Morgunblaðið - 01.02.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
30 - 70%
afsláttur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
TÖLUVERÐRAR óþreyju gætti
meðal fylgismanna Vinstri grænna
(VG) og Samfylkingarinnar vegna
þess hversu treglega hefur gengið
að mynda ríkisstjórn flokkanna, sem
Framsóknarflokkurinn ver falli.
Þetta endurspeglaðist í viðræðum
þingmanna á þingflokksfundum
flokkanna í gær, laugardag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sagði að loknum fundi með Jóhönnu
Sigurðardóttur, forsætisráð-
herraefni Samfylkingar, og Stein-
grími J. Sigfússyni, formanni VG, að
sér fyndist líklegt að stjórnin yrði
mynduð þann daginn. „Ég á frekar
von á því,“ sagði Sigmundur Davíð.
Allt bendir til þess að ný minni-
hlutaríkisstjórn flokkanna tveggja,
varin falli af Framsóknarflokknum,
sé því að fæðast, eins og staðan var
þegar blaðið fór í prentun. Um níu-
leytið, fyrir þingflokksfundi flokk-
anna, hittust Jóhanna Sigurð-
ardóttir og Steingrímur. Þau ræddu
um stöðuna í viðræðum og þá helst
hvernig væri mögulegt að flýta því
sem allra mest að mynda ríkisstjórn.
Framsókn ekki í stjórn
Einn af þeim möguleikum sem
rætt var um var að Framsókn-
arflokkurinn kæmi inn í ríkisstjórn-
ina sem beinn þátttakandi en ekki
einungis til stuðnings minnihluta-
stjórn VG og Samfylkingarinnar.
Var horft til þess að Framsókn
myndi þá fá einn ráðherrastól af tíu.
Þessi möguleiki var þó talinn ólík-
legur, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, þar sem forsendan fyrir
viðræðum VG og Samfylkingarinnar
hefði frá upphafi verið tilboð Fram-
sóknarflokksins um að verja minni-
hlutastjórn flokkanna falli.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær töldu ráðgjafar
Framsóknarflokksins, þar á meðal
hagfræðingarnir Jón Daníelsson og
Ragnar Árnason, að efnahags-
aðgerðirnar sem boðaðar voru í
drögum að stjórnarsáttmála væru
ekki raunhæfar. Á þeim forsendum
taldi Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsóknar-
flokksins, ekki mögulegt að sam-
þykkja sáttmálann eins og hann var.
Upphófust þá miklar umræður
innan flokkanna þar sem þess var
freistað að ná sáttum um efnisatriði
sáttmálans. Sigmundur Davíð
fundaði fram á nótt með sínum ráð-
gjöfum og fleirum.
Var niðurstaða þeirrar vinnu ná-
kvæmari útlistun á því hvað yrði
gert til þess að bjarga heimilum og
fyrirtækjum frá frekari rekstrarerf-
iðleikum.
Morgunblaðið/Ómar
Staðan kynnt Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir kynntu fjölmiðlum stöðu viðræðna á fundi í Al-
þingishúsinu í hádeginu í gær. Þau reiknuðu með að ný ríkisstjórn yrði mynduð í dag, sunnudag.
Morgunblaðið/Ómar
Fundir Sigmundur Davíð og Össur Skarphéðinsson heilsuðust í þinghúsinu.
Ný ríkisstjórn VG og
Samfylkingar að fæðast
Rætt áfram um
myndun nýrrar
ríkisstjórnar
Í HNOTSKURN
» Vinstri grænir og Sam-fylkingin ætluðu að mynda
ríkisstjórn og kynna undir
styttunni af Jóni Sigurðssyni á
Austurvelli á föstudag.
» Af því varð ekki þar semframsóknarmenn sættu sig
ekki við drögin að stjórn-
arsáttmálanum. Þar var meðal
annars rætt um efnahags-
aðgerðir. Framsóknarmenn
töldu orðalagið of almennt og
ekki í takt við það sem þeir
höfðu lagt upp með þegar
flokkurinn bauðst til þess að
verja stjórnina falli.
» Deilt hefur verið um þaðfrá upphafi viðræðnanna
milli flokkanna hvenær skal
gengið til kosninga í vor. Lík-
legt er að það verði 25. apríl.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær voru framsókn-
armenn undrandi á því að ekki
skyldi hafa verið minnst á
kjördag í drögum að sáttmála.
