Morgunblaðið - 03.04.2009, Qupperneq 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Ferðalög
Spánn- Alicante
,,Takið bara handfarangurinn með”,
nýtt raðhús til leigu í Torrevieja, ný
sundlaug, rétt hjá Carrefour og
Habaneras, vikan kostar 425 evrur.
S. 899 2940.
Ferðaþjónustan Bakkaflöt
Skagafirði
sími 453 8245
www.bakkaflot.com
www.riverrafting.is
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 29.900. Hljómborð frá kr.
17.900. Trommusett kr. 49.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Húsnæði í boði
STÓR OG GÓÐ 3JA HERB ÍBÚÐ
Í Fellsmúla til leigur. Laus strax.
Umsóknir sendist á netfang:
h48@mmedia.is
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Iðnaðarmenn Óska eftir
Helgi pípari
Viðgerðir - Nýlagnir - Breytingar.
Lítil sem stór verk, hitamál o.fl.
Hafið samband í síma 820-8604,
Helgi pípari.
Tómstundir
Markaðslaugardagur
frímerkjasafnara Stór markaður
laugardag Síðumúla 17 kl. 13:00-
15:00. Kaffi í boði félagsins.
Auk þess verður boðið uppá ókeypis
verðmat á frímerkjasöfnum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Til sölu
Útsala - Útsala - Útsala
Kristal ljósakrónur, vandaðar postu-
líns, kristal og trévörur.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
VANTAR 5 TN. ÓDÝRAN PALLBÍL
EÐA SENDIBÍL
Ódýran rafmagns- eða dísellyftara,
Massey Ferguson 60-90 ha, ca 10 -
12 ára eða Dautch.
Uppl. í síma 865 6560.
Verslun
Ferming 2009
Mikið úrval af glerskartgripum.
Gallerí Símón, Laugavegi 72,
s. 534-6468.
Þjónusta
GULL-GULLSKARTGRIPIR
Kaupum til bræðslu allar tegundir
gullskartgripa, gamla, nýlega, ónýta,
gegn staðgreiðslu. demantar.is
Magnús Steinþórsson,
Pósthússtræti 13, sími: 699-8000.
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari getur bætt við sig
verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
✝ Harry Sønd-erskov fæddist í
Kastrup í Danmörku
17. desember 1927.
Hann lést á Sólvangi í
Hafnarfirði 27. mars
sl. Foreldrar hans
voru Aage Sønd-
erskov og Johanne
Mette Erna And-
ersen. Systkini hans
voru Tove, Inger,
Birthe og Werner tví-
burabróðir hans. Þau
eru nú öll látin.
Harry kvæntist 28.
október 1950 Guðbjörgu Guð-
mundsdóttur hárgreiðsludömu, f.
2.5. 1927, d. 13.4. 1975. Seinni kona
Harrys var Guðrún Þór. Sonur
hennar er Arnaldur. Harry og Guð-
rún skildu 1988. Synir Harrys og
Guðbjargar eru 1) Gunnar, f. 22.8.
1950,
kvæntur Ósk G. Hilmarsdóttur, f.
1951. Börn þeirra eru Bjarki Már, f.
1978, unnusta Ólöf Karen Sveins-
dóttir. Dóttir Óskar og Kristjáns
Friðþjófssonar, f. 1951, er Sigríður
Linda Kristjánsdóttir, f. 1968, maki
Sveinn Snorri Sighvatsson, f. 1971.
Synir Sigríðar Lindu eru Dagur
mörku 1948. Harry hitti Guggu,
stóru ástina í lífi sínu, 1949, þegar
hún kom til Danmerkur að kynna
sér nýjustu tískustraumana í hár-
greiðslu ásamt vinkonum sínum.
Þau hófu fljótlega búskap í Dan-
mörku. Þótt lífið væri ágætt í
Danaríki var heimþrá Guggu sterk
og eftir átta ára búskap þar fluttu
þau til Íslands. Harry starfaði fyrst
eftir komuna til Íslands hjá Alex-
ander Guðjónssyni, móðurbróður
Guggu. Fljótlega stofnaði hann
eigin smiðju sem sérhæfði sig í
handriðasmíði og þótti dverg-
hagur. Víða standa verk Harrys
enn við tröppur og svalir húsa og
sérsmíði á ýmsum skúlptúrum, ar-
ingrindur og fleiri slík verk eru
ekkert annað en listaverk. Árið
1969 fór Harry að vinna í Dan-
mörku vegna atvinnuleysis á Ís-
landi og var þar í tæpt ár. Vann síð-
an hjá Rafha, Gunnari Ásgeirssyni,
Ísal í Straumsvík, Ofnasmiðjunni í
Hafnarfirði og síðustu árin hjá
Marel. Segja má að Harry hafi ver-
ið nokkuð áberandi í hafnfirsku
samfélagi enda virkur félagi í
Lionshreyfingunni og Frímúr-
arareglunni um nokkurt skeið og
ávallt ófeiminn við að taka til máls.
