Morgunblaðið - 01.02.2009, Side 23

Morgunblaðið - 01.02.2009, Side 23
Sjónvarpsþáttur 23 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009 Dexter er óvenjulegurraðmorðingi. Kaldur ogtilfinningalaus sérfræð-ingur lögreglunnar í blóðferlum, en sífellt að reyna að sýna „rétt“ viðbrögð, eins og ann- að fólk sýnir. Hann myrðir ekki hvern sem er, heldur aðeins þá sem eiga það skilið, samkvæmt stífri forskrift uppeldisföður hans. Frá þeim reglum víkur hann ekki nema í neyð. Fórnarlömb hans eru nær eingöngu harðsvíraðir morð- ingjar, sem hafa á einhvern hátt sloppið úr klóm réttvísinnar. Þannig nær Dexter að vekja sam- úð þeirra sem með honum fylgj- ast, því hver vill ekki sjá hin verstu illmenni líða fyrir afbrot sín? Dexter er auðvitað bara að- alhetjan, eða aðalskúrkurinn, í sjónvarpsþáttum, sem byggjast á skáldsögum Jeffs Linleys. Sá sem leikur hann heitir Michael Carlisle Hall og fagnar 38 ára afmæli sínu í dag. Lífið er kabarett Michael C. Hall hefur ekki alltaf leikið eintóma skúrka. Fyrstu skrefin í leiklistinni tók hann á sviði minni leikhúsa og oftar en ekki urðu Shakespeare-verk fyrir valinu. Þar var hann reyndar stundum í hlutverki illmenna en í önnur skipti göfugra aðalsmanna. Smám saman skapaði hann sér gott orðspor og komst á fjalir Broadway-leikhúss árið 1999, sem kynnirinn skrautlegi í söng- leiknum Cabaret. Honum bauðst svo hlutverk Davids Fishers í þáttaröðinni Six feet under og þar með var framtíð hans tryggð og tilnefningar til leiklistarverðlauna bárust hver á eftir annarri. Þætt- irnir nutu mikilla vinsælda og Michael þótti gera skápahomm- anum David góð skil. Michael hefur lítið sést í kvik- myndum, hans heimavöllur er leikhús og sjónvarp. Hann lék þó í spennumyndinni Paycheck árið 2003, með Ben Afflect, Umu Thurman og Aaaron Eckhart. Sjónvarpsþáttaröðin um Dexter skaut Michael C. Hall upp á stjörnuhimininn svo um munaði. Og áfram streyma viðurkenningar og verðlaun. Um áramótin bárust fréttir sem slógu suma aðdáendur þáttanna um Dexter út af laginu. Michael C. Hall og leikkonan Jennifer Car- penter létu pússa sig saman á gamlárskvöld. Jennifer leikur systur Dexters í þáttunum og ást- in hefur greinilega kviknað á vinnustaðnum. rsv@mbl.is Ljúfi raðmorðinginn Reuters Hjónin Jennifer Carpenter og Michael C. Hall á leið á Golden Globes hátíðina 11. janúar, nýgift og hamingjusöm. ©Showtime „Ferjumaðurinn“ Dexter Morgan, fjöldamorðingi og blóðferlasérfræð- ingur, við nytsamlega bátinn sinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.