Morgunblaðið - 01.02.2009, Page 45

Morgunblaðið - 01.02.2009, Page 45
Minningar 45 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JAKOBS BJÖRGVINS ÞORSTEINSSONAR, Sléttuvegi 13, Reykjavík, fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 4. febrúar kl. 11.00. Þóra Jakobsdóttir, Friðrik Sveinn Kristinsson, Þorsteinn Þröstur Jakobsson, Guðrún Óðinsdóttir, Óskar Matthías Jakobsson, Angela Jakobsson, Halldór Jakobsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín og vinur, móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, GUÐRÚN BJÖRK RÚNARSDÓTTIR FREDERICK, Hátúni 37, Keflavík, varð bráðkvödd á heimili sínu föstudaginn 23. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 3. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Kenneth W. Frederick, Gunnar Már Vilbertsson, Sara Margrét Frederick, Viktoria Lynn Frederick, Fríða Felixdóttir, Rúnar Lúðvíksdóttir, Lúðvík Rúnarsson, Iðunn Ingólfsdóttir, Gunnar Felix Rúnarsson, Arna Hrönn Sigurðardóttir, Særún Ása Rúnarsdóttir, Jónas Þór Jónasson og aðrir aðstandendur. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR SAMÚELSSON prófessor emerítus, Borgartúni 30a, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 26. janúar. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 3. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Hjartavernd eða aðrar líknarstofnanir. Hólmfríður Stefánsdóttir, Sif Sigurðardóttir, Atli Heimir Sveinsson, Sigurður S. Sigurðsson, Christine Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍNAR SIGURBJARTAR SÆMUNDSDÓTTUR, Borgarholtsbraut 62, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameinsdeilda Landspítalans við Hringbraut og Karitas konum fyrir yndislega umhyggju og hlýlegt viðmót við okkur öll. Grímur Guðmundsson, Jón Elvar, Sigríður Markúsdóttir, Guðmundur Grímsson, Hrafnhildur Proppé, Finnur Grímsson, Þórunn Hafsteinsdóttir, Elín Grímsdóttir, Jón Bjarni Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengda- móður, ömmu, langömmu og langalangömmu, HILDAR SIGURBJÖRNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk og heimilisfólk Minni Grundar fyrir hlýlegt viðmót. Ólöf Lilja Stefánsdóttir, Sigþrúður B. Stefánsdóttir og fjölskyldur. sorgin sár. Guð gefi ykkur styrk til að takast á við þessa erfiðu tíma. Fjöl- skyldunni allri og vinum vottum við dýpstu samúð, megi minningin um góðan dreng lifa. Sveinn Ægir og Jóna, Sigurður Þórðar og Sólrún Hanna. Þú ert sá vinur sem ég átti mest samskipti við á síðasta ári. Það er hreint með ólíkindum hvernig þér tókst að vera fyrirmyndarpabbi sem allir litu upp til, ástkær eiginmaður sem kunni að rækta hjónabandið. Frábær vinur, sem alltaf var hægt að leita til. Stjórna fyrirtækjum og gegna veigamiklum störfum fyrir knattspyrnudeildina og Samfylk- inguna. Þá eru ótalin þau störf sem fólust í undirbúningi og skipulagn- ingu allra þeirra hvunndags- og hátíð- arviðburða í lífinu. Þú áttir alltaf tíma. Það lýsir þér vel þegar ég hringdi í þig núna á gamlársdagsmorgun og sagði að við Leó værum að setja puru- steik inn í ofn og það væri mæting kl. 13. Það var ekki málið og þú varst mættur á réttum tíma. Þar fórum við félagarnir yfir þjóðmálin og ákváðum að þetta yrði árlegt hjá okkur. Búa til hefðir og hafa gaman af lífinu. Þú varst svo meðvitaður um að það dýr- mæta í lífinu er bundið í augnablikinu. Það er ekki endilega markið, heldur leiðin þangað. Þegar strákarnir í meistaraflokki í fótbolta voru settir á vigtina fyrir jól skoraði Gaui á mig og Ómar í keppni um hver myndi ná að léttast yfir jólin. Það var mikið hlegið þegar Gaui steig á vigtina og þriggja stafa tala kom upp en ég áttaði mig á alvöru málsins þegar ég steig á vigtina og þögn varð í búningsklefanum. Þetta var örugg- lega þín leið til að segja mér að fara að hreyfa mig. En það að vera í mínum þyngdarflokki, geta hlaupið