Morgunblaðið - 02.04.2009, Page 11

Morgunblaðið - 02.04.2009, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009 Í GÆR var á dag- skrá Alþingis þingsályktunartil- laga Péturs H. Blöndal, þing- manns Sjálfstæðis- flokksins, um að viðskiptanefnd Al- þingis verði falið að semja lög um nýja tegund hlutafélaga sem eru með gagnsætt eignarhald og að bann verði lagt við lánveitingum og krosseignarhaldi slíkra hlutafélaga. Í samtali við Morgunblaðið sagði Pétur að hefðu slík lög verið í gildi, hefði það komið í veg fyrir allt það sem fór mið- ur í efnahagslífinu hér á Íslandi. Í greinargerð með tillögunni segir að greinilegt sé að gagnkvæmt eign- arhald, raðeignarhald og óljós eigna- tengsl séu meðal þeirra ástæðna sem ollu því að efnahagur fyrirtækja bólgnaði út og sýndi miklu meira eigið fé en raunverulega var til staðar. Pét- ur leggur til að skilgreind verði ný tegund af hlutafélögum, gagnsæ hlutafélög eða GH. Slíkt hlutafélag gæti þurft að uppfylla fimm skilyrði:  GH má ekki eiga eignarhlut í fyr- irtæki nema það sé líka GH.  GH skal birta lista yfir öll GH sem það á í og öll GH sem eiga í því.  Eigandi hlutafjár í GH nýtur hvorki arðs né atkvæðaréttar nema hann sé einstaklingur eða GH.  GH má ekki eiga hlutabréf í hluta- félagi sem á það beint eða óbeint.  GH má ekki lána verðmæti til aðila sem það á beint eða óbeint. Pétur leggur til að félögum sé í sjálfsvald sett hvort þau leiti eftir því að uppfylla skilyrði um gagnsæi. Um leið og þau gerðu það yrðu þau góður kostur fyrir fjárfesta og lánveitendur. runarp@mbl.is Hlutafélög með gagnsætt eignarhald Yrðu góður kostur fyrir fjárfesta Pétur H. Blöndal Glæsidagar í Glæsibæ Fimmtudaginn 2., föstudaginn 3. og laugardaginn 4. apríl Kynnum nýju TERRACOTTA línuna vorið 2009 ásamt öðrum nýjungum frá Guerlain * Kaupaukinn er: - Glæsileg Guerlain taska - L´or Gull undirfarði 5 ml - Super Aqua serum 10 ml - Super Aqua lotion 50 ml - Orkideu krem 3 ml - varalitasýnishorn Glæsilegur kaupauki að verðmæti 12.900 kr. fylgir kaupum á tveimur hlutum þar af eitt krem. *Gildir meðan byrgðir endast Öðruvísi fermingargjafir Opið: mán.-fös. 12-18, lau.11-16 Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201 - S: 517 7727 www.nora.is     Laugavegi 63 • S: 551 4422     Verð kr. 24.900 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.