Morgunblaðið - 02.04.2009, Qupperneq 22
22 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009
HANN hét William
Christopher Handy og
sumardag einn árið
1903 fékk hann hug-
ljómun þegar hann
heyrði náunga einn
syngja lag á lestarstöð í
Mississippi. Hann lýsti
manninum sem lið-
ugum vel og grönnum
negra, klæddum lörfum
einum. Og þar sem hann stóð og söng
plokkaði hann gítar og á einhvern hátt
bar hann með sér sorgir aldanna.
Handy lýsti tónlistinni sem því furðu-
legasta sem hann hefði nokkru sinni
heyrt. Þetta var mjög svo jarðnesk
tónlist og minnti hann á eitthvað sem
hann hafði heyrt sem strákur heima í
Alabama. Hvaðan tónlistin kom ná-
kvæmlega vissi enginn. Söngkonan
Ma Rainey minntist þess að hafa fyrst
heyrt blúsinn árið 1902. Þá var hún á
ferð um Mississippi með söngflokki
sínum og heyrði stúlku syngja lag um
mann sem hafði yfirgefið hana. Söng-
urinn var svo áhrifamikill í depurð
sinni að Ma Rainey heillaðist. Hún tók
upp á því að syngja lagið í dagskrá
sönghópsins og það varð svo vinsælt
að hún ákvað að helga sig slíkum
söngvum. Aftur og aftur var hún beð-
in að syngja svoleiðis lög og á rétta
augnablikinu fékk hún uppljómun: Þú
meinar blús?! Þessa sögu sagði hún
sjálf og gerði þar með tilkall til nafns-
ins á tónlistinni. En gamlir kallar og
gamlar kellingar djúpt í iðrum Miss-
issippi sögðu að blúsinn hefði alltaf
verið til meðal svarta fólksins. „The
Blues? Ain’t no first blues,“ var haft
eftir öldnum fiðlara í New Orleans í
byrjun 20. aldarinnar.
Og nú hefur hann fylgt okkur í
meira en öld. Allt frá því að blúsinn
varð vinsæll, í þá daga sem W.C.
Handy og Ma Rainey sungu sína
fyrstu blúsa, hefur hann laðað að sér
fólk; söngvara, gítarleikara, munn-
hörpuleikara, alls konar spilamenn en
ekki síst þá sem hlusta. Á miðri leið til
okkar, um miðja síðustu öld, stakk
einn blúsmannanna og kannski sá
frægasti þeirra allra, Muddy Waters,
gítarnum sínum í samband með af-
drifaríkum afleiðingum, gestir
Blúshátíðar Willie Smith og Pinetop
Perkins léku í þeirri
goðsagnakenndu sveit
Muddys Waters. Raf-
magnaði blúsinn fór
aðra sigurför um um
heiminn, lagði undir sig
Bretlandseyjar og rokk
og ról varð til.
Blús er tónlist sem
sagt er um að hafi lækn-
ingamátt enda er tónlist
víða notuð til lækninga.
Blúsmenn eru oft nánast
eins og græðarar eða
predikarar sem boða sinn boðskap. Í
blústextum er oft vitnað í guð og hið
yfirnáttúrlega jafnt sem hið mann-
lega. Það eigum við Íslendingar auð-
velt með að skilja enda búa álfar hér í
hverjum hól og við erum alin upp við
trú á landvættir og þjóðsögur. Ís-
lenska ferskeytlan á margt samein-
inlegt með blúsnum, því blúsvísa er
oftast í ferskeytluformi en fyrri línan
sungin tvisvar. Stemmurnar okkar og
rímnakveðskapurinn gerðu það sama
og blúsinn; lyftu andanum upp úr
stritinu og glöddu fólk.
Það er einstakur viðburður að á
Blúshátíð í Reykjavík, dagana 4.-9.
apríl, kemur blúsmaður af fyrstu kyn-
slóð þeirra er fyrst nutu frægðar fyrir
þá tónlist. Pinetop Perkins er 95 ára
píanóleikari sem hefur í þann manns-
aldur sem hann hefur verið að spila
verið átrúnaðargoð frægra spor-
göngumanna sinna af ólíkum kyn-
slóðum: B.B. Kings, Ikes Turners,
Erics Claptons, Keiths Richards og
fleiri og fleiri. Hann er margföld lif-
andi goðsögn, enn frískur og ferskur
og lifir fyrir það að spila blús fyrir
okkur. Þessi lítilláti öðlingur verður
aðalgestur okkar og heiðrar Vini Dóra
á 20 ára afmæli sveitarinnar með nær-
veru sinni. Margir muna eftir Pinetop
Perkins þegar hann kom í heimsókn
til Íslands og lék og hljóðritaði með
Vinum Dóra á síðasta áratug og má
með sanni segja að hann sé lærimeist-
ari margra íslenskra blúsmanna.
