Morgunblaðið - 01.02.2009, Side 19

Morgunblaðið - 01.02.2009, Side 19
Bækur 19 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009 Hörður „Ég man eftir pabba sem manni sem vann mikið en gaf sér samt tíma fyrir mig og til sunnudags- bíltúra og bíóferða, stundum fór hann meira að segja með mig á myndir sem voru bannaðar. Og þegar hann var í handboltanum tók hann mig með á æfingar og leiki. Það var nátt- úrlega stórkostleg upplifun að koma í búningsherbergið og hitta þessa karla; Geir Hallsteinsson, Gunnar Einarsson, Bigga Björns, Gils Stef- ánsson, Þórarin Ragnarsson og þá alla; þetta var gullaldarlið og það var mjög sérstök stemning í klefanum. Pabbi gat verið nokkuð harður en hann var alls ekki ósanngjarn. Það hefur kannski spilað inn í að ég var elztur. En honum líkaði ekki linkind, heldur fann ég að dugnaður og ósér- hlífni var honum að skapi. Þannig fléttaðist það inn í mína skapgerð að reyna að sinna hlutunum vel og keppnisskapið síaðist inn í mig. Pabbi studdi mig alltaf bæði innan vallar og utan. Ég man sérstaklega eftir afmæl- isdögunum mínum. Þeir voru mjög skemmtilegir. Við áttum 16 mm sýn- ingarvél og pabbi fór í sendiráðin og fékk lánaðar teiknimyndir sem hann sýndi okkur á gardínum eða uppi á vegg. Út á þetta voru afmælin mín mjög vinsæl. Pabbi átti það líka til að hringja í Hafnarfjarðarbíó sáluga og panta miða fyrir mig og félaga mína í stúku. Að sitja í miðstúkunni var rosalega flott. Það kostaði að vísu pínulítið meira, en var alveg þess virði svona stöku sinnum.“ Ekki skemmt að vera sonur Bjössa bollu „Ég var bæði í fótbolta og hand- bolta upp alla yngri flokkana. Þegar ég var 11 ára fóru mamma, pabbi og Rósmundur til Kanada en ég vildi ekki fara með þeim, heldur tók ég handboltaferð með FH til Danmerk- ur framyfir. Þetta létu þau mig um og ég er viss um að pabbi vissi alveg hvað klukkan sló. Eins vildi ég helzt ekki fara með þeim út á land á sumr- in, því ég vildi ekki missa úr leik. Og þegar ég fór, vildi ég komast sem fyrst heim aftur. Þau vildu kannski stoppa einhvers staðar og gista en það fannst mér ómögulegt. Ég hef ekki verið skemmtilegur ferðafélagi, en ég man ekki til þess að þau létu það neitt bitna á mér. Sextán ára valdi ég fótboltann. Ég átti í erfiðleikum í handboltanum því sjónin var ekki góð, það gekk ekki að spila með gleraugu og linsur komu ekki til greina á þessum aldri. Það var auðveldara fyrir mig að spila fótbolta, en hetjurnar voru allar í handbolt- anum. Sjálfur hefði ég aldrei orðið meira en miðlungshandknattleiks- maður. Ég hef oft dáðst að pabba á leik- sviðinu og í sjónvarpi og kvikmynd- um. Mér var hins vegar ekkert rosa- lega skemmt þegar ég var kallaður sonur Bjössa bollu. Mér fannst hann samt frábær í því gervi. Hins vegar fannst mér Sumargleðin aldrei neitt rosalega skemmtileg. Ég var þá kom- inn á unglingsaldurinn og hún höfðaði ekki til mín. Aldrei fann ég að pabba þætti það miður að ég skyldi ekki deyja úr hlátri yfir þessum atriðum, hann vissi sem var að mér þótti mikið til hans koma sem leikara og skemmtikrafts. Og ég er enn mjög stoltur af því sem hann hefur gert á því sviði, eins og til dæmis í Dagvakt- inni núna. Þar er hann hreint út sagt frábær. Ég man þegar hann var að byrja að leika í kvikmyndum, þá fékk hann lít- ið hlutverk í Landi og sonum og tók mig með sér norður í Svarfaðardal þar sem myndin var tekin. Það var ógleymanleg ferð og í hópi ljúfustu minninga minna um samband okkar feðganna.