Morgunblaðið - 22.01.2009, Page 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
✝ Hjördís Karls-dóttir ljósmóðir
fæddist í Vitanum í
Reykjavík hinn 13.
júní 1935. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut hinn 10.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Karl H. Ó. Þór-
hallason vöru-
bifreiðastjóri í
Reykjavík, f. 25. febr-
úar 1896, d. 11. mars
1974 og Guðrún Sig-
ríður Þorsteinsdóttir
húsmóðir, f. 12. sept-
ember 1898, d. 10. júlí 1970. Systk-
ini Hjördísar eru Haraldur, f. 26.
október 1922, d. 30. október 2007,
Guðrún, f. 20. nóvember 1924, Þór-
halla, f. 28. desember 1926, Sigríð-
ur, f. 24 nóvember 1928, d. 8. októ-
ber 2001, Kristín, f. 8.
ágúst 1932, Ásgeir, f.
2. mars 1934, Fjóla, f.
14. desember 1936 og
Þórdís, f. 25. október
1938.
Hjördís giftist Sig-
urði Gísla Bjarnasyni,
f. í Reykjavík 2. febr-
úar 1930, og saman
eiga þau þrjú börn,
Sigrúnu, f. 18. febr-
úar 1963, Steinar, f. 1.
apríl 1964 og Ragn-
hildi, f. 3. september
1967. Fyrir átti Hjör-
dís dæturnar Guð-
rúnu Hjálmarsdóttur, f. 28. júní
1954 og Steinunni Þorsteinsdóttur,
f. 11. október 1956.
Útför Hjördísar fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
Þakklæti er það fyrsta sem kemur
upp í huga minn þegar ég minnist
Hjördísar móður minnar. Ég var að-
eins nokkurra mánaða, þegar ég var
gefin til ættleiðingar, þar sem hjóna-
band kynforeldra minna varði mjög
stutt. En svo lánlega var gengið frá
öllu að ég fékk að vita um uppruna
minn strax og aldur leyfði og hafði
tækifæri til að halda sambandi við
kynmóður mína og systkini.
Stundum fóru pabbi og mamma
með mig í heimsókn til móðurfólks-
ins míns þegar farið var til Reykja-
víkur, ég man hvað ég var feimin við
Hjördísi móður mína í þá daga, faldi
mig á bak við mömmu. Guðrún syst-
ir, Kalli frændi og Steinar bróðir
komu og voru hjá okkur í sveitinni.
Ég lítil skotta, var í nokkrar vikur
hjá afa Kalla og ömmu Sigríði á
Njálsgötu og smátt og smátt kynnt-
ist ég betur móður minni og systk-
inum.
Hún Hjördís móðir mín var hörku-
dugleg kona, dreif sig í nám og lærði
ljósmóðurstörf, sem hún gerði svo að
ævistarfi sínu og stundaði af natni og
stakri prýði. Og þvílík forréttindi að
vera í hennar höndum þegar dreng-
irnir mínir fæddust, róleg og yfir-
veguð tók hún á móti þeim. Þau eru
mörg börnin sem hún móðir mín tók
á móti, ekki bara þegar hún var á
vakt, heldur öll barnabörnin, lang-
ömmubörn og frændsystkini, alltaf
var hún til í koma og taka á móti
barni, þó hún væri í fríi ef til hennar
var leitað úr frændgarðinum.
Með árunum dýpkaði vinskapur
okkar Hjördísar móður minnar, og
enn meira síðustu árin eftir að hún
hætti að vinna.
Hún hafði gaman af að ferðast, var
söngelsk og lífsglöð, hafði ákveðnar
skoðanir á mönnum og málefnum,
var vel lesin og skemmtileg kona.
Elsku besta móðir mín, þessi tími
sem þið Siggi fenguð í Melalind var
allt of stuttur, en þó nutuð þið hans
vel meðan heilsan var góð.
Að lokum votta ég Sigga eftirlif-
andi eiginmanni móður minnar og
systkinum mínum, þeim Guðrúnu,
Sigrúnu, Steinari, Ragnhildi og fjöl-
skyldum þeirra mína dýpstu samúð.
Ég bið þér blessunar, elsku móðir
mín, hafðu hjartans þökk fyrir allt,
blessuð sé minning þín.
Steinunn Þorsteinsdóttir.
Elsku mamma mín, það er erfitt
að þurfa að kveðja og standa eftir í
sorginni, hálf máttvana og ráfandi og
geta ekki lengur leitað til þín. Þú
varst alltaf stoltið í mínu lífi, falleg
og vel tilhöfð. Það var yndislegt að
hlæja með þér og gott að gráta með
þér og stuðningurinn var góður sem
ég fékk þegar eitthvað bjátaði á.
