Morgunblaðið - 02.04.2009, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 02.04.2009, Qupperneq 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009 ✝ Þorvarður EllertErlendsson fæddist í Reykjavík 1. október 1926. Hann lést á Landspítalanum í Reykjavík 20. mars síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Erlendur Þ. Magnússon, f. í Reykja- vík 8.9. 1890, og Magn- hildur Ólafsdóttir, f. á Akranesi 23.1. 1898. Látin systkini hans eru Gústaf, Guðríður Mar- grét, Guðrún Elsa, Gunnar Ársæll, Haf- steinn og Guðrún Elsa. Eftirlifandi bróðir er Birgir Þór. Ellert giftist árið 1948 Áslaugu Valdimarsdóttur f. 24.9. 1928. Þau eignuðust eina dóttur, Lilju f. 6.10 1946, maki Gunnar Þór Garðarsson f. 7.1. 1948. Börn Lilju eru 1) Jón Ellert, kvæntur Arnþrúði Kristjáns- dóttur, börn þeirra eru Lilja Rún, kærasti Skarphéðinn Magn- ússon, Elvar og Arn- ór. 2) Áslaug Kristín, dætur hennar eru Ósk, Jana Rós og Íris. Sonur Lilju og Gunn- ars er Gunnar Þór, unnusta Eva Lind Matthíasdóttir, dætur þeirra eru Natalía Freyja og Silvía Rán. Útför Ellerts fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 2. apríl, og hefst at- höfnin kl. 14. Elsku pabbi minn. Mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum, þú varst besti pabbi í heimi. Alltaf tilbúinn að hjálpa mér þegar ég bað um aðstoð við eitt- hvað sem ég var að gera. Þú varst æðislegur afi og langafi og hafðir alltaf tíma fyrir afa- og langafa- börnin. Ég passa mömmu fyrir þig. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Hvíl þú í friði, elsku pabbi minn. Þín dóttir Lilja Ellertsdóttir. Elsku afi, nú ertu farinn. Minn- ingar mínar um þig eru mér dýr- mætar og varla er til minning úr bernsku minni þar sem þú ert ekki. Þú fylgdist vel með öllu því sem ég gerði og varst alltaf tilbúinn með hjálparhönd þegar á þurfti að halda. Ég minnist þess þegar þú hækk- aðir hjálpardekkin á reiðhjólinu mínu og þegar við röðuðum saman í hillurnar á bensínstöðinni, þegar þú varst að laga þakið á Höfða- brautinni, og ég lítill strákur príl- aði upp stillansinn og kíkti á þig upp á þak. Ég man þegar við smíð- uðum skipið og eftir allri hjálpinni uppi á Fellsenda. Mínar minningar eru ótalmargar og ég gæti talið þær upp endalaust. Betri afa er ekki hægt að hugsa sér og þú varst ekki síðri við lang- afabörnin þín. Þú passar Gosa fyrir mig þangað til við hittumst aftur og ég passa ömmu. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran.) Elsku afi, hvíldu í friði. Gunnar Þór. Þegar að kveðjustund er komið rifjast upp margar minningar, sá stutti tími sem ég fékk að þekkja hann Ella er liðinn. Mig langar til að þakka fyrir þann tíma. Vinsemd og hjálpsemi er það sem kemur fyrst í huga mér þegar ég hugsa um Ella. Hann var dætr- um mínum frábær afi, þolinmæðin sem hann veitti Natalíu og leyfði henni að spila með sig. Hún náði alltaf í höndina hans og teymdi hann hvert sem hún vildi, hvort sem hún þurfti að sjá eitthvað eða vantaði leikfélaga var Elli alltaf tilbúinn að tala við litlu langafas- telpuna sína. Henni þótti það nú ekki mikið mál að fá afa sinn til að setjast með sér á gólfið og leika. Vertu sæll vinur, við sjáumst aft- ur seinna. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Elsku Áslaug, missir þinn er mikill, megi góður Guð styðja þig og styrkja um ókomna tíð. Eva Lind Matthíasdóttir. Ellert Erlendsson Jónína Guðjóns- dóttir er kvödd í dag frá Þórshafnarkirkju. Jóna mín í Klöpp eins og móðir mín sagði svo hlýlega, lifði tím- ana tvenna. Þau hjón- in hún og Davíð bjuggu í Klöpp, húsinu sem stóð svo til í fjörunni, gegnt Bakka þar sem foreldrar mín- ir hófu búskap. Móður minni og Jónu varð vel til vina. Ég sótti mikið til þeirra í Klöpp og átti þar góðu að mæta. Dísa mín passaði mig og saknaði ég hennar mikið þegar við ✝ Jónína Guðjóns-dóttir var fædd 13.7. 