Morgunblaðið - 22.01.2009, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
“HRÖÐ, F
LOTT OG
FYNDIN
GAMAN
MYND.”
“...STÓRS
KEMMTI
LEG GLÆ
PAMYND
OG AÐD
ÁENDUR
RITCHIES
GETA TE
KIÐ GLE
ÐI SÍNA Á
NÝ.”
L.I.B. - TO
PP5.IS
HVAÐ EF ÆVINTÝRI OG DRAUMAR
ÞÍNIR MYNDU RÆTAST
ADAM SANDLER ER STÓRKOSTLEGUR
Í ÞESSARI FRÁBÆRU GAMANMYND
BYGGT Á SÖNNUMATBURÐUM
Frá Clint Eastwood,
óskarsverðlauna-
leikstjóra Mystic River,
Million Dollar Baby og
Unforgiven.
Tilnefnd til 2
Golden Globe verðlauna
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELLFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
“JIM CARREY KEMUR LOKS INN Í GRÍNIÐ AFTUR
EFTIR FULLLANGA FJARVERU, OG HANN VELDUR
ALLS EKKI VONBRIGÐUM!”
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
V.J.V TOPP5.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
„HEILLANDI, FULLORÐINS ÞRILLER,
MEÐ ÓTVÍRÆÐRI ÓSKARSFRAMMISTÖÐU
FRÁANGELINU JOLIE.“
- EMPIRE
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
BEDTIME STORIES kl. 8 LEYFÐ
ROCKNROLLA kl. 10 B.i. 16 ára
CHANGELING kl. 10 B.i. 7 ára
YES MAN kl. 8 B.i. 7 ára
BEDTIME STORIES kl. 5:50 - 8D - 10:20 LEYFÐ DIGITAL
ROCKNROLLA kl. 8 - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL
ROCKNROLLA kl. 5:30 - 10:20 B.i. 16 ára VIP
YES MAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára
YES MAN kl. 8 VIP
CHANGELING kl. 5:30 - 8:30 B.i. 16 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 5:503D LEYFÐ
THE SPIRIT kl. 10:20 B.i. 12 ára
TWILIGHT kl. 8 B.i. 12 ára
CITY OF EMBER kl. 5:50 B.i. 7 ára
BEDTIME STORIES kl. 6D - 8:10D - 10:20D LEYFÐ DIGITAL
ROCKNROLLA kl. 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL
YES MAN kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 7 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 63D LEYFÐ 3D-DIGITAL
BEDTIME STORIES kl. 8 LEYFÐ
THE SPIRIT kl. 10:10 B.i. 12 ára
SÓLSKINSDRENGURINN kl. 8 LEYFÐ
TWILIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára
BEDTIME STORIES kl. 8 LEYFÐ
THE SPIRIT kl. 10:10 B.i. 7 ára
SÓLSKINSDRENGURINN kl. 8 LEYFÐ
FOUR CHRISTMASES kl. 10:10 B.i. 7 ára
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI SELFOSSIKEFLAVÍK
EMPIRE
SAMbio.is
Reykjavík • Akureyri • Keflavík • Selfoss
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FILMCRITIC.COM
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
L.I.B. – FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU T
ALI
Þannig hljómaði mantran semlangþreyttir Íslendingarsungu klukkustundum sam-
an í fyrrakvöld á þeim sögulega
degi sem kallaður hefur verið
Fyrsti í byltingu. Undirleikur var í
höndum pönnu- og pottaslagara og
einstaka lúðurþeytari gerði líka
vart við sig. Í raun var leikið á það
sem hendi var næst og úr varð löng
og ættbálkaleg (tribal) hryn-
stemma. Fyrsti byltingarsöngur
hins nýja Íslands var spunninn á
staðnum af samtengdum sálum, all-
ar sem ein örmagna af því að horfa
upp á gegndarlausa, óforskamm-
aða spillingu og vanhæfa, veru-
leikafirrta ríkisstjórn sem treyst
var til starfa.
En af söng- og spilaþoli var nóg.
Byltingarsöngvar hafa eðlilegafylgt mannkyni alla tíð og
blásið þjökuðum mönnum bar-
áttuanda í brjóst. Ágúst Bogason,
hinn geðþekki útvarpsmaður Rásar
2, var með puttann kirfilega á púls-
inum í sínum ágæta þætti Hið op-
inbera kvöldið örlagaríka og
hleypti þættinum af stokkunum
með lagi Rage Against The Mach-
ine, „Take the Power Back“. Sann-
spárra lag hefði hann varla getað
valið. Ágúst hélt glæsilega áfram á
þessari braut en þar sem ég keyrði
sem leið lá að Austurvelli tók lag að
óma í hausnum á mér, lag sem hef-
ur ábyggilega náð best að fanga
þann anda sem einkennir ástand
eins og það sem skapaðist hinn 20.
janúar. Hér er ég að tala um hið
magnaða lag Rolling Stones „Street
Fighting Man“, sem rammaði inn,
bæði í texta og tónum, þann bylt-
ingaranda sem lá yfir hinu um-
brotasama ári 1968. Rýnum nú að-
eins í þennan áhrifamikla ópus.