Takk fyrir allt sem þú gafst mér,
takk fyrir að standa með mér og
kenna mér góð gildi. Þín verður sárt
saknað elsku mamma.
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt
lit og blöð niður lagði
líf mannlegt endar skjótt.
Ég lifi’ í Jesú nafni,
í Jesú nafni’ eg dey,
þó heilsa’ og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti’ eg segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgrímur Pétursson)
Þín dóttir,
Ragnhildur.
Elsku mamma mín.
Ég veit ekki hvað segja skal, mað-
ur er svo sleginn, svo tómur, hver
hefði trúað þessu? Þegar ég sit
hérna heima og hugsa rifjast upp öll
lífsgangan með þér og pabba.
Ég var svo heppinn að í gegnum
allt lífið myndaðist mikill vinskapur
milli okkar og trúnaður. Það var allt-
af gott að geta komið til þín og fengið
öll góðu ráðin, allt frá meðgöngu
barna til fataviðgerða, alltaf svör við
öllu.
Síðasta ár er búið að vera mjög
skrítið allt frá því þið komuð heim
frá Kanarí. Þú fórst að kenna þér
meins og pabbi líka, framundan var
mikil óvissa og allir fundu fyrir mjög
undarlegri tilfinningu.
Ég var svo heppinn að fá að vera
mikið innan um þig allt síðastliðið ár,
gisti hjá þér meira og minna. Við átt-
um saman margar yndislegar stund-
ir þegar við vorum heima, ég eldaði
og þú lagðir á borð eins og við vær-
um á flottum stað með tilheyrandi
kertaljósum. Það hefði ekki nokkr-
um manni dottið í hug hversu langt
leidd þú varst í veikindum þínum, þú
leist alltaf svo vel út, tókst þig til fyr-
ir minnsta tilefni, alltaf glæsileg og
öllum til sóma.
Alltaf varst þú tilbúin að aðstoða
mig, til að mynda nú í desember við
að kaupa jólagjafir til að fara með
norður, þá fórum við í bæinn og þér
fannst það ekkert mál.
Þegar ég kom suður eftir áramót-
in og þú komin á spítalann leið þér
bara nokkuð vel, komin í öruggt um-
hverfi, varst þú ótrúlega brött. Þú
varst þegar orðin spennt að komast
heim til að sinna þínum störfum, þvo
og þrífa og hafa allt sem tengdist
pabba upp á 100, það var þér mikið
kappsmál.
Ég veit ekki hvernig framtíðin
verður án þín, mamma mín, það
verður tíminn að leiða í ljós.
Ég kveð þig elsku mamma mín
og minnast ætíð vil ég þín,
ég þakka að Guð minn gaf mér þig
og gaf það að þú leiddir mig.
Elsku pabbi, Sigrún, Ranka, Guð-
rún og Steinunn, biðjum góðan guð
að leiða okkur í gegnum þessa erfiðu
tíma.
Þinn
Steinar.
Elsku mamma, amma, tengdó, það
er erfitt að kveðja þegar svo skyndi-
lega kemur að kveðjustund. Við átt-
um eftir að gera svo margt saman og
ferðast meira til útlanda.
Það er gaman að rifja upp ferðalög
okkar saman, fyrst til Parísar í besta
veðri sem hægt var að hugsa sér um
mitt sumar. Okkur leið svo vel þegar
við gengum um þessa fallegu borg og
skoðuðum sögulega staði og bygg-
ingar, settumst reglulega niður á
kaffihús og hvíldum lúin bein og
svöluðum þorstanum. Þegar við fór-
um til Kanaríeyja um árið yfir jólin í
góðra manna hópi og skemmtum
okkur dásamlega, borðuðum æðis-
legan mat á Roma flesta daga og
nutum lífsins í sólinni. Langir göngu-
túrar á ströndinni og rölt að kveldi,
hvað er hægt að hugsa sér betra þeg-
ar maður hefur sína nánustu með
sér.
Aftur fórum við saman til útlanda,
til Mallorca og aftur stór hópur sam-
an, okkar nánustu ættingjar. Þarna
var gott að vera í góða veðrinu, stað-
urinn lítill og stutt í alla þjónustu.
Þarna héldum við saman upp á af-
mælisdaginn þinn og skemmtum
okkur konunglega. Hljómsveitin tók
lagið þér til heiðurs og við átum ke-
bab af stórum teini.
