Morgunblaðið - 01.02.2009, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 01.02.2009, Qupperneq 13
Nýr veruleiki Viggó Örn Jónsson segir að verkefni allra fyrirtækja verði að aðlagast nýjum veruleika. 13 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009 2008 Hekla Í blábyrjun nóvember gerðiJónsson & Lemacks auglýsingará notuðum bílum. „Það varhálffurðulegt rétt eftir hrunið,“segir Viggó Örn Jónsson. „Þá varástandið þannig, að ekki var hægtað láta eins og ekkert hefði gerst,en ekki heldur sýna raunveruleik-ann – Íslendingar voru ekki tilbúnirað meðtaka hann. Í þessum aug-lýsingum er eina útgáfan af Íslandi,sem Íslendingar þoldu að horfa á,legókubbar og sakleysið sem fylgirog sagan um að kreppa þurfi ekki aðvera alslæm.“ Gr af ík /E lín Es th er ingu við fráleitar efnahagsaðstæður. Þetta þýðir að fyrirtæki eiga erfitt með að gera áætlanir fyrir árið 2009 og horfa aðeins til mánaðar í senn. Og nú kemur ný ríkisstjórn og maður óttast að það valdi frekari töfum í bankakerf- inu og fyrirtæki verði lengur í frosti. Það sem hefur gerst í bönkunum er að vegna þessarar miklu tortryggni al- mennings þora þeir ekki að gefa neitt eftir. Fjöldamörg ágætlega heilbrigð og rótgróin fyrirtæki eru út af þessu í mikilli hættu vegna tiltölulega lítilla vandræða.“ Fólk er viðkvæmt Auglýsingar eru samskipti fyrirtækja við núverandi og verðandi viðskiptavini og mörg hafa ekkert að segja af viti, annað en útsala, að sögn Viggós. „Fólk er líka viðkvæmt, eigendur margra fyr- irtækja hafa legið undir ámæli og tví- bent er fyrir slík fyrirtæki að tjá sig.“ Það tekur fólk og fyrirtæki mis- langan tíma að aðlagast nýjum veru- leika. „En fólk er smám saman að átta sig á breyttum aðstæðum og það hefur róttæk áhrif á hvernig fyrirtæki tala við viðskiptavini sína,“ segir Viggó. „Fyrirtæki geta ekki látið eins og ekkert hafi gerst. Lífsstílsvörur og þjónusta verða fljótt kjánalegar í þessu samhengi, ekki síst ef auglýsingin birt- ist við hliðina á frétt af mótmælum eða uppsögnum. Fólk er reitt og sárt og ringlað og hrætt – rosalega hrætt. Og það er ekkert bara hér á landi. Í Am- eríku er auglýst í bílaauglýsingum, að fólk geti skilað bílnum, ef það missir vinnuna á árinu. Ég held að mörg fyr- irtæki muni breytast í hálfgerðar kommúnur á næstu mánuðum, því það er betra að vinna en að vera atvinnu- laus, þó að tekjurnar lækki mikið – bara til að halda geðheilsunni!“ Varpað línu til framtíðar Verkefni allra fyrirtækja verður að aðlagast nýjum veruleika. „Ef til vill verður það erfiðast fyrir bankana,“ seg- ir Viggó. „Það þarf að finna nýjan tón til að tala við fólk – allt í einu er „visa rað“ hugsunin orðin hreinlega ósmekk- leg. Í Glitni var sennilega gerð róttæk- asta breytingin, tilkynnt um nafna- breytingu og varpaði línu til framtíðar og það er mikilvægt fyrir starfsfólkið.“ Hann hugsar sig um. „Smám saman munu fyrirtækin ná landi, eitt af öðru, en í augnablikinu er erfitt að átta sig á hvernig þar er um- horfs.“ – Þú varst spurður að því í tímarits- viðtali fyrir skömmu hvernig ætti að vinna með breytta ímynd Íslands á er- lendum vettvangi? „Æ,“ segir Viggó og gengur um gólf. „Æ, æ, æ. Ég sat og horfði í augun á blaðakonunni og sagði: „Veistu það, að þjóðin er að verða gjaldþrota og það mun taka 5-10 ár að byggja efnahags- lífið upp aftur.“ Og það eina sem hún velti fyrir sér var hvernig við gætum verið töff áfram! Orðspor okkar hefur beðið hnekki, en ég held að fólk ofmeti það gríðarlega, þó að vissulega sé pínlegt hvernig við völsuðum um, pissuðum í öll horn, og sögðumst ætla að kaupa Strikið og Ox- ford Street. Fólk sér ekki fyrir sér að geta flutt til útlanda, af því að orðspor Íslendinga er svo slæmt, en fyrir utan nokkra Breta og Dani þá er það nátt- úrlega bara ímynduð della. Þar að auki blasir við efnahagshrun í Bretlandi, Portúgal, á Spáni, Lettlandi, Ítalíu, Grikklandi og á Írlandi þannig að það fennir fljótlega yfir okkar klúður.