Morgunblaðið - 01.02.2009, Page 37

Morgunblaðið - 01.02.2009, Page 37
Umræðan 37 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009 grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli NÁMSAÐSTOÐ íslenska - stærðfræði - enska - danska franska - eðlisfræði - efnafræði - tölfræði þýska - spænska - lestur - stafsetning o.fl. greining á lestrarerfiðleikum Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is Tjarnarból 4 170 Seltjarnarnes 5 herb. íbúð með góðum sv svölum! Stærð: 137,6 fm Fjöldi herbergja: 5 Byggingarár: 1972 Brunabótamat: 25.600.000 Bílskúr: Nei Verð: 29.900.000 5 herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýli. Svefnherbergin eru 4, eldhús með borðkrók og búri. Samliggjandi borðstofa og stofa með útgengi á góðar svalir. Stofan er opin og björt. Baðherbergið er allt hið glæsilegasta, flísar í hólf og gólf, horn baðkar með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Búið er að endurnýja mikið af íbúðinni síðustu 5-6 ár, skipta var út öllum hurðum, parket, dregið var í nýtt rafmagn í íbúðinni 2002-2003. Í sameign er góð aðstaða, leikherb. f. börn, hjóla- og vagnageymsla. Þetta er mjög góð eign á frábærum stað á Seltjarnarnesi. Stutt er í alla almenna þjónustu, sjón er sögu ríkari! Torg Bergsteinn Gunnarsson Lögg. fasteignasali Sigurður Sölufulltrúi sg@remax.is Opið Hús Opið hús sunnudag 1. feb. kl. 17:00-17:30 RE/MAX Torg - Garðatorgi 5 - 210 Garðabær - Sími: 5209595 - www.remax.is 898 6106 Jón Hólm Stefánsson Lögg. fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali www.gljufurfasteign.is Til sölu í Selvogi, Ölfusi Til sölu er afgirt landspilda í Selvogi að stærð 66,8 hektarar. Landið er gróið. Á landinu er ræktað land að stærð um 4 hektarar. Einnig eru á landinu gömul útihús. Landið er rétt austan Strandarkirkju og nær að sjó. Samgöngulega mjög vel sett land, örstutt til Þorlákshafnar eftir nýjum Suðurstrandarvegi. Um er að ræða verulega álitlega eign í fallegu umhverfi, sem býður upp á margvíslega möguleika. Ásett verð 60 milljónir eða tilboð. Nánari upplýsingar hjá Jóni Hólm Stefánssyni, lögg. fasteignasala, í síma 896-4761. Gljúfur fasteignasala hefur fleiri eignir í dreifbýli til sölu, sjá www.gljufurfasteign.is. Leitið upplýsinga hjá fasteignasala í síma 896-4761. Reykjavík Sími 588 9090 • Síðumúla 21 108 Reykjavík www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali Langalína 29 1. hæð, íbúð 106 Mjög góð og vel skipulögð 100,8 fm íbúð á jarðhæð, íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu og sér 60 fm verönd. Gólfhiti er í allri íbúðinni og glæsilegar innréttingar frá Liva. Parket og flísar á öllum gólfum. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG FRÁ KL. 14:00-14:30. V. 35,9 m. OPIÐ HÚS Á SÍÐUSTU klukkustundum starfs- tíma síns sem land- búnaðar- og sjáv- arútvegsráðherra undirritaði Einar K. Guðfinnsson reglugerð er heimilar, að upp- fylltum skilyrðum, veiðar á 100 hrefnum og 150 langreyðum árlega næstu 5 ár. Veiðimenn fagna á sama tíma og útflytjendur og talsmenn ferðaþjón- ustu óttast neikvæð áhrif. Ýmsir hópar verndunarsinna dylja heldur ekki óánægju sína. Þegar þessi orð eru skrifuð er ekki ljóst hvort ákvörðun Einars stendur eða hvort nýr ráðherra sjávarútvegsráðherra afnemur reglugerðina jafn léttilega og Einar setti hana. Þá er heldur ekki ljóst hvort ákvörðunin hafi áhrif á af- stöðu vinaþjóða til áframhaldandi