Morgunblaðið - 03.04.2009, Page 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009
GÖNGUM HREINT TIL VERKS
Kosningaskrifstofur
opnaðar um allt land
Sjálfstæðismenn um allt land munu opna fjölmargar kosningaskrifstofur um helgina
og enn fleiri á næstu dögum. Við viljum bjóða alla velkomna til okkar og hvetjum
fólk til þess að líta við, fá sér kaffi og með því yfir góðu spjalli við sjálfstæðismenn
um þau verkefni sem framundan eru.
Reykjavík » föstudaginn 3. apríl kl. 18.00
Opnun kosningaskrifstofu í félagsheimili
sjálfstæðismanna Álfabakka 14a Mjódd.
Eskifjörður » föstudaginn 3. apríl kl. 20.00
Opnun kosningaskrifstofu í Austrahúsinu,
Strandgötu 46.
Ungir sjálfstæðismenn » föstudaginn 3. apríl kl. 20.00
Opnun kosningaskrifstofu í Reykjavík, Austurstræti 7
(gegnt Vínbúðinni).
Borgarbyggð » föstudaginn 3. apríl kl. 20.00
Opnun kosningaskrifstofu í Borgarnesi, Borgarbraut 11,
(gamla bæjarskrifstofan).
Akureyri » laugardaginn 4. apríl kl. 10.00
Opnun kosningaskrifstofu í Kaupangi við Mýrarveg.
Reykjavík » laugardaginn 4. apríl kl. 12.00
Opnun kosningaskrifstofu í Ármúla 18.
Reykjavík » sunnudaginn 5. apríl kl. 14.00
Opnun kosningaskrifstofu í Austurstræti 7
á fyrstu hæð (gegnt Vínbúðinni).
Ísafjörður » mánudaginn 6. apríl kl. 17.00
Opnun kosningaskrifstofu í Björnsbúð, Silfurgötu 1.
Egilsstaðir » mánudaginn 6. apríl kl. 20.00
Opnun kosningaskrifstofu að Tjarnarbraut 21.
Viltu fá frambjóðendur
í heimsókn?
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins verða
á ferð og flugi fram að kosningum og langar
að ræða stefnumál okkar við sem flesta. Ef þig
langar að fá frambjóðendur okkar í heimsókn
á vinnustaðinn þinn vinsamlegast sendu okkur
póst á xd@xd.is eða hringdu í síma 515 1700.
Hlökkum til að heyra frá ykkur!
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóma yfir tveimur
karlmönnum sem sakfelldir voru í héraði fyrir inn-
flutning á 4,6 kg af amfetamíni og 600 g af kókaíni
til landsins frá Þýskalandi. Efnin voru send til
landsins með hraðflutningafyrirtæki. Annar mann-
anna var dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar
en hinn sætir fangelsi í 2½ ár.
Sá sem þyngri dóm hlaut, Annþór Kristján
Karlsson, 33 ára, var sakfelldur fyrir að leggja á
ráðin um innflutninginn, láta senda fíkniefnin og
greiða þóknun vegna smyglsins. Annþór neitaði
sök en með staðföstum framburði tveggja sakborn-
inga, sem báru ítarlega vitni í málinu fyrir dómi á
rannsóknarstigi málsins, var hann sakfelldur.
Þá var Tómas Kristjánsson, 28 ára, sakfelldur
fyrir að hafa lagt á ráðin um innflutninginn og
nota aðstöðu sína sem starfsmaður hraðsending-
arþjónustunnar UPS á Keflavíkurflugvelli til að
miðla upplýsingum um hvernig haga skyldi send-
ingu og móttöku fíkniefna, þannig að áhætta væri
lágmörkuð. Tómas neitaði sök en líkt og með Ann-
þór þótti framburður hans ótrúverðugur. Tómas
var dæmdur til tveggja og hálfs árs fangels-
isvistar.
Í héraðsdómi voru tveir karlmenn til viðbótar
dæmdir í 1½ árs fangelsi fyrir aðild að málinu og
undu þeir dómnum. Framburður þeirra, bræðra,
skipti sköpum í málinu og varð til þess að málið
upplýstist. Af framburði annars bræðranna mátti
ráða að Annþór hefði skipulagt fleiri sendingar
fíkniefna til landsins með hraðsendingu.
