Morgunblaðið - 01.02.2009, Side 53
Menning 53FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið
Hart í bak
Jökull Jakobsson
Hrífandi verk sem
snertir okkur öll
EB, FBL
sun. 1/2 örfá sæti laus
Sumarljós
Jón Kalman Stefánsson
leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson
Hrífandi, einlæg og æsandi sýning
Sýningum að ljúka
Heiður
Joanna Murray-Smith
Drepur girndin ástina? JVJ, DV
Kardemommu-
bærinn
Thorbjörn Egner
Frumsýning 21. febrúar
Miðasala í fullum gangi!
Skoppa
og Skrítla
snúa aftur í febrúar!
Sýningar um helgina
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
YOGA YOGA YOGA
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, símar 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar.
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla.
Sértímar fyrir barnshafandi konur,
byrjendur og lengra komna.
Fös 6/2 kl. 19:00
Fim 12/2 kl. 20:00 aukas.
Lau 14/2 kl. 19:00
Lau 7/3 kl. 19:00
Fös 13/3 kl. 19.00
Lau 14/3 kl. 19.00
Lau 21/3 kl. 19.00
Sun 22/3 kl. 19.00
Yfir 130 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008.
Fló á skinni (Stóra sviðið)
Miðasölusími 568 8000 – midasala@borgarleikhus.is
Rústað eftir Söru Kane – sýningar hafnar.
Fös 30/1 kl. 20:00 frums.
Lau 31/1 kl. 20:00 2. kort
Sun 1/2 kl. 20:00 3. kort
Fim 5/2 kl. 20:00 4. kort
Fös 6/2 kl. 20:00 5. kort
Lau 7/2 kl. 20:00 6. kort
Fim 12/2 kl. 20:00
Fim 12/2 kl. 20:00
Lau 14/2 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 20:00
Ath! Bannað innan 16 ára. Ekki er hleypt inn í sal eftir að sýning hefst.
Rústað, eftir Söru Kane (Nýja sviðið)
Fös 6/2 kl. 20:00 frums.
Lau 7/2 kl. 19:00 2. kort
Lau 7/2 kl. 22:00 aukas.
Sun 8/2 kl. 20:00 3. kort
Mið 11/2 kl. 20:00 4. kort
Fim 12/2 kl. 20:00 5. kort
Fös 13/2 kl. 19:00 6. kort
Fös 13/2 kl. 22:00 aukas.
Lau 14/2. kl. 19:00 aukas.
Lau 14/2 kl. 22:00 aukas.
Sun 15/2 kl. 20:00 aukas.
Fös 20/2 kl. 19:00 7. kort
Fös 20/2 kl. 22:00
Lau 21.2 kl. 19:00 8. kort
Lau 21/2 kl. 22:00 aukas.
Sun 22/2 kl. 20:00 9. kort
Mið 25/2 kl. 20:00 10. kort
Fim 26/2 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 19:00
Fös 27/2 kl. 22:00
Leiklestrar á verkum Söru Kane.
Ást Fedru - 10. febrúar. Hreinsun - 17. febrúar. Þrá - 24. febrúar. 4:48 geðtruflun - 3. mars
Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla sviðið)
Sýningum lýkur í febrúar á vinsælasta söngleik leikársins.
Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið)
Lau 31/1 kl. 19:00
Sun 1/2 kl. 16:00 aukas.
Sun 1/2 kl. 19:00
Lau 7/2 kl. 19:00
Lau 7/2 kl. 22:00
Fös 13/2 kl. 19:00 aukas.
Fös 13/2 kl. 22:00
Lau 21/2 kl. 19:00
Lau 21/2 kl. 22:00 síð. sýn.
Þ
essi nýjasti ópus 50 cent
er búinn að veltast
fram og til baka í út-
gáfuætlunum og enn
sér ekki fyrir endann á
þeim barningi. Þannig var þessi
grein sem hér birtist skrifuð og
klár fyrir þessa helgi enda útgáfu-
dagur áætlaður 3. febrúar. Plöt-
unni var hins vegar enn einu sinni
frestað, nánast þegar blaðið var að
fara í prentun, og er mars núna
eyrnamerktur sem útgáfumán-
uður.
Algjört bíó
Það er engu að síður hægt að
staðfesta tilvist plötunnar, kynn-
ingareintök löngu farin úr húsi og
skráarskiptisíður fullfermdar af
gripnum. Platan átti enda fyrst að
koma út árið 2007 en 50 ákvað þá
að gefa plötuna Curtis út í staðinn.
Leiða má líkur að því að þessar
tafir á tafir ofan stafi af minni fók-
us á tónlistina en 50 er nú kominn í
húrrandi Hollywoodstuð, búinn að
stofna eigið framleiðslufyrirtæki,
Cheetah Vision. Á nýafstaðinni
Sundancehátíð tilkynnti 50 að fyr-
irtækið væri búið að festa kaup á
átta handritum og það fyrsta sem
ratar á hvíta tjaldið er The Dance,
en þar fer hann með aðal-
hlutverkið ásamt Nicholas Cage.