BJÖRN Bjarna-
son dóms-
málaráðherra
sagði á fundi
sjálfstæð-
ismanna, þar
sem staða
flokksins var
rædd í ljósi
breyttrar póli-
tískrar stöðu, að
eðlilegt væri að þeir sem eldri
væru í forystu flokksins vikju til
hliðar og nýir frambjóðendur
tækju við. Hann sagði að flokk-
urinn ætti á þessum tímamótum
að líta til þeirrar endurnýjunar
sem varð í Sjálfstæðisflokknum
árið 1991 þegar ný kynslóð þing-
manna tók við flokknum. Flokk-
urinn þyrfti nú á samskonar end-
urnýjun að halda. Fundarmenn á
fjölmennum fundi sjálfstæð-
ismanna klöppuðu vel fyrir þess-
um orðum.
A.m.k. einn fyrirspyrjenda á
fundinum sagði að flokkurinn
þyrfti að sýna meiri auðmýkt í
komandi kosningabaráttu. Einnig
var spurt hvers vegna enginn
hefði vikið til hliðar eftir hrun
efnahagslífsins. Bæði Sturla Böðv-
arsson, forseti Alþingis, og Guð-
laugur Þór Þórðarson heilbrigð-
isráðherra lögðu áherslu á það á
fundinum að flokkurinn ætti í
kosningabaráttunni að leggja
áherslu á grunngildi sín um frelsi
og framtak einstaklingsins.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra skoraði á þá sem ætla að
gefa kost á sér í prófkjöri fyrir
flokkinn að stilla kostnaði við það
í hóf. egol@mbl.is
Eldri kynslóðin
víki til hliðar
Vill sams konar endurnýjun og 1991
Björn Bjarnason
VERÐANDI ríkisstjórn verður lík-
lega mynduð í dag, sunnudag, að því
er Jóhanna Sigurðardóttir, verðandi
forsætisráðherra, sagði á Alþingi
um hádegi í gær.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, telur ekki að Samfylk-
ingin og Vinstri grænir hafi stigið
feilspor í samningaviðræðunum við
Framsóknarflokkinn. Um þrír ára-
tugir eru frá því síðast var mynduð
minnihlutastjórn á Íslandi.
„Við áttum ágætan fund með for-
manni Framsóknarflokksins fyrir 10
[í gær innsk. blm.] og þau eru nú að
fara til fundar í sínum þingflokki
þannig að málunum miðar mjög vel
og ég held að þetta fari að skýrast
bara á næstu klukkutímum,“ sagði
Steingrímur J. um hádegisbilið í
gær. „Það kom aðeins hik í þessar
viðræður. Framsóknarmenn þurftu
lengri tíma til þess að skoða málin en
við Steingrímur áttum góðan fund
með formanni Framsóknarflokksins
í morgun þar sem við áttum hrein-
skiptnar umræður og línur skýrðust.
Þannig að ég á ekki von á öðru,
nema eitthvað óvænt komi upp á –
ég veit að framsóknarþingmenn eru
að funda nú í hádeginu – en að við
getum lokið þessu máli í dag þannig
að það verði til ný ríkisstjórn á
morgun [í dag].“
Gengið vel og
stjórn líklega
mynduð í dag
MÓTTÖKUR á
vegum Alþingis á
þessu ári verða
felldar niður í
sparnaðarskyni,
að því er fram
kemur á vef
þingsins. Þar seg-
ir að á fundi for-
sætisnefndar 14.
janúar sl. hafi
verið samþykkt
tillaga forseta Alþingis, Sturlu
Böðvarssonar, um að fella niður á
þessu ári í sparnaðarskyni hefð-
bundnar móttökur sem þingforseti
stendur fyrir á vegum Alþingis.
Þar á meðal eru móttaka fyrir
þingmenn og forseta Íslands, eða
svonefnd þingveisla, og móttökur
fyrir starfsmenn, erlenda sendi-
herra og heiðurslistamenn
Alþingis.
Þingveislur
lagðar niður
Sturla
Böðvarsson
FULLTRÚI Íslensku friðargæsl-
unnar, Ólöf Magnúsdóttir, fer um
helgina utan til starfa í Palestínu
í tveggja mánaða verkefni hjá
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
Ólöf mun aðstoða staðarskrif-
stofu Barnahjálparinnar við að
miðla upplýsingum um aðstæður
barna á átakasvæðum Palestínu
og neyðaraðstoð þeim til handa.
Annar Íslendingur, Guðmundur
E. Birgisson sálfræðingur, starfar
á vegum friðargæslunar á sömu
skrifstofu að eftirliti í barna-
verndarmálum.
Tveir aðstoða
í Palestínu
LÍÐAN piltsins sem ekið var á í
miðborg Reykjavíkur um síðustu
helgi er óbreytt og er piltinum, sem
er þungt haldinn, haldið sofandi í
öndunarvél. Ökumaður bílsins, sem
var Hummer-jeppi, ók af vettvangi
eftir slysið en náðist síðar. Slysið
varð á Laugavegi, milli Bergstaða-
strætis og Klapparstígs, á fjórða
tímanum aðfaranótt laugardags.
Líðan óbreytt