Morgunblaðið - 02.04.2009, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009
Bæjarfulltrúar Sam-
fylkingarinnar mættu
ekki á skóflustungu
bæjarstjóra Kópavogs
og formanns Sjó-
mannadagsráðs þann
27. mars sl. Með því
vorum við ekki að sýna
væntanlegri byggingu
þjónustumiðstöðvar við Boðaþing
vanvirðingu, heldur töldum við
fyrstu skóflustungu löngu tekna.
Skömmu fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingar 2006 var nefnilega fyrsta
skóflustungan tekin að viðstöddum
m.a. bæjarfulltrúum Samfylking-
arinnar. Saga fyrstu skóflustungna
vegna bygginga við Boðaþing er
nokkur og ástæða til að rekja hana
hér í örfáum orðum.
Eins og einhverjir muna setti
Sjálfstæðisflokkurinn á stefnuskrá
sína fyrir sveitarstjórnarkosning-
arnar 2006 að byggja þjónustuíbúðir
fyrir eldri borgara við Boðaþing í
Kópavogi. Heiðursfélagi Félags
eldri borgara í Kóp-
vogi, Jóhanna Arnórs-
dóttir, tók fyrstu
skóflustungu að bygg-
ingu þjónustukjarna
ásamt hjúkr-
unaríbúðum/rýmum
fyrir eldri borgara
þann 18. maí 2006,
nokkrum dögum fyrir
kosningar. Þá ákvað
oddviti Sjálfstæð-
isflokkins að um nýtt
rekstrarform væri að
ræða. Eftir kosningar
kom í ljós að engar lagaheimildir
voru fyrir slíku rekstrarformi og
tafðist málið nokkuð á meðan ríki og
bær komust að samkomulagi.
Þann 29. ágúst 2008 tók svo Guð-
laugur Þór Þórðarson heilbrigð-
isráðherra og fulltrúi félags- og
tryggingamálaráðherra, Ragnhildur
Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri,
fyrstu (aðra) skóflustungu að fyrri
áfanga hjúkrunarheimilis fyrir aldr-
aða í Boðaþingi í Kópavogi.
Þann 27. mars 2009 tóku svo
fyrstu (þriðju) skóflustungu að nýj-
um leiguíbúðum fyrir 60 ára og eldri
við Boðaþing í Kópavogi Gunnar I.
Birgisson bæjarstjóri og Guð-
mundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannadagsráðs.
Nú hafa því þegar verið teknar
þrjár skóflustungur að þjónustu- og
íbúðakjarna við Boðaþing og bæj-
arstjóri verið myndaður í bak og fyr-
ir í öll skiptin.
Ég verð þó að taka ofan fyrir bæj-
arstjóra Kópavogs því ekki ætla ég
að trúa því að tíðar skóflustungur
við Boðaþing séu einungis til að
varpa dýrðarljóma á Sjálfstæð-
isflokkinn í Kópavogi, nei líklega
ætlar hann að sýna aðhald og ábyrgð
á erfiðum tímum og fá framámenn
og fyrirmenni þessa samfélags til að
hjálpa sér að handmoka grunninn.
Skóflustungur við Boðaþing
Guðríður Arnar-
dóttir skrifar um
endurteknar skóflu-
stungur við Boða-
þing í Kópavogi
»Nú hafa verið teknar
þrjár skóflustungur
að þjónustu- og íbúða-
kjarna við Boðaþing og
bæjarstjóri verið mynd-
aður í bak og fyrir í öll
skiptin.
Guðríður Arnardóttir
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í Kópavogi.
STUNDUM þarf
maður að leiða huga að
því sem liðið er, og
læra má af, og því sem
framundan er, og við
þurfum að skoða ít-
arlega. Og ef við ekki
höfum lært af fyrri
mistökum, lendum við
bara aftur í sama
farinu, og höldum áfram að gera
mistök.
Það er í raun mikil ábyrgð sem
fylgir því að kjósa til Alþingis, og
sömuleiðis til sveitarstjórna.
