Morgunblaðið - 01.02.2009, Síða 21
Síðastliðið haust voru gripir end-
anlega valdir til sýningar í samráði
við fornleifafræðingana. Suma gripi
þurfti að forverja eða undirbúa á
einhvern hátt fyrir sýninguna.
Líma þurfti saman brot úr austur-
lenskri skál frá Skálholti í eina
heild og púsla saman styttu heil-
agrar Barböru sem fannst á
Skriðuklaustri, svo eitthvað sé
nefnt, en forverðir safnsins eru
ábyrgir fyrir þessari tímafreku
vinnu.
Hönnuður sýningarinnar er Þór-
unn Sigríður Þorgrímsdóttir, sem
einnig er ábyrg fyrir Landnáms-
sýningunni í Aðalstræti, auk fleiri
sögusýninga. Hún hafði það að leið-
arljósi að gera sýninguna líflega
með þeim hætti sem hér hefur ver-
ið rakið. Til viðbótar er stuðst við
margmiðlun, myndasýningar og
teikningar, sem styðja við það sem
gesturinn sér og hjálpar til við að
skapa mynd af þessum mið-
aldaheimi.
Beinagrind með sárasótt
Á sýningunni má sjá að nunn-
urnar hafi verið hannyrðakonur og
munkarnir fengist við lækningar en
á Skriðuklaustri hafa fundist lyfja-
glös og beinagrindur sem hafa ver-
ið sjúkdómsgreindar og má sjá
hluta þeirra þarna, m.a. bein stúlku
upp úr tvítugu sem sýkt var af
sárasótt.
Af munum frá Skálholti má
nefna hnappa af skólastrákum en
ófáir hnapparnir hafa fallið milli
þilja, og gleðja okkur því nú. Þarna
eru líka brot úr brennivínsflöskum
og gamlir skór. Matseðill drengj-
anna er skráður þarna en ekki er
víst að allir myndu sætta sig við í
dag að fá harðfisk með smjöri í
morgunmat og jafnvel oftar á dag.
Í einum glerkassanum má líta
perlur úr talnabandi og dýrindis
gullhring en gersemarnar fundust í
uppgrefti í Reykholti í Borgarfirði.
Einhver hefur áreiðanlega grátið
yfir tapinu þá en sömu hlutir gleðja
augað nú.
Á Hólum var eins og margir vita
prentsmiðja og má þarna líta
prentstafi auk bókar prentaðrar á
dómkirkjustaðnum. Ennfremur er
búið er að stilla upp nútímastimpl-
um með gamaldags gotnesku letri
og geta gestir gert sér það að leik
að stimpla til dæmis nafnið sitt á
hjáliggjandi pappír. Fræðsla og
fjör fer því saman á Þjóðminjasafn-
inu um þessar mundir en sýningin
verður opin til 30. nóvember á
þessu ári.
Ílát Þessi flaska er frá Hólum.
21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
PÉTUR Gunnarsson rithöfundur
skrifar texta sem birtir eru á sýn-
ingarveggjum Endurfunda. Hann
átti fundi með fornleifafræðingum
sem unnu rannsóknir á þessum
stöðum sem fjallað er um í sýning-
unni til þess að setja sig betur inn í
viðfangsefnið. Textar og hugleið-
ingar Péturs gefa aukna innsýn í
hugarheim miðaldamanna og vekja
jafnframt ýmsar spurningar um líf-
ið þá og nú.