þátttöku í þeirri lánafyrirgreiðslu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hef- ur forystu um. En þó svo að þau efnisatriði reglugerðarinnar sem lúta að fjölda veiðidýra verði látin standa tel ég brýna ástæðu til að endurskoða önnur ákvæði hennar. Reglu- gerðin kveður á um að kvótanum skuli út- hlutað til þeirra sem hafa stundað veiðar á hrefnu eða sem sjáv- arútvegsráðherra ætl- ar að geti haft burði til að stunda veiðar á hrefnu. Þá er kveðið á um að stórhvalakvóta skuli aðeins úthlutað til skipa sem útbúin eru til veiða á stórhvölum. Hér er að hluta til beitt sömu aðferð við kvótaút- hlutun og Mannréttindanefnd Sam- einuðu þjóðanna hefur fordæmt í máli Erlings Sveins Haraldssonar og Arnar Snævars Sveinssonar gegn Íslandi. Þar finnur Mannrétt- indanefndin að því að afmörkuðum hópi manna séu afhent réttindi ókeypis með þeim afleiðingum að aðrir geti ekki notið þeirra réttinda nema gegn fégreiðslum til þeirra fyrrnefndu. Verði reglugerð Einars K. Guð- finnssonar ekki felld niður í heild sinni er því nauðsynlegt að gera á henni þær lágmarksbreytingar sem aðlaga inntak hennar að fyrr- nefndum úrskurði Mannréttinda- nefndarinnar. Það hlýtur að vera eðlileg krafa að í því tilviki yrðu leyfi til hvalveiða boðin upp. Til- greint yrði hafsvæði, veiðitímabil, tegund og fjöldi veiðidýra. Bjóð- endur geti verið einstaklingar, fyr- irtæki eða samtök er hafi íslenska kennitölu. Veiðiskip verði að vera skráð í íslenska skipaskrá. Veiði- rétti fylgi ekki veiðiskylda. Þannig sé opnað fyrir að einstaklingar, samtök eða fyrirtæki kaupi upp öll veiðiréttindi á ákveðnu hafsvæði og komi að fullu í veg fyrir veiðar á því hafsvæði. Það fé sem fengist með uppboð- inu mætti leggja í bjargráðasjóð heimilanna. Uppboð hvalveiðiheimilda? Þórólfur Matthías- son skrifar um þá ákvörðun að heim- ila hvalveiðar » Leyfi til hvalveiða yrðu boðin upp og tekjurnar lagðar í bjargráðasjóð heim- ilanna. Þórólfur Matthíasson Höfundur er prófessor í hagfræði við hagfræðideild Háskóla Íslands. HINN 11. janúar skrifar Reynir Harð- arson grein í Morg- unblaðið: Sirkus trúar- bragðanna. Þar ræðst hann af mikilli reiði að mér fyrir skrif mín í Morgunblaðinu 6. jan- úar sl. til varnar kon- um sem sögðu skilið við trú múslima og heitir: Fyrrverandi múslimakonur. Baráttukonurnar Maryam Nama- zic og Ayaan Hirsi komu fram í Kastljósi og vöruðu þjóðina við að rétta múslimum litla fingur því þá tækju þeir alla hendina, en þeir fengju aldrei nóg og gengju ávallt á lagið. Allar viðtökuþjóðir þeirra hefðu bitra reynslu af þeim. Tilv. lýkur. Sjálfar voru þær dæmdar til dauða af fyrrverandi trúbræðrum sínum og fara nú huldu höfði. En samkvæmt lögum múslima er dauðasök að segja sig frá trúnni. Salmann Tamimi, talsmaður músl- ima á Íslandi, kom í Kastljós á eftir þeim og sagði þær ljúga hverju orði, þó að sannleikurinn í frásögn þeirra væri augljós og öllum kunnur. Ég kaus að taka upp hanskann fyrir þær og okkur öll. Greinin sem Reynir bölsótast yfir og umsnýr, var skrifuð fyrir tveimur árum og lá óbirt í Fréttablaðinu í eitt ár. Fyrir stuttu sendi ég hana til Morg- unblaðsins sem hikaði ekki við birt- ingu. Í grein sinni hamast Reynir á mér og biskupi Íslands fyrir að vilja vernda menningu þjóðar vorar og siði en dregur um leið enga dul á svæsna fyrirlitningu sína á trúar- brögðum. Það er með ólíkindum mikil mannfyrirlitning því allar þjóðir hafa trúarbrögð. Það