Lagið var fyrsta smáskífan á„endurkomu“-plötu Stones frá
sama ári, Beggars Banquet. Stones
höfðu aldrei látið frá sér svo póli-
tískt, eigum við að segja eldfimt,
lag. Jagger samdi textann með
bresk/pakistanska umbótamanninn
og aðgerðasinnann Tariq Ali í
huga. Ali fór mikinn í mótmælum
gegn stríði í London í mars 1968, en
þá reyndi lögregla að hafa hemil á
25.000 manns. Óeirðirnar í París
stuttu síðar veittu Jagger og anda-
gift.
Það er eitthvað í hljóðmynd lags-
ins, eitthvað í stemningu þess, sem
nær að fanga fullkomlega það sem
er í loftinu á tímum sem þessum.
Inngangsstef lagsins er dramatískt
og þrungið spennu; skæru og
klingjandi kassagítarströmmi er
fylgt eftir af þunglamalegum,
„hernaðarlegum“ trommuslætti.
Stuttu síðar kemur Jagger inn, boð-
beri byltingarinnar. Röddin er áköf
og hátt uppi:
„Everywhere I Hear The Sound
Of Marching, Charging Feet, Boy/
Cause Summer’s Here And The
Time Is Right For Fighting In The
Street, Boy.“
Þeir sem til þekkja kannast við
þær tilfinningar sem lagið vekur.
Það ólgar undir því, það er bylting í
lofti og maður kemst allur á loft
þegar hlustað er.
Lagið var bannað í Bandaríkj-
unum vegna textans og umslag
smáskífunnar sem fylgir greininni
nýtur þess heiðurs að vera sjald-
gæfasta umslag sem Rolling Stones
hafa staðið að á ferlinum. Myndin
þótti of gróf og nærfellt öllum um-
slögunum var eytt. Væn summa
fæst fyrir þau fáu sem lifðu.
Næstu dagar eiga án efa eftir aðverða afdrifaríkir fyrir fram-
tíð lands og þjóðar. Í öðru erindi
lagsins syngur Jagger: „Hey! Think
The Time Is Right For A Palace Re-
volution.“ Jagger er einnig, líkt og
Ágúst Bogason rúmlega fjörutíu
árum síðar, með puttann kirfilega á
púlsinum.
Allir saman nú: Vanhæf ríkisstjórn!
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
» Þeir sem til þekkjakannast við þær til-
finningar sem lagið vek-
ur. Það ólgar undir því,
það er bylting í lofti og
maður kemst allur á loft
þegar hlustað er.
París, 1968 Stúdentaóeirðirnar í París voru m.a. í huga Jaggers þegar hann gerði textann við „Street Fighting Man“.
HLJÓMSVEITIN Coldplay og
söngkonan Duffy hljóta flestar til-
nefningar til BRIT-verðlaunanna
eða fjórar hvor. Coldplay er til-
nefnd í flokki bestu bresku hljóm-
sveitarinnar, besta tónleikabands-
ins, bestu plötu og bestu smáskífu.
Hin velska Duffy er hins vegar til-
nefnd til verðlauna í flokkunum
besti nýliðinn, besta smáskífan,
besta hljómplatan og besti kven-
kyns tónlistarmaðurinn.
Tilnefningarnar voru tilkynntar á
mánudaginn á samkomu þar sem
Scouting For Girls og Florence
And The Machine tróðu m.a. upp.
BRIT-verðlaunahátíðin fer hins
vegar fram hinn 18. febrúar næst-
komandi og kynnar verða þau Ky-
lie Minogue, Mathew Horne og
James Corden en tvö þau síðast-
nefndu eru þekkt fyrir leik sinn í
bresku grínþáttunum Gavin &
Stacy. Á meðal þeirra sem koma
fram á hátíðinni má nefna Kings of
Leon, Duffy, Girls Aloud og Pet
Shop Boys.
Reuters
Coldplay Komu hörðustu and-
stæðingum sínum á óvart á síð-
asta ári með fantagóðri plötu.
Reuters
Duffy Er undir pressu um að næsta
plata standi hinni fyrri ekki að baki.
Coldplay og Duffy með
flestar tilnefningar