Hann kallar Skriðuklaustur
„heilsuverndarstöð á Héraði“ og
segir að fjöldi líkamsleifa ungra
kvenna og ófullburða fóstra veki
athygli. Þetta segi okkur „að konur
hafi leitað fæðingarhjálpar í
munkaklaustri af Ágústínus-
arreglu!“
Guð á tímann
Pétur ritar um miðaldamanninn:
„Í dag er Himnaríki í boði Þjóðkirkj-
unnar enda er nútímamaðurinn svo
til syndlaus. Höfuðsyndirnar hafa
ýmist gufað upp eða verið boðnar
velkomnar til leiks, til að mynda
græðgin. En það var einmitt hennar
vegna sem miðaldakristnin lagðist
svo eindregið gegn störfum sem
lutu að umsýslu með peninga. Sá
sem lánar fé og heimtar af því vexti
nefnist okrari og er sérstök tegund
af þjófi. Þýfi okrarans er tíminn frá
því hann lánar peninginn og þar til
hann endurheimtir hann með vöxt-
um. En hver á þá tímann? Um það
velkjast miðaldamenn ekki í vafa:
Guð á tímann. Gróðapungurinn
stelur frá Guði, hvorki meira né
minna. Og þessi tímaþjófur er þeim
mun syndugri að hann ann sér aldr-
ei hvíldar. Misindismenn og skækj-
ur taka sér þó hvíld rétt á meðan
þau festa blund. Okrið aftur á móti
starfar jafnt í vöku sem svefni – og
nægir skuldsettustu þjóð í Evrópu
að hugsa til dráttarvaxtanna í því
sambandi.“
Ennfremur skrifar Pétur
skemmtilega um Kirkjubæj-
arklaustur: „Vegfarandi sem er á
hringferð um þjóðveg 1 ekur fyrr
eða síðar fram hjá Kirkjubæj-
arklaustri. Ekki er ósennilegt að
hann fylli á tankinn í sjoppunni og í
stað þess að horfa á óþægilega há-
ar tölur kútveltast á dælunni beinir
hann sjónum til þorpsins álengdar.
[…] Nú heyrist klikkið í bensíndæl-
unni til marks um að tankurinn sé
fullur og ósennilegt að honum hafi
tekist á fáeinum mínútum að máta
sig við þá staðreynd að hér hafi
staðið nunnuklaustur í 365 ár! Ekki
sem sóttkví utan við heiminn held-
ur virkur þátttakandi í samfélags-
leiknum, handhafi fjölda jarða og
hlunninda út um allt Suðurland.
Aflstöð í veraldlegum sem and-
legum skilningi – að héðan var
dælt eldsneyti til þjóðarsálarinnar
allrar.“
Hugarheimur og
andrúmsloft miðalda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stemning Hér má sjá inn í miðjan
„klausturgarðinn“ en skemmti-
leg stemning er sköpuð á sýning-
unni í gegnum ljós og liti.
Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar 2009
Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á íslensku,
til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sem verða til úthlutunar á
síðari hluta árs 2009.
Verðlaun að upphæð 600 þúsund krónur verða veitt fyrir eitt handrit.
Þriggja manna dómnefnd metur verkin; Kolbrún Bergþórsdóttir formaður og Jón Óttar
Ragnarsson tilnefnd af menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar og Ingibjörg
Haraldsdóttir tilnefnd af Rithöfundasambandi Íslands.
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður. Sé
dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem
hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu niður það ár.
Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila merktum dulnefni, en nafn og
heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi.
Handrit berist í síðasta lagi 1. júní 2009.
Utanáskrift:
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar b.t. Signýjar Pálsdóttur, skrifstofustjóra
menningarmála, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Vesturgötu 1, 2.hæð, 101
Reykjavík.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs s. 590 1520 og 590 1521.
Lífshlaupið er fræðslu- og
hvatningarverkefni ÍSÍ fyrir
alla aldurshópa.
Markmið þess er að hvetja
landsmenn til þess að fara
eftir ráðleggingum
Lýðheilsustöðvar um
hreyfingu og gera hreyfingu
að föstum lið í lífsstíl sínum.
Lífshlaupið
byrjar 4. febrúar!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
S
I
44
69
8
01
/0
9
Lífshlaupið Þín heilsa – þín skemmtun
Samstarfsaðilar
Ólympíufjölskyldan
Fersk sending
• Vinnustaðakeppni
• Hvatningarleikur í skólum
• Einstaklingskeppni
Skráning og nánari upplýsingar
á vefsíðunni: lifshlaupid.is