Morgunblaðið - 02.04.2009, Side 43
Kaldir Depeche Mode er heilt sólkerfi út af fyrir sig.
Depeche Mode er ein afþessum sveitum sem búaog starfa í eigin heimi –eru seldar undir lögmál
sem eiga við þær og þær einar.
Harðsnúnir aðdáendur leynast um
öll heimsins höf og lepja upp hvern
tón og hvern mjaðmahnykk sem
kemur frá öxulveldi sveitarinnar,
þeim Martin Gore og David Gahan.
Þetta er svipað og með
Tool, hér höfum við risa-
stóra költsveit þar sem að-
dáunin fer nærri trúar-
brögðum.
Einstök samsuða kaldr-
analegrar tölvutónlistar og
sorgbundins söngs Gah-
ans, ásamt ofurgrípandi laglínum
Gores, hafa gert sveitinni kleift að
fylla heilu leikvangana með hljóð-
gervladrifnu tölvupoppi, í raun furð-
anlegur árangur.
Níundi áratugurinn var engu að
síður blómaskeið sveitarinnar og
hún toppaði sig í enda hans/byrjun
þess næsta með Violator (1990).
Sömu hæðum hefur ekki verið náð
síðan og sveitin renndi sér
meira að segja undir með-
allagið með hinni tilþrifalitlu
og næstum óþægilega björtu
Exciter (2001). Sveitin hefur
alltaf fundið sig best í myrkr-
inu og var leikurinn skakk-
aður nokkuð á hinni mjög svo
sæmilegu Playing the Angel (2005).
En hvað höfum við svo hér? Bless-
unarlega er enn duflað við myrkrið
og skírskotað er til hrárra upphafs-
áranna er nútíma tölvupopp var að
slíta barnsskónum. Meistaraverk
sveitarinnar, Black Celebration
(1986), gerir og vart við sig. Þetta er
samt ekki einhver endurtekning, það
er meira að viðhorfið eða „attitjúdið“
sé í takt við hina „sönnu“ Mode.
Áferðin er því svellköld, verst er að
brotalöm er þó nokkur í lagasmíða-
deildinni. Lögin eru þannig mjög
miseftirtektarverð og er plötunni
bjargað, og það nokkuð glæsilega,
með öruggu, stálköldu rennslinu.
Ekkert meistaraverk – en fínasta
„Depeche Mode“-plata … seld undir
lögmál sem eiga við hana og hana
eina.
Áfram ískalda veginn
Geisladiskur
Depeche Mode
– Sounds Of The Universe
Tölvupoppskóngarnir snara út tólftu
hljóðversplötu sinni – og halda sjó.
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
TÓNLIST
Menning 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009
BRASILÍSKA
ofurfyrirsætan
Gisele Bundc-
hen hefur mik-
inn áhuga á að
ættleiða barn
frá heimalandi
sínu. Bundchen,
sem er eig-
inkona banda-
ríska ruðn-
ingskappans
Tom Brady, vill ættleiða stelpu
eða strák frá Brasilíu eftir að
hafa séð með eigin augum hversu
mörg börn í landinu búa við afar
erfiðar aðstæður.
„Það væri frábært að ættleiða
barn frá Brasilíu. Ég er nýkomin
frá Sao Paulo og sá þar fimm ára
gömul börn sniffa lím á götu-
hornum. Eftir að hafa séð slíkt
veit ég að maður getur breytt lífi
einhvers til hins betra,“ segir fyr-
irsætan.
Brady á 18 mánaða gamlan son
af fyrra sambandi sínu við Bridg-
et Moynahan. Bundchen segist
hins vegar koma fram við barnið
sem sitt eigið.
Bundchen
vill ættleiða
Góðhjörtuð
Gisele Bundchen.
TÓNLISTARMAÐURINN Michael
Jackson ætlar að fá töframanninn
David Copperfield til þess að vera
með töfrabrögð á tónleikum sem
hann ætlar að halda í London í
sumar.
„Michael og David hafa verið
góðir vinir í mörg ár. Michael er
mikill aðdáandi töfrabragða og
hefur farið til Las Vegas til þess að
sjá alla helstu töframennina. Hann
hefur mjög ákveðnar hugmyndir
um hvernig sýningu hann vill og
telur að David sé rétti maðurinn í
starfið,“ sagði heimildarmaður í
samtali við breska dagblaðið The
Sun.
Fregnir herma að Copperfield
stefni meðal annars að því að láta
Jackson svífa í lausu lofti.
Fyrir skömmu bárust fréttir af
því að Jackson ætlaði meðal annars
að vera á fílsbaki á tónleikunum.
Aðstandendur tónleikanna hafa
hins vegar áhyggjur af því að
kostnaðurinn fari upp úr öllu valdi.
Alls verður um 50 tónleika að
ræða, og verða þeir í O2 höllinni í
London. Nú þegar hafa 750.000
miðar verið seldir á tónleikana.
Kóngurinn og galdrakallinn Munu
þeir koma fram saman í London?
Jackson í
töfrabrögðin
Meiri afköst Fullkomin vörnMinna niðurhalÖryggi og sparnaður fyrir fyrirtæki
Netvörðurinn
800 4000 • siminn.is
Ekkert rugl á fyrirtækjanetinu
Netvörður Símans hjálpar þér að stjórna netnotkun í fyrirtækinu:
• Útilokun á óæskilegu efni
• Yfirsýn yfir erlent niðurhal
• Fullkomin stjórn á netumferð fyrirtækisins
• Vörn gegn tölvuþrjótum og upplýsingaþjófnaði
• Aukinn sparnaður og hagræði
• Aðgengilegar skýrslur um netnotkun í fyrirtækinu
Sími
Netið
Vist
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
37
52
0
Hringdu í
Fyrirtækjaráðgjöf
800 4000
og við kynnum
þér kostina
Það er