Útför Harrys fer fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju í dag, 3. apríl, kl.
15.
Meira: mbl.is/minningar
Snær Sævarsson, f.
1986, Daníel Freyr
Sævarsson, f. 1993, og
Arnar Helgi Sveins-
son, f. 2004. 2) Helgi,
f. 25.6. 1955. Fyrrver-
andi eiginkona hans
er Þóra Kolbrún Sig-
urðardóttir, f. 1954.
Börn þeirra eru a)
Ástþór, f. 1976, sam-
býliskona Hildur Er-
lingsdóttir, sonur
hennar er Adam
Freyr Víðisson, f.
2003. b)Guðbjörg, f.
1980, sambýlismaður Viðar Ottó
Brink. Börn þeirra eru Erika Brink,
f. 2002, og Emilia Brink, f. 2008. c)
Árný, f. 1982, sambýlismaður henn-
ar er Stefán Jarl Martin. Börn
þeirra eru Monika Rós Martin, f.
2004, og Mikael Jarl Martin, f. 2008.
Dóttir Helga og Ásu Oddsdóttur, f.
1956, er d) Diana Alma, f. 1997.
Dóttir Helga og Írisar Högnadótt-
ur, f. 1961, er e) Vera, f. 1999. Sam-
býliskona Helga er Guðbjörg Há-
konardóttir. Börn hennar eru Íris
Arnlaugsdóttir, f. 1976, og Jón Orri
Sigurðarson, f. 1985.
Harry lærði járnsmíði í Dan-
Elsku Harry afi minn.
Ég kveð þig með söknuð í hjarta.
Ég er sannfærð um að nú sért þú
kominn á góðan stað með ömmu
Guggu þér við hlið.
Ég fann alltaf hvað þér þótti
vænt um mig, elsku afi minn.
Ég gleymi ekki fermingargjöfinni
frá þér, þú varst búinn að útbúa
risastórt plakat með stækkaðri
mynd af mér, á myndinni hélt ég á
veiðistöng og útfrá veiðistönginni
varstu búinn að útbúa blöðrur sem í
voru þúsundkallar.
Þú varst búinn að raða þúsund-
köllunum inní blöðrurnar þannig að
útkoman var eins og þetta væru
nokkrar trilljónir.
Svona varst þú, hugmyndaríkur
og persónulegur.
Mér þykir óendanlega vænt um
þig, elsku afi minn, ég sé þig
seinna.
Þín afastelpa, Gugga,
Guðbjörg Helgadóttir.
Ég var ekki há í loftinu þegar ég
samdi við Harry um það að hann
mætti eiga annan litlafingurinn
minn. Hann hafði í góðlátlegu gríni
falast eftir því að fá að eiga mig. Ég
var ekki alveg á því en fannst þessi
samningur ágætur.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá sem krakki að eyða mörgum
stundum hjá Harry og Guggu móð-
ursystur minni á Erluhrauni 5. Það-
an á ég margar og ljúfar minningar.
Heimili þeirra var nokkurs konar
miðstöð fjölskyldunnar þar sem hún
kom saman við hin ýmsu tilefni. Jól,
áramót, páskar og aðrir tyllidagar
þar sem fjölskyldan kom saman eru
sveipuð einhverjum ljóma í huga
mínum. Það var alltaf svo notalegt
hjá Harry og Guggu. Harry var
glettinn og stríðinn, með húmorinn
á sínum stað og danski hreimurinn
hans og dönskusletturnar gerðu
hann enn skemmtilegri.
Heimili þeirra var mér alltaf opið
og sótti ég mikið til þeirra enda
margt spennandi fyrir litla stelpu.
Þær voru ófáar mínúturnar sem ég
eyddi við það að horfa á Guggu
vinna á hárgreiðslustofunni sem
hún rak í forstofuherberginu og
fékk ég stundum að hjálpa til.
Skjaldbakan Rasmus og hin dýrin á
heimilinu voru líka aðdráttarafl en
Harry og Gugga voru ekki einungis
barngóð heldur bæði miklir dýra-
vinir.
Harry var mikill sælkeri og var
ilmurinn í eldhúsinu hjá þeim öðru-
vísi en annars staðar. Hann bar
keim af danskri matarhefð og var
Harry áhugasamur og góður kokk-
ur. Harry var einnig mikill lista-
maður, bæði í járnsmíðinni sem
hann lærði sem og í myndlistinni.
Ljósmyndun og stangaveiði voru
einnig hans áhugamál og voru fjöl-
skylduveiðiferðirnar alltaf tilhlökk-
unarefni hjá okkur krökkunum.
