Morgunblaðið - 16.04.2009, Side 18
VEIRAN, sem veldur fuglaflensu,
virðist hafa breyst og þau tilfelli,
sem komið hafa upp í mönnum að
undanförnu, eru ekki jafnbanvæn og
áður. Þetta er þó lítil huggun harmi
gegn því að vísindamenn segja, að
einmitt þessi þróun geti hjálpað veir-
unni við að verða að hættulegum
heimsfaraldri.
Þessara breytinga á veirunni hef-
ur orðið vart í Egyptalandi en þar
hafa fuglaflensutilfelli í mönnum
verið flest utan Asíulanda. Hefur til-
fellunum verið að fjölga þar á þessu
ári, voru þrjú aðeins í síðustu viku,
en næstum öll verið í börnum undir
þriggja ára aldri. Fyrir ári voru þau
flest í fullorðnu fólki og stálpuðum
börnum. Yfirleitt varð veiran helm-
ingi sjúklinga að bana en enginn
þeirra 11 Egypta, sem veikst hafa á
þessu ári, hefur látist.
Vísindamenn segja, að einmitt það
hvað veiran var skæð hafi dregið úr
líkum á faraldri. Margir þeirra, sem
sýktust, hafi látist á skömmum tíma
og veiran því ekki fengið tíma til að
þróast og breytast og smita aðra.
„Það er eitthvað undarlegt á seyði
í Egyptaland. Hvers vegna eru ung
börn að veikjast en ekki fullorðnir?“
sagði John Jabbour, starfsmaður
WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar, í Kaíró í síðustu viku. Undir
þetta hafa ýmsir aðrir sérfræðingar
tekið. svs@mbl.is
Meiri ótti við
fuglaflensuna
Veiran virðist ekki vera jafnbanvæn og
fyrr en það þykir auka líkur á faraldri
Smitleiðir Sala á fugli er mjög líf-
leg á mörkuðum í Egyptalandi.
RÍKISSJÓNVARPIÐ í Suður-
Afríku hefur nú hætt við heimilda-
þátt um pólitískt háð í landinu en
fyrir tveim mánuðum var stöðvaður
vinsæll brúðumyndaþáttur, Z-
fréttir. Þingkosningar verða 22. apr-
íl en leiðtogi stjórnarflokksins ANC,
Jacob Zuma, hefur verið vinsæll
skotspónn háðfugla. Á höfði brúð-
unnar sem sýndi Zuma var ávallt
sturtuhaus. Var þannig minnt á al-
ræmt svar Zuma er hann sagðist
hafa farið í sturtu eftir að hafa átt
kynmök við HIV-smitaða konu.
Zuma taldi sig draga með því úr
hættunni á að smitast sjálfur.
Talsmaður ríkissjónvarpsins, sem
stýrt er af ANC, segir að landsmenn
séu ekki reiðubúnir fyrir pólitíska
háðsádeilu. En ekki eru allir sam-
mála því.
„Suður-Afríkumenn eru svo sann-
arlega reiðubúnir fyrir háðsádeilu,
en ég er ekki viss um að ríkissjón-
varpið sé það,“ sagði uppistandarinn
Justin Nurse í Höfðaborg. Fyrir-
tæki hans, Hlæðu bara að því, hefur
m.a. markaðssett nýja sápu, Zuma-
sturtugelið. En tekið er fram að ekki
sé hægt að þvo burt HIV og alnæmi
með gelinu. kjon@mbl.is
Háðsádeila
er mikið
alvörumál
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2009
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
LÍKLEGT þykir, að málefni Kúbu
verði ofarlega á baugi á fundi 34 leið-
toga Ameríkuríkja á Trinidad og To-
bago, sem hefst á morgun, þótt Kúbu-
stjórn muni ekki eiga þar neinn
fulltrúa. Mörg ríkjanna krefjast þess,
að Kúba fái fulla aðild að Samtökum
Ameríkuríkja, OAS, en viðskipta-
bannið, sem Bandaríkjamenn settu á
landið, hefur nú bráðum varað í hálfa
öld. Hafi það átt að grafa undan
stjórn kommúnista, hefur það mistek-
ist. Þeir hafa notað bannið sem afsök-
un fyrir einræði og ófremdarástandi í
efnahagsmálunum.
Vonir eru bundnar við, að Barack
Obama Bandaríkjaforseti muni taka
Kúbumálið nýjum tökum og það hef-
ur hann þegar gert með því að afnema
takmarkanir á ferðum Bandaríkja-
manna af kúbverskum ættum til
Kúbu og á peningasendingum til ætt-
ingja þeirra þar. Þá hefur bandarísk-
um fjarskiptafyrirtækjum verið leyft
að starfa á Kúbu.
Kyrrstaðan hefur verið rofin
Hér er kannski ekki um stórt skref
að ræða en sérfræðingar eru sam-
mála um, að mikilvægast við það sé að
kyrrstaðan hafi verið rofin. Nú skipti
mestu hvert framhaldið verði.
Stjórnvöld í Washington og í Hav-
ana eru mjög orðvör um hugsanlegar
breytingar á samskiptunum en í yf-
irlýsingu frá Fidel Castro, fyrrver-
andi Kúbuforseta, sagði, að Kúbverj-
ar vildu ekki „ölmusu“, heldur afnám
viðskiptabannsins. Það vakti hins
vegar athygli að hann efaðist ekki um
„einlægan vilja“ forsetans til að
breyta stefnunni. Hugsanleg næstu
skref gætu verið aukin samskipti á
sviði vísinda, menningar og íþrótta og
ekki síst, að Bandaríkin hætti að
hindra samskipti OAS og Ameríska
þróunarbankans við Kúbu.
Obama setur nýjan
kúrs í Kúbumálum
Tilslakanir hans kunna að vera fyrirboði meiri breytinga
Í HNOTSKURN
» Viðskiptabann Bandaríkj-anna á Kúbu var sett 1962 og
hefur varað í 47 ár.
» Margir telja, að líklegastaleiðin til að breyta stjórn-
arfari á Kúbu sé að taka upp eðli-
leg samskipti við landið á sem
flestum sviðum.
ÓEIRÐUNUM í Bangkok virðist nú vera lokið og var
þar fagnað taílenska nýárinu í gær með vatnsskvettum
að gömlum sið. Tveir munu hafa látið lífið og meira en
100 særst í átökunum milli stjórnarhermanna og
stjórnarandstæðinga sem kröfðust afsagnar Abhisits
Vejjajivas forsætisráðherra.
Átökum lokið í Bangkok
AP