“ Stundum svolítið líflegur á hliðarlínunni „Hann pabbi er rosalega góður maður, hann vill öllum vel. Hann get- ur verið svolítið fljótfær en hann er maður til þess að biðjast afsökunar ef honum finnst hann hafa gert eitthvað rangt. Hann særir engan viljandi. Oft kemur hann mér á óvart með hvað hann er gríðarlega gjafmildur og stórtækur. Hann reiðist ekki oft en þegar það gerist verður maður smeykur. Þegar þessi stóri og mikli maður brýnir raustina þá þagnar maður og lætur sig bara hverfa ef það er hægt! Auðvitað erum við ekkert alltaf sammála. Við rífumst um alls konar mál, mest pólitík og fótbolta. Það eru ekki illindi í þessu hjá okkur. Við skiptumst bara hressilega á skoð- unum. Það skilur ekkert eftir sig. Mér finnst hins vegar þessi Liver- poolumræða stundum orðin svolítið þreytt. Hann á það til að vera of dóm- harður og kröfuharður og þá reyni ég að róa hann niður. Þegar ég var í fót- boltanum var hann stundum svolítið líflegur á hliðarlínunni. Einu sinni vorum við að spila við KA, þeir skor- uðu, voru kolrangstæðir en markið stóð. Pabbi átti þá eitthvað vantalað við línuvörðinn en þurfti að fara yfir vegg til að ná til hans og var kominn langleiðina yfir þegar FH-mennirnir stoppuðu hann. Ég leit bara í hina áttina meðan þetta gekk yfir. Hann fékk líka oft að heyra það þegar hann fylgdi FH í útileiki. Það hristi hann bara af sér. Hann hefur nefnilega þykkan skráp þegar hann vill það við hafa, þótt innst inni sé hann mjúkur maður.“ Rosalega góður afi „Samband okkar pabba er gott, það mætti alveg vera meira, en við hittumst eins oft og við getum og töl- um saman í síma þess í milli. Hann er rosalega góður afi, sonur minn fjög- urra ára og hann fara mikið í sund saman. Þeir eru ekkert farnir að fara í bíó en þegar það verður mun ég fylgjast vel með því að hann taki ekki strákinn með á bannaðar myndir. Ég verð fljótur að taka fyrir það.“ Mjúkur með þykkan skráp Hann fæddist 19. febrúar 1966, stundaði nám við Lækjarskóla og Flensborg- arskóla og starfaði í Háskólabíói og Sportmönnum. Hann lék knattspyrnu með meistaraflokki FH 1983-2001, varð markakóngur úrvalsdeildar þrívegis 1989-91. Kjörinn íþróttamaður Hafn- arfjarðar árið 1991. Hann varð tíu sinnum markakóngur FH og hefur leikið flesta leiki FH í efstu deild sem og skorað flestu mörkin. Lék um 400 leiki fyrir FH og skoraði 240 mörk. Hörður lék einnig 9 A-landsleiki og skoraði 1 mark. Frá 2000 hefur hann verið íþrótta- fréttamaður á Stöð 2. Hann er í sambúð með Helgu Helgu- dóttur. Þau eiga sex börn. HÖRÐUR MAGNÚSSON Hugmyndin að bókinni kvikn-aði, þegar Ómar og Stein-unn tóku höndum samanvið að byggja upp meist- aranámskeið um stjórnun og rekstur félagasamtaka við félagsráðgjaf- ardeild og stjórnmálafræðideild Há- skóla Íslands. Við kennslu sýndi sig að það vantaði efni á íslenzku og sniðið að íslenzkum aðstæðum. Auknar kröfur til félagasamtaka Þau segja bókina bæði fræðilega og hagnýta. Félagasamtök gegni marg- þættu og mikilvægu samfélagslegu hlutverki, sem fer vaxandi frekar en hitt, og bókinni ætla þau að efla fag- legt starf hjá félagasamtökum og gera þeim kleift að sinna áfram sínu hlut- verki í samfélaginu. Það segja þau einkar brýnt í kreppu eins og við göng- um nú í gegnum, þegar auknar kröfur eru gerðar til félagasamtaka, m.a. í velferðarþjónustunni eins og Hjálp- arstarf kirkjunnar og Rauða kross Ís- lands. Á erfiðum tímum leita fleiri ein- staklingar til þessara félaga og einnig leita stjórnvöld til þeirra í auknum mæli, því félögin búa að mikilli reynslu í hjálparstarfi, eru skjót til viðbragða og svo eru þau hagkvæm líka. Ómar og Steinunn segja ljóst, að á tímum sem þessum þegar nið- urskurður verður á velferðarþjónustu þess opinbera þurfi félagasamtök að mæta þeim niðurskurði með því að efla eigin þjónustu. Félagasamtök gegna frumkvöðlahlutverki í mörgum fé- lagslegum verkefnum eins og til dæm- is kvenfélögin gerðu í upphafi tutt- ugustu aldarinnar. 