Morgunblaðið - 01.02.2009, Síða 32
32 Tónlist
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
B
lóð, iður og limlestingar
leika stórt hlutverk í
svartamálmsstefnunni,
einni af undirgreinum
þungarokksins. Öllu er
til tjaldað svo ganga megi fram af
lýðnum. Í flestum tilvikum er að-
eins um leikræna tilburði að ræða –
sýndarmennsku. Afbrigðið frá regl-
unni er norska sveitin Mayhem
(Limlesting) sem virðist hafa tekið
hlutverk sitt helst til alvarlega.
Ætli megi ekki segja að liðs-
mönnum þessarar ágætu sveitar
hafi runnið blóðið til skyldunnar.
Mayhem var stofnuð í Ósló árið
1984 af gítarleikaranum og söngv-
aranum Øystein Aarseth, sem tók
sér listamannsnafnið Euronymous,
bassaleikaranum Jørn Stubberud,
ellegar Necrobutcher og trym-
blinum Manheim. Seinna bættust í
hópinn söngvararnir Maniac og
Messiah. Tilgangurinn var að leika
svartamálm af djúpri innlifun en sá
angi var þá nýlega sprottinn á
meiði þungarokksins.
Euronymous fór fyrir sveitinni
en hann starfrækti meðfram henni
útgáfufyrirtækið Dauðaþögn og
hljómplötuverslunina Helvíti.
Verslunina sá hann fyrir sér sem
svarta kirkju, þar sem væri svo
dimmt að gestir og gangandi þyrftu
að bregða kyndlum á loft til að
finna tónlistina.
Með dauða kráku í krukku
Fyrstu starfsár Mayhem voru
fremur tíðindalítil en þegar sænski
söngvarinn Per Yngve Ohlin, sem
kallaði sig einfaldlega Dead, gekk
til liðs við sveitina 1988 fór að fær-
ast fjör í leikinn. Fyrir það fyrsta
urðu tónleikar Mayhem alræmdir.
Sveitin lét iðulega stjaksetja svín
eða sauði fremst á sviðinu, auk
þess sem Dead hafði yndi af því að
blóðga sig með veiðihnífum og gler-
brotum. Hermt er að hann hafi ver-
ið heillaður af viðbrögðum tónleika-
gesta við þessu. Einu sinni gekk
Dead svo langt að flytja þurfti
hann á sjúkrahús vegna blóðmissis.
Einhverju sinni gekk kappinn
fram á dauða kráku og hafði hana
upp frá því með sér í krukku til að
geta þefað af henni fyrir tónleika.
Dead naut þess að hafa daun dauð-
ans í nösunum meðan hann söng.
Í þessu ljósi kemur ekki á óvart
að söngvarinn hafi haft þann sið að
grafa fötin sín í jörð nokkrum vik-
um fyrir tónleika. Rétt áður en
hann steig á svið gróf hann svo
klæðin upp og skrýddist þeim á ný.
Tilgangurinn var að líta út eins og
hann væri nýstiginn upp úr gröf-
inni. Dead mun víst hafa sótt það
stíft að fara alla leið með þennan
leik og búa sig bókstaflega undir
tónleika neðar foldu en enginn
fékkst víst til að moka yfir hann.
Hafði ekki yndi af tilverunni
„Dead var einkennilegur náungi,
dapur, þunglyndur og lifði í algjöru
myrkri,“ sagði Jan Axel Blomber,
Hellhammer, sem lengst af hefur
lamið húðir hjá Mayhem, einhverju
sinni þegar söngvarann bar á
góma.
Euronymous gítarleikari tók í
sama streng: „Ég held að Dead
hafi verið vanheill á geði. Er hægt
að lýsa manni sem sveltir sig til að
fá hungursár með öðrum hætti?“
Líklega hittir Bård Eithun, betur
þekktur sem Faust, trommuleikari
annars svartamálmsbands, Empe-
ror, naglann á höfuðið: „Eigi ég að
segja alveg eins og er þá held ég að
Dead hafi haft takmarkað yndi af
þessari tilveru.“
Það fór líka svo að Dead svipti
sig lífi, 8. apríl 1991, 22 ára að aldri.
Þremur árum síðar upp á dag komu
menn að Kurt Cobain, forsprakka
Nirvana, látnum vestur í Banda-
ríkjunum. Ekki er þó vitað um
tengsli þessara tveggja manna í
millum.
Verknaðinn framdi Dead í litlu
skógarhúsi í eigu Mayhem-liða.
