Morgunblaðið - 03.04.2009, Blaðsíða 38
TÓNLIST hefur verið dreift á ýmsan
hátt í gegnum árin, uppskrifaðar nót-
ur, 8 mm segulbönd, kassettur og svo
má telja, en straumhvörf urðu í þeim
efnum þegar stafræn tækni kom til
sögunnar og síðar netið. Útgefendur
hafa gripið til ýmissa ráða til að
stemma stigu við slíkri dreifingu en
ekki haft erindi sem erfiði.
Nokkur fyrirtæki urðu til í kring-
um svokallaða jafningjanetdreif-
ingu, Peer to Peer eða P2P, til að
mynda Napster, Audiogalaxy og
fleiri. Útgáfur hafa hamast að slíkri
starfsemi með þeim árangri að hún
hefur tekið stakkaskiptum og jafnvel
lagst af að miklu leyti, en tæknin
tengd henni orðið útbreidd í kjölfarið.
Sjá líka Morpheus, Kazaa, Grokster
o.fl.
Torrent-dreifing var um tíma ein
algengasta leið til að dreifa tónlist en
þar eru kvikmyndir í aðalhlutverki
sem stendur. Torrent-leit að til að
mynda Bubba Morthens hjá sænsku
torrentþjónustunni umdeildu Pirate-
bay skilaði fjórum niðurstöðum, einni
þar sem lag með Bubba var innan um
önnur jólalög og þremur þar sem
finna mátti flestar plötur hans.
Töluvert er um að tónlist sé dreift
á bloggsíðum sem margar eru bein-
línis settar upp til þess arna. Þar er
mikið um tónlist sem ekki er fáanleg
á annan hátt (plötur ekki til lengur og
hafa jafnvel aldrei komið út á geisla-
disk), en einnig keppast bloggarar
um að vera fyrstir með nýjar plötur.
Víða eru spjallborð með þráðum
þar sem menn skiptast á plötum, til
að mynda var einn slíkur geysilangur
og mikill á vefsvæði Radiohead sem
var lokað um síðir.
Til eru póstlistar þar sem menn
skiptast á tenglum á plötur sem þeir
hafa rekist á eða sett sjálfir inn. Að-
gangur að þeim listum byggist yf-
irleitt á kunningjatengslum.
Ýmis sjóræningjafyrirtæki hafa
sprottið upp sem selt hafa niðurhal á
plötum á 1-2 dali í fullkominni óþökk
útgefenda og höfundarréttarhafa.
Þau eru flest rússnesk og byggja á
gloppum í höfundarréttarvernd þar í
landi. Um tíma var ein slík „vefversl-
un“, allofmp3.com, mest sótta vefsíða
Bretlands, en hún hefur nú hætt
starfsemi og aðrar komið í staðinn;
Soundike.com, Iomoio.com, mu-
sicmp3.com og svo mætti lengi telja.
Hvert lag kostar allt niður í 10 kr.
Ýmsar dreifingarleiðir
P2P
Einkennis-
mynd Peer
to Peer.
38 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009
ræða á spjallborðum víða um heim.
Spjallþræðir með slíku efni eru legíó.
Dæmi um hugsanlega notkun á
slíku er hópur áhugamanna um tónlist
sem kemur sér upp póstlista þar sem
félagar hans skiptast á skeytum með
slóðum á nýjar plötur og illt að koma í
veg fyrir það nema með því að fylgjast
með allri netnotkun viðkomandi og
einnig að meta hvort það sem sótt er
sé ólöglegt eða ekki, þ.e. hvort við-
komandi sé kannski að sækja tónlist
með vitund og vilja höfundarrétt-
arhafa, jafnvel eigin tónlist. Gleymum
því ekki að á netinu eru líka til tug-
milljónir laga sem öllum er heimilt að
FRÉTTASKÝRING
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Í UMRÆÐUM um ólöglega dreif-
ingu á tónlist og öðru höfundarrétt-
arvörðu efni hefur heyrst sú krafa að
komið verði í veg fyrir þessa iðju. Án
þess að mat sé lagt á hvort og þá hve
mikið ólögmæt dreifing á tónlist
dregur úr sölu er rétt að velta því að-
eins fyrir sér hvaða leiðir séu færar til
að stemma stigu við dreifingunni og
þá hvort það sé yfirleitt hægt.
Löglegt niðurhal
Ólíkt því sem gerist til að mynda
vestan hafs þá er ekki ólöglegt að
hlaða tónlist eða kvikmyndum af net-
inu, en hins vegar skýlaust höfund-
arréttarbrot að dreifa slíku efni á net-
inu eins og kemur meðal annars fram
í nýlegum dómi Héraðsdóms í máli
samtaka höfundarréttarhafa gegn
vefsvæðinu Istorrent og forsprökkum
þess.
Í því máli var tekist á um dreifingu
á tónlist með torrent-tækni, en eins
og kemur fram í dómnum þótti ekki
rétt að banna rekstur vefsvæðisins
sem slíks því hægt er að nota það til
löglegra skráarskipta. Það er til-
tölulega einfalt fyrir netþjónustu að
loka fyrir torrent-notkun við-
skiptavina sinna og heimildir eru fyrir
því að það hafi verið gert í einhverjum
tilfellum eða þá að hægt hafi verið á
torrent-notkun. Í ljósi dómsins er það
þó vafasöm aðgerð nema notendum sé
fullkunnugt um það og gera má því
skóna að ef netþjónusta lýsir því yfir
að hún muni takmarka torrent-
notkun eða loka fyrir hana myndu við-
skiptavinir hennar streyma til ann-
arra fyrirtækja.
Alþingi gæti gripið inn í með laga-
setningu, til að mynda með því að
setja slíkar skorður við torrent-
notkun að illt yrði eða ómögulegt að
nýta hana. Einnig væri hugsanlegt að
banna niðurhal á höfundarrétt-
arvörðu efni, en ólíklegt að slíkt
myndi ná fram að ganga að óbreyttu,
aukinheldur sem slík lög hafa ekki
borið árangur vestanhafs og litlar lík-
ur á að þau myndu skila meiru hér á
landi.
Erfitt að framfylgja banni
Helsti Þrándur í Götu lagasetn-
ingar er að erfitt eða ómögulegt er
fyrir yfirvöld að framfylgja slíku
banni. Vissulega er hægt að takmarka
torrent-dreifingu eins og getið er, en
það eru ótal fleiri leiðir til að dreifa
tónlist, nefni sem dæmi útbreidda
notkun skráarmiðlara (Rapidshare,
Megashares, Badongo, Megaupload
o.fl.) er þar vista menn tónlist sem
þeir síðan vísa á á bloggsíðum eða
sækja og spila að vild og fjölgar ört.
Í frétt hér í blaðinu fyrir stuttu kom
fram að STEF, samtök höfundarrétt-
arhafa í tónlist, væru með í bígerð við-
ræður við net- og símafyrirtæki um
hugsanlegar greiðslur fyrir afnot af
tónlist, en þau hafa hagnast óbeint á
ólögmætri dreifingu á höfundarrétt-
arvörðu efni. Hugsanlega takast
samningar um að þessi fyrirtæki
greiði STEFi fyrir niðurhal notenda
sinna á tónlist, en þá vaknar spurn-
ingin hversu oft menn eiga að greiða
fyrir þann rétt að fá að afrita tónlist
því þeir borga nú þegar til höfund-
arréttarhafa samkvæmt reglugerð
menntamálaráðuneytisins 125/2001:
fyrir tölvuna (1% af verði tölvu með
geislabrennara), fyrir diskinn sem
þeir brenna tónlistina á (35 kr. á hvert
eintak) og spilastokkinn sem þeir nota
til að hlusta (4% af verði).
Í slíkri lausn felt líka ákveðin þver-
sögn; óheimilt er að dreifa tónlist en
menn greiða fyrir leyfi til að hala
henni niður. Er það ekki álíka og það
að greitt sé fyrir leyfi til að gera afrit
(gjald á geisladiska) en síðan koma
fyrirtæki í veg fyrir að hægt sé að
taka afrit (læsing á diskum, sbr. ný út-
gáfa á Dagvaktinni). Varla er hægt að
kalla það annað en svínslega hegðun.
Fram og aftur blindgötuna
Er yfirleitt hægt að koma í veg fyrir
ólöglega dreifingu efnis á netinu?
Morgunblaðið/ÞÖK
Eggið og hænan Löglegt er að hlaða tónlist eða kvikmyndum af netinu, en
hins vegar skýlaust höfundarréttarbrot að dreifa slíku efni á netinu.
Upp og niður
Þótt ólöglegri dreifingu á tónlist hafi verið
kennt um samdrátt í plötusölu þá er erfitt að
finna þeim orðum stað þegar litið er til sölu á
íslenskum plötum, enda jókst hún um 70% frá
2001 til 2006; 312.010 eintök seldust 2001 en
534.054 2006.
2007 varð svo snarpur samdráttur í sölu.
Tölur frá 2008 liggja ekki fyrir en samkvæmt
samtölum við útgefendur er salan með svipuðu
móti og 2007.
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007
31
2.
01
0
35
0.
14
0
38
9.
58
0
41
5.
09
3
44
4.
42
4
53
4.
05
4
40
2.
52
7
SELD EINTÖK
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Þorvaldur Skúlason
Jóhannes S. Kjarval
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
fer fram mánudaginn 6. apríl, kl. 18.15
í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
Verkin verða sýnd:
föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17
sunnudag kl.12–17, mánudag kl. 10–17
Einnig er hægt að skoða uppboðsskrána á www.myndlist.is
Fy
lg
ih
lu
tir
C O N C E P T S T O R E
Laugavegi 7 • 101 Reykjavík
Sími 561 6262 • www.kisan.is
Sonia Rykiel, Isabel Marant, Jamin Puech,
Girl and the Gorilla, Antipast, Polder ...