Það var Harry og sonum hans
Gunnari og Helga sem og fjölskyld-
unni allri mikið áfall þegar Gugga
féll frá, langt um aldur fram. Þetta
fannst mér 10 ára stelpunni erfitt
að sætta mig við. Gugga hafði verið
svo stór hluti í lífi okkar allra og við
fráfall hennar breyttist svo margt.
Lífið hélt áfram og Harry eign-
aðist nýtt líf en hélt áfram góðu
sambandi við tengdafjölskyldu sína,
þó í eitthvað minna mæli eins og
gefur að skilja.
Leiðir okkar Harrys lágu svo í
auknum mæli saman þegar Harry
lagðist inn á Sólvang eftir heilablóð-
fall sumarið 2000. Í byrjun átti
hann erfitt með að sætta sig við að-
stæðurnar en var fljótur að aðlag-
ast. Hann var duglegur að taka þátt
í þeirri virkni sem var í boði á með-
an heilsan leyfði. Starfandi á Sól-
vangi gat ég átt þátt í því að létta
honum lífið og tilveruna og er ég
mjög þakklát fyrir það. Harry var
ótrúlega æðrulaus og þakklátur í
veikindum sínum. Nú hefur hann
fengið langþráða hvíldina.
Gunnari, Helga og fjölskyldum
sendi ég mína innilegustu samúðar-
kveðju.
Hann Harry minn átti ekki bara
annan litla fingurinn minn, heldur
líka stóran hluta af hjarta mínu þar
sem ég geymi ljúfar minningar um
góðan vin.
Dagbjört Baldursdóttir.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Elskulegur Harry er fallinn frá.
Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sól-
vangi í Hafnarfirði eftir áralanga
dvöl þar sökum alvarlegs heilablóð-
falls. Harry var kvæntur móður-
systur minni, Guðbjörgu, eða
Guggu eins og hún var ávallt kölluð,
en hún lést því miður langt um ald-
ur fram og varð öllum harmdauði.
Harry hafði þráð að fá hvíldina um
langt skeið og hvílir hann nú loks í
faðmi Guggu sinnar eftir langan að-
skilnað. Þau voru einstök hjónin,
hjartahlý og gestrisin, og var eft-
irsóknarvert að vera í návist þeirra.
Hlýlega heimilið þeirra í Erlu-
hrauni 5 í Hafnarfirði, sem þau
byggðu, stóð mér og fjölskyldu
minni ævinlega opið. Mér er sér-
staklega minnisstætt hversu mjög
þau unnu dætrum mínum tveimur,
Hildi Björk og Ágústu Ernu, sem
fengu oft að gista. Þessum ynd-
islegu hjónum verður seint þakkað
fyrir allan þann góðvilja, sem þau
sýndu í okkar garð. Harry var ein-
staklega aðlaðandi og heillandi
maður. Geðgóður, geðþekkur, glað-
lyndur, skemmtilegur og bráðfynd-
inn með sinn danska hreim og vit-
lausu beygingar, hrókur alls
fagnaðar. Hann var listamaður út í
fingurgóma, hamraði járn fagur-
lega, teiknaði og málaði listilega vel.
Það var alveg sama hvað hann tók
sér fyrir hendur, honum var eðl-
islægt að skapa listaverk úr öllu.
Harry var frábær veiðifélagi og
snjall fluguveiðimaður. Þær eru
margar ógleymanlegar lax- og sil-
ungsveiðiferðirnar með honum og
gömlu veiðifélögunum, sem allir eru
nú horfnir yfir móðuna miklu og
veiða nú saman í fiskfullum ám og
vötnum. Elsku Harry, takk fyrir
allar samverustundirnar og hlýhug í
gegnum tíðina. Hvíl þú í friði.
Kæru frændur, Gunnar og Helgi,
og fjölskyldur. Megi góður guð
styrkja ykkur í sorg ykkar. Minn-
ingin um góðan dreng mun ætíð
lifa.
Hilmar Ragnarsson.
Harry Sønderskov
Fleiri minningargreinar um Harry
Sønderskov bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Hólmfríður
Jóhanna
Jóhannesdóttir
✝ Hólmfríður Jó-hanna Jóhann-
esdóttir fæddist á
Þorleifsstöðum í
Skagafirði 9. júlí
1918. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 6. janúar
síðastliðinn og var jarðsungin frá Mikla-
bæjarkirkju 17. janúar.
Meira: mbl.is/minningar
Kristín
Pétursdóttir
✝ Kristín Péturs-dóttir fæddist í
Syðri-Hraundal í
Álftaneshreppi í
Mýrasýslu 31. maí
1921. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Grund laugardaginn
21. mars sl.
Kristín var jarðsungin frá Árbæj-
arkirkju í Reykjavík 31. mars sl.
Meira: mbl.is/minningar