Í febrúar 2008 héldum við svo aft-
ur til Kanaríeyja í sólina. Aftur var
komið að því að njóta veðursins og
matarins og það kunnum við svo
sannarlega. Það var svo gott að
ferðast með þér og pabba, ráfa um
götur, skoða mannlífið og njóta lífs-
ins í algerri slökun og laus við allt
stress úr daglegu lífi. Maður skal
njóta lífsins meðan það er hægt því
ekkert okkar veit hvenær kveðju-
stundin kemur. Við geymum allar
þessar frábæru minningar í hjörtum
okkar um alla eilífð. Hvíl í friði.
Ragnhildur Sigurðardóttir,
Smári Sveinsson,
Sigurður Sveinn Smárason,
Lilja Dís Smáradóttir,
Brynja Lind Smáradóttir.
Elsku Hjördís mín. Þetta er svo
ótrúlegt. Að sitja hérna með mynd af
þér, þar sem þú brosir til mín, innan
um blóm, kerti, samúðarkort og
hlusta á Vilhjálm Vilhjálmsson
syngja mörg af þínum uppáhaldslög-
um og vera að skrifa mína fyrstu
minningargrein og að hún sé til þín.
Ég var bara 16 ára þegar við
kynntumst og á því á margar minn-
ingar um þig. Ein er um þig í eldhús-
inu þínu að lita á þér hárið, stytta
buxur, bara svona í leiðinni og
steikja kjötbollur handa mér því að
það var eitt af því fáa sem ég borð-
aði …
Svo allir þvottadagarnir okkar því
ekki áttum við Steinar þvottavél,
hvað þá þurrkara. Þá mætti ég til þín
snemma á laugardegi með alla hrúg-
una, svo var þvegið og hlegið. Já, þú
gast sko hlegið, Hjördís mín.
Það var alveg sama hvað var verið
að ræða um þú hafðir skoðanir á öll-
um hlutum og lást ekki á þeim. Þann-
ig vissi maður alltaf hvar maður
hafði þig.
Hvert sem þú fórst sást að þar var
glæsileg kona á ferð, alltaf svo fín og
vel til höfð. Áttir falleg föt og skart-
gripi, enda gift gullsmið.
Ég er svo óendanlega þakklát fyr-
ir að þú varst með okkur Steinari á
stærstu stundinni í lífinu okkar þeg-
ar Sverrir fæddist og að það hafi ver-
ið þú, Hjördís mín, sem tókst á móti
honum.
Þú varst mjög fær ljósmóðir og
dáð sem slík, vitna gjafir og frum-
samin ljóð til þín frá fólki um það.
Það er innan við ár síðan þú veikt-
ist og Siggi líka, þvílíkt högg sem það
var.
Þú varst orðin svo veik undir það
síðasta en kvartaðir aldrei. Hafðir
miklu meiri áhyggjur af honum
Sigga þínum og leiddir alltaf talið að
honum ef þú varst spurð hvernig þú
hefðir það.
Að hafa auðnast að vera hjá þér
þegar yfir lauk er mér dýrmætt.
Nú sorgin hefur snert mitt líf
með söknuði þetta skrifa.
Ég kveð þig elsku Hjördís mín
en minningarnar lifa
Þín tengdadóttir,
Ragnhildur.
Amma.
Þú varst besta amma í heimi, það
var leitt að þú þyrftir að fara. Þú
varst mesta hetja sem ég hef kynnst.
Við vitum öll að þér líður miklu betur
uppi í himnaríki hjá guði með enga
verki.
Ég hugsa til þín hvern einasta
dag, og við öll. Þú varst alltaf svo góð
og dugleg og falleg. Öllum leið svo
vel í kringum þig og alltaf svo kurt-
eis, þú varst alls staðar hjá öllum. Þú
ert ennþá hjá öllum í hjartanu. Það
var svo erfitt að sjá þig fara, og líka
þegar þú varst veik. En ég veit að þú
vilt örugglega að við höldum áfram
með lífið og ég hugsa til þín.
En nú kveð ég, vona að þér líði
betur núna, ég elska þig amma mín.
Hjartans kveðjur,
Sigrún Ása.
Elsku besta amma mín í öllum
heiminum, ég elska þig endalaust
mikið. Þú varst klárlega hetjan mín,
elsku amma, þú gekkst í gegnum
margt í lífinu og alltaf stóðstu þig
eins og engill í öllu sem þú gerðir. Þú
varst alltaf góð við mig og alla sem
voru í kringum þig. Þú varst alltaf
svo dugleg að hrósa fólki.