1918. Hún lést 28. mars sl. Fer útför hennar fram frá Þórs- hafnarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14. Meira: mbl.is/minningar fluttumst í Gunnars- staði. Jóna var hvers- daghetja sem vann langan vinnudag í frystihúsinu ásamt því að koma upp mannvænlegum barnahópi þeirra hjóna. Raunveruleg verðmæti urðu til þá, eins og nú, með því að vinna hörðum hönd- um til að ala upp dug- andi heiðarlegt fólk. Það gerði Jóna svo sannarlega. Síðasta ár mömmu dvöldust þær saman á Nausti vinkonurnar, yndislegu hjúkrunar- og dvalarheimili þar sem gott er að eiga heima þegar krafta þrýtur. Dísu, systkinum hennar og fjöl- skyldum þeirra votta ég samúð mína Kristín Sigfúsdóttir Jónína Guðjónsdóttir Elsku Elli Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þín Áslaug. Elsku afi Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Þínar langafastelpur Natalía Freyja og Silvía Rán. HINSTA KVEÐJA ✝ Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, HÁKON ÞORSTEINSSON, Lindargötu 57, Reykjavík, andaðist á Landspítala Landakoti, deild K2, fimmtudaginn 26. mars. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 3. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim vilja minnast hans er bent á Umhyggju, félag langveikra barna, s. 552 4242. Guðrún R. Ingibergsdóttir, Baldvin Einarsson, Sigþór Hákonarson, Lilja Bragadóttir, Hákon Hákonarson, Kristín Kristjánsdóttir, Margrét Hákonardóttir, Eyjólfur Jóhannsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, SVEINN ÞÓRÐARSON frá Skógum, Mjóafirði, lést á hjúkrunarheimilinu í Neskaupstað laugar- daginn 28. mars. Jarðsungið verður frá Norðfjarðarkirkju mánudaginn 6. apríl kl. 14.00. Ólöf Ólafsdóttir, Björgvin Sveinsson, Rósa Benediktsdóttir, Þórður Sveinsson, Karen Kjartansdóttir, Heiðar Sveinsson, Auður Sveinsdóttir, Þorgils Arason, Sigurður Sveinsson, Brynhildur Sigurðardóttir, Sjöfn Magnúsdóttir, Magnús Herjólfsson, barnabörn, barnabarnabörn, bræður og systur. ✝ Elsku faðir okkar, sonur, bróðir, mágur, frændi og vinur, KONRÁÐ ÞÓR SNORRASON, Holtagerði 22, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 30. mars. Útför hans verður gerð frá Langholtskirkju mánudaginn 6. apríl kl. 15.00. Snorri Sævar Konráðsson, Katrín Magdalena Konráðsdóttir, Snorri S. Konráðsson, Soffía H. Bjarnleifsdóttir, Kolbrún Björk Snorradóttir, Ellert Jónsson, Snorri Birkir Snorrason, Eyþór Ellertsson, Bjarki Ellertsson, Svanhildur Ásta Haig Gunnarsdóttir og aðrir vandamenn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ANNA GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, lést þriðjudaginn 31. mars. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Gunnar Guðmundsson, Kristinn Óskar Guðmundsson, Ólafur Sveinn Guðmundsson, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR EIRÍKSSON fyrrverandi flugvélstjóri, Blönduhlíð 10, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þriðjudaginn 31. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Helga Steffensen, Björn S. Harðarson, Helga Sigríður Harðardóttir Steffensen,Guðmundur E. Jónsson, Valdimar Harðarson Steffensen, Guðrún Ægisdóttir, Baldur Þ. Harðarson, Birna E. Björnsdóttir, Eiríkur B. Harðarson og barnabörn. ÍSLENSKAR LÍKKISTUR Góð þjónusta - Gott verð Starmýri 2, 108 Reykjavík 553 3032 Opið 11-16 virka daga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.