Morgunblaðið - 02.04.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ telur að
tveir blaðamenn Morgunblaðsins,
Agnes Bragadóttir og Þorbjörn Þórð-
arson, hafi brotið þagnarskyldu sam-
kvæmt 58. gr. laga um fjármálafyr-
irtæki. Blaðamennirnir birtu í
greinum sínum upplýsingar úr lána-
bók Kaupþings banka hf. annars veg-
ar og Glitnis hf. hins vegar, m.a. um
lán til eigenda bankanna og tengdra
aðila.
Brot Agnesar Bragadóttur að mati
FME tengist grein hennar „Sjónarspil og sýndarleikir
Glitnis og FL“ sem birtist í Morgunblaðinu 23. nóvember
2008 og fjallaði m.a. um félagið Stím ehf. Þar var m.a.
vitnað í gögn úr lánabókum Glitnis.
Viðurlögin sekt eða fangelsi
FME telur Þorbjörn Þórðarson hafa brotið gegn lög-
unum með greininni „500 milljarðar til eigenda“ sem
birtist í Morgunblaðinu 7. mars síð-
astliðinn en þar var vitnað í lánabók
Kaupþings.
Í bréfi til blaðamannanna frá FME
segir að stofnunin geti lagt stjórn-
valdssektir á þá sem gerist brotlegir
við 58. gr laga um fjármálafyrirtæki.
„Sektir sem lagðar eru á einstaklinga
geta numið frá kr. 10 þúsund til kr. 20
milljónir. Þá getur það varðað sektum
eða fangelsi allt að tveimur árum [...]
Fjármálaeftirlitið metur hvort mál
skuli kært til lögreglu eða því lokið með stjórnvalds-
ákvörðun hjá stofnuninni,“ segir í bréfinu. Reynist brot
meiriháttar beri FME að vísa þeim til lögreglu en við-
urlögum sé beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af
ásetningi eða gáleysi.
Blaðamennirnir hafa frest til 8. apríl nk. til að koma á
framfæri andmælum, skýringum eða sjónarmiðum áður
en FME tekur ákvörðun um framhald málsins.
Brutu þau bankaleynd?
Fjármálaeftirlitið telur að blaðamenn Morgunblaðsins hafi brotið gegn lögum um
þagnarskyldu með því að birta upplýsingar úr lánabókum Glitnis og Kaupþings
Í HNOTSKURN
»Skv. 58 grein laga um fjár-málafyrirtæki eru starfs-
menn þeirra bundnir þagn-
arskyldu um allt sem þeir fá
vitneskju um í starfi og lýtur
að viðskipta- eða einkamál-
efnum viðskiptamanna.
»„Sá sem veitir viðtökuupplýsingum af því tagi
[...] er bundinn þagnarskyldu
með sama hætti og þar grein-
ir. Sá aðili sem veitir upplýs-
ingar skal áminna viðtakanda
um þagnarskylduna,“ segir í
greininni.
Þorbjörn
Þórðarson
Agnes
Bragadóttir
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
„VIÐ Hannes Hlífar vorum á svið-
inu og í seilingarfjarlægð frá
toppnum eiginlega allt mótið. Svo
náðum við báðir að vinna tvær
síðustu skákirnar meðan þeir sem
voru með hálfum vinningi meira
en við gerðu jafntefli. Þannig
tókst þetta,“ sagði Héðinn Stein-
grímsson stórmeistari. Hann sigr-
aði á XXIV. Alþjóðlega Reykjavík-
urskákmótinu sem lauk í gær.
„Þetta er svolítið eins og í fót-
boltanum. Maður þarf að hafa
marktækifæri. Það gerir maður
með því að eiga gott mót í heild-
ina og skora svo í lokin,“ sagði
Héðinn. Hann var í 1.-4. sæti
ásamt stórmeisturunum Hannesi
Hlífari Stefánssyni, Yuriy Kruvor-
uchko frá Úkraínu og Mikhail
Marin frá Rúmeníu. Eftir stigaút-
reikning taldist Héðinn sigurveg-
ari mótsins og Hannes í þriðja
sæti. Sigurvegararnir skiptu með
sér verðlaunafénu sem kom í hlut
efstu fjögurra og fékk hver þeirra
2.750 Bandaríkjadali í verðlaun.
Fyrir níundu og síðustu umferð,
sem tefld var í gær, voru þeir
Héðinn og Hannes í 3.-8. sæti,
hálfum vinningi á eftir efstu
mönnum. Hannes tefldi við
franska stórmeistarann Sebastien
Maze í síðustu umferð og Héðinn
við ríkjandi heimsmeistara ung-
menna, stórmeistarann Abhijeet
Gupta frá Indlandi. Skák þeirra
Héðins og Gupta stóð í sex
klukkustundir og var ein af
lengstu skákum mótsins. Þeir
Héðinn og Hannes unnu báðir
skákir sínar í gær.
Lokaviðburður alþjóðlegu
skákhátíðarinnar var alþjóðlegt
hraðskákmót, Reykjavík Blitz, þar
sem sextán keppendur tefldu eftir
útsláttarfyrirkomulagi. Banda-
ríski stórmeistarinn Yuri Shulman
sigraði þar Jóhann Hjartarson
stórmeistara í úrslitunum.
Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu lokið, Héðinn og Hannes í 1.-4. sæti
Héðinn
bar sigur
úr býtum
Morgunblaðið/Golli
Lokaskákin Hannes Hlífar fylgdist með viðureign Héðins við Abhijeet Gupta, ríkjandi heimsmeistara ungmenna.
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
TÍÐARFARIÐ í vetur hefur verið hagstætt, að því er
fram kemur í yfirliti Trausta Jónssonar veðurfræðings.
Meðalhiti var 0,8 stig í Reykjavík í desember til mars.
Það er 0,9 stigum ofan við meðallag og 0,4 stigum hlýrra
en í fyrra. Meðalhiti í Stykkishólmi var 0,2 stig og er það
1,1 stigi yfir meðallagi. Á Akureyri var meðalhiti vetr-
arins -1,1 stig, 0,5 stigum ofan við meðallag.
Febrúar var kaldasti mánuður vetrarins og er kaldasti
vetrarmánuðurinn þriðja til fjórða hvert ár í Reykjavík.
Janúar var hlýjasti mánuður vetrarins en það gerist að
meðaltali fimmta til sjötta hvert ár í Reykjavík.
Úrkoma vetrarins var um 12% umfram meðallag í
Reykjavík en um 20% á Akureyri. Desember var úr-
komusamastur í Reykjavík, en janúar á Akureyri. Febr-
úar var þurrastur á báðum stöðum. Tíðarfar í mars var
nærri meðallagi áranna 1961 til 1990. Hitinn var alls
staðar mjög nærri meðallagi. Lítið var um illviðri, en
hríðarveður trufluðu þó samgöngur stund og stund, segir
Trausti. Víðast hvar var snjólétt, en þó var allmikill snjór
um tíma á norðanverðum Vestfjörðum og í útsveitum á
Norður- og Austurlandi.
Meðalhiti í Reykjavík var 0,4 stig og er það 0,2 stigum
undir meðallagi. Þetta er ívið kaldara en í mars í fyrra. Á
Akureyri var meðalhitinn -1,0 stig og er það 0,3 stigum
yfir meðallagi og ívið hlýrra en í mars í fyrra.
Úrkoma var undir meðallagi á Suðvestur- og Vest-
urlandi, en yfir því norðaustanlands. Úrkoman í Reykja-
vík mældist 60 mm, um 73% af meðalúrkomu. Á Ak-
ureyri mældist úrkoman 58 mm, um 35% umfram
meðallag. Úrkoman á Höfn í Hornafirði mældist 115 mm.
Sólríkt var suðvestanlands. Í Reykjavík mældust sól-
skinsstundirnar 148, 37 stundir umfram meðallag, hið
mesta í mars í tíu ár. Á Akureyri mældist 51 sólskins-
stund, 28 færri en í meðalári.
Hiti í vetur fyrir ofan meðallag
Útivist Lítið var um illviðri, en hríð truflaði þó stundum,
FJÖLMARGIR
áhugamenn um
fallegan hús-
búnað lögðu leið
sína í húsnæði BT
í Skeifunni í gær,
en greint var frá
því í Morgun-
blaðinu að þar
myndi sala á hús-
búnaði og tækj-
um úr aðsetrum
gömlu bankanna erlendis fara fram.
Fram kom í fréttinni að Eyjólfur
Pálsson, kenndur við Epal, væri
skilanefndinni innan handar við und-
irbúning sölunnar. Hann fylgist með
áhugasömum kaupendum í gegnum
verslunarglugga Epals, sem stendur
andspænis BT. Segir hann ljóst að
fjöldi fólks hafi látið blekkjast, því
stöðugur straumur hafi verið af bíl-
um við verslunina allan daginn og
margir farið út úr bílunum og rykkt í
hurðir og leitað að öðrum inngangi.
Allt í þeim tilgangi að gera frábær
kaup.
Að sögn Eyjólfs hringdu margir í
verslunina til að spyrjast fyrir um
söluna. Þar á meðal einn í Færeyjum
og annar í Þýskalandi. Eyjólfur seg-
ir að allir hafi tekið vel í spaugið þeg-
ar þeir áttuðu sig á því að þeir höfðu
verið látnir hlaupa apríl. Segir hann
ljóst að það sé markaður fyrir svona
sölu og íhugar að fara af stað með
slíkt. „Við sjáum eftir þetta að það er
mikill áhugi á notuðum hönnunar-
húsbúnaði, enda stenst hann tímans
tönn,“ segir Eyjólfur. silja@mbl.is
Gripið
í tómt
Eyjólfur
Pálsson
Aprílgabbið mun
leiða til alvörusölu
KJALNESINGAR vilja að Vest-
urlandsvegur verði tvöfaldaður og
að umbætur verði strax gerðar í um-
ferðaröryggismálum á svæðinu.
Hverfisráð Kjalarness stóð fyrir
fundi um samgöngumál í Fólkvangi
á Kjalarnesi í gær. Á fundinn mættu
m.a. Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra, fulltrúar úr samgöngu-
nefnd Alþingis, borgarstjórn og
fleiri. Marta Guðjónsdóttir, formað-
ur hverfisráðsins, sagði að vegstæði
tvöföldunar Vesturlandsvegar lægi
fyrir. Ekki fengust skýr svör á fund-
inum um hvenær hægt yrði að fara í
tvöföldunina. Einnig var bent á
hættu sem börnum stafar af þungri
og hraðri umferð um Kjalarnes.
Vilja um-
ferðaröryggi
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8