Morgunblaðið - 03.04.2009, Page 35
Menning 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009
www.forlagid.is
TÍMAMÓTAVERK
SVO MIKLU MEIRA EN HEFÐBUNDIN ORÐABÓK
Bókin gerir rækilega
grein fyrir notkun
orða og orðasambanda
í margvíslegu
samhengi og birtir
um leið skýra
mynd af íslenskum
orðaforða.
Yfirgripsmikið verk sem veitir
einstaka leiðsögn um orðaval
í ræðu og riti.
Rafræn útgáfa á geisladiski
fylgir bókinni og veitir margvíslega
leitarmöguleika og nýja innsýn
í efnið.
Gó oG GaGnleG
ferminGarGjöf
UNDANFARIN ár hefur Bandalag
þýðenda og túlka veitt verðlaun
fyrir bestu þýðinguna, en verð-
launin eru veitt í samvinnu við Rit-
höfundasamband Íslands. Að þessu
sinni eru sex þýðendur tilnefndir
til verðlaunanna, en þau verða af-
hent af forseta Íslands á Gljúfra-
steini 23. apríl næstkomandi.
Þetta er í fimmta sinn sem Ís-
lensku þýðingaverðlaunin verða
veitt, en eftirfarandi eru til-
nefndir:
Árni Óskarsson er tilnefndur
fyrir þýðingu sína á skáldsögunni
Nafn mitt er rauður eftir Orhan
Pamuk.
Erla Erlendsdóttir og Kristín
Guðrún Jónsdóttir eru tilnefndar
fyrir Svo fagurgrænar og frjósam-
ar, smásögur frá Kúbu, Púertó
Ríkó og Dóminíska lýðveldinu.
Guðrún Vilmundardóttir er til-
nefnd fyrir skáldsöguna Í þokunni
eftir Philippe Claudel.
Hjörleifur Sveinbjörnsson er til-
nefndur fyrir bókina Apakóngur á
silkiveginum, sýnisbók kínverskrar
frásagnarlistar frá fyrri öldum.
Sölvi Björn Sigurðsson er til-
nefndur fyrir ljóðabókina Árstíð í
helvíti eftir Arthur Rimbaud.
Í dómnefnd þýðingaverð-
launanna sitja Soffía Auður Birg-
isdóttir, Sigríður Harðardóttir og
Marta Guðrún Jóhannesdóttir.
Tilnefndur Rokkarinn Rimbaud og bók hans Une saison en enfer eða Árstíð
í helvíti er í potti tilnefninga til þýðingaverðlauna sem afhenda á 23. apríl.
Sex tilnefnd til
þýðingaverðlauna
Fáðu úrslitin
send í símann þinn