Hann lét ekki nægja að skera sig á
púls heldur skaut sig líka í höfuðið
með haglabyssu. Hjá líkinu var
sjálfsvígsorðsending þar sem Dead
baðst forláts á öllu blóðinu og því
að hafa hleypt af byssunni innan-
dyra.
Euronymous kom að Dead látn-
um. Í stað þess að hringja á lög-
regluna, eins og flestir hefðu líklega
gert, brá gítarleikarinn sér út í
næstu sjoppu og festi kaup á ein-
nota myndavél til að ljósmynda lík-
ið í bak og fyrir. Necrobutcher
bassaleikari bar síðar blak af þess-
um óhefðbundna gjörningi og hélt
því fram að Euronymous hefði
brugðið svo illilega við sjálfsvíg fé-
laga síns að eina leiðin til að höndla
það hafi verið að taka ljósmyndir.
Athyglisverð rök.
Einni ljósmyndanna var síðar
stolið og rataði hún framan á plötu-
albúm ólöglegrar útgáfu frá tón-
leikum Mayhem, Dawn of the Black
Hearts. Smekklegt, eða þannig.
Euronymous lét sér ekki nægja
að ljósmynda líkið. Orðrómur var
lengi á kreiki þess efnis að hann
hefði lagað sér kássu úr heilaslett-
um Deads en hljómsveitin hefur
alla tíð borið hann til baka. Á hinn
bóginn hafa Mayhem-liðar staðfest
að Euronymous bjó til hálsfesti úr
flísum úr höfuðkúpu félaga síns.
Hálsfestinni var síðar stolið og hafa
ýmsar svartamálmskempur haldið
því fram að þær hafi hana undir
höndum.
Djöfladýrkun, dulspeki og
almenn mannfyrirlitning
Dead var horfinn af sjónarsviðinu
en Necrobutcher fullyrðir að sjálfs-
víg hans hafi vakið gríðarlega at-
hygli á svartamálmsstefnunni.
Mayhem hélt áfram eins og ekk-
ert hefði í skorist og tók ungverski
söngvarinn Attila Csihar við hljóð-
nemanum. Áföllin áttu hins vegar
eftir að verða fleiri.
Euronymous var gegnsýrður af
djöfladýrkun og á bólakafi í dul-
speki og almennri mannfyrirlitn-
ingu. „Satanismi er afsprengi krist-
innar trúar, og þannig mun það
verða. Ég er trúaður maður og ég
mun kljást við þá sem leggja nafn
Hans við hégóma. Fólk á ekki að
trúa á sjálft sig og hafa ein-
staklingshyggjuna í hávegum. Það
á að hlýða og vera þrælar trú-
arinnar,“ sagði gítarleikarinn eitt
sinn í viðtali. Með Honum á hann
við kölska.
Árið 1992 leysti Varg Vikernes,
sem þá kallaði sig Count Gris-
hnackh, Necrobutcher af á bass-
anum. Hann var líkt og Euronymo-
us lítill áhangandi almættisins en
fremur heiðinn en satanískur í
hugsun. Þá um sumarið tengdist
hann fjölda atvika, þar sem reynt
var að kveikja í fornfrægum staf-
kirkjum í Noregi eða þær hreinlega
brenndar til kaldra kola. Þeirra
frægust Fantoft-kirkjan sem reist
var á tólftu öld.
Vikernes gekkst ekki við íkveikj-
unum en grét þær heldur ekki.
„Þetta er hefnd. Hver kirkjugarður
sem er skemmdur er hefnd fyrir
heiðna gröf sem kristnir menn hafa
lagt í rúst. Hver kirkja sem brenn-
ur er hefnd fyrir heiðið hof sem er
glatað,“ skrifaði hann einu sinni í
málgagn norskra heiðingja.
23 stungusár á líkinu
Margt bendir til þess að Viker-
nes og Euronymous hafi ekki átt
skap saman. 10. ágúst 1993 hélt sá
fyrrnefndi sem leið lá frá Björgvin,
þar sem hann bjó, til Óslóar til að
taka hús á Euronymous. Fljótlega
sló þar í brýnu með þeim afleið-
ingum að Vikernes stakk Euro-
nymous til bana. Illa útleikið lík
hans fannst fyrir utan íbúðina, á því
voru hvorki meira né minna en 23
stungusár. Euronymous var 25 ára
að aldri.
Ekki er ljóst hvers vegna Viker-
nes réð félaga sínum bana. Við
vitnaleiðslur hélt hann því raunar
fram að Euronymous hefði ætlað að
myrða sig og hann brugðist til
varnar. Fjölda stungusáranna út-
skýrði hann með því að flest þeirra
hefði Euronymous hlotið þegar
hann féll á glerbrot meðan á átök-
um þeirra stóð. Sextán sáranna
voru á baki fórnarlambsins.
