Morgunblaðið - 03.04.2009, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
Í DAG verður tekin fyrsta skóflu-
stunga að nýbyggingu Samtaka aldr-
aðra við Sléttuveg í Reykjavík. Í hús-
inu verða 58 íbúðir og hafa um tveir
þriðju hlutar þeirra nú þegar verið
seldir, að sögn Erlings Garðars Jóns-
sonar, formanns Samtaka aldraðra.
„Það þýðir ekkert fyrir okkur frek-
ar en þjóðina í heild að sitja með
hendur í skauti þótt það kreppi að, og
bíða eftir einhverju kraftaverki,“
segir Erling. „Við teljum að það sé
ekki einungis samfélagsleg nauðsyn
að byggja íbúðir fyrir aldraða, heldur
sé hér um að ræða bráðnauðsynlegt
verkefni fyrir atvinnulífið. Áætlað er
að framkvæmdirnar skaffi vinnu fyr-
ir um 110 manns á byggingartím-
anum. Það munar um það í núverandi
ástandi.“
Ekkert annað kom til greina
Að sögn Erlings var undirbún-
ingur hinna fyrirhuguðu fram-
kvæmda Samtaka aldraðra við
Sléttuveg kominn vel á veg þegar
bankarnir hrundu í októbermánuði á
síðasta ári. Segir hann að stjórn sam-
takanna hafi verið að yfirfara þjón-
ustusamning vegna þeirra þegar
hörmungarnar dundu yfir. Mikil
óvissa um framhaldið hafi þá skapast.
„Við vorum hins vegar búin að
fjárfesta í undirbúningnum, greiða
gatnagerðargjöld og annað sem
þurfti að greiða, vel á annað hundrað
milljónir króna. Þetta þýddi að við
urðum að kanna málið til fulls. Við
ræddum við alla þá sem höfðu sótt
um íbúð og niðurstaðan varð að halda
áfram. Ég held að ekkert annað hafi
komið til greina.“
Tæplega 400 íbúðir
Samtök aldraða í Reykjavík voru
stofnuð á árinu 1973. Markmið sam-
takanna hefur frá upphafi verið að
stuðla að byggingu hentugra íbúða
fyrir aldraða; að vinna að aukningu á
sjúkrarýmum fyrir aldraðra sem
þurfa hjúkrunar við; að stuðla að
bættri þjónustu hins opinbera við
aldraða í heimahúsum; að stuðla að
samvinnu við hliðstæð félög, innlend
og erlend; og að vinna gegn því að
öldruðum sé íþyngt með óeðlilegum
skattaálögum.
Erling segir að það fari ekki á milli
mála að samtökunum hafi tekist að
byggja íbúðir með félagslegri að-
stöðu fyrir eldra fólk sem mikil eft-
irspurn sé eftir. „Fólk vill komast í þá
félagslegu aðstöðu og það öryggi og
þau þægindi sem þessar íbúðir skapa
á seinustu vegferð hvers og eins.
Fermetraverðið hefur verið vel fyrir
neðan markaðsverð sambærilegra
íbúða, enda hefur græðgisvæðing
aldrei ráðið ríkjum hjá samtök-
unum.“
Húsin sem Samtök aldraðra hafa
staðið fyrir byggingu á eru Akraland
1 og 3, Bólstaðarhlíð 41 og 45, Dal-
braut 18, 20, 14 og 16, Aflagrandi 40,
Sléttuvegur 11, 13, 19, 21 og 23.
Núverandi íbúðir sem Samtök
aldraðra hafa staðið fyrir byggingu á
eru tæplega 400 talsins.
Sitja ekki og bíða
með hendur í skauti
Morgunblaðið/Heiddi
Á byggingastað Erling Garðar Jónsson, formaður Samtaka aldraðra, á
byggingastað við Sléttuveg þar sem fyrsta skóflustunga verður tekin í dag.
Samtök aldraðra í Reykjavík láta ástandið ekki aftra
því að þau haldi áfram að reisa íbúðir fyrir eldra fólk
Í HNOTSKURN
» Samtök aldraðra í Reykja-vík voru stofnuð árið 1973.
» Samtökin hafa staðið fyrirbyggingu tæplega 400
íbúða.
» Stjórn samtakanna var aðyfirfara þjónustusamning
vegna hinna nýju íbúða við
Sléttuveg þegar bankahrunið
skall á í októbermánuði síðast-
liðnum.
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Stuðningshlífar
fjölbreytt úrval
Bæjarlind 6 sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
Nýtt frá PAS
Kvartbuxur
str. 36-56
30% afsláttur
af sumaryfirhöfnum
föstudag og langan laugardag
Laugavegi 47
sími 552 9122
Laugavegi 47
sími 551 7575UNIFEM á Íslandi Laugavegi 42 Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
S. 552 6200 unifem@unifem.is www.unifem.is
Í þágu kvenna í þróunarlöndunum
– kynningarfundur um starf UNIFEM í Ketilhúsinu 4. apríl
Gunnar Hersveinn, rithöfundur: Konur, stríð og friður
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM
á Íslandi: Þróun í þágu kvenna er allra hagur
Ketilhúsið, Akureyri, laugardaginn 4. apríl.
Húsið opnar með súpu kl. 12. Fundurinn stendur frá kl. 13-14.
Súpa og brauð á 600 kr. til styrktar UNIFEM, í boði Bautans.
Hefurðu áhuga á að fræðast um líf og störf kvenna í þróunar-
löndum og á stríðshrjáðum svæðum, taka þátt í starfi UNIFEM
og styrkja málefnið?
Aðgangur ókeypis – allir velkomnir
Opið virka daga frá 9.00-18.00
og lau. frá 10.00-16.00
Laugavegi 29 - Sími 552 4320
www.brynja.is - brynja@brynja.is
Langur laugardagur opið til kl. 17.00
15% afsláttur af Tormek
hverfisteinum og
fylgihlutum
í apríl