Morgunblaðið - 02.04.2009, Page 16
16 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
LEIÐTOGAR tuttugu helstu efna-
hagsvelda heims, G20, reyndu í gær
að jafna ágreining sinn um hvernig
bregðast ætti við mestu efnahags-
kreppu í heiminum í sex áratugi.
Nicolas Sarkozy, forseti Frakk-
lands, sagði að Frakkar og Þjóð-
verjar höfnuðu þeim tillögum sem
fram höfðu komið um umbætur á
fjármálakerfi heimsins og teldu að
ganga þyrfti lengra. Áður hafði Sar-
kozy hótað að ganga af fundi leið-
toga G20 í London í dag ef við-
unandi samkomulag næðist ekki.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, kvaðst vera vongóð um að
deilurnar yrðu leystar og sagði að
ráðamennirnir hefðu ekki efni á „að
stinga höfðinu í sandinn“. Hún var-
aði þó við „veikum málamiðlunum“
og kvaðst hafa áhyggjur af því að
leiðtogar helstu efnahagsvelda
heims gerðu sér ekki grein fyrir því
hversu alvarleg kreppan væri.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, sagði að of mikið væri gert úr
ágreiningnum og löndin þyrftu öll
að taka höndum saman til að binda
enda á kreppuna. Bandaríkjamenn
gætu ekki komið hjólum efnahags-
ins í gang á eigin spýtur með stór-
auknum ríkisútgjöldum þar sem
þeir ættu við erfið vandamál að
stríða, t.a.m. mikinn fjárlagahalla.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Jap-
an og fleiri löndum hafa beitt sér
fyrir samræmdum aðgerðum til að
örva efnahag heimsins með því að
auka ríkisútgjöld og lækka vexti.
Evrópulönd, þeirra á meðal Þýska-
land og Frakkland, hafa verið treg
til að lofa auknum ríkisútgjöldum og
vilja láta reyna á þær aðgerðir sem
þegar hafa verið samþykktar í þess-
um efnum.
Vilja hertar reglur
Þjóðverjar og Frakkar leggja
hins vegar mikla áherslu á nauðsyn
þess að herða reglur um banka og
aðrar fjármálastofnanir, auk þess
sem þeir vilja herferð gegn skatta-
skjólum og takmarka kaupauka
stjórnenda fyrirtækja. Leiðtogar
G20 vonast einnig til þess að ná
samkomulagi um umbætur á fjár-
málakerfi heimsins, meðal annars
breytingar á alþjóðastofnunum á
borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Gert er ráð fyrir því að áhrif og völd
stórra þróunarlanda á borð við Kína
og Brasilíu verði aukin. Viðbúið er
að deilt verði um breytingarnar þar
sem þær draga úr áhrifum Evrópu-
ríkja innan Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins og Alþjóðabankans.
Fjármálasérfræðingar telja að
árangurinn af viðræðum leiðtoganna
verði ekki eins mikill og vonast var
til á síðasta ári þegar fjármála-
kreppan hófst.
Fundinn í London sitja leiðtogar
Argentínu, Ástralíu, Bandaríkjanna,
Brasilíu, Bretlands, Frakklands,
Indlands, Indónesíu, Ítalíu, Japans,
Kanada, Kína, Mexíkó, Rússlands,
Sádi-Arabíu, Suður-Afríku, Suður-
Kóreu, Tyrklands og Þýskalands,
auk fulltrúa Evrópusambandsins.
Merkel varar við „veikum
málamiðlunum“ á fundi G20
Reynt að leysa
deilur um aðgerðir
gegn kreppunni
Reuters
Fyrsta Evrópuferðin Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, og kona hans, Sarah, með Barack Obama Banda-
ríkjaforseta og konu hans, Michelle, fyrir utan Downing Street 10. Obama er í fyrstu opinberu ferð sinni til Evrópu.
OFT kemur það fyrir, að fólk sé ekki
nógu ánægt með sumarleyfisferðina
sína og láti þá í sér heyra sem eðli-
legt er. Sumar
umkvartanir eru
þó bara skrítnar
og skemmtilegar.