Þú leist alltaf svo glæsilega út og
varst svo vel til höfð, það var sama
hvort það var heimsókn, kaffiboð, af-
mæli eða ferming, alltaf leistu út eins
og engill. Ég á eftir að sakna þín
mikið amma mín og þú átt alltaf stór-
an hluta af hjarta mínu. Ég elska þig
og hvíldu í friði elsku besta amma
mín.
Þín,
Lilja Dís.
Elsku amma, mig tekur það sárt
að þurfa að kveðja þig.
En ég mun alltaf muna það hversu
gott það var að koma til þín í heim-
sókn. Manni leið eins og kóngi hjá
þér, alltaf til eitthvað að bíta í.
Sérstaklega eftir að við fluttum
norður þá var alltaf svo gott að fá að
sjá þig aftur, brosið og gleðin sem
fylgdi þér alltaf gladdi mig í hvert
skipti.
En núna veit ég að þú munt alltaf
vaka yfir mér og ég mun alltaf hugsa
til þín.
Ég hef alltaf og mun alltaf elska
þig.
Þitt barnabarn,
Sverrir.
Elsku besta amma. Ég trúi því
ekki að þú sért farin og komir aldrei
aftur. Ég bíð bara eftir því að ein-
hver veki mig og segi mér að þetta
hafi bara verið vondur draumur. Þú
sem átt svo stóran þátt í lífi mínu.
Það er svo óraunverulegt að geta
ekki farið í heimsókn til ömmu og afa
í Melalindina. Það sem alltaf hefur
verið fastur liður í tilverunni. Stelp-
urnar mínar léku sér alltaf með
Gulla og svo var ávalt farið í lita-
skúffuna og lituð ein mynd eða svo.
Við áttum svo margar góðar stundir
saman og það var alltaf svo gott að
koma til þín. Ég er óendanlega stolt
af því að eiga þig fyrir ömmu og ég
hef alltaf litið upp til þín. Ég hef
margsinnis montað mig af því að þú
hafir tekið á móti mér í fæðingu og
ekki nóg með það heldur tókstu líka
á móti stúlkunum mínum. Á fyrri
meðgöngunni minni var ég svo hepp-
in að þú varst nýbúin að færa þig nið-
ur á mæðraskoðunina svo þú fylgdist
með okkur Birnu Dís í gegnum alla
meðgönguna og í seinna skiptið varst
þú hætt að vinna en fékkst sérstakt
leyfi til þess að taka á móti Berglindi
Rún og þú kallaðir hana alltaf litla
svanasönginn þinn af því hún var síð-
asta barnið sem þú tókst á móti. Af
því er ég ákaflega stolt. Það eru
óteljandi minningar sem við eigum
um þig og þær eiga alveg sérstakan
sess í hjarta okkar. Minningar sem
aldrei gleymast. Það fá ekki nokkur
orð lýst því hvað ég sakna þín mikið
og það verður erfitt að læra að lifa án
þín.
Hvíldu í friði elsku amma.
Þín
Hjördís, Bergur, Birna
Dís og Berglind Rún.
Kæra systir mín. Vinur. Af heilu
hjarta allt ég þakka þér. Þú varst
gleðigjafi öllum sem þér kynntust,
elsku Hjördís. Vegferð okkar systra
saman hófst bjartan júnímorgun og
lauk nú 73 árum síðar á dimmum
janúarmorgni. Ég tók þig í faðminn
nýfædda og við héldumst í hendur til
hinstu stundar. Handaband heila
ævi. Við systkinin áttum því láni að
fagna að fá góða og samhenta for-
Hjördís Karlsdóttir
Takk fyrir allt það góða
elsku amma mín.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Þín
Brynja Lind.
HINSTA KVEÐJA
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
KRISTBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
Karlsstöðum,
búsett í Boðahlein 22,
verður jarðsungin frá Garðakirkju föstudaginn
23. janúar kl. 13.00.
Sigurður Þorleifsson,
Stefanía Mekkín Sigurðardóttir, Sveinn Elísson,
Sigríður Arnleif Sigurðardóttir, Kári Húnfjörð Bessason,
Sólveig Þórhildur Sigurðardóttir,
Sigrún Guðleif Sigurðardóttir, Ólafur Ásgeirsson,
Siggerður Ólöf Sigurðardóttir,
Jóna Kristín Sigurðardóttir, Þór Jónsson
og ömmubörnin.
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hrafnagili,
síðast til heimilis á Heiðarvegi 40,
Vestmannaeyjum,
lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja föstudaginn
9. janúar.
Jarðarför hennar fer fram frá Landakirkju laugardaginn
24. janúar kl. 14.00.
Hrafnhildur Helgadóttir,
Helga Helgadóttir, Georg Hermannsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.