Morgunblaðið - 02.04.2009, Qupperneq 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009
✝ Sigríður Krist-jánsdóttir fæddist
3. júlí 1920. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Eir 24. mars 2009.
Foreldrar hennar
voru þau Kristín Þor-
kelsdóttir húsmóðir,
f. í Káravík á Seltjarn-
arnesi 8. ágúst 1891,
d. 9. desember 1982,
og Kristján Jónsson
málari í Reykjavík, f.
á Lambastöðum í
Garði 1. júní 1870, d.
5. október 1946. Sig-
ríður var ein af átta alsystkinum en
hin eru Magnús, f. 22. nóvember
1921, d. 5. júní 1997, Hulda f. 22. maí
1924, d. 26. maí 1998, Kristján, f. 5.
júlí 1925 d. 12. janúar 2007, Val-
gerður, f. 3. nóvember 1926, Sveinn,
f. 7. apríl 1929, Helga, f. 4. október
1930, Guðríður, f. 20. apríl 1933, og
Magnea, f. 10. desember 1934. Sig-
ríður átti einnig fjögur hálfsystkini
sem öll eru látin: Jón Magnús, sam-
mæðra, og Steinunni,
Magneu og Kjartan,
samfeðra.
Hinn 1. desem-
ber1949 giftist Sigríður
Guðmundi Bergssyni,
sjómanni, f. 9. janúar
1924, sonur þeirra er
Páll Sveinn, hljóðmeist-
ari, f. 25. nóvember
1964, kvæntur Kol-
brúnu Kolbeinsdóttur f.
30. desember 1968.
Sonur þeirra er Guð-
bergur Páll f. 4. apríl
2008, fyrir átti Kolbrún
dótturina Kristrúnu f. 2. janúar 1997.
Sigríður lærði ung saumaskap og
vann á saumastofu og einnig starfaði
hún á yngri árum í Sundhöll Reykja-
víkur. Hún var síðan heimavinnandi
húsmóðir en seinni hluta starfsævi
vann hún í krydddeild Hagkaupa í
Skeifunni.
Útför Sigríðar fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 2. apríl og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Elskuleg móðursystir er nú fallin
frá, södd lífdaga. Síðustu æviárin bjó
hún á hjúkrunarheimilinu Eir, í
fyrstu á sambýlinu Eirarholti en síð-
an fluttist hún á aðra deild þar sem
hún fékk meiri aðhlynningu vegna
sjúkdóms síns.
Hápunktur minninganna um Siggu
er tengdur æskuárunum, fyrst, þó í
óljósri móðu, Langholtsveginum en
síðan Búðagerði. Búðagerðið var nú
hálfgerð fjölskyldumiðstöð en Hulda
frænka, Danni og amma Kristín sem
við fjölskyldan kölluðum nú yfirleitt
„ömmu í Búðó“ bjuggu á neðri hæð-
inni og mig minnir reyndar að Krist-
ján frændi hafi búið þar um tíma líka.
Það var oft fjör í Búðó og margir sam-
an komnir. Þá var oft notalegt að stel-
ast upp á eftri hæðina í rólegheitin hjá
Siggu, en hún hafði tíma til að ræða
við okkur og svo skemmdi ekki fyrir
að þá fengum við yfirleitt eitthvað
gott í gogginn. Man t.d. eftir þegar við
Hulda Kristín systir komum upp og
hún brytjaði niður fyrir okkur dökkt
suðusúkkulaði og kom með ískalda
mjólk á bakka. Framreiðsla Siggu og
allt hennar viðmót lét okkur líða eins
og mikilvægum gestum í veislu.
Sigga gerði svakalega góða súkku-
laðiköku með ljósu súkkulaðikremi og
þegar ég fór sjálf að búa, var eitt af
mínum fyrstu verkum að hringja í
Siggu til að fá uppskrift að súkku-
laðikökunni. Sú síða í uppskriftabók-
inni þar sem stendur „Súkkulaðikaka
Siggu“ er nú þakin sýnishornum af
uppskriftinni, sem sýnir það tvennt að
undirrituð hefur verið dugleg að baka
hana og að hún hefur ekki farið eftir
því heimilisráði að leggja glært plast
yfir síðuna að hætti góðra húsmæðra!
Það má eiginlega segja að hrifning
mín á Siggu hafi verið með matarívafi,
en ég man t.d. eftir góðu kjöti í karrí
að ógleymdu marmelaðinu hennar
sem mér og fleirum þótti algjört lost-
æti. Henni leiddist heldur ekki að
gefa mér eða öðrum að borða og naut
þess að stjana við fólk.