“ Gler, stál og svartur marmari Lykillinn er að ná aftur stöðugleika í efnahagslífinu. „Ef gengi krónunnar verður svipað nokkra mánuði í röð mun verkefni auglýsingastofa snúast um að skapa nýtt tungumál fyrir fyrirtækin, að selja vörur með öðrum áherslum – stemningin að veggfóðra heimili með gleri, stáli og svörtum marmara heyrir sögunni til – og þó fyrr hefði verið!“ segir hann og hlær. „Ég vona að verðskyn Íslendinga batni en til þess þarf náttúrlega stöð- ugleika. Kannski breytist það hvernig hlutir verða keyptir og seldir? Í sumum löndum sparar fólk og safnar sér fyrir hlutum sem það kaupir. Að vísu er allt- af verið að kenna Íslendingum að ef þeir spara peninga eru góðar líkur á að þeir þurrkist út fyrir tilstuðlan van- hæfra stjórnvalda, þannig að reynslan af því er nú blendin. Fólk mun áfram þurfa að kaupa í matinn, komast á milli staða, banka- og tryggingaþjónustu – rekstrargrundvöllur slíkra fyrirtækja verður áfram til staðar. Og sólar- landaferðirnar! Pakkaferðir voru orðn- ar pínu gamaldags, en nú verða þær aftur málið – hvernig á fólk annars að komast til útlanda?!“ segir hann og hvíslar: „Mallorca.“ – Þetta snertir grunngildi þjóðfélags- ins? „Já, gildismat fólks er að breytast mjög hratt og það sér alls ekki fyrir endann á því. Auðvitað er stemningin sú að hófsemi sé dyggð og fólk er ánægt með sig, sem ekki tók þátt í of- neyslunni, og hreykir sér gjarnan af því á mannamótum. En breytingin nær líka inn á önnur svið mannlífsins, ef stjórn- málamönnum tekst ekki að eyðileggja það alveg. Það er nokkuð sem hefur verið lítt áberandi síðustu árin, áhersl- an á stórfjölskylduna. Fólk hefur ekk- ert verið að velta henni fyrir sér – veistu hvað ég á við?“ spyr hann bros- andi. „Amma og afi! Allt þetta brýst um í kollinum á fólki og á sama tíma eiga margir í alvarlegum fjárhagslegum kröggum og geta ekki leyft sér margt. “ Atvinnan mikilvægust Og hugtak eins og samfélagsleg ábyrgð hefur að dómi Viggós fengið nýja merkingu. „Fyrir ári styrktu fjöl- mörg fyrirtæki alls konar starfsemi, en nú eru þeir peningar skyndilega horfn- ir sem skilur eftir sig mikið gat. Ég held að við getum lært af því að styrktarsamningar eru alvörumál, sem samfélagið á ekki að taka létt.“ – Það er ekki lengur við hæfi að kaupa 17. júní? „Nei, 17. júní í boði Vodafone verð- ur ekki endurtekinn. Eitt er að sum fyrirtæki fóru aðeins yfir strikið, eignuðu sér viðburði sem þau áttu ekki að eigna sér. En margt hefur samt heppnast vel, svo sem Iceland Airwaves, sem var uppbygging til langs tíma og skilar ekki aðeins peningum heldur eflir menningar- lífið. Icelandair hafði augljósa hags- muni af því að vel tækist til, hags- munirnir verða að vera gagnkvæmir, annars er þetta ekki trúverðugt.“ – Eiga fyrirtæki að taka þátt í endurreisninni? „Ég ætla rétt að vona það. Án fyrirtækja og frjáls hagkerfis verður engin endurreisn. Það er þetta með samfélagsleg ábyrgð … það fer eftir því í hvernig samfélagi maður býr, hvaða ábyrgð maður getur tekið á samfélaginu. Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja núna lýtur fyrst og fremst að því skapa áfram atvinnu fyrir starfsmenn sína – að reka fyrirtæki sem lifir af þessa tíma og þannig standa sig gagnvart sínu starfsfólki er lang-, lang-, langsamlega mikilvægast.“ Morgunblaðið/Heiddi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.