Morgunblaðið - 03.04.2009, Síða 19
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009
Magnús Skúlason sendir Vísna-horninu „kaldhamraða
hringhendu“:
Er risið lágt er langa daga
í lífsbaráttustríði,
stuðlar að sáttum bráðsnjöll baga,
bragarháttaprýði.
Þá yrkir hann um landsfund
Samfylkingarinnar, þar sem Dagur
B. Eggertsson var kjörinn varafor-
maður:
Í pólitík kunnátta, kraftur og geta
kæmi sér auðvitað best,
en of margir liðaða lokka meta,
og ljóskurnar kannske mest.
Gaman er að blaða í Skruddu.
Þar rakst umsjónarmaður á frá-
sögn af Árna á Ökrum: „Árni skáld
Böðvarsson á Ökrum kvað einu
sinni er hann var við skál:
Aldrei skal ég yrkja sálm,
þó eldri verði en skrattinn.
Sver ég það við mold og málm,
mitt parruk og hattinn.
Þegar hann hafði kveðið vísu
þessa missti hann skáldgáfuna um
alllangan tíma og fékk hana ekki
aftur fyrr en hann lofaði að yrkja
kvæði um andlegt efni. Settist hann
þá niður og orti kvæði sem heitir
„Skjöldur“, og þykir það þrungið
andagift. Hélt hann gáfunni síðan
til æviloka.“
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af skratta og pólitík
HLUTVERK Tryggingastofnunar
sem einnar af undirstöðum ís-
lensks velferðarkerfis er að annast
stjórnsýslu almannatrygginga og
þar með að upplýsa viðskiptavini
stofnunarinnar um réttindi sín.
Þeir sem þekkja réttindi sín eru
betur í stakk búnir til að hagnýta
sér þau og standa vörð um þau.
Aukinn skilningur á ólíkum þörfum
fólks sem vill tileinka sér nýja
þekkingu og nýja miðlunartækni
hefur að undanförnu opnað nýjar
víddir í möguleikum til samskipta
sem m.a. ættu að koma við-
skiptavinum Tryggingastofnunar
til góða.
Stefnt er að því að vefurinn
www.tr.is standist 3. stigs aðgeng-
isvottun hjá Sjá og er táknmáls-
viðmótið liður í því. Á döfinni er
einnig að hafa valdar síður einnig
á auðlesnu formi. Sjá ehf. hefur í
samvinnu við Öryrkjabandalagið
skilgeint þær kröfur sem liggja að
baki vottuninni. Til hliðsjónar er
hafður alþjóðlegur staðall fyrir að-
gengi á veraldarvefnum, Web Ac-
cessability Initiative (WAI).
Á www.tr.is er nú að finna hjálp-
artæki til að bæta aðgengi mis-
munandi hópa að upplýsingum sem
þegar eru á vefnum. Þannig er
hægt að breyta stærð, útliti og lit
leturs og bakgrunns eftir eigin
höfði og allt efni á vefnum er hægt
að lesa með skjálesurum fyrir
sjónskerta og fólk með leserfið-
leika.
Á vefnum er einnig hægt að fá
upplýsingar um suma málaflokka
með táknmálsviðmóti. Það er í
samræmi við aðgengisstefnu
Tryggingastofnunar að taka tillit
til mismunandi sérþarfa hópa við
framsetningu upplýsinga á vefnum.
Það sem fært hefur verið yfir á
táknmálsviðmót eru inngangs-
upplýsingar um slysatryggingar,
réttindi og þjónustuþætti er snúa
að foreldrum og börnum, upplýs-
ingar um örorku- og ellilífeyri,
upplýsingar um eyðublöð, upplýs-
ingar um þjónustuleiðir Trygg-
ingastofnunar og hvar hægt er að
koma ábendingum á framfæri við
Tryggingastofnun.
Á www.tr.is er að finna grunn-
upplýsingar á ensku um almanna-
tryggingar, Tryggingastofnun og
starfsemi umboða um land allt.
Mikil þörf hefur verið fyrir þennan
þátt. Þess ber að geta að enski
textinn er einnig hafður á íslensku
fyrir þá sem eru að leiðbeina vin-
um og ættingjum.
Áfram veginn, sem er upplýs-
ingarit fyrir eldri borgara, hefur
einnig verið lesið inn á hljóðskrá
sem er hægt að hlaða niður af
heimilistölvum eða panta hjá
Tryggingastofnun og fá senda
heim á geisladiski til að hlusta á.
Hjá Tryggingastofnun er mark-
visst unnið að því að virkja fjöl-
breytta möguleika til miðlunar á
vefnum, til að veita viðskiptavinum
stofnunarinnar sem besta þjón-
ustu.
Þinn réttur
Morgunblaðið/ÞÖK
Þinn réttur Hjá Tryggingastofnun er markvisst unnið að því að virkja fjöl-
breytta möguleika til miðlunar á vef stofnunarinnar.