Sigga var falleg kona að innan sem
utan, tíguleg og brosmild. Hún var
einstök barnagæla og fékk Palli
frændi, augasteinn hennar og Guð-
mundar, að njóta þess. En það feng-
um við líka systra- og bræðrabörnin í
ríkum mæli eins og áður sagði. Við
fórum stundum í pössun til Siggu og
minnist t.d. Lotta, yngsta systir mín,
hennar sem frænkunnar með mjúka
faðminn.
Síðasta skiptið sem ég hitti Siggu
frænku var fyrir nokkrum árum á
Eirarholti, á afmælisdaginn hennar.
Við sungum saman afmælissönginn
fyrir hana, vistmenn, gestir og starfs-
fólk. Á þeim tíma var hún hætt að
þekkja frænku sína, eða rámaði
kannski bara í hana en hún hafði alls
ekki gleymt glaða viðmótinu, elsku-
legri framkomu og kankvísu augna-
tillitinu.
Nú er Sigga komin í nýja „fjöl-
skyldumiðstöð“ þar sem mæta henni
vinir og ættingjar sem farin eru. Sér-
staklega þykir okkur vænt um að vita
af henni með Önnu Kristínu frænku
okkar sem lést fyrir tæpu ári og var
ein af prinsessunum hennar.
Vala móðir mín, við systkinin og
fjölskyldur okkar vottum Guðmundi,
Palla og fjölskyldu samúð okkar.
Sjáumst síðar, Sigga mín
Þín frænka,
Jóhanna Magnúsdóttir.
Sigríður Kristjánsdóttirbarn ykkar fæddist og óðum fjölgaðibarnahópurinn í töluna sex. Það fylgdi
ykkur mikill lífskraftur.
Kanski pínulítill hávaði.
Þú, félagsmálamaðurinn, komandi
austur til að hrista af þér álag og átök
starfsins. Presturinn sem skírðir
bróður og systursyni í stofunni á
Hvanná, mættir til hátíða og kveðju-
stunda, fluttir minningarorð og hátíð-
arræður á viðeigandi stundum og
varst sjálfkjörinn veislustjóri. Ætíð
var traustið þitt Begga með.
Minning þegar við hjónin ásamt
börnum okkar heimsóttum ykkur að
Reykhólum og við systkinin sátum í
stofunni spjallandi um lífið og tilgang
þess til klukkan að ganga sex að
morgni, horfandi út á hafið með
sveimandi fugli og sólarbjarma him-
ins. Þú naust ásamt prestsstarfinu
þess að hafa þar skepnur, sérlega
sauðfé, því ætíð blundaði djúpt í þér
bóndinn. Síðast heimsótti ég þig að
heimili ykkar Beggu að Kirkjuvöllum
7 þar sem þið hreiðruðuð vel um ykk-
ur. Það var eins og þið nytuð betur
samvista hvors annars með árunum.
Með heilsuleysi þínu var eins og þú
fengir meiri skilning á vanheilsu
Beggu og annarra í kringum þig, sem
gerði þig að dýpri og mýkri manni.
Við áttum ýmislegt eftir, Bragi,
meðal annars það að hittast og spjalla
betur um bernsku okkar, markmiðið
okkar var að hafa Manna og Adda
með, spila og syngja saman, en sá
söngur mun úr þessu hljóma á öðru
sviði en hinu jarðneska. Ég bið þig
fyrir kveðju til látinna ástvina, ég veit
að þeir og ekki síst mamma hafa fagn-
að þér vel. Það fegursta sem hún sagði
við mig í lífinu þegar ég kom skeiðandi
á fullu kani að sjúkrabeði hennar var:
„Oh, Tóta mín, mikið finnst mér þið
Bragi orðin lík.“ Þú varst nefnilega
bjartasta viðmið hennar.
Ég og fjölskylda mín þökkum þér
gengin spor með okkur og sendum
Beggu, börnum þínum og fjölskyld-
unni allri okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Bæn mín og minna til þín og
eftirlifandi ástvina er úr bók bókanna,
Biblíunni 4. Mósebók 6.24-26.
Guð geymi þig vinur og bróðir.
Þín systir
Gunnþórunn.
Heiðursmaður og höfðingi er geng-
inn á vit feðra sinna. Maður sem lifði
lífinu til fulls og naut þess að vera til í
ríkari mæli en flestir samferðamenn
hans. Tímanum sem honum var út-
hlutað var ekki sóað í armæðu og til-
gangsleysi og lífsforvitnin var aldrei í
lágmarki.
Séra Bragi Benediktsson og Berg-
ljót kona hans urðu hluti af mínum
hópi þegar Michael sonur minn og
Lilja dóttir þeirra fundu hvort annað á
sínum tíma. Lífskraftur, æðruleysi og
glaðlyndi einkennir þessa samhentu
og glæsilegu fjölskyldu, að ógleymd-
um dugnaðinum og framtaksseminni.