Ábyrgð þessi er fyrst og fremst
vegna þess, að okkur gefst tækifæri
til þess að velja á milli frambjóðenda
á lista flokkanna, til dæmis með for-
vali, í prófkjörum, eða sem virkir fé-
lagsmenn í röðun á lista.
Spurningin er, nær þá ábyrgð
okkar og val ekki lengra, eða fellur
ábyrgð okkar og val þar með niður?
Er ábyrgðin þar með úr sögunni,
eða tekur einhver annar við?
Skoðum nú ábyrgð okkar kjós-
enda og val. Mörgum er það ofarlega
í huga að það sé í raun og veru lýð-
ræðisleg, og siðferðisleg skylda okk-
ar, sem kjósenda, að mæta á kjör-
stað og kjósa. Val okkar snúist um
það að velja þann flokk,
og þá stefnu sem við
teljum árangursríka til
þess að koma fram
skoðunum okkar, nú
eða að skila auðu. Það,
sem í raun er á ábyrgð
okkar, er þess vegna
valið. Við höfum fullt og
óheft val, en um hvað
snýst þetta val? Við
höfum val til að merkja
við þann flokk sem við
teljum hæfa skoðunum
okkar, og líklegastur til
þess að vinna í okkar
þágu. Flokkarnir hafa hingað til haft
það val að raða á listana sína, þeim
mönnum sem þeir hafa mesta trú á.
Stundum, og jafnvel of oft, veljast
menn á lista flokkanna með stuðn-
ingi fjármagns, fjárframlaga þeirra
sem vilja hafa áhrif á hverjir sitji
hvar á lista flokksins. Þegar við
kjósendur göngum síðan til kjör-
staðar, og veljum, þá merkjum við
við þann flokk sem við höfum valið.
Það fer síðan eftir atkvæðamagni
hvers stjórnmálaflokks, hver eða
hverjir, séu kjörgengir til starfa á
Alþingi Íslendinga. Jafnvel þó að
okkur verði úthlutað það val, að það
megi raða til á þeim lista sem við
höfum valið að kjósa, höfum við samt
sem áður valið flokkinn.
Þegar hinir kjörnu mæta síðan á
vinnustaðinn, eru vistarverur at-
vinnurekandans merktar stjórn-
málaflokkunum. Herbergin, þar sem
umræður flokksmannana fara fram
í, eru herbergi flokkanna. Ef Jón
Jónsson er til dæmis efstur á lista
stjórnmálaflokksins P, og P-listinn
hefur fengið nægilega mörg atkvæði
í kjördæminu, þá fer hann á fund
samflokksmanna sinna, í P-
herberginu.
Hvað gerist ef Jón, í afmælisveislu
formanns P-flokksins, verður upp á
kant við hina í flokknum, yfirgefur
P-herbergið og fer inn í Z-
herbergið, og gengur til liðs við þá
sem þar eru? Glatast þá öll atkvæði
P-listans sem komu Jóni á þing? Ef
hann hins vegar varð fyrir bíl á leið í
afmæli formannsins, og á ekki aft-
urkvæmt, hver kemur þá í hans
stað? Næsti maður á lista? Nýtast
þá áfram atkvæði P-listans? Hvers
vegna?
Ef þetta er lýðræði, þá skil ég
ekki hvers vegna ég fékk þetta sem
kallast val.
Í aðdraganda kosninga
Sigurjón Ari Sig-
urjónsson skrifar
um það hvernig at-
kvæði falla í kosn-
ingum
»Ef hann hins vegar
varð fyrir bíl á leið í
afmæli formannsins og
á ekki afturkvæmt, hver
kemur þá í hans stað?
Næsti maður á lista?
Sigurjón Ari
Sigurjónsson
Höfundur er fv. kaupmaður
en nú eftirlaunaþegi.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Aðalfundur VR
verður haldinn á Hilton Nordica hótel,
í dag, 2. apríl og hefst kl. 19:30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Lagabreytingar
Innborgun í VR varasjóð
Virðing
Réttlæti
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS