Morgunblaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HÆSTA öspin á Akureyri var felld
í fyrradag, 22,60 m há. Reyndar
voru þær tvær felldar á lóðinni Að-
alstræti 68, svipaðar að stærð. Trén
skemmdust svo mikið í aftakaveðri
sl. haust að garðyrkjufræðingar
töldu ekki um annað að ræða en
fella þau. Sverrir Leósson, fyrrver-
andi útgerðarmaður, og Auður
Magnúsdóttir eiginkona hans búa í
húsinu. „Þetta var mikið tilfinn-
ingamál fyrir konuna mína; hún
hefur búið hér allt sitt líf og man
þegar aspirnar voru gróðursettar.
Enda var hún ekki heima þegar
þær voru felldar,“ sagði Sverrir.
Hæsta öspin felld
Ljósmynd/Ásgrímur Ágústsson
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
SAMFYLKINGIN mælist enn stærst íslenskra stjórn-
málaflokka, með 29,4 prósenta fylgi, í Þjóðarpúlsi Capa-
cent Gallup sem kynntur var í gær. Vinstri grænir fylgja
enn á hæla hennar með 27,7 prósent. Því hefur dregið
saman með stjórnarflokkunum frá síðustu viku, þegar
Samfylkingin hafði 30% og Vinstri grænir 26,2%.
Sjálfstæðisflokkurinn er í þriðja sæti með 25,4% og
bætir við sig einu prósentustigi. Framsóknarflokkurinn
tapar hins vegar 1,8%, fer úr tólf og hálfu niður í 10,7 pró-
sent.
Fylgi við ný framboð minnkar lítillega
Af minni framboðum er hinn nýi O-listi Borgarahreyf-
ingarinnar með 3,0 prósent og L-listi Fullveldissinna með
1,5%. Báðir listar tapa dálitlu fylgi frá síðustu könnun.
Frjálslyndir mælast með 1,4 prósenta fylgi en 0,9 prósent
aðspurðra segjast ætla að kjósa eitthvað annað en fram-
angreind framboð.
Vinsældir ríkisstjórnarinnar dvína frá fyrri viku. Um
60,6 prósent segjast nú styðja hana, en tæp 64 prósent
sögðust styðja hana í síðustu viku. Mestan stuðning á rík-
isstjórnin hjá konum og hjá þeim sem hafa háskólapróf,
en minni stuðning hjá körlum og þeim sem hafa grunn-
eða framhaldsskólapróf. Önnur hugsanleg stjórnarform,
ef kosið væri nú, væru tveggja flokka stjórnir Sjálfstæð-
isflokks og annars vinstriflokkanna.
Eftir kjördæmum má sjá að stjórnarflokkarnir eru
sterkir í Reykjavík. Samfylkingin stærst í Reykjavík suð-
ur, en Vinstri grænir stærstir norðan megin. Í Kraganum
er Samfylkingin stærst og sömuleiðis í Norðvesturkjör-
dæmi. Í Norðausturkjördæmi eru Vinstri-grænir stærst-
ir en Sjálfstæðisflokkur heldur forystunni á Suðurlandi.
Gerð var netkönnun með tilviljunarúrtaki úr viðhorfa-
hópi og símakönnun með tilviljunarúrtak úr þjóðskrá.
Heildarúrtak var 2.451. Svarhlutfall var 61,1%.
Samfylkingin enn stærst,
stjórnin missir stuðning
!
!
!
!
!
einfaldlega betri kostur
Nuage. Borðlampi.
H 40 cm.
12.990,-
ILVA Korputorgi. s: 522 4500
laugardaga 10-18
sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19
www.ILVA.is
NÝTT NÝTT
Mikið úrval af nýjum
húsgögnum og gjafavöru.
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„STJÓRNENDUR félagsins bentu
eigendum á þennan vanda strax í
febrúar á síðasta ári og óskuðu eftir
heimildum til þess að fá að bregðast
við. Sú heimild fékkst ekki og því fór
sem fór,“ segir Reynir Jónsson,
framkvæmdastjóri Strætós bs.
Rekstrarniðurstaða Strætós var
neikvæð um rúmar 352 milljónir
króna fyrir árið 2008 samkvæmt árs-
reikningi sem lagður var fyrir borg-
arráð í gær. Eigið fé félagsins er
þannig neikvætt sem nemur 57% af
heildareignum byggðasamlagsins og
ljóst, samkvæmt bókun Samfylk-
ingar og Vinstri grænna í borg-
arráði, að umtalsverðar kostn-
aðarhækkanir eru framundan.
Að sögn Reynis spáðu stjórn-
endur Strætós því í ársbyrjun 2008
að tap félagsins á árinu yrði um 300
milljónir ef ekki yrði við brugðist.
Niðurstaðan er sem fyrr segir rúm-
ar 352 milljónir, enda var verðbólga
langt umfram spár með tilheyrandi
eldsneytiskostnaði. Það sem verst
fór með reksturinn á síðasta ári voru
þó að sögn Reynis áfallnar verðbæt-
ur á útistandandi lán Strætós, fyrst
og fremst vegna vagnakaupa.
Staðan geti að einhverju leyti
gengið til baka ef verðbólgan hjaðn-
ar, en óvissan sé mikil. „Aðal-
áhyggjuefni okkar núna er að enn og
aftur höfum við varað við sambæri-
legri útkomu eftir þetta ár eins og
við gerðum í fyrra. Við höfum enn og
aftur óskað eftir aðgerðum til þess
að bregðast við ellegar fá fjár-
mögnun frá eigendum okkar.“
Strætó bs. er í eigu sveitarfélaganna
á höfuðborgarsvæðinu.
Reynir segir málið ekki flókið, í
grunnatriðum séu aðeins þrjár
lausnir í boði til að koma í veg fyrir
að vandinn stigmagnist frekar. Ein
leið er að sveitarfélögin leggi til auk-
ið fé, önnur að lækka kostnað með
því að draga úr akstursmagni og sú
þriðja að hækka gjaldskrá.
„Fargjaldatekjur hafa staðið í
stað eða lækkað að raunvirði und-
anfarin ár vegna þess að þau hafa
ekki fylgt verðlagsbreytingum, en á
móti hefur framlag sveitarfélaga
ekki hækkað að sama skapi. Svo að
það er innbyggð skekkja í kerfinu.“
Óbreytt þjónusta kostnaðarsöm
Sveitarfélögin eru sem kunnugt er
í spennitreyju þegar kemur að fjár-
veitingum. Komi til þess að fargjöld
verði þess í stað hækkuð segir Reyn-
ir ekkert einfalt svar til við því
hversu mikil sú hækkun þyrfti að
verða. „Ef við ætlum að halda þjón-
ustuframboðinu óbreyttu, þá þurf-
um við um það bil að tvöfalda þau
með sama akstursmagni.
Ef við hins vegar aðlögum þjón-
ustugetuna að eftirspurninni, þá
þyrftum við kannski ekki að hækka
þau nema um svona 25-30% í heild-
ina,“ segir Reynir og vísar til þeirrar
staðreyndar að á mörgum aksturs-
leiðum er framboð umfram eft-
irspurn, þ.e. vagnarnir oftar en ekki
hálftómir.
„Ég sem framkvæmdastjóri vil
auðvitað ekki fara þessa leið en ef
þetta er eini kosturinn sem ég hef,
þá tek ég hann, ellegar kemur að því
að það þarf að loka kompaníinu.“
Fargjöld þyrftu að
tvöfaldast að óbreyttu
Rekstrarniðurstaða Strætós neikvæð um 352 milljónir 2008
Morgunblaðið/G.Rúnar
Mínus Fjárhagsstaða Strætós er
mjög alvarleg og aðgerða þörf
Í HNOTSKURN
»Gjaldskrá Strætós bs. tóksíðast breytingum þann 1.
janúar 2007. Síðan hefur verð-
lag hækkað um 26%.
»Strætó bs. er í eigu sveit-arfélaganna á höfuðborg-
arsvæðinu sem fara með loka-
ákvarðanir um fjárveitingu til
félagsins og gjaldskrá þess.
»Um þrír milljarðar afkostnaði Strætós, eða 90%
af heildarkostnaði, falla til
vegna ekinna kílómetra.
Framkvæmdastjórn ESB sagði í
gær að áform Íslendinga um
makrílveiðar brytu í bága við al-
þjóðasamninga, sem ætlað væri að
vernda ofveidda fiskstofna. Í yf-
irlýsingu, sem Reuters vísar til,
segir framkvæmdastjórnin að Ís-
lendingar hafi lítið sem ekkert veitt
makríl fyrr en á síðustu tveimur ár-
um. Nú hafi landið ákveðið einhliða
112 þúsund lesta veiðikvóta fyrir ís-
lensk skip. Þessi kvóti muni gera að
engu þá uppbyggingu, sem verið
hafi í makrílstofninum að und-
anförnu, og grafa undan vernd-
unarmarkmiðum.
Fram kemur í Reuters-fréttinni,
að þessi ágreiningur ESB og Ís-
lands komi upp á sama tíma og mik-
il umræða sé um það á Íslandi hvort
sækja skuli um aðild að samband-
inu. Trúlegt sé, að sjávarútvegs-
málin verði mesti ásteytingar-
steinninn komi til aðildarviðræðna.
Makrílveiðar gera
uppbyggingu að engu