Sonarsynir okkar, Bragi og Sigþór
Gellir, voru skírðir á heimili okkar
Sigþórs að viðstöddu fjölmenni. Séra
Bragi skírði þá auðvitað og helgaði
skírnarvatnið sem var í kristalsskál
sem foreldrar mínir fengu í brúðar-
gjöf á sínum tíma. Þessar stundir voru
dýrmætar fyrir okkur öll og lifa í
minninu. Minnisstæð er líka heim-
sókn á Reykhóla, þar sem meira bar á
bóndanum í Braga en prestinum og
auðfundið hvað hann naut sín í úti-
verkum og hvað honum þótti vænt um
ærnar sínar. Mér þótti líka vænt um
það þegar Bergljót og Bragi heim-
sóttu mig á Seyðisfjörð rétt eftir að ég
hafði fengið þar hús á leigu. Bragi var
að vanda áhugasamur um allt í þessu
aldargamla húsi og tjáði sig jafnt um
gardínur og gólf í húsinu. Aldrei hlut-
laus.
Á kveðjustund færum við Sigþór
Bergljótu innilegar samúðarkveðjur
vegna fráfalls Braga, og samhryggj-
umst Lilju tengdadóttur okkar, systk-
inum hennar og öðrum ættmennum
með mikinn missi. Um leið samgleðj-
umst við þeim öllum, ekki síst Braga
og Gelli, með að hafa átt þennan glaða
og góðviljaða heiðursmann, Braga
Benediktsson.
Jónína Michaelsdóttir.
Fleiri minningargreinar
um Braga Benediktsson bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN JÓHANNESSON
bifvélavirki,
Sóleyjarima 7,
áður Bogahlíð 14,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn
27. mars, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
föstudaginn 3. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hans er bent á hjúkrunarheimilið Eir.
Jörgen Pétur Lange Guðjónsson, Ásta Steinsdóttir,
Guðrún Erla Guðjónsdóttir, Emil Örn Kristjánsson,
Ásta Björg Guðjónsdóttir, Sigurður Björn Reynisson,
Jóhanna Helga Guðjónsdóttir, Ragnar Marinó Kristjánsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HELGA BJÖRG ÓLAFSDÓTTIR
frá Kvíum,
Böðvarsgötu 2,
Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn
4. apríl kl. 14.00.
Þorgeir Ólafsson,
Ólafur Þorgeirsson, Auður Ásta Þorsteinsdóttir,
Sigrún Björg Þorgeirsdóttir, Birna Gunnarsdóttir,
Þóra Þorgeirsdóttir, Hilmar Sigurðsson,
Gretar Þorgeirsson, Sigrún Arna Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR ÓLAFUR FINNBJÖRNSSON,
Bugðulæk 18,
Reykjavík,
sem andaðist laugardaginn 28. mars, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
7. apríl kl. 13.00.
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Haukur Garðarsson,
Laufey Guðmundsdóttir, Gylfi Georgsson,
Sigríður Guðmundsdóttir, Brynjólfur N. Jónsson,
Helga Guðmundsdóttir, Sigurður Einar Einarsson,
afabörn og langafabarn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
MARGRÉT HALLDÓRA HALLGRÍMSDÓTTIR,
Ásgarði 139,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn
25. mars.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
3. apríl kl. 13.00.
Hallgrímur Ingvaldsson, Kristbjörg Gunnarsdóttir,
Hans Jón Björnsson, Lykke Björnsson,
Emil Sæmar Björnsson, Alda Snæbjörnsdóttir,
María Ingunn Björnsdóttir, Frans Jensen,
Björn Elías Björnsson,
Sveinn Lúðvík Björnsson, Margrét S. Pétursdóttir,
Jón Hafberg Björnsson, Valgerður Björnsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
✝
Hjartans þakkir fyrir allar fallegu kveðjurnar og hlýju
faðmlögin vegna fráfalls elskulegs eiginmanns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÁSTÞÓRS JÓNS VALGEIRSSONAR,
sem lést fimmtudaginn 12. mars.
Guðný K. Guðjónsdóttir,
Sólrún Ástþórsdóttir, Jón Sigurðsson,
Jón Ben Ástþórsson, Anna Kristín Hjálmarsdóttir,
Ómar Ástþórsson,
Þröstur Ástþórsson, Linda Ólafsdóttir,
Íris Ástþórsdóttir,
Ástþór Arnar Ástþórsson, Eydís Ármannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
EIÐUR ÁRNASON,
dvalarheimilinu Sæborg,
Skagaströnd,
verður jarðsunginn frá Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu Hátúni 2, föstudaginn 3. apríl kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á kristið
trúboðsstarf.
Elfar Eiðsson, Jóhanna Benný Hannesdóttir,
Sævar, Daði Snær, Eiður Smári, Birkir.