Morgunblaðið - 02.04.2009, Síða 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009
Sudoku
Frumstig
9 6
4 5 8
2 1 7 6
7
5 3
8 7 9 4
4
1 2 3 5
4 8 3
2 4
5 8 9 3
1
1 2 5 4
4 3 8 7 2
2 9 6
6 2 8
7 8 3
1
3 8 9 5
6 3
4
3 8 5 1 4
7 9
8 3 6 7
5
1 8 2 5
1 9 8 7 2 3 6 5 4
4 3 6 5 8 1 7 2 9
2 5 7 6 4 9 3 1 8
8 7 5 1 3 6 4 9 2
6 4 9 2 7 8 5 3 1
3 1 2 4 9 5 8 7 6
7 8 1 3 6 2 9 4 5
9 2 3 8 5 4 1 6 7
5 6 4 9 1 7 2 8 3
2 7 8 4 6 3 9 5 1
6 9 3 1 7 5 4 2 8
1 5 4 9 2 8 7 3 6
8 1 9 2 5 4 6 7 3
5 3 7 6 1 9 2 8 4
4 2 6 3 8 7 5 1 9
9 6 2 7 3 1 8 4 5
7 8 1 5 4 6 3 9 2
3 4 5 8 9 2 1 6 7
2 7 4 9 8 6 1 3 5
1 9 8 2 3 5 7 4 6
3 6 5 4 1 7 2 9 8
5 4 6 8 7 1 9 2 3
8 1 7 3 9 2 6 5 4
9 3 2 6 5 4 8 1 7
4 8 3 1 6 9 5 7 2
7 2 1 5 4 8 3 6 9
6 5 9 7 2 3 4 8 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 2. apríl, 92. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Tilboðsbæklingar hafa löngumheillað Víkverja og í hvert sinn
sem nýr bæklingur kemur inn um
bréfalúguna fer fiðringur um kropp-
inn. Skyldi eitthvað vera í þessum
bæklingi sem vantar á heimilið?
Bæklingarnir fá sinn stað á eld-
húsborðinu með dagblöðum dagsins
og bíða þess að verða lesnir. Spennt-
ur flettir svo Víkverji bæklingnum
þegar tími gefst og bíður þess sem
verða vill.
x x x
Nýlega kom einmitt í hús bækl-ingur frá Byko og Víkverji
sveikst ekki um að skoða hann frek-
ar en aðra slíka. Fletti fram og til
baka og hugsaði: nei, þetta vantar
ekki, og: nei, og þó … kannski.
Skyndilega rak Víkverja í rogastans
því á einni síðunni blasti við eitthvað
sem hann vissi samstundis að vant-
aði illilega á heimilið. Ákvað að
geyma bæklinginn til að bera það
undir makann hvort hann væri ekki
sammála um vöntun hlutarins.
Svo illa fór þó að þegar Víkverji
hitti loks betri helminginn og var
með bæklinginn í höndunum gat
hann ekki fyrir sitt litla líf munað
hvað það var sem svo sárlega vant-
aði. Fletti fram og aftur en sá ekki
neitt.
x x x
Víkverji gat ekki annað en hlegiðað sjálfum sér fyrir aulaskap-
inn, en við nánari umhugsun fór að-
eins um hann við tilhugsunina um
þessa uppákomu. Hvernig stóð á því
að þessi gerviþörf hafði myndast?
Hvað er það við bæklinga sem gerir
það að verkum að Víkverji verður
svekktur ef hann nær ekki að fletta
þeim öllum? Er mannskepnan þeirri
takmörkun háð að vera alltaf hrædd
um að vera að missa af einhverju?
Eða eru það bara Íslendingar? Eða
enn verra, einskorðast þessi bækl-
ingafíkn og gerviþarfamyndun við
Víkverja?
Þrátt fyrir allt er hús Víkverja
ekki fullt af einskis nýtum hlutum
sem hlaupið hefur verið eftir vegna
óbærilega góðra tilboða og Víkverji
getur ekki annað en verið bara
þakklátur fyrir það! víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 settur hjá, 8
korn, 9 fróð, 10 rödd, 11
hagnaður, 13 dimma, 15
holur, 18 safna saman,
21 fugl, 22 þvoi, 23 skell-
ur, 24 vafamáls.