Það er hins vegar óhætt að segja
að hæg séu heimatökin fyrir 50 í
þessum efnum en líf hans hefur
verið líkt og dramatísk Holly-
woodmynd þar sem öll hin klass-
ísku minni úr rappmenningunni
koma við sögu. Hann ólst upp í
sárri fátækt í Queens (eðlilega) og
hóf tólf ára gamall að rupla, ræna
og stunda eiturlyfjasölu (eðlilega).
Örlögin ráðin
Þegar hann svo ákvað að snúa
baki við vitleysunni og einbeita sér
að listinni var honum refsað
grimmúðlega. Hann var skotinn
níu skotum og lá milli heims og
helju lengi á eftir. Allt var þetta af
stuttu færi, morðinginn líklegi stóð
bókstaflega fyrir framan hann og
sallaði hann vandlega niður. Leti-
legur rappstíll 50 er að miklum
hluta til kominn vegna þess að
hann var skotinn í kinnina og lask-
aðist tungan lítið eitt við það.
Á þessum tíma var 50 klár með
breiðskífu, Power of the Dollar
(2000) en hún hefur aldrei komið
út sökum skotárásarinnar (en lifir
hins vegar góðu lífi í sjóræningja-
heimum). Platan Guess Who’s
Back? (2002) kom hins vegar út á
litlu merki og rataði í hendurnar á
Eminem. Fljótlega eftir það voru
örlögin ráðin og gerði platan Get
Rich or Die Tryin’ 50 cent að of-
urstjörnu á einni nóttu. Menn
nýttu sér vitaskuld skrautlegan
bakgrunn rapparans til að koma
honum á framfæri en síst skorti þó
á tónlistarlega vigt; platan snurðu-
laus blanda af hörðu austurstrand-
arrappi og grúvandi vesturstrand-
arrappi en yfirumsjón með
upptökum, ásamt Eminem, var í
höndum konungs vesturstrand-
arrappsins, Dr. Dre.
Tortímandinn
Næsta plata, The Massacre,
festi 50 cent enn frekar í sessi þó
að nýjabrumið væri á bak og burt
og ungæðislegur sjarminn tekinn
að fölna. Umslag plötunnar er afar
kómískt, teiknimyndalegt mjög.
Gnóttin af kvenhaturslegum
ímyndum; uppblásnum egófylltum
stærilátum, glingri og glaumi á
síðum meðfylgjandi bæklings er
slík að við fyrstu sýn var ekki
hægt annað en draga þá ályktun
að um háð væri að ræða og mynd-
irnar væru þar með hárbeitt gagn-
rýni á þá innantómu fylgifiska sem
eru klesstir utan á rappið. Þegar
frá leið fóru þó að renna á mann
tvær grímur hvað þá kenningu
varðar.
Before I Self Destruct ber með
sér visst spádómsgildi í titlinum
þar sem 50 hefur lýst því yfir að
hann hyggist tortíma sjálfum sér
sem tónlistarmanni, þ.e. hætta, og
einbeita sér að kvikmyndunum.
„Þetta er síðasta hljóðversplatan
mín. Fimmta platan mín sam-
kvæmt samningum er safnplata og
eftir það segi ég þetta gott,“ er
haft eftir honum. Í laginu „Smile“,
sem prýðir rétt ókomna plötu segir
ennfremur, í lauslegri þýðingu:
„Brostu, negri, því að næsta plata
mín gæti orðið sú síðasta.“
Hann passar sig semsagt að slá
varnagla þó að líklegast sé að við
sjáum hann næst í kvikmynda-
húsum borgarinnar frekar en
plötubúðum.
Enn alveg brjálaður
Sjaldan hefur rappari haslað sér völl af jafnmiklum krafti og 50
cent en plata hans, Get Rich or Die Tryin’ frá 2003, seldist í tæp-
lega milljón eintökum fyrstu fjóra dagana eftir að hún kom út.
Ný hljóðversplata Before I Self Destruct, er væntanleg í mars.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Arnar Eggert Thoroddsen
50 cent „Brostu negri, því að næsta plata mín gæti orðið sú síðasta.“
HIN síðustu ár hefur það nánast orðið að
reglu að sé maður kominn sæmilega langt á
framabrautinni í hipp hoppi þá stikar mað-
ur um leið út svæði innan kvikmyndageir-
ans með einum eða öðrum hætti. Nærtækt
dæmi er Ice Cube, sem á framleiðslufyr-
irtæki auk þess að leika og leikstýra. Það
er reyndar þyngra en tárum taki að fylgjast
með þeim mikla hæfileikamanni svipta upp
hverri hörmunginni á fætur annarri á
því sviðinu. Ice Cube hefur verið hvað
iðnastur við þennan kola, þó deila
megi um árangurinn, en svo eru
líka þeir sem eru í dag þekktari
fyrir slíka iðju en sjálft rappið. Má
þar nefna Marky Mark (eða Mark
Wahlberg), Queen Latifah og að
sjálfsögðu Will Smith. Á meðan
maður biður til guðs um að Ice
Cube snúi sér aftur að tónlist-
inni vonar maður um leið heitt
og innilega að Smith haldi sig við
kvikmyndirnar …
Ice Cube
Í góðu gríni í
framhaldi
Rakara-
stofunnar.
Hipp hopp og Hollywood