heimsækja
Bogahlíðina. Ég gæti haldið áfram
endalaust því minningarnar eru svo
margar og kærar og munu veita
mér huggun í sorginni og koma til
með að ylja mér um ókomin ár.
Elsku Sigga frænka, það er svo
erfitt að kveðja en ég er þakklát
fyrir allt, ég er þér sérstaklega
þakklát fyrir að hafa gengið mér í
ömmustað eftir andlát Ellu ömmu,
fyrir að hafa sýnt mér alla þessa
væntumþykju. Þú munt ætíð lifa í
hjarta mínu, hvíldu í friði yndislega
frænka mín.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Þín
Elínborg Jónsdóttir.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SESSELJA GUÐJÓNSDÓTTIR,
áður Lyngheiði 9,
Selfossi,
sem lést þriðjudaginn 13. janúar, verður jarðsungin
frá Selfosskirkju föstudaginn 23. janúar kl. 13.30.
Bragi Bjarnason, Sigrún Ásgeirsdóttir,
Halldóra M. Bjarnadóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍN SIGURBJÖRT SÆMUNDSDÓTTIR,
Borgarholtsbraut 62,
Kópavogi,
sem lést 10. janúar, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju föstudaginn 23. janúar kl. 14:00.
Innilegar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeilda
Landspítalans og Karitaskvenna, fyrir yndislega umönnun og hlýhug.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustu
Karitas s. 770-6050 og 551-5606.
Grímur Guðmundsson,
Jón Elvar, Sigríður Markúsdóttir,
Guðmundur Grímsson, Hrafnhildur Proppé,
Finnur Grímsson, Þórunn Hafsteinsdóttir,
Elín Grímsdóttir, Jón Bjarni Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir,
mágur og frændi,
FRIÐRIK BÖÐVARSSON
bóndi,
Stóra-Ósi,
verður jarðsunginn frá Melstaðarkirkju laugar-
daginn 24. janúar kl. 14.00.
Þórunn Guðfinna Sveinsdóttir,
Böðvar, Guðmundur Grétar og Sveinn Óli Friðrikssynir.
Guðfinna Jónsdóttir,
Jón Böðvarsson, Ingibjörg Jóhannesdóttir,
Katla, Guðfinna, Ingibjörg og Guðmundur Hólmar Jónsbörn
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HELGA GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlíð,
áður til heimilis í
Stafholti 14,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn
23. janúar kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð.
Þórður Snæbjörnsson,
Snæbjörn Þórðarson, Liv Gunnhildur Stefánsdóttir,
Helga Kristrún Þórðardóttir, Karl Jónsson,
Haukur Þórðarson, Kristbjörg Jónsdóttir,
Örn Þórðarson, Ingibjörg Eyjólfsdóttir,
Hrafn Þórðarson, Ragnheiður Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir og systir,
HULDA LILJA ÍVARSDÓTTIR,
Jörfagrund 20,
Kjalarnesi,
lést á Kvennadeild Landspítalans miðvikudaginn
14. janúar.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
23. janúar kl. 13.00.
Kristinn Guðmundsson,
Brynja Rut Kristinsdóttir, Ívar Orri Kristinsson,
Sigrún Kjærnested, Ívar Magnússon,
Lárus K. Ívarsson, Einar Ívarsson.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN SUMARLIÐADÓTTIR,
Heiðarhorni 6,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
23. janúar kl. 14.00.
ATH! Dagsetning útfarar var röng í fyrri auglýsingu.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabba-
meinsfélag Suðurnesja.
Leifur S. Einarsson,
Oddný Guðbjörg Leifsdóttir, Björn Ólafsson,
Leifur Gunnar Leifsson, Brynja Hjaltadóttir,
Bryndís María Leifsdóttir, Friðrik Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir og stjúpmóðir okkar,
JÓNEA SAMSONARDÓTTIR,
Háaleitisbraut 117,
Reykjavík,
sem andaðist föstudaginn 16. janúar, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 26. janúar
kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hinnar látnu eru vinsamlega beðnir að láta Umhyggju, félag lang-
veikra barna, njóta þess. Reikningur: 0101-15-371020, kt. 581201-2140.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Börn hinnar látnu.