Við bjóðum ykkur velkomin á sjöttu
Blúshátíð í Reykjavík 4.-9. apríl. Há-
tíðin hefst á laugardaginn kl. 14 með
blús í miðbænum, þar sem Skóla-
vörðustígur verður varðaður lifandi
blús, niður Bankastrætið og niður á
Lækjartorg. Tónleikar verða á Hilton
Reykjavik Nordica hóteli þriðjudags-,
miðvikudags- og fimmtudagskvöld kl.
20 og öll kvöld hátíðarinnar verður
starfræktur klúbbur Blúshátíðar á
Kaffi Rósenberg og hefst dagskrá þar
kl. 21. Að vanda á Blúshátíð í Reykja-
vík samstarf við Blúsfélag Reykjavík-
ur um að heiðra blúslistamann. Allar
upplýsingar eru á vef Blúsfélags
Reykjavíkur, www.blues.is, og á midi-
.is. Blúshátíð þakkar öllum þeim sem
lagt hafa hátíðinni lið frá upphafi.
Sjáumst á Blúshátíð.
Þú meinar blús
Halldór Snorri
Bragason segir frá
sögu blúsins
Halldór Bragason
» Pinetop Perkins,
hinn goðsagna-
kenndi blúsmaður, verð-
ur aðalgestur á Blúshá-
tíð og heiðrar Vini Dóra
með nærveru sinni á 20
ára afmæli sveitarinn-
ar.
Höfundur er tónlistarmaður og list-
rænn stjórnandi Blúshátíðar í
Reykjavík.
GREIN þessi er
skrifuð í framhaldi af
samnefndri grein í
Mbl. 21.2.2009. Þar er
sýnt fram á að hæsta-
réttardómur nr. 610/
2007 um eignahlut í
Ytri-Sólheimum er
byggður á tveimur
falsrökum. Forsaga
þessa dómsmáls er að
eigendur Sól-
heimahjáleigu hafa í 50 ár krafist
þess að hjáleigan fengi aukið eign-
arhlut sinn úr 7,33% í 15,5% á kostn-
að annarra sameigenda á Sól-
heimatorfu. Í þessari grein verður
byrjað á ágripi þjóðarsögu um jarða-
mál og meira um hæstaréttardóm-
inn.
Frá því að tíund var lögtekin árið
1097 til miðrar nítjándu aldar var
eitt jarðamat á Íslandi. Verðmæti
jarða eða dýrleiki var ákveðinn í
jarðarhundruðum eða oftar í hundr-
uðum. Matið, dýrleikinn, var sett á
til að ákvarða skattstofn svo hægt
væri að leggja tíund á jarðeignir í
hlutfalli við verðmæti þeirra. Hér er
hið forna mat jarða á Íslandi. Dýr-
leiki jarða var öruggt og handhægt
verkfæri til að ákvarða eignahlut
einstaklings í jörð eða jarðartorfu. Í
kaupbréfum var venjan að tilgreina
hve mörg hundruð einstaklingur
keypti í jörð án þess að geta þess hve
mörg hundruð öll jörðin var. Ekki
var nauðsyn að skrá heildardýrleik-
ann, um hann ríkti sátt, dýrleiki
jarða hélst óbreyttur frá upphafi.
Gagnsemi þessa stöðugleika var
ótvíræður.
Þannig var öllum ljós eignarhlutur
N.N. í jörðinni Pétursey eða Péturs-
eyjartorfu ef tilgreint var að hlutur
hans væri 15 hundruð. Nægar heim-
ildir voru um að torfan öll var 60
hundruð og þar með var N.N. eig-
andi að 25%. Sagnfræðingar hafa
bent á stöðugleika hins forna mats
þar á meðal frelsishetja okkar Jón
Sigurðsson á Alþingi 30. júlí 1847.
Hinn stríðsmóði konungur Krist-
ján V. sendi 31. maí 1679 „stríðs-
hjálpar bréf“ til Íslands. Efni bréfs-
ins var að kreista meiri
fjármuni út úr und-
irsátum sínum hér-
lendis. Í bréfinu er til-
skipun um að
skattstofn jarða verði
reiknaður að nýju á
þann veg að dýrleiki
jarðar skuli vera 20-
föld landskuldin. Og
hvað er þá landskuld?
Árlegt gjald leiguliða
til landsdrottins var
ákveðið í lausa-
fjárhundruðum fyrir
hverja jörð og nefnt landskuld. Hlut-
fall landskuldar af dýrleika jarðar
var ekki fast, en þó algengt að land-
skuldin væri 5% af dýrleikanum.
Árið 1685 er skráð nýtt jarðamat á
Íslandi sem er reist á fyrirmælum
stríðshjálparbréfs konungs. Vegna
mismunandi hlutfalls leigu og jarð-
ardýrleika er undir hælinn lagt
hvort dýrleiki í þessari jarðabók er
sá sami og hinn forni dýrleiki. Engin
tvímæli eru um að þessi jarðabók er
ekki hið forna mat. Fyrir því eru
heimildir og rannsóknir sagnfræð-
inga. Í þessari jarðabók er Sól-
heimatorfa skráð 122 1/6 H.