Lóðrétt | 2 kona, 3
bragðvísar, 4 drengs, 5
fiskar, 6 ránfugl, 7
spotti, 12 ýlfur, 14 snák,
15 hrósa, 16 duglegur,
17 dylgjur, 18 litlum, 19
stétt, 20 kjáni.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kjúka, 4 þokar, 7 eðlan, 8 kumls, 9 auk, 11
kúts, 13 fráa, 14 larfa, 15 strý, 17 rakt, 20 ótt, 23 pukur,
23 ennið, 24 næðið, 25 tóman.
Lóðrétt: 1 kverk, 2 útlát, 3 arna, 4 þykk, 5 kamar, 6
ræsta, 10 umrót, 12 slý, 13 far, 15 súpan, 16 rokið, 18 af-
nám, 19 taðan, 20 óráð, 21 tekt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. Bg5 dxc4 5.
Rc3 c6 6. a4 Bb4 7. e4 Bxc3+ 8. bxc3 Da5
9. e5 Re4 10. Bd2 Dd5 11. a5 c5 12. Da4+
Bd7 13. Dxc4 Dxc4 14. Bxc4 Bc6 15. Ke2
Rd7 16. Hhc1 Ke7 17. Be3 b5 18. Bd3 c4
19. Bb1 f6 20. exf6+ Rexf6 21. Re5 Rxe5
22. dxe5 Rd5 23. f3 Rxe3 24. Kxe3 Had8
25. Bc2 Hd5 26. Be4 Hxe5 27. Kd4
Staðan kom upp í blindskák á Amb-
er-mótinu fyrir skömmu í Nice í Frakk-
landi. Norska undrabarnið Magnus
Carlsen (2.776) hafði svart gegn Kín-
verjanum Wang Yue (2.739). 27. …Kf6!
28. Hd1 hvítur hefði orðið mát eftir 28.
Bxc6 Hd8+. Framhaldið varð eftirfar-
andi: 28. …Bd5 29. a6 Hb8 30. Bxd5
Hxd5+ 31. Ke4 Hbd8 32. Hxd5 Hxd5 33.
f4 Ke7 34. g4 Kd6 35. f5 exf5+ 36. gxf5
Kc5 37. Hg1 Hd7 38. Hg5 He7+ 39. Kf4
Kb6 40. h4 Kxa6 og svartur innbyrti
vinninginn nokkrum leikjum síðar.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Regla Vinje.
Norður
♠K62
♥G7432
♦G92
♣83
Vestur Austur
♠G10873 ♠D954
♥K10 ♥ÁD5
♦ÁK53 ♦10874
♣105 ♣97
Suður
♠Á
♥986
♦D6
♣ÁKDG642
Suður spilar 3G.
„Þéttur láglitur og eitthvað til hlið-
ar,“ svarar norður, spurður útí stór-
karlalega opnun félaga síns á 3G. Þetta
var í annarri umferð Íslandsmótsins.
Á opnu borði blasir við að vörnin á
fimm slagi, en það reyndist kepp-
endum almennt erfitt að koma þeim í
hús – flestir spiluðu út með ♦Á og
prófuðu lítinn tígul í öðrum slag. Ekki
gott.
En hvernig á að finna vörnina? Hér
er tilefni til að rifja upp góða varn-
arreglu Norðmannsins Vinje: Þegar ás
er spilað út gegn grandi er kallað í litn-
um ef blindur kemur upp með 0-2 spil,
en gefin talning eigi blindur á þrjú eða
fleiri spil. Austur setur því ♦4 (lægsta
spilið) til að sýna jafna tölu spila. Þegar
vestur tekur næst á ♦K sprettur upp
hliðarkallsstaða – austur lætur ♦7,
lægsta spilið, til að kalla í hjarta.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er oft tímafrekt að skoða allar
hliðar mála, en engu að síður nauðsynlegt
til þess að geta tekið réttar ákvarðanir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hjól lífsins halda áfram að snúast, ef
maður fyrirgefur óvini sínum. Jafnvel
góðum siðum, skynsamlegri ákvarð-
anatöku og hollum málsverðum má of-
gera.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú stendur frammi fyrir verk-
efni sem krefst allrar þinnar atorku og út-
sjónarsemi. Vertu því þolinmóður því allt
gengur upp um síðir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nú er tími til kominn að taka aftur
áhættu, af því tagi sem fær þig til að
svitna í lófunum. Mundu að hafa eitthvað
út af fyrir þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það sem þér kann að finnast skipta
öllu máli getur öðrum virst þýðingarlítið.
