Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 20
20 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009
Komin
í kilju
Yfir
20 milljón
eintök
seld
TIL átaka kom milli lögreglu og mótmælenda sem tóku þátt í kröfugöng-
um í Þýskalandi, Tyrklandi og Grikklandi í tilefni af baráttudegi verka-
lýðsins í gær. Lögreglan í Berlín handtók um 49 ungmenni, sem köstuðu
flöskum og grjóti á lögreglumenn og kveiktu í bílum og öskutunnum.
Óeirðir blossuðu einnig upp meðal mótmælenda í Aþenu, Istanbúl og Ank-
ara. Kröfugöngurnar fóru þó yfirleitt friðsamlega fram annars staðar í
heiminum. Mótmælendur beita hér teygjubyssum gegn lögreglu í Istanbúl.
Reuters
Átök á degi verkalýðs
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
STJÓRNVÖLD í Mexíkó sögðu í
gær að svínaflensan, eða a-flensa
(H1N1), væri ekki eins skæð og
óttast var í fyrstu. Staðfest hefur
verið að í Mexíkó hafi fimmtán
manns dáið af völdum veirunnar og
328 til viðbótar smitast.
„Sem betur fer er veiran ekki
svo skæð – þetta er ekki eins og
fuglaflensan sem dró næstum 70%
þeirra sem smituðust til dauða,“
sagði Jose Angel Cordova, heil-
brigðisráðherra Mexíkó. Hann
bætti við að þótt H1N1-veiran bær-
ist á milli manna, ólíkt fuglaflensu-
veirunni, væri auðveldlega hægt að
vinna á henni með flensulyfjum „ef
meðferðin hefst á fyrsta degi“.
Nýjustu tölurnar um fjölda lát-
inna og smitaðra byggjast á ná-
kvæmum prófum á rannsókn-
arstofum. Heilbrigðisráðherrann
sagði fyrr í vikunni 159 manns
hefðu „líklega“ dáið af völdum veir-
unnar í Mexíkó en svo virðist sem
dánartalan sé í raun mun lægri
samkvæmt nýjustu fréttum.
Ekki eins banvæn og
fuglaflensuveiran
Vísindamenn segja að fyrstu
rannsóknir á nýju a-flensuveirunni
bendi til þess að hún sé fremur
væg og geti ekki orðið að mjög
mannskæðum heimsfaraldri nema
hún stökkbreytist. Að svo stöddu
sé ógjörningur að spá um hvernig
veiran þróist á næstu vikum og
mánuðum.
Nýja flensuafbrigðið, sem kom
upp í Mexíkó, er af sama und-
irstofni (H1N1) og venjuleg flensa
sem breiðist út árlega og dregur
um 1% þeirra sem smitast til
dauða. Fyrstu rannsóknir benda til
þess að a-flensa H1N1 sé ekki eins
banvæn og fuglaflensuveiran
H5N1 sem óttast hefur verið í um
það bil áratug að stökkbreytist og
verði að mjög mannskæðum heims-
faraldri.
H5N1-veiran getur stökkbreyst
hratt og breiðist ört út meðal fugla
en fremur óalgengt er að fólk smit-
ist af henni og hún berst ekki á
milli manna.
Ekki mikil hætta
á „ofurveiru“
H1N1-veiran sýkir þekjufrumur
í efri hluta öndunarfæranna og
þegar það gerist verða flensuein-
kennin yfirleitt væg. Hins vegar
breiðist þá veiran mjög auðveld-
lega út með hósta og hnerra.
H5N1-veiran sýkir hins vegar
frumur í lungunum og víðar í lík-
amanum en ekki í efri hluta önd-
unarfæranna. Þegar veiran sýkir
frumur í lungunum verða einkenn-
in yfirleitt miklu alvarlegri og ban-
vænni, eins og þegar fólk hefur
fengið H5N1-veiruna úr fuglum.
Vísindamenn telja ekki mikla
hættu á því núna að væga H1N1-
veiran blandist hættulegu H5N1-
veirunni og úr verði stórhættulegt
veiruafbrigði sem geti í senn borist
auðveldlega á milli manna og valdið
mjög alvarlegum veikindum sem
dragi marga til dauða.