Árið 1697 er skrifuð ný jarðabók
fyrir allar sýslur á Íslandi og þá
horfið aftur til hins forna mats.
„Enda jafnan við það stuðst í fast-
eignaviðskiptum“ svo vitnað sé til
orða Óbyggðanefndar. Ritari bók-
arinnar hefur tekið þann kost að
þjóna bæði jarðeigendum og sínum
arfakóngi. Á forsíðu bókarinnar er
skrifaður með skrautskrift eftirfar-
andi texti:
„Anno 1697 Jarðabók í Skapta-
fellsþingi, hvar í er niðurreiknaður
og uppsettur jarðanna dýrleiki eptir
landskulldarhæð, svo sem kongl.
Majestatis C 5 stríðshjálpar bréf
fyrirsetur, anno 1679 21. Maí. En
þann gamla haldna dýrleika er hér
að sjá til vinstri handar á spássí-
unni.“
Blaðsíður bókarinnar eru strik-
aðar þannig að hverri síðu er skipt í
fjóra dálka. Í fremsta og breiðasta
dálknum er hinn forni dýrleiki Ytri-
Sólheima skráður 100 hndr. og upp-
taldir eigendur og eignarhluti. Í aft-
ari dálkunum er skráð landskuld,
kúgildi og hinn reiknaði dýrleiki
samkvæmt reiknireglu konungs. Á
vinstri hluta hverrar síðu er því hið
forna mat jarða og á hægri hluta
þeirra er reiknað jarðamat að kon-
ungs boði. Bókin er til sanninda um
að Sólheimatorfa hefur án und-
antekninga verið skráð 100 hundruð
að fornu mati. Ljósrit jarðabók-
arinnar er í málsskjölum.
Í málsskjölum eru 9 heimildir frá
nítjándu og tuttugustu öld um að
Sólheimatorfa sé 100 hundruð að
fornu mati. Flestar þessara heimilda
hafa stimpil sýslumanns eða Lands-
yfirréttar. Í málsskjölum er vísitasía
Gísla biskups Jónssonar frá 1587.
Einnig þar er „garðurinn“ skráður
100 hndr. Þvert á þessar heimildir
taka dómarar réttarins þann kost að
telja jarðamat að boði konungs vera
hið forna mat og vitna í villu í jarða-
bók Johnsens frá 1847. Í næstu grein
verður fjallað um þau afglöp dóm-
stólsins.
Ytri-Sólheimar eru fornt höfuðból
og kirkjustaður, í hópi dýrustu jarða
landsins. Engar vísbendingar eru
um að óvissa hafi verið um dýrleika
torfunnar. Það er óvirðing við
gengnar kynslóðir að hafna miklum
samhljóða heimildum og troða í
svaðið af fávísi eða vísvitandi rang-
færslum. Saksóknarinn Eva Joly gat
þess í Silfri Egils að daufur skiln-
ingur og leti dómara hindraði oft
framgang sannleikans. Eru dómarar
heimsins svo varðir í sínum fíla-
beinsturni að þeir komist upp með
að vinna ekki vinnuna sína?
Dómararnir Árni Kolbeinsson,
Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claes-
sen, Ingibjörg Benediktsdóttir og
Markús Sigurbjörnsson hafa ekki
staðið undir væntingum mínum að
verja sannleikann.
Glámskyggn heimildarýni
Hæstaréttar
Tómas Ísleifsson
skrifar um jarðamál » Í málsskjölum eru 9
heimildir frá
nítjándu og tuttugustu
öld um að Sólheimatorfa
sé 100 hundruð að fornu
mati.
Tómas Ísleifsson
Höfundur er líffræðingur.
Flettu upp nafni
fermingarbarnsins
mbl.is
FERMINGAR
2009
NÝTT Á mbl.is
Nú er vor í lofti og nýja BYKO blaðið
er komið út stútfullt af vortilboðum!
BYKO blaðið
er komið út!
Girðinga-
og pallaefni
Pallaefni
Vnr.0058254
Fura alheflað 22x95 mm,
A-gagnvarið.
Gerðu
pallinn klára
n
fyrir sumar
ið!
199
Fullt verð
: 273 kr./lm
.
kr.
lm.
Fullt verð er 420 kr./lm.
315 kr./lm.
Pallaefni
Vnr.0058504
Fura alheflað 45x95 mm,
A-gagnvarið.
479 kr./lm.
Fullt verð er 639 kr./lm.
Pallaefni
Vnr.0058506
Fura alheflað 45x145 mm,
A-gagnvarið.
659 kr./lm.
Fullt verð er 885 kr./lm.
Pallaefni
Vnr.0059954
Fura alheflað 95x95 mm,
A-gagnvarið.