Ef þú sekkur nógu djúpt inn í sjálfan þig,
heyrirðu fagra og viturlega rödd.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert ekki til í að láta aðra segja
þér hvert þú átt að fara og hvernig þú átt
að líta út og ferð eftir þínum eigin reglum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú elskar ferðalög og í dag væri upp-
lagt að gera ferðaáætlanir. Vertu tillits-
samur við aðra.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Samræður við náungann eru
svo sannarlega kraftmiklar og lifandi.
Fólk er glatt í sinni, hresst og fullt bjart-
sýni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú er rétti tíminn til þess að
gera langtímaáætlanir fyrir heimilið og
vinnuna. Hugrekkið felst í því að fara
fram á meira.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Einhverjar hindranir verða á
vegi þínum. Að segja að þú hafir færst of
mikið í fang væri alger úrdráttur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú átt enn erfitt með að gera
þig skiljanlegan. Allt á sér sinn stað og
sína stund. Vertu opinn og nærgætinn og
þá muntu hafa þitt fram.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér finnst gaman að umgangast
alls konar fólk þessa dagana. Njóttu þess
sem að höndum ber. Þannig áttu ein-
hverja möguleika á sigri.
Stjörnuspá
2. apríl 1725
Eldgos hófst í nágrenni Heklu
og fylgdu því „skelfilegir jarð-
skjálftar“, eins og sagði í Hít-
ardalsannál.
2. apríl 1928
Jóhanna Magnúsdóttir fékk
lyfsöluleyfi, fyrst íslenskra
kvenna. Hún starfrækti Lyfja-
búðina Iðunni í Reykjavík í
tæp 33 ár.
2. apríl 1970
Bandaríski sendiherrann af-
henti Kristjáni Eldjárn forseta
tunglgrjót að gjöf frá Richard
Nixon forseta. Morgunblaðið
sagði að þetta hefðu verið
„fjórir smásteinar frá tungl-
inu, felldir inn í gegnsæjan
plasthnapp sem er festur á
viðarflöt ásamt íslenskum
silkifána er var með í förinni
þegar menn lentu á tunglinu í
fyrsta sinn, 20. júlí 1969“.
2. apríl 1996
Rússneskur togari var tekinn
við ólöglegar veiðar út af
Reykjanesi, sá fyrsti síðan
fiskveiðilögsagan var færð út í
200 mílur árið 1975.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Freyja Sól
Kjartansdóttir
seldi perlur og
safnaði með því
512 kr. sem hún
gaf til að hjálpa
börnum í
Afríku.
Söfnun
ÞAÐ ER lítill tími aflögu fyrir afmælishald í dag
hjá Magnúsi Kára Jónssyni, sem í vetur hefur
þjálfað meistaraflokk kvennahandboltans í Gróttu
eftir fimm ára þjálfarastarf hjá Fram.
Engra skrautsýninga er því að vænta á þrítugs-
afmælinu að hans sögn. „Ég reikna með að þetta
verði frekar venjulegur dagur. Ég verð að vinna
frá klukkan átta til fjögur og síðan tekur hand-
boltaþjálfunin við um kvöldið,“ segir Magnús
Kári, sem auk handboltaþjálfunarinnar sér um
tölvukennslu í Ingunnarskóla í Grafarholti. Hann
kveðst þó ef til vill verða með hófstilltan fagnað
heima með fjölskyldunni.
Afmælisveislan sjálf verði hins vegar færð yfir á laugardags-
kvöldið. „Þá verð ég með veislu heima fyrir þessa helstu.“ Hann hefur
þó gert lítið af því að auglýsa tímamótin og gerir almennt ekki mikið
af því að halda upp á daginn. „Það eru liðinn tíu ár frá því að ég hélt
síðast upp á afmæli mitt, þannig að það er kannski alveg kominn tími
á það,“ segir Magnús Kári, sem þjálfað hefur handbolta síðastliðin tólf
–þrettán ár og því verið í þjálfarahlutverkinu frá 17 ára aldri.
annaei@mbl.is
Magnús Kári Jónsson 30 ára
Tíu ár frá síðustu veislu
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is