maraþon og upp og niður hálendi Íslands er eitthvað sem ég ekki skil. Ferð okkar í Neskaupstað síðasta sumar er ógleymanleg. Eftir erfiðan fótboltaleik vissir þú að aðeins var ein leið til að vinna sig út úr leiknum, góð- ur matur og sögustund á heimleiðinni. Það var jafn gaman að skiptast á sög- um við þig, eins og að elda fyrir þig. Þú naust þess að borða góðan mat og sú máltíð sem stóð yfir hverju sinni var alltaf „sennilega sú besta sem þú hafðir smakkað“ og þú hafðir jafnan á orði að nú þyrfti ég að fara að halda kokkanámskeið fyrir félagana. Við áttum okkur einn sameiginleg- an draum, hann var sá að Selfoss myndi spila í efstu deild í fótbolta. Við ætluðum ekki að fara fram á meira en það að fá að leika við bestu liðin um hverja helgi. Þú varst alltaf svo ein- beittur þegar við töluðum um þetta að maður hreifst með. Þú varst þeim eiginleikum gæddur að ná alltaf að sætta menn og allar deilur leystir þú á uppbyggilegan hátt. Ég held að kúnstin hafi verið hversu auðvelt þú áttir með að setja þig í spor annarra. Enda óvenju- skarpskyggn og réttvís maður. Ég man eftir einu atviki þar sem við skiptumst á skoðunum og náðum svo ekki að enda sammála. Þá vorum við 14 ára og ágreiningsefnið var hvor væri betri söngvari George Michael eða Bono. Nokkrum árum seinna komumst við að niðurstöðu, sennilega væru þeir báðir mjög góðir og við miklir tónlistarsérfræðingar. Þeir vandalausu syrgja, en elsku Þórdís, Hjörtur Leó, Harpa Hlíf og fjölskyldur ykkar, megi guð sefa sorg ykkar eins og hægt er. Tómas Þóroddsson.  Fleiri minningargreinar um Guð- jón Ægir Sigurjónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Breytt fyrirkomu- lag við birtingu minningargreina FRÁ og með næstu mánaða- mótum verður fyrirkomulagi á birtingu minningargreina í Morg- unblaðinu breytt. Þær greinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfar- ardegi eða sem næst þeim degi. Hve margar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi einstaklings, ræðst af stærð blaðsins hverju sinni. Þær greinar sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Birting þeirra greina getur verið sam- dægurs eða eftir samkomulagi. Netgreinarnar eru öllum opnar. Vísað verður í að fleiri greinar séu á netinu neðst í þeim minningar- greinum sem birtast í blaðinu. Sami háttur verður hafður á birtingu minningargreina um þá sem jarðaðir hafa verið í kyrrþey. Stutt æviágrip og mynd verður birt í blaðinu og vísað í fleiri greinar á netinu. Skilafrestur Skilafrestur minningargreina til birtingar í blaðinu er tveimur virkum vinnudögum fyrir áætl- aðan útfarardag. Skilafrestur greina sem birtast á mánudögum og þriðjudögum er á föstudög- um. Mikilvægt er að greinar séu sendar með innsendikerfi blaðs- ins. Kerfið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á for- síðu mbl.is. Þegar grein hefur verið send með kerfinu fær send- andinn tölvupóst til staðfestingar og er það um leið trygging fyrir því að grein hafi borist blaðinu. Ljóð og sálmar aðgengileg Þá hefur Morgunblaðið opnað á vef með ýmsum ljóðum og sálm- um sem birst hafa með minning- argreinum í blaðinu. Hann er á slóðinni www.mbl.is/sendagrein, en það er forsíða innsendikerfis- ins. Auðveldar þetta aðstandend- um að finna viðeigandi ljóð eða sálm. Margar minningargreinar bíða nú birtingar og leitast Morgun- blaðið við að birta þær svo fljótt sem auðið er. Hið nýja fyrirkomulag tekur gildi 2. febrúar nk. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Þorragötu 5, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 24. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Jón Reynir Magnússon, Magnús Reynir Jónsson, Bjarnveig Sigríður Guðjónsdóttir, Birna Gerður Jónsdóttir, Guðlaugur Gíslason, Sigrún Dóra Jónsdóttir, Jóhann Gunnar Stefánsson, ömmubörn og langömmubarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.