Að sögn vísindamannanna bendir
að minnsta kosti ekkert til þess að
þessi hætta sé meiri nú en áður.
Veiran ekki eins skæð
í Mexíkó og óttast var
Fyrstu rannsóknir benda til þess að flensan sé fremur væg
Reuters
Smitaður Mexíkóskur ferðamaður
lagður inn á sjúkrahús í Hong Kong.
STAÐFEST var í gær að nýja
flensuafbrigðið hefði borist til
Hong Kong og er það fyrsta stað-
festa a-flensutilfellið í Asíu. Yf-
irvöld í Hong Kong sögðu að ferða-
maður frá Mexíkó hefði reynst
vera með a-flensu (H1N1), eða
svínaflensuveiruna. Gripið var til
þess ráðs að setja allt hótel ferða-
mannsins í sóttkví.
Ennfremur var staðfest í gær að
kona í Danmörku hefði verið
greind með nýja flensuafbrigðið.
Konan er á batavegi, þurfti ekki að
taka inn lyf en verður í sóttkví þar
til á miðvikudaginn kemur. Konan
smitaðist í New York og fór á
sjúkrahús vegna vöðvaverkja og
hósta eftir að hún kom til Dan-
merkur á miðvikudaginn var.
Nýja flensuafbrigðið hefur nú
borist til fjórtán landa. Hermt var í
gær að þýskur hjúkrunarfræðingur
hefði smitast af veikinni þegar
hann annaðist sjúkling en náð sér
fljótlega. Þá var staðfest að Skoti,
sem hefur ekki ferðast til Mexíkó,
hefði smitast og er það í fyrsta
skipti sem veiran berst á milli
manna í Bretlandi.
Veiran hefur borist til Asíu og Danmerkur
UTANRÍKISRÁÐHERRA Srí
Lanka, Palitha Kohona, hefur við-
urkennt í sjónvarpsviðtali að stjórn-
arher landsins
hafi gert loft-
árásir á griða-
svæði sem stjórn-
in hafði komið
upp fyrir tugi
þúsunda
óbreyttra borg-
ara sem flúðu
átök hersins og
Tamíl-tígranna á
norðaustanverðri
eyjunni.
Utanríkisráðherrann lagði hins
vegar áherslu á að loftárásirnar
hefðu beinst að stórskotavopnum
tamílskra uppreisnarmanna og engir
óbreyttir borgarar hefðu verið á
svæðinu þegar árásirnar voru gerð-
ar.
Þetta eru viðbrögð utanrík-
isráðherrans við fréttum um að
gervihnattamyndir í skýrslu Samein-
uðu þjóðanna, sem lekið var í fjöl-
miðla, virtust sanna að loftárásir
hefðu verið gerðar á griðasvæðið, að
því er fram kemur á vef The Times.
Fréttavefur BBC hafði eftir utan-
ríkisráðherranum að ekkert benti til
þess að „stjórnarherinn bæri ábyrgð
á þessum sprengingum“ og tals-
maður stjórnarhersins sagði að Tam-
íl-tígrarnir hefðu gert sprengjuárás-
ir á svæðinu.
Kohona sagði hins vegar í viðtali
við arabíska sjónvarpið al-Jazeera að
stjórnarherinn hefði fundið stór-
skotavopn á svæðinu og gert árásir
til að eyðileggja þau. Árásirnar hefðu
því verið „fullkomlega lögmætar“.
Utanríkisráðherranum þótti það
undarlegt að Sameinuðu þjóðirnar
skyldu geta notað svo nákvæmar
gervihnattamyndir af svæðinu.
„Hvers vegna stunda Sameinuðu
þjóðirnar slíkar njósnir á Srí
Lanka?“ spurði hann.
Viðurkennir loft-
árásir á griðasvæði
Neitar ásökunum um stríðsglæpi
Í HNOTSKURN
» Mannréttindahreyfingarsegja að rannsaka þurfi
gervihnattamyndirnar betur
en þær kunni að vera mik-
ilvægustu sönnunargögnin til
þessa um stríðsglæpi á Srí
Lanka.
» Stjórn landsins hefurítrekað neitað því að hafa
gert sprengju- eða loftárásir á
svæðið frá 12. febrúar þegar
hún lýsti því yfir að það væri
griðasvæði.
Palitha
Kohona