Aðgengi upplýs-
inga á vef Trygg-
ingastofnunar
TENGLAR
.....................................................
www.tr.is
L AU S N I R F Y R I R H E I M I L I Ð
Við vinnum með þér
að lausnum fyrir heimilið.
Greiðslujöfnun lána er
ein af þeim.
Pantaðu ráðgjöf á landsbankinn.is,
í útibúinu þínu eða í síma 410 4000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
4
6
7
Landsbankinn býður upp á nokkur úrræði fyrir heimili sem eiga við greiðsluerfiðleika
að etja. Við aðstoðum þig við að velja lausn sem kemur til móts við þínar þarfir.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
Þ
að er einhver góður andi
hér sem ekki er hægt að
slíta sig frá,“ segir
Kristjana Þorgilsdóttir,
83 ára íbúi á Grund.
Sameiginleg saga Kristjönu og
Grundar ná langt aftur því hún steig
fyrst fæti þangað inn aðeins 19 ára
gömul þegar hún hóf störf í þvotta-
húsinu árið 1949, en hefur varla far-
ið þaðan síðan.
„Ég bjóst nú aldrei við því þegar
ég byrjaði að þetta færi svona, fyrst
þegar ég kom hérna inn voða fín í
háhæluðum skóm eins og ungu pí-
urnar í dag. Ég ætlaði bara að vera
hérna í mánuð og fá mér svo vinnu í
búð,“ segir Kristjana. Heldur lengd-
ist mánuðurinn í annan endann því
fyrr en varði voru 57 ár liðin og enn
vann hún á Grund þegar að því kom
að hætta störfum vegna aldurs.
„Svona leið þetta hjá … það var svo
gaman að ég gleymdi stund og stað.
Mér finnst þetta í raun ekki hafa
verið lengra en mánuður.“
„Þarna kemur litla músin“
Þrátt fyrir að hafa formlega hætt
störfum gat Kristjana aldrei slitið
sig alveg frá Grund og síðustu tvö
árin hefur hún verið reglulegur
gestur og tekið þátt í ýmsu fé-
lagsstarfi. „Ég varð að láta fólk vita
af mér, og það er alltaf sagt; „þarna
kemur litla músin“,“ segir hún og
man ekki betur en að þetta við-
urnefni hafi fylgt henni frá fyrstu
stundu á Grund.
Á endanum fékk hún sér eigin
þjónustuíbúð og flutti inn í byrjun
árs. Kristjana er raunar ekki eini
íbúinn á Grund sem starfaði þar áð-
ur, en hún á tvímælalaust lengstan
starfsferil að baki og ber starfsfólk-
inu bæði fyrr og nú vel söguna. „Mér
hefur eiginlega hvergi liðið eins vel
með neinu fólki, það er svo voðalega
gott andrúmsloft og hefur alltaf ver-
ið mikill félagsskapur.“ Þessa dag-
ana sækir Kristjana bingó og spila-
vist, hannyrðir og harmonikkuböll
með öðru Grundarfólki, en hún við-
urkennir reyndar að félagslífið hafi í
fyrri tíð verið með öðru sniði.
Rómað skemmtanalíf og fjör
„Árin frá 1953 til ’63 eða ’64, þá
var sko gaman, maður var ungur og
meira fjör. Fyrst þegar ég byrjaði
bauð Helga, forstjórafrúin, alltaf í
kaffi. En ég fer nú ekkert að segja
þér þegar við vorum í geiminu,“
bætir hún laumulega við.
Þegar gengið er á hana fæst
Kristjana þó til að segja frá „geim-
inu“; ófáum kvöldstundum sem unga
starfsfólkið skemmti sér saman. „Þá
var sko gaman. Oft á kvöldin sátum
við í herbergjunum og alltaf var spil-
að á gítar og sungið. Það voru að-
allega sjóaralögin, við höfðum ekki
mikið annað. Þá var maður nú ung-
ur og fallegur,“ hlær Kristjana og
viðurkennir að hafa sjálf aðeins
gripið í gítarinn. Skemmtanalífið hjá
starfsfólkinu á Grund var rómað í þá
daga að sögn Kristjönu og ekki óal-
gengt að utanaðkomandi sæktu í fé-
lagsskapinn til að fá sinn skerf af
gleðinni. „Ég skal ekki neita því. En
það var aldrei neinn hávaði af okk-
ur, við sungum svo vel.“
Þótt róast hafi um á Grund síðan
fjörið var hvað mest fyrir nokkrum
áratugum segist Kristjana alltaf
kunna jafnvel við sig þar og er hæst-
ánægð sem íbúi. „Þetta er bara
heimili mitt. Ég hefði ekki viljað
vera neins staðar annars staðar.“
Gleymdi stund og
stað og svo liðu 57 ár
Morgunblaðið/Heiddi
Heima „Ég hef séð mörg ný andlit koma og fara,“ segir Kristjana.