Starfsfólk hjá
Thomas Cook og
ABTA í Bretlandi
hefur tekið þess-
ar saman:
Fyrsta sagan
er um manninn,
sem fór í brúð-
kaupsferð til Afríku og þar var þeim
hjónum sýnt er fílstarfur kelfdi
fílskú. Það var aldeilis sjón að sjá og
maðurinn fylltist svo mikilli minni-
máttarkennd, að brúðkaupsferðin
fór í vaskinn.
Önnur umkvörtunarefni eru m.a.
þessi:
„Það var allt of mikill sandur á
ströndinni.“
„Við keyptum Ray Ban-sólgler-
augu fyrir fimm dollara af götusala
en svo kom í ljós, að þau voru föls-
uð.“
„Okkur var ekki sagt, að það væri
fiskur í sjónum. Börnin urðu dauð-
hrædd.“
„Það tók níu klst. að fljúga frá Ja-
maica heim til Englands en Banda-
ríkjamennirnir voru ekki nema þrjá
tíma heim til sín.“ svs@mbl.is
Vissu ekki
af fiskinum
í sjónum
Vont Of mikill sand-
ur á ströndinni.
HAMID Karzai, forseti Afganistans,
hefur verið harðlega gagnrýndur á
Vesturlöndun fyrir að hafa skrifað
undir ný lög, sem banna konum að
neita mönnum sínum um kynmök,
banna þeim að fara út úr húsi eða
leita læknis nema með leyfi eig-
inmannsins og banna þeim að stunda
vinnu eða nám án hans samþykkis.
Karzai setti í fyrradag ráðstefnu
um Afganistan í Haag í Hollandi og
þá skoruðu utanríkisráðherrar
Norðurlanda á hann að bregðast við
skýrslu, sem Sameinuðu þjóðirnar
hafa tekið saman um nýju lagasetn-
inguna í Afganistan. Hún gengur
nefnilega þvert gegn stjórnarskrá
landsins og mörgum alþjóðlegum
samningum.
Humaira Namati, sem situr í öld-
ungadeild afganska þingsins, segir,
að nýju lögin geri ástandið jafnvel
verra en á valdatíð hinna bókstafs-
trúuðu talibana. Segir hún enn-
fremur, að þeir, sem hafi haft hug-
rekki til að snúast gegn lögunum á
þingi, hafi verið sakaðir um fjand-
skap við íslam. svs@mbl.is
Löglegt
að nauðga
eiginkonunni
Þúsusndir manna söfnuðust sam-
an í fjármála- og viðskiptahverfinu
í London til að krefjast breytinga á
efnahagskerfi heimsins í tilefni af
leiðtogafundi 20 helstu efnahags-
velda heims. Til ryskinga kom á
milli mótmælenda og lögreglu sem
var með mikinn öryggisviðbúnað í
borginni. Í gærkvöldi fannst maður
meðvitundarlaus innan um mót-
mælendur, hann var fluttur á
sjúkrahús þar sem hann var síðar
úrskurðaður látinn. Ekki var vitað
nánar um dánarorsök í gærkvöldi.
Nokkrir mótmælendur komust
upp á þak höfuðstöðva Englands-
banka og rúður í útibúi Royal Bank
of Scotland voru brotnar. Um
2.000 manns söfnuðust einnig
saman í grennd við sendiráð
Bandaríkjanna. Meðal mótmælend-
anna voru andstæðingar hnatt-
væðingar, anarkistar, og hópar
sem berjast gegn loftslagsbreyt-
ingum af mannavöldum. Hermt er
að um 5.000 lögreglumenn hafi
verið á götum borgarinnar vegna
leiðtogafundarins og voru 32
handteknir, nokkrir særðust úr
hópi lögreglu og mótmælenda.
Einn lét lífið í tengslum við mótmælin
Reuters
Umsátur Lögregluþjónn og mótmælandi takast á í grennd við Englands-
banka í London. Þúsundir mótmælenda sátu um bygginguna í gær.
Komdu við í útibúinu í Hamraborg 8
eða hringdu í okkur í síma 410 4000.
Sólveig hefur starfað í
Landsbankanum í 33 ár.
Hún og 28 aðrir taka vel á
móti þér í Hamraborg.
130 / HAMRABORG
• Við leggjum okkur fram um að veita þér persónulega þjónustu.
• Við förum yfir kjörin sem þér bjóðast og svörum spurningum þínum.
• Við veitum einstaklingum og fyrirtækjum aðstoð við að skipuleggja fjármálin.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
4
4
5