Morgunblaðið - 01.02.2009, Qupperneq 27
27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
Hátískuhús heimsins þurfaekki að kvarta í krepp-unni. Að minnsta kostiekki Chanel, sem fagn-
aði 20% söluaukningu milli áranna
2007og 2008. Hvað þá Dior, sem á
sama tíma seldi 35% meira.
Hátískufatnaður er rándýr,
hver flík getur hæglega kostað
margar milljónir og þar við bæt-
ast handtöskur, skór og ýmsir
fylgihlutir. Það er því ekki fyrir
neinn meðaljón að kaupa slíka
vöru. Meðaljónarnir eru hvort
sem er aðkrepptir þessa dagana,
en hinir ofurríku virðast svífa
skýjum ofar, ósnertanlegir af
kreppum.
Sókn er besta vörnin
Pistlahöfundur breska dag-
blaðsins Guardian, Hadley Freem-
an, skrifaði um þetta fyrirbæri í
vikunni. Hún segir tískuhúsin
greinilega líta svo á að sókn sé
besta vörnin og því fari fjarri að
þau ætli að draga úr íburðinum og
kostnaðinum á krepputímum. Gi-
orgio Armani er ágætis dæmi, en
hann mun opna stóra verslun á
dýrasta stað í New York um það
leyti sem tískuvikan þar í borg
hefst í næsta mánuði.
Hadley Freeman bendir á, að
hátískufatnaður sé svo dýr, að við-
skiptavinirnir teljist vera nokkur
hundruð manns, fremur en mörg
þúsund. Vissulega dró eitthvað úr
pöntunum frá Bandaríkjunum á
síðasta ári, en á móti kom að fleiri
ofurríkir Asíubúar renna nú hýru
auga til hátísku en áður.
Hadley bendir líka á, að tísku-
blöð eigi hlut að máli. Þau geri sér
grein fyrir að meirihluti lesenda
þurfi að draga saman seglin, en
um leið vilji þau gera auglýs-
endum sínum til geðs og hampa
hátískunni. Niðurstaðan sé sú, að
þau hvetji lesendur til að kaupa
a.m.k. eina afar vandaða (lesist:
dýra) flík, í stað þess að kaupa
fleiri ódýrari.
Ekki er nóg með að tískuhúsin
fagni aukinni sölu árið 2008 frá
fyrra ári, heldur reikna þau með
að hagur þeirra muni enn vænkast
árið 2009. Árið sem flestir sjá fyrir
sér einkennast af miklum sam-
drætti. Og samdráttur í verslun er
þegar staðreynd í hinum vestræna
heimi. Fólk kaupir minna og rýkur
ekki til að skoða nýjustu fötin í
búðunum. En það á auðvitað við
um venjulega launþega, ekki þá
sem vita ekki aura sinna tal. Þeir
búa í sínu eigin hagkerfi, stikkfrí
frá kreppu.
Kökur í stað brauðs
Það er tímanna tákn að á
tískusýingu Dior á mánudag
klæddust fyrirsæturnar kjólum,
sem minntu einna helst á Maríu
Antoinettu. Þegar almúginn gerði
uppreisn í Frakklandi ku hirðmað-
ur hafa sagt Maríu að óánægju
lýðsins mætti rekja til skorts á
brauði. Þá á María að hafa sagt, að
almúginn gæti bara borðað kökur.
Hún bjó að sjálfsögðu ekki við
sama kost og almúginn.
Kökur og
brauð í kreppu
Reuters
Veisla Vor- og sumartíska Dior ber engan svip af kreppu. Miklu fremur af
óhófi frönsku yfirstéttarinnar fyrir byltingu.
Auglýst er eftir umsóknum um rannsóknarstyrki úr sjóði til minningar um
Bjarna Benediktsson lagaprófessor og forsætisráðherra. Veittir verða sex
styrkir árið 2009 til rannsókna á sviði stjórnsýslu- og stjórnskipunarréttar
annars vegar og hag- og stjórnmálasögu 20. aldar hins vegar. Úthlutun miðast
við faglegt mat á gæðum rannsóknarverkefnis, færni og reynslu umsækjanda til
að stunda rannsóknir og aðstöðu hans til að sinna verkefninu. Sjóðurinn er
í vörslu Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís).
Rannsóknarstyrkir
Bjarna Benediktssonar
Umsóknarfrestur er til 16. febrúar 2009
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 5155800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Reglur og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Rannís, www.rannis.is.
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd
vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis
vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s.
Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt
sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og
tæknisamfélagsins.
GRÆNLAND
– paradís veiðimannsins
flugfelag.is / sími +354 570 3075 – hopadeild@flugfelag.is
Pakkaferðir til Narsarsuaq og Nuuk – samstarfsaðilar:
Pálmi Gunnarsson, The Icelandic Flyfishing Service, www.tiffs.is
Nuuk-Tourism, www.nuuk-tourism.gl
REYKJAVÍK
Grænland
Nuuk
IIulissat
Kulusuk
Narsarsuaq
Constable Point
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
44
74
3
01
.2
00
9
Stangveiði á Grænlandi
tekur öllu fram sem þú hefur
upplifað í fiskveiði.
Svo gríðarlega mikið er af
fiski að þú hreinlega mokar
honum upp.
/ Stórbrotin náttúrufegurð
/ Fjölbreyttar veiðiferðir í ósnortinni náttúru
/ Silungsveiði
/ Hreindýraveiðar
/ Heillandi gönguferðir
3ja til 7 daga ferðir til Grænlands.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið ,magnar upp daginn