Staðfest í fíkniefnamáli
Morgunblaðið/Júlíus
Amfetamín Fjórir menn voru dæmdir í tengslum
við málið. Tveir þeirra undu dómi héraðsdóms.
JÓN Kristinsson,
bóndi og lista-
maður, er látinn á
84. aldursári. Jón,
sem víða var
þekktur sem
Jóndi í Lambey,
fæddist á Húsavík
árið 1925, for-
eldrar hans voru
Kristinn Jónsson kaupmaður og Guð-
björg Óladóttir. Á unglingsárum lá
leið Jóns til Akureyrar þar sem hann
varð gagnfræðingur frá MA. Þá þeg-
ar var Jón síteiknandi og barst hróð-
ur hans víða þótt hann væri sjálf-
menntaður í myndlistinni.
Hann hætti námi á lokaári fyrir
stúdentspróf og fluttist til Reykjavík-
ur til að teikna auglýsingar í Raf-
skinnu, rafknúna bók sem staðsett
var í hjarta Reykjavíkur.
Eiginkona Jóns var Ragnhildur
Sveinbjarnardóttir frá Breiðabólstað
og giftu þau sig árið 1950, en hún lést
árið 2008. Árið 1952 stofnuðu þau
hjónin nýbýli í Lambey. Þar byggðu
þau býli frá grunni, bæði íbúðar- og
útihús. Síðar byggði Jón sér listhús í
Lambey, þar sem hann sinnti mynd-
listinni en um árabil hafði hann
teiknivinnu að aukabúgrein og setti
upp fjölda sýninga. Jón var formaður
Búnaðarfélags Fljótshlíðar í 26 ár og
hlaut árið 1994 Heiðursbikar Bún-
aðarsambands Suðurlands. Hann var
búnaðarþingsfulltrúi í 12 ár því bú-
störfunum sinnti hann jöfnum hönd-
um samhliða myndlistinni, auk þess
sem hann kenndi við gagnfræðaskól-
ann á Hvolsvelli í 16 ár. Hann var
einnig meðhjálpari í Breiðabólstað-
arkirkju um áratugaskeið. Síðustu
misserin bjó Jón á Kirkjuhvoli, dval-
arheimili aldraðra á Hvolsvelli. Hann
lætur eftir sig 9 börn.
Jón
Kristinsson
Andlát
BENEDIKT Sig-
urður Benedikz
bókavörður lést í
Birmingham á
Englandi 25. mars
sl.
Hann fæddist
4. apríl 1932 í
Reykjavík, sonur
Eiríks Benedikz
og Margaret Benedikz. Benedikt
stundaði nám við háskólann í Oxford,
Penbroke College, og lauk þaðan
MA-prófi 1958. Hann hlaut Diploma
in Librarianship við University Col-
lege í Lundúnum 1959, fyrstur Ís-
lendinga. Hann varð síðan dr. phil.
frá háskólanum í Birmingham 1979.
Benedikt vann við aðfangadeild há-
skólabókasafnsins í Durham 1959-67
og var kennari við þann skóla. Hann
var bókavörður við háskólann í Uls-
ter 1968-71. Frá 1973 til starfsloka
var hann bókavörður við háskólann í
Birmingham og kenndi líka hand-
ritafræði. Benedikt var félagi í lær-
dómsfélögunum Society of Antiqua-
ries og Royal Historical Society. Eftir
hann liggja mörg rit, þýðingar og
greinar.
Þegar Benedikt var að alast upp
dvaldist hann langdvölum hjá afa sín-
um Benedikt S. Þórarinssyni (1861-
1940) kaupmanni og bókasafnara.
Vafalaust má rekja hinn mikla bóka-
áhuga hans til þessara ára. Þó að
hann byggi í Englandi nærri allt sitt
líf lét hann sér mjög annt um íslensk
bóka- og handritasöfn og þá sér-
staklega Benediktssafn, sem svo er
kallað, hið mikla bókasafn sem afi
hans gaf Háskóla Íslands áður en
hann lést og er nú varðveitt sem sér-
safn í Landsbókasafni. Benedikt
sendi safni afa síns bækur, handrit og
peninga.
Árið 1964 kvæntist Benedikt Phyll-
is Mary og eignuðust þau þrjú börn.
Benedikt S.
Benedikz
Andlát