26 kaflar eftir 22 höfunda Þau segja bókina ekki aðeins fjalla um hjálparfélög, heldur nái hún yfir alls konar félagasamtök á öllum svið- um. Hér á landi er rík hefð fyrir starfi frjálsra félagasamtaka á ýmsum svið- um, m.a. mannúðar-, umhverfis-, björgunar- og menningarmála. Frjáls félagasamtök, hinn svokallaði þriðji geiri samfélagsins, eru um og yfir 20 þúsund, en stjórn og rekstur þeirra lúta með ýmsum hætti öðrum lög- málum en gilda í einkageiranum og þeim opinbera. Í fyrri hluta bókarinnar er í fimm- tán fræðigreinum fjallað almennt um stjórn félagasamtaka og þá jafnt hags- munasamtaka sem almennra félaga. Fjallað er almennt um félagasamtök á Íslandi, skilgreiningar, sögu, hlutverk þeirra og umfang, fjallað er um helztu lagagreinar sem um þau gilda og tengsl við hið opinbera, gerð er grein fyrir stjórnskipulagi frjálsra félaga, stjórnum þeirra og stefnumörkun. Einnig er fjallað um forystu félaga og mannauðsstjórnun bæði launaðra starfsmanna og sjálfboðaliða, fjár- málastjórnun; bókhald, fjárhagsáætl- anir, skattamál og fjáröflun og loks al- mannatengsl, upplýsinga- og skjalastjórnun og fundarsköp. Síðari hlutinn er kynning á 11 fé- lagasamtökum; Alþjóðlegum ung- mennaskiptum, Barnaheill, Fem- ínistafélagi Íslands, Hjartaheill, Hjálparstarfi kirkjunnar, Landvernd, Rauða krossi Íslands, Samtökunum ’78, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Ungmennafélagi Íslands og UNICEF Íslandi. Saga félaganna er sögð og lýst markmiðum og skipulagi, mannauðs- stjórnun, stefnumótun og framkvæmd stefnu, fjármálastjórnun og upplýs- ingamálum. Ómar og Steinunn segja að í grunninn glími öll félagasamtök við sömu viðfangsefnin; að halda utan um félagsstarfið. Þetta eru algild við- fangsefni og í bókinni er tekið á öllum þáttum þess. Efnið er frumsamið til þessarar bókar. Þau eru sjálf höfundar að fjór- um köflum, en bókin er 26 kaflar sem skrifaðir eru af 22 höfundum, sem all- ir hafa fræðilegan grunn og reynslu af því að vinna hjá félagasamtökum. Margir þeirra hafa kennt á nám- skeiðum í Háskóla Íslands. Ekki reyndist erfitt að fá fólk til starfa og það þrátt fyrir að þetta var sjálfboðastarf og menn þurftu að leggja á sig umtalsverða vinnu. Það voru allir mjög tilbúnir og fannst bók- in þörf. Námskeið og rannsóknasetur Ómar og Steinunn segja í bígerð að bjóða upp á námskeið við Háskóla Ís- lands fyrir þá sem vilja sérhæfa sig á sviði stjórnunar og reksturs fé- lagasamtaka. Einnig stendur til að stofna sérstakt rannsóknasetur á þessu sviði. Styrkur, hjálp og frumkvöðlastarf Morgunblaðið/Golli Brautryðjendur Steinunn Hrafnsdóttir og Ómar H Kristmundsson hafa byggt upp meistaranámskeið um stjórnun og rekstur félagasamtaka og ritstýrt bók sem er sú fyrsta sem gefin er út um það efni á Íslandi. Stjórnun og rekstur fé- lagasamtaka heitir bók sem Ómar H. Krist- mundsson og Steinunn Hrafnsdóttir ritstýrðu. Þau segja bókina þá fyrstu sem gefin er út um þetta efni á Íslandi. 40% í sjálfboðaliðastarfi Rannsókn Steinunnar Hrafnsdóttur leiddi í ljós að rétt rúm 40% þátttakenda sögðust hafa unnið sjálfboðaliðastarf, að meðaltali 215 klukkustundir á ári Sjálfboðaliðasamtökin sem flestir unnu fyrir: 18% fyrir íþróttafélög 14,5% fyrir foreldrafélög/skóla 11% fyrir góðgerðar- og líknarfélög 7,7% fyrir hjálpar-/björgunar-/slysavarnarfélög 6,9% fyrir kirkjur/trúarhópa 6,3% fyrir stjórnmálaflokkar eða -samtök Karlar og konur vinna sjálfboðaliðastörf í álíka mæli en algengara er að karlar vinni fyrir íþróttafélög og í hjálpar- og björgunarsveitum en konur í góðgerða- og líknarfélögum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.