Morgunblaðið - 16.04.2009, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 6. A P R Í L 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
101. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«ÓFULLGERÐRI X-MEN MYND LEKIÐ
LEKINN ÚR BÚÐUM
KVIKMYNDAVERSINS
«HK OG VALUR MÆTAST Í KVÖLD
ALLT ÚTLIT FYRIR
SKEMMTILEGA RIMMU
Hægt væri að greiða upp allar
skuldir Landsvirkjunar á 16 árum,
að sögn Stefáns Svavarssonar. Seg-
ir hann að rekstrarhagnaður standi
vel undir vaxtagjöldum.
VIÐSKIPTI
Stendur ekki á
brauðfótum
Enduruppbygging bankakerfisins
kallar á að grundvallarforsendur
séu endurskoðaðar, að mati bresks
prófessors. Telur hann t.d. að krón-
an þurfi hrávörufót.
Frjálst bankakerfi
á Íslandi
MP banki mun hleypa af stokk-
unum heimabanka í dag eða á
morgun. Þar með mun bankinn
hefja að fullu innreið sína á við-
skiptabankamarkaðinn.
MP banki opnar
netbanka
LÓUR, boðberar vorsins, eru farnar að sjást
hér á landi og þegar myndin var tekin mátti
sjá þær fljúga yfir Álftanesi.
Þær hafa lagt að baki langt flug frá megin-
landi V-Evrópu og munu fyrst um sinn dvelj-
ast meðfram ströndum en því næst leita að
varpstöðum í heiðum, móum eða mýrum, en
lóur verpa upp úr miðjum maí. Landsmenn
ættu að njóta nærveru og söngs lóunnar til
hins ýtrasta meðan færi gefst en þegar haust-
ar flýgur hún með ungana sína aftur suður til
vetrardvalar.
Morgunblaðið/Ómar
Lóurnar komnar að kveða burt snjóinn
RÚMLEGA 500 börn hér á landi eiga foreldra sem
báðir hafa misst vinnuna, samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumálastofnun.
Um mánaðamótin febrúar-mars voru 425 pör á at-
vinnuleysisskrá og voru um 300 þeirra para með börn
á framfæri. Að sögn Salbjargar Bjarnadóttur, verkefn-
isstjóra hjá Landlæknisembættinu, reynist það börnum
almennt erfiðara hafi báðir foreldrar, frekar en annar,
misst vinnuna. Það fari vissulega eftir viðbrögðum for-
eldranna hvernig börn bregðast við aðstæðum.
„Börn eru mjög næm á líðan foreldra sinna,“ segir
Salbjörg, og bætir við að með atvinnuleysi aukist
hætta á pirringi og deilum milli hjóna. Það geti fram-
kallað kvíða, depurð og þunglyndi hjá hinum fullorðnu.
„Þetta hefur áhrif á það hvernig börnin bregðast við,“
segir Salbjörg.
Hún segir sum börn verða leið og döpur og draga
sig í hlé, önnur geti orðið uppivöðslusöm og erfið í um-
gengni. Þau líti ef til vill svo á að betra sé að þau séu
skömmuð en foreldrarnir deili sín á milli. Einnig verði
sum börn ofurábyrg og þeim geti hætt til að einangr-
ast félagslega. annaei@mbl.is
Atvinnuleysið hefur áhrif á börn
Næm á líðan | 6
Allt að 100 lántakendur hjá
gömlu bönkunum hafa beðið lög-
mannsstofuna Lögmenn Laugardal
um að reka dómsmál þar sem þeir
telja forsendur lána sinna hjá bönk-
unum brostnar. Einnig er til skoð-
unar að stefna fyrrum lykilstjórn-
endum bankanna og einhverjum
eigenda þeirra, sem og stjórnvöld-
um. Þá er til skoðunar að stefna
fjármögnunarfyrirtækjum vegna
bílalánanna. »8
Um hundrað manns vilja í
mál gegn bönkunum
Fjórir stjórnmálaflokkar af fimm
hafa svarað spurningum Morgun-
blaðsins um hvernig þeir stóðu að
söfnun styrkja frá fyrirtækjum árið
2006. Aðeins Sjálfstæðisflokkurinn
á eftir að svara en Íslandshreyf-
ingin var ekki spurð þar sem hún
náði ekki manni á þing árið eftir.