mun ekki breytast, sama hvað Reyni Harðarsyni finnst það vitlaust. Reynir gerir hvað hann getur til að draga orð úr samhengi og rangtúlka meiningu skrifa minna. Ég skora á fólk að bera greinarnar saman. Við erum lítil þjóð með margra alda menningu og siði sem okkur þykir vænt um en sem eru eitur í huga trúleysinga sem ekkert er heilagt. Reynir hefur ekki lesið margar greinar mínar ef hann heldur að ég hafni öðrum trúarbrögðum en kristni. Ég þoli bara ekki mannfyrirlitningu og yfirgang. Kvenfyr- irlitning er nefnilega áberandi í trúar- brögðum múslima og það fer illa í við- tökuþjóðir. Ef músl- ímskir karlar hafa minnimáttarkennd gagnvart konum gæti það verið skýring. Ólíklegt er að ég sé sá eini sem telur sig í þakkarskuld við Vil- hjálm, fyrrverandi borgarstjóra, fyrir að afturkalla úthlutun borg- arstjóra Samfylkingarinnar á lóð undir mosku í Elliðaárdalnum. Þar er helsta útivistarparadís borgarbúa sem þeir líða hvorki stjórnmála- gosum né öðrum að eyðileggja. Það fer lítið fyrir samúð Reynis með dauðadæmdum fyrrverandi músl- imakonum. Hann fagnar komu manns sem ef að líkum lætur er sammála jáhópi dómara þeirra. Þeg- ar Danir áttu sem erfiðast við að halda tjáningarfrelsi sínu vegna of- stækisfullra viðbragða múslímskra þjóða út af skopteikningu hvatti Ta- mimi fólk hér heima til að hunsa þá og kaupa engar vörur af þeim. Í þeim látum var fjöldi manns myrtur í löndum múslima. Þar á meðal kristin nunna. Múslimar dæmdu rit- höfund og teiknara annarra þjóða til dauða. Ég gæti sagt frá sádiarab- ísku prinsessunni sem var háls- höggvin á torgi fyrir að sofa hjá þeim sem hún elskaði en hann slapp. Ég gæti haldið endalaust áfram því listinn er langur en nóg í bili. Reynir segir: „Í áranna rás hefur barátta Palestínumanna fengið á sig trúarlegan blæ. Kannski gerist þetta vegna þess að fátt er vænlegra til að etja mönnum á forað stríðs- átaka en vísun í yfirnáttúrulega veru.“ Viti Reynir ekki betur er það ein- mitt landlægt ofstæki trúarbragða beggja sem vítinu veldur. Það hafa ofstækismenn notað til að telja hrjáð ungmenni á að hlaða á sig sprengjum og tæta sundur stræt- isvagna fulla af börnum. Það breytir ekki því að morðárásir Ísr- aelsmanna eru allsherjar hryllingur sem þjóðir heims eiga að stöðva strax. Það er viðbjóðslegt að Ísrael- ar skuli enn nota fosfór, klasa- sprengjur og jarðsprengjur. Ég er ekki viss um að margir séu sammála Reyni um að Íslendingar séu hvorki kristnir né ein þjóð. Reynir virðist ekki skilja aðal- ástæðu þess að kristni var lögtekin. Þorgeir ljósvetningagoði sagði: Slít- um við í sundur lögin, þá slítum við og sundur friðinn. Þá voru lög og trú samofin eins og enn er víða hjá mús- limum. Jafnvel þó að það komi frá Reyni er mér heiður að því að hug- myndafræði minni skuli líkt við þá sem hann fordæmir hjá látnum önd- vegismanni og hinum frábæra syni hans, Karli Sigurbjörnssyni. Ekki veit ég hvað Kristur hefur gert á hlut Reynis. Er það það að hann vildi að menn gerðu það öðrum sem þeir vildu sér gert? Kannski vill Reynir heldur auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Ég vorkenni þess- um manni. Reynir Harðarson mistúlkar grein Albert Jensen svar- ar grein Reynis Harðarsonar »Kvenfyrirlitning er nefnilega áberandi í trúarbrögðum múslima og það fer illa í við- tökuþjóðir. Albert Jensen Höfundur er trésmíðameistari. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.