Seinna fullyrti Vikernes á heima-
síðu sinni að Euronymous hefði
haft á prjónunum að pynta sig til
bana og festa vígið á filmu.
Böndin beindust fljótt að Viker-
nes og þegar hann var handtekinn
fannst umtalsvert magn sprengi-
efnis á heimili hans. Það hugðist
hann nota til að sprengja í loft upp
fylgsni róttækra vinstrimanna og
anarkista í Ósló. Handtakan kom
sumsé í veg fyrir það. Sumir hafa
gert því skóna að þessi áform hafi
leitt til morðsins á Euronymous,
sem hneigðist til kommúnisma, og
hefði fyrir vikið aldrei stutt téðan
verknað. Það er ósannað.
Brosti sínu breiðasta í dómsal
Vikernes var fundinn sekur um
morð og þátttöku í ýmsum íkveikj-
um og dæmdur í 21 árs fangelsi,
sem er hámarksrefsing í Noregi.
Ljósmyndir staðfesta að hann
brosti sínu breiðasta þegar dóm-
urinn var kveðinn upp.
Hann hefur haldið áfram að
semja og flytja tónlist bak við lás
og slá og m.a sent frá sér plötuna
Dauði Baldrs. Þá hefur Vikernes
verið virkur í pólitísku starfi hægri
öfgahópa. Hann sótti síðast um náð-
un síðastliðið sumar en var synjað.
Vikernes mun ganga laus á ný í síð-
asta lagi árið 2015.
Að Euronymous og Vikernes
gengnum úr skaftinu var starfsemi
Mayhem sjálfhætt enda trymbillinn
Hellhammer einn eftir um borð.
Hann endurreisti þó sveitina tveim-
ur árum síðar ásamt Necrobutcher,
söngvaranum Maniac og gítarleik-
aranum Blasphemer. Geðug nöfn á
þessum köppum!
Maniac þessi átti um langt árabil
við áfengisvandamál að stríða en
vatnaskil urðu þegar hann rankaði
eitt sinn við sér þar sem hann hékk
á annarri hendinni út um glugga á
hótelherbergi á fjórðu hæð. Hafði
kappinn ekki hugmynd um hvernig
hann hafði komið sér í þá aðstöðu.
Eftir þá lífsreynslu þótti honum
mál til komið að setja tappann í.
Mayhem hefur starfað allar götur
síðan enda þótt Attila Csihar og
Morfeus hafi leyst Maniac og
Blasphemer af hólmi. Þannig skip-
uð mun sveitin troða upp í Nes-
kaupstað í sumar. Þá er bara að
stefna skónum austur og berja her-
legheitin augum. Kunnugir fullyrða
að þessi misserin vætli blóðið ein-
göngu í æðum.
Daunn dauðans
Fortíð norsku svartamálmssveitarinnar Mayhem, sem að líkindum mun leika á Eistnaflugi í Neskaupstað í sumar, er blóði drifin.
Einn liðsmanna féll fyrir eigin hendi og annar réð þeim þriðja bana og hlaut að launum fangelsisdóm. Í millitíðinni brunnu nokkrar
kirkjur til kaldra kola enda leiða þeir Mayhem-liðar almættið seint til öndvegis. Bent er á að þessi grein er ekki við hæfi viðkvæmra.
Tukthúslimur Varg Vikernes af-
plánar nú 21 árs dóm vegna morðs-
ins á Euronymous haustið 1993. Skuggalegur Euronymous þótti frambærilegur tónlistarmaður en hann var
djöfladýrkandi fram í fingurgóma. Lífi hans lauk með voveiflegum hætti.
Látinn Söngvari Mayhem, Dead,
stóð á endanum undir nafni.
Félagar Vikernes, eða Count Gris-
hnackh, og Euronymous meðan allt
lék í lyndi. Þeim laust svo saman.
‘‘EURONYMOUS KOM AÐDEAD LÁTNUM. Í STAÐÞESS AÐ HRINGJA ÁLÖGREGLUNA, EINS OG
FLESTIR HEFÐU LÍK-
LEGA GERT, BRÁ GÍT-
ARLEIKARINN SÉR ÚT Í
NÆSTU SJOPPU OG
FESTI KAUP Á EINNOTA
MYNDAVÉL TIL AÐ
LJÓSMYNDA LÍKIÐ Í BAK
OG FYRIR.