Meðal þess sem fram kemur í svör-
unum er að kjörnir fulltrúar Sam-
fylkingarinnar tóku þátt í söfnun
styrkja þetta ár. »14
Flokkarnir svara til um fjár-
söfnun og styrki árið 2006
Í framhaldi af ummælum Katrínar
Jakobsdóttur, oddvita VG í Reykja-
vík norður, um að frekar eigi að
lækka laun en fækka störfum hjá
hinu opinbera, hafa formenn BHM
og BSRB bent á að opinberir starfs-
menn hafi nú þegar tekið á sig
kjaraskerðingu. Miðstjórn BHM er
ósátt við yfirlýsingar um yfirvofandi
kjaraskerðingu og gaf út yfirlýsingu
í gær vegna umræðu um launalækk-
un og skattahækkun. »2 og 8
Segja kjör opinberra starfs-
manna þegar hafa skerst
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÖGMUNDUR Jónasson heilbrigð-
isráðherra var gagnrýndur á ráð-
stefnu Samtaka fyrirtækja í heil-
brigðisþjónustu í gær er hann
ræddi þar hugmyndir um svonefnt
ávísanakerfi sem hann taldi vara-
samt. „Ef peningarnir fylgja sjúk-
lingi er sú hætta fyrir hendi að
fjárvana stofnun reyni að finna
eitthvað að fólki sem í reynd er
heilt heilsu. En ég tek fram að ég
hef mikla trú á heilbrigðisstarfs-
fólki og þar með læknum og vil
ræða við þá sem heilbrigðisstarfs-
menn, ekki sem bisnessfyrirtæki,“
segir Ögmundur við Morgunblaðið.
Oflækningar þekktar
„Hann sagði hluti um lækna og
hvernig þeir gætu farið að vinna ef
gerðar yrðu ákveðnar kerfisbreyt-
ingar, sem mér fannst ósmekk-
legir,“ sagði Birna Jónsdóttir, for-
maður Læknafélags Íslands. „Ef
búið væri til kerfi sem væri þannig
að peningar fylgdu sjúklingnum til
ákveðinna verka, og sjúklingurinn
kæmi til að hitta lækni til að fá
verkið framkvæmt, væri hætta á
að læknirinn myndi gera það sem
til væri ætlast með peninga-
framlaginu þó að hann fyndi ekk-
ert að sjúklingnum.“
Birna var spurð um hættuna á
oflækningum sem rætt er um er-
lendis. „Það er vel þekkt að til er
menningarlegt fyrirbæri sem kall-
að er oflækningar. Í Bandaríkj-
unum er t.d. mikið um að fjarlægt
sé leg úr konum sem hafa náð
ákveðnum aldri en ekki þætti
ástæða til slíkrar aðgerðar í öðrum
löndum.
Ég skildi þetta svo að ráð-
herrann ætti við að trygginga-
kerfið úthlutaði peningunum en
síðan sæi sjúklingurinn um að
finna lækninn. Það særði siðferð-
iskennd mína að hann skyldi setja
þetta svona upp, að læknar geri
óþarfa aðgerðir á fólki,“ sagði
Birna.
Heilbrigðisráðherra var spurður
um þessa gagnrýni og svaraði að
öll kerfi gætu snúist upp í and-
hverfu sína og ýtt undir oflækn-
ingar. „Við verðum að gæta þess
að byggja ekki inn hvata í kerfin
sem við síðan ráðum ekki við,“
sagði Ögmundur.
Segir ávísanakerfi ýta
undir oflækningar
Formaður Læknafélagsins telur ummæli ráðherra ósmekkleg
Ögmundur
